Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1988, Qupperneq 41

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1988, Qupperneq 41
■ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 1988. 53 Sviðsljós AfiYiælisbarnið Indriði Indriða- son sést hér ásamt góðvini sínum, Sigurbirni Einarssyni biskup. r Indriði Indriðason rithöfundur varð áttræður sunnudaginn 17. apríl. Indriði er einn merkasti ættfræðingur landsins og hafa koraið út eftir hann Ættir Þingey- inga í flórura bindum. Nú vinnur hann að undirbúningi fimmta og sjötta bindis. Indriði hefur starfað mikið að bindindismálum og var um tima stórtemplar. Einnig hefur hann verið formaður Ættfræðifélags- ins og Myntsafnarafélags íslands. Indriði hefur unnið mikið að nán- ari samskiptum íslendinga og Vestur-íslendinga og verið í stjóm Þjóðræknifélags íslend- inga. Þá hefur Indriði verið í stjóm Rithöfundasambands fs- lands, Félags íslenskra rithöf- unda og Félags Þingeyinga í Reykjavík og i Reglu musteris- riddara. Indriði er eldhress í anda og vinnur ennþá að fræðistörfum af mikilli eljusemi. Fjöldi manns mætti í afmæli- sveislu Indriða sem haldin var í Templarahöllinni, Eiríksgötu 5, og lætur nærri að það hafi verið 200 manns. Ámi Norðfiörð, gjaldkeri fijá Ste- fáni Thorarensen og Guömundur Erlendsson ijósmyndari. DV-myndir BG Eldri félagar Ungmennafélags Reykdæla við nýja fðnann. DV-myndir Snorri Kristieifsson •* 4. Hi m m l Ungmennafélag Reykdæla 80 ára Snorri Kristleifesan, DV, Borgaifirði: Ungmennafélag Reykdæla varð áttatíu ára á sumardaginn fyrsta. Af því tilefni var efnt til hátíðarsam- komu að Logalandi. Flutt vom ávörp og rifjuð upp saga félagsins. Formað- urinn, Pétur Pétursson, aíhenti elstu félögunum nýjan fána, sem keyptur var fyrir þetta tækifæri. Yngri deild- in annaðist skemmtiatriði og söng. Einnig söng kirkjukór Reykholts- sóknar nokkur lög. Að lokum var kaffi drukkið með miklu og góðu meðlæti. Aðeins tveir stofnfélagar em enn á lífi, það em þeir bræður Þórður og Þorsteinn Kristleifssynir frá Stóra-Kroppi. Yngri deildin annaðist skemmtiatriði. Siguijón J. Sigurðssan, DV, ísafirði ísafjörður: Menntaskólanemar dimittera Síðasti kennsludagur þessa kennsluárs, dimission, 1 Menntaskólanum á ísafirði var annan dag hörpu. Þeir nemendur, sem ætla sér að yfirgefa skólann á þessu vori með hvítan koll, brugðu aö vanda á leik þennan síðasta dag sinn í skólanum og höguðu sér alveg eins og fifl; eins og regl- ur gera ráð fyrir. Það hefur í gegnum árin verið venja að útskriftaraðallinn, eins og hæst- virtir 4. bekkingar eru stundum kallaðir, klæði sig venju fremur óvenju- lega þennan síðasta dag sinn í skólanum og var sú regla í hávegum höfð nú sem endranær. Aö þessu sinni klæddu krakkarnir sig líkt og amerísk- ir knattspyrnumenn og fór það þeim bara nokkuð vel eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Yngri kynslóðin hafði gaman af aö fylgjast með útskriftaraðlinum sprella, eins og venja er á þessum degi. DV-mynd SJS Vinabæjamót Siguijón J. Sigurðssan, DV, ísafirði: Félagsstarf aldraðra á ísafirði er og hefur verið með miklum blóma. Fyrir skömmu buðu aldraðir á ísafirði kollegum sínum frá Bolung- arvík í heimsókn á Hlíf. Var þar um að ræða nokkurs konar vinabæjar- heimsókn, sem vonast er til að geti orðiö árlegur viðburður. Á vinabæjamótinu var boðið upp á margvísleg skemmtiatriði. Kór aldr- aöra, sem varð til í félagsstarfi aldraðra á Hlíf, söng nokkur lög, hjá öldruðum kvartett þeirra bræðra Sævars og Torfa Einarssonar og tveggja kvenna úr Súðavík skemmti, félagar úr Harmonikkufélagi Vestíjaröa léku viö góðar undirtektir. Auk þess komu böm frá Dansskóla Dagnýjar Bjarkar Pétursdóttur og sýndu dans og buðu öldruöum félögum upp. Margt fleira var til skemmtunar en vitanlega fór mikill timi í þaö að ræöa málin og njóta þeirra glæsilegu veitinga sem í boöi voru. Börn úr dansskóla Dagnýjar Bjarkar Pétursdóttur dönsuðu. DV-myndir SJS Ólyginn sagði... Christina Onassis sem á eina dóttur er oröin vonlít- il um að eignast son. Hún hefur því á pijónunum áform um aö ættleiöa tvo drengi, helst tvíbura, og skíra þá Aristotle og Alexand- er í höfuöið á íoður sínum og bróður. Christina Onassis á að baki misheppnað hjónaband með Thierry Roussel, en með honum eignaðist hún dótturina Tinu. Cher er nú oröin svo efnuð að hún get- ur nánast veitt sér allt sem hún vill af veraldlegum hlutiun. Hún er með ungum manni af ítölskum ættum, sem heitir Tom Camiletti, en hann er mikill bíladellumað- ur. Um daginn fóru þau og prufukeyrðu glæsikerru af gerð- inni Ferrari Testarossa. Sú bif- reiö kostar ekki nema 5 milljónir króna. Camiletti var svo hrifinn af bifreiðinni að Cher snaraði fram ávisun fyrir bílnum og gaf kærastanum. Kirstie Alley leikkonan með hijúfu röddina sem leikur í framhaldsþáttunum Stríðsvindar sem sýndir eru á Stöö 2, hefur einnig getið sér gott orð í framhaldsþáttunum Staupa- steini. Hún leysti þar leikkonuna Shelley Long af, og leikur eiganda barsins sem Ted Danson stjórnar. Þrátt fyrir viskírödd sína og hlut- verk sitt í Staupasteini, smakkar hún aldrei vín. Móðir Kirstie lést í bílslysi af völdum drukkins öku- manns, og eftir það atvik hefur Kirstie ekki smakkað dropa af áfengi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.