Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1988, Page 21
MÁNUDAGUR 2. MAl 1988.
Fréttir
21
Fiskmarkaður Norðurlands:
„Málin eru öll
í biðstöðu núna“
- segir Þorleifur Þór Jónsson stjómarformaður
Gylfi Knstjánsson, DV, Aknreyii:
Eins og fram hefur komið ákvað
aðalfundur Fiskmarkaðar Norður-
lands hf. að halda framhaldsaðalfund
í maí og nota tímann fram að þeim
fundi til að kanna hug hluthafa til
áframháldandi reksturs markaðar-
ins.
„Það er ósköp lítið um málin að
segja á þessu stigi,“ sagði Þorleifur
Þór Jónsson sem kjörinn var stjóm-
arformaður fiskmarkaðarins á
aðalfundinum á dögunum. „Við er-
um að ræða við hluthafana og þeir
eru að kynna sér niðurstöður aðal-
fundarins. Á meðan málið er á þessu
stigi er ekkert meira um það að
segja.“
Sáralítill fiskur hefur borist til
markaðarins þann tíma sem hann
hefur starfað. Því kom framtíð mark-
aðarins til umræðu á aðalfundinum,
en raddir hafa verið uppi um að
leggja hann niður vegna þess hversu
lítill fiskur bærist til sölu. Þykir
mörgum sem stórir hluthafar, sem
hafa yfir miklum fiski að ráða, hafi
hunsað markaðinn og ekki einu sinni
selt fisk á markaðnum þótt þeir
hefðu meira en nóg hráefni til
vinnslu hjá sínum fyrirtækjum.
Blanda (læddi yfir veginn i Langadal í liðinni viku. Af þeim sökum var
Norðurlandsvegur lokaður um fíma. Vegfarendur urðu að leggja lykkju á
leið sína og aka Svinvetningabraut. DV-mynd Geir Guðsteinsson
Setfoss:
Afsláttur sem
mavga gleður
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Eldri borgarar á Selfossi, svo og
öryrkjar, hafa verið að fá bréf frá
bæjarstjórninni undanfarna daga,
sem gleður þá mjög. Það er lækkun
á fasteignagjöldum.
Brynleifur Steingrímsson, læknir
og forseti bæjarstjórnar, er formaður
nefndar sem leggur á gjöldin. Eldri
borgarar, sem hafa átt hér heima
lengi, segja mér að núverandi fast-
eignanefnd fari yfir framtöl fólks af
miklu meiri nákvæmni nú en áður
og afsláttur hafi þá á stundum verið
handahófskenndur.
Einstaklingur með 300 þúsund fær
nú 100% afslátt. Einstaklingur með
300-389 þúsund fær 75% afslátt. Þeir
sem eru með 389 til 504 þúsund fá 50%
afslátt, en þeir sem eru með 505 til
675 þúsund fá 25% afslátt. Þeir sem
eru með meiri tekjur fá ekki afsiátt.
Hjón sem eru með allt að 440 þús-
und fá 100% afslátt á fasteignagjöld-
unum. 440-549 þúsund kr. fá 75%
afslátt. Hjón með 550 til 668 þúsund
fá 50% afslátt og hjón með 687 til 857
þúsund fá 25%.
Viðskiptabann á S-Afríku
Lagafrumvarp um viðskiptabann á
S-Afríku og Namibíu hefur verið lagt
fram á Alþingi og standa að því full-
trúar allra flokka nema Borgara-
flokksins. Fyrsti flutningsmaður er
Kjartan Jóhannsson.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir að
óheimilt verði að flytja til íslands
vörur sem upprunnar eru í S-Afríku
eða Namibíu. í greinargerð með
frumvarpinu er bent á að með sam-
þykkt þessa frumvarps fylgjum við
fordæmi annarra Norðurlandaþjóða.
-SMJ
Vftni vantar
Sparkað var í bifreiö af gerðinni
Subaru Justy árgerð 1988 við versl-
unarmiðstöðina Miðvang í Hafnar-
firði á milli klukkan 10 og 14
laugardaginn 16. apríl. Möguleiki er
að sparkað hafi verið í bifreiðina
kvöldið áður, þá var bifreiöin við
Bræöraborgarstíg í Reykjavík.
Bifreiðin er mikiö dælduð aftarlega
á vinstri hhð. Sparkið hefur verið
fast og greinilegt að þaö er ekki eftir
barn.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um
hver var þarna að verki eru vinsam-
legast beðnir að hafa samband við
lögregluna í Reykjavík eða eiganda
bifreiðarinnar í síma 23783.
HEFILL, breidd 26, 31 eða 41 cm. Mesta þykkt á þykkt-
arhefli er 20 cm. Framdrif 7,5 m á mín. Nótbor á hefil-
spindli með snúningi i báðar áttir.
SÖG - 4800 snúningar á min. Blaðstærð 300 mm.
Sagar allt að 95 mm þykkt efni. Hallastilling á sög úr
90” í 45°. Kúttland á kúlulegum.
FRÆSARI - spindill 30 mm, lengd 160 mm. Snúningur
í báðar áttir. Hraðaval 3800, 6100 eða 7800 snúningar
á minútu. Mesta þvermál kúttar 270 mm. Hallastilling
á spindli úr 90“ í 45°.
Borðhæð er 80-83 cm. Þyngd 590 til 830 kg. Mótorar
eru þrir 3ja fasa eða einfasa og tvíhraða. Hægt er að
velja á milli 3 eða 4 hestafla mótora. Útvegum einnig
sérbyggðar trésmíðavélar frá FELDER i Austurríki.
KOMIÐ OG REYNIÐ SÝNINGARVÉL OKKAR
ÁSBORG
Smiðjuvegi 11, Kópavogi
Sími 91-641212
Innlend verksmíð hefur sannað sig bæði í gæðum og endingu.
____________________Hafðu okkur með í ráðum.______________________________
Skrifstofan er opin frá kl. 09:00 til kl. 17:00 virka daga.