Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1988, Qupperneq 38
50
MÁNUDAGUR 2. MAÍ 1988.
Jarðaifarir
Sigrún Jónsdóttir frá Patreksfiröi,
Hjallavegi 10, Reykjavík, lést 24. apríl
síöastliðinn. Hún fæddist 8. septemb-
er 1918 á Patreksfiröi, dóttir Jóns
Indriðasonar og Jónínu Jónsdóttur.
Árið 1943 gekk hún aö eiga eftirlif-
andi eiginmann sinn, Garðar Jó-
hannsson frá Svínárnesi á Látra-
strönd. Stofnuðu þau heimili á
Patreksfirði. Þau eignuðust sjö böm.
Hallur Kristjánsson, fyrrverandi
póstfulltrúi, Úthlíð 7, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 3. maí kl. 10.30.
Guðbjörg Guðmundsdóttir frá Skip-
hyl, Leifsgötu 7, andaöist í Landa-
kotsspítala 25. apríl. Jarðarfórin fer
fram þriðjudaginn 3. maí frá Foss-
vogskirkju kl. 13.30. .
Eyjólfur Snæbjörnsson, Heiðargerði
92, verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju þriðjudaginn 3. maí kl. 15.00.
Guðrún Guðjónsdóttir, Hrafnistu,
Reykjavík, veröur jarðsungin frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 3. maí
kl. 15.00.
Kristinn Björnsson rafvirkjameist-
ari, Ásgarði 3, Keflavík, er andaðist
24. apríl, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 3.
maí kl. 14.00.
Andlát
Sesselía Ólafsdóttir frá Litla-Laug-
ardal, Tálknafirði, lést á Hrafnistu
aðfaranótt 28. apríl.
Sigrún Þórarinsdóttir, Tunguvegi 2,
lést á Sólvangi 26. apríl.
Hólmsteinn Helgason, útgerðarmað-
ur á Raufarhöfn, andaðist í Hrafnistu
í Reykjavík 29. apríl.
Eyþór Aðalsteinn Thorarensen lyfa-
fræðingur, Akureyri, er látinn.
Gisli Bjarnason, fyrrverandi vél-
stjóri, Efstalandi 8, Reykjavík, lést í
Hátúni lOb 27. apríl.
Ingibjörg Sveinsdóttir frá Felli, Bisk-
upstungum, lést á Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur 28. apríl.
Rannveig Þór lést að Droplaugar-
stöðum 28. apríl.
Margrét Þórarinsdóttir, Háaleitis-
braut 26, Reykjavík, lést í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu ísafirði 29. apríl.
Páll Kr. Pétursson, Ljósheimum 14,
lést á Landspítalanum 28. apríl.
Sigrún Jónsdóttir frá Patreksfirði,
Hjallavegi 10, Reykjavík, lést 24. apríl
síðastliðinn.
Bjarni Viggósson, Hafnargötu 13,
Stykkishólmi, lést í Borgarspítalan-
um 27. apríl.
Erla Kristjánsdóttir frá Súganda-
firði, Álftahólum 4, Reykjavík, lést á
heimili sínu 29. apríl.
Hólmsteinn Helgason, útgerðarmað-
ur á Raufarhöfn, lést á Hrafnistu í
Reykjavík 29. apríl.
Margrét Þórarinsdóttir, Háaleitis-
braut 26, Reykjavík, lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu ísafirði fóstudaginn 29.
apríl.
Sigrún Þórarinsdóttir, Tunguvegi 2,
lést á Sólvangi þann 26. ap- II.
Rannveig Þór lést á Droplaugarstöð-
um að kvöldi 28. apríl.
Páll Kr. Pétursson, Ljósheimum 14,
Reykjavík, lést í Landsspítalanum
fimmtudaginn 28. apríl.
Ingibjörg Sveinsdóttir frá Felli í
Biskupstungum, til heimilis í Miö-
túni 7, lést á Heilsuvemdarstöð
Reykjavíkur 28. apríl.
Ragnar Á. Sigurðsson sparisjóðs-
stjóri lést á Fjórðungssjúkrahúsinu
í Neskaupstaö þann 29. apríl.
Sigríður Gísladóttir húsfrú, Esju-
bergi, Kjalamesi, lést á Borgarspítal-
anum fóstudaginn 29. apríl.
Steinn Egilsson, Hátúni 8, lést í
Landakotsspítalanum 29. apríl.
Menning
Leikur í málverki
Theodór Júlíusson i hlutverki sínu sem Tevje i Fiðlaranum á þakinu.
Leikfélag Akureyrar sýnir:
Fiðlarann á þakinu.
Verkið er byggt á sögum Shalom Alelc-
hem.
Handrit: Joseph Stein
Söngtextar: Sheldon Harnik
Tónlist: Jerry Bock
Þýðing leiktexta: Egill Bjarnason
Þýðing söngtexta: Egill Bjarnason og
Þórarinn Hjartarson.
Lýsing: Ingvar Björnsson
Tónlistarstjóri: Magnús Blöndal Jó-
hannsson
Leikmynd og umsjón með búnlngum:
Sigurjón Jóhannsson
Höfundur dansa: Juliet Naylor
Leikstjóri: Stefán Baldursson
Mikið vatn hefur mnnið til sjávar
síðan nyólkurpósturinn Tevje náði
fyrst eyrum heimsins með söngv-
um sínum og góðlátlegu spjaUi við
Guð.
Hann kom með mjólkurvagninn
sinn og fjölskylduáhyggjur inn í
bandaríska söngleikjahefð þar sem
steppandi glanspíur höfðu ráöið
ríkjum um langan aldur. Þó að
þetta leikform nái seint einhverri
dramatískri dýpt tókst þó höfund-
um Fiðlarans að slá á nýja strengi
og yfirfæra mannlega gamansemi
og hlýju úr sögunum um rússneska
gyðinginn Tevje yfir í söngleikinn
og allar götur síðan hefur verkið
notið mikilla vinsælda.
Söngleikurinn, sem fyrst var
sýndur á Broadway árið 1964, var
síöan settur upp víðs vegar um
heim, m.a. hér í Þjóðleikhúsinu
1969 og á Húsavík tíu árum síðar,
svo að margir þekkja verkiö og
ennþá fleiri lögin úr því.
Hvers vegna þá að vera að setja
það upp enn einu sinni? Sérstak-
lega þar sem það er mjög í tísku
nú um stundir að amast ákaflega
við sýningum söngleikja á fjölum
atvinnuleikhúsanna. Mega menn-
ingarpostular vart vatni halda af
vandlætingu og keppast við að vísa-
öllum slíkum vélvæddum popptón-
leikum norður og niður. Víst er um
það að norður fór Fiðlarinn, þar
sem Leikfélag Akureyrar frum-
sýndi verkið síðastliðið föstudags-
kvöld.
Auövitað er von um góða aðsókn
einn þáttur í þeirri ákvörðun L.A.
að taka enn einu sinni söngleik til
sýningar á vordögum. Það hefur
áður gefist vel. En forráðamenn
Leikfélagsins sýna að þeir vilja
vanda vel til sýningarinnar og fá
líka góða gesti til liðs við sig.
Einn þeirra er Sigurjón Jóhanns-
son sem gerir leikmyndina. Hún
er í rauninni risavaxið málverk í
stíl rússneska málarans Marc Cha-
gall, mannsins, sem málaði í
kröftugum litum, m.a. alls kyns
ævintýraverur, fisléttar og jarð-
bundnar í senn. Fólkið í myndum
hans svífur um ofar húsaþökum
og ýmis fyrirbrigði, tengd minning-
um frá æsku hans í Rússlandi,
koma oft fyrir, svo sem fiðluleikar-
inn, hænurnar og kýrnar, fólkið,
blómin og þorpin.
Verkum Chagalls fáum við að
kynnast af eigin raun á Listahátíð
nú í vor en það er fiðlarinn hans
sem gefur þessum söngleik nafn.
Hann verður tákn fyrir alla þá sem
bjóða aðstæðunum birginn og lifa
af hinar ótrúlegustu hremmingar
þar sem hann stendur á húsmæni
og spilar af list, þrátt fyrir að hann
Leiklist
Auður Eydal
eigi sífellt á hættu að hrapa niður
og hálsbrjóta sig.
Leikmynd Sigurjóns er þannig að
menn reka upp stór augu þegar
þeir ganga í salinn og við blasir
heil ævintýraveröld, máluð í sterk-
um litum. Þessi bakgrunnur virðist
við fyrstu sýn spennandi lausn og
til þess fallinn að skapa nýjan
ramma um þetta gamalkunna
verk, enda kemur það á daginn
þegar sýning hefst.
Stefán Baldursson er leikstjóri og
yfirbragö sýningarinnar er vandað
og áreynslulaust. Hér sem oftar
tekst Stefáni að laða fram allt það
besta í hverjum manni. Hópatriðin
eru líka sérstaklega vel unnin, svo
að athygli vekur.
Af slíku mætti nefna kráratriði
en þar gera þeir út um kvennamál-
in, ny ólkurpósturinn og slátrarinn,
Lazar Wolfe. Nú eða brúðkaupið,
þar sem Juliet Naylor dansahöf-
undur á stóran þátt í því að allt
gengur upp en hún hefur unnið
mjög vel með hópnum og dansat-
riðin smella furðuvel saman.
Sabbatsbænin er eitt af fallegustu
atriðinum í sýningunni og draum-
farir Tevjes með draugalegum
tilþrifum voru prýðisvel útfærðar
og svo mætti lengi telja.
Það er meira en lítið mál að púsla
rúmlega fimmtíu manns, þegar
flest er, inn á sviðið, en allt gengur
það upp og leikmyndin er, eins og
fyrr segir, nýtt á margvíslegan hátt.
Þar sem virðist vera heOl flötur við
fyrstu sýn opnast skyndilega
gluggi, hurð eða hlið, þegar við á,
og frábærlega vel unnin lýsing Ing-
vars Björnssonar fullkomnar svo
myndina.
Mjólkurpósturinn Tevje er leik-
inn .af Theodór Júlíussyni sem
leikur þennan góðlátlega og grand-
vara mann samkvæmt þeirri hefð
sem hefur myndast um hlutverkið.
Theodór er orðinn mjög öruggur
leikari og túlkun hans fær hér
meiri fyllingu en oft áður. Söngat-
riðin fer hann vel með.
Samleikur hans og dætranna er
með ágætum en mikill hluti at-
burðarásarinnar fjallar um það
hvernig á að finna dætrunum góða
eiginmenn. En þar sem Tevje á
hvorki meira né minna en fimm
slíkar, þar af þijár gjafvaxta, er
þetta ærið verkefni.
Og þegar þær vilja sjálfar ráða
hverjum þær giftast þá vandast
fyrst málið.
Anna Sigríður Einarsdóttir leik-
ur Goldu, konu Tevjes. Hún er
róleg og jarðbundin en mætti vera
ákveðnari, meiri valkyrja.
Eldri dæturnar þrjár, Tzeitel,
Hodel og Chava, eru leiknar af
þeim Arnheiöi Ingimundardóttur,
Margréti Kr. Pétursdóttur og Erlu
Rut Harðardóttur sem leika allar
mjög þekkilega. Þær Arnheiður og
Erla sleppa bærilega frá söngnum
en Margrét hefur fallega og þjálf-
aða rödd og söng ljómandi vel,
bæði sem Hodel og eins sem hin
draugalega Fruma-Sarah.
Fjöldinn allur af leikurum kemur
fram og of langt mál að telja þá
alla upp. Aðeins má minnast á
Sunnu Borg í hlutverki Yentu, hjú-
skaparmiðlarans, en hún teflir á
tæpasta vað í bægslaganginum.
Gunnar Rafn Gunnarsson fer vel
með hlutverk klæðskerans hægl-
áta og Skúli Gautason er dálítið
litlaus í hlutverki Perchik, stúd-
entsins, sem einn sér hvert stefnir
og reynir að vara viö hættunni. Þá
skal til viðbótar aðeins nefna Þráin
Karlsson sem er alveg stórgóður í
hlutverki slátrarans.
Yfirleitt voru gervi og búningar,
sem voru fengnir að láni frá Sví-
þjóð, í góöu lagi. Þó var rabbíinn,
sem Árni Valur Viggósson lék, þar
undantekning, hans gervi hefði
þurft að lagfæra, það var ósköp
klúðurslegt.
Magnús Blöndal Jóhannsson er
tónlistarstóri. Hann stjórnar 12
manna hljómsveit sem leikur undir
í verkinu og á stóran þátt í því
hversu vel tekst til með tónhstina
sem auðvitað er lykilatriði í sýn-
ingunni.
Þó að leikendur komist, sem von-
legt er, misjafnlega frá einsöngsat-
riöum eru mörg kóratriðin
prýðileg og sama gildir um hljóm-
sveitina.
Það er alltof einstrengingslegt
sjónarmið að fordæma alla söng-
leiki sem shka og í sjálfu sér er
ekkert athugavert við það að leik-
húsin hafi vel unnar uppfærslur á
söngleikjum á verkefnaskrá sinni
á meðan listrænn metnaður ræður
ferð í verkefnavali aö öðru leyti og
flutningur slíkra verka ýtir ekki
öðrum verkefnum til hliðar.
Mannlegur hljómur sagnanna
um mjólkurpóstinn Tevje og dætur
hans hefur löngum höfðað til
áhorfenda. Tevje vih lifa í friði við
Guð og menn en það gengur nú
svona og svona. Vondir menn með
vélaþras ofsækja gyöingasamfélag-
ið þar sem hann býr með sínu fólki
og dapurlegur undirtónninn og sá
bakgrunnur verksins, sem allir
þekkja, öfsóknir og hreinar útrým-
ingarherferðir gefa verkinu trag-
íska vídd.
Þó að söngleikurinn um fiðlarann
sé orðinn gamalþekktur og söng-
lögin mörg hver satt að segja ansi
lúin og slitin af ofspilun þá ber sýn-
ing L.A. yfir sér ærinn þokka.
Hér hefur náðst mjög góð sam-
vinna og vahnn maður í hverju
rúmi. Sterk og djörf leikmynd Sig-
urjóns og vönduð sviðsetning undir
stjórn Stefáns lyfta sýningunni upp
úr meðalmennskunni og gera það
að verkum að hér er á ferð mjög
ásjáleg sýning sem aðstandendur
mega vera ánægðir með.
Og ef aö líkum lætur verður fiðl-
afinn á þakinu hjá þeim Leikfélags-
mönnum eitthvað fram á sumarið.
Tórúeikar
Tónlistarskólinn í Reykjavík
í dag, mánudag, heldur blásarakennara-
deild Tónlistarskólans í Reykjavík tón-
leika í húsnaeði skólans að Laugavegi 178
og hefjast þeir kl. 20.30. Á tónleikunum
munú þeir nemendur sem útskrifast úr
blásarakennaradeild í vor flytja verk eft-
ir Hándel, Vivaldi, RachmaninofT o.fl. Á
morgun, þriðjudag, kl. 20.30 verða söng-
tónleikar á vegum skólans í Norræna
húsinu. Tónleikar þessir eru síðari hluti
einsöngvaraprófs Anders Josephssonar
bariton og mun hann flytja sönglög eftir
Áma Thorsteinsson, Sigfús Einarsson,
Tore Rangström, Maurice Ravel og Beet-
hoven. Anna G. Guðmundsdóttir leikur
með á píanó.
Tillcynningar
Málfræðideildin Kvistur
heldur fund að Brautarholti 30 mánudag-
inn 2. mai kl. 20.30.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur fund þriðjudaginn 3. maí kl. 20.30
í Sjómannaskólanum. Sumarferðalag
verður ákveðið. Græna línan kemur í
heimsókn. Upplestur og kaffiveitingar.
Hliðum að Heiðmörk lokað
Vegna aurbleytu í vegum og eldhættu
hefur hliðum að Heiömörk við Jaðar,
Silungapoll og Vífússtaði verið lokað fyr-
ir allri umferð um stundarsakir til að
koma í veg fyrir skemmdir á vegum og
gróðri.
Kvenfélag Kópavogs
heldur félagsfund í Félagsheimilinu
fimmtudaginn 5. maí kl. 20.30. Gestir
fundarins verður konur úr kvenfélagi
Seljahverfis. Fjölbreytt skemmtidagskrá.
Félag íslenskra leikara
Um síöustu áramót tók Sigríður Þor-
valdsdóttir leikari við formennsku í
Félagi íslenskra leikara af Arnóri Benón-
ýssyni í kjölfar ráðningar hans sem
leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar en
hann hafði gegnt formennsku félagsins í
rúm tvö ár.
Kvennadeild
Barðstrendingafélagsins
heldur fund á Hallveigarstöðum þriðju-
daginn 3. maí kl. 20.30.
Kvenfélagið Fjallkonurnar
verður með hattafund þriðjudaginn 3.
mai kl. 20.30 í safnaðarheimili Fella- og
Hólakirlgu. Konur úr öðru kvenfélagi
koma í heimsókn. Skemmtiatriði og kaffi-
veitingar.
Sprakk
Nýlega var sett á laggirnar hljómsveit
sem ber nafnið Sprakk. Hún leikur öll
vinsælustu lögin auk þess sem nýtt
frumsamið efni er væntanlegt frá þeim
félögum. Hljómsveitina skipa: Hafþór
Guðmundsson, trommur, Kjartan Valdi-
marsson, hljómborð, Haukur Hauksson,
söngur, Þórður Guðmundsson, bassi og
Eðvarð Lárusson, gitar. Um þessar
mundir er sveitin að vinna að hljómplötu
sem stefnt er á að komi út með vorinu.