Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Side 2
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988.
Fréttir
Alyktun aðalfundar Samtaka fiskvinnslustöðva:
Núverandi skilyrði beinlínis
hættuleg framtíð þessa lands
Jónas Fr. Jónssan, DV, Stykkishólmi:
,Samtök fiskvinnslustööva fara
ekki fram á rekstrargrundvöll fyrir
öll fiskvinnslufyrirtæki heldur að-
eins aö fiskvinnslan verði í heild rek-
in með hagnaði. Núverandi skilyrði
með hallarekstur og vályndar horfur
á erlendum mörkuðum eru ekki ein-
ungis algjörlega óviðunandi heldur
beinlínis hættuleg framtíð þessa
lands," segir í ályktun sem samþykkt
var á aðalfundi Samtaka fiskvinnslu-
stöðva í Stykkishólmi í gær.
Samtökin telja að nú sé komið að
krossgötum þar sem verðbólga sé
meiri en í viðskiptalöndum okkar.
Áður hafi íslendingar þolað slíkt
vegna stöðugrar framleiösluaukn-
ingar í sjávarútvegi en nú fari fiskafli
minnkandi. Fundurinn telur þá fast-
gengisstefnu, sem reynd hefur verið
undanfarin ár meðan kostnaðar-
hækkanir geisuðu innanlands, hafa
skaðað útflutningsatvinnuvegina.
Stöðugt gengi krónunnar standist
ekki nema jafnvægi sé í öllum þátt-
um efnahagslífsins.
í ályktuninni segir aö ef verðbólga
haldi áfram samhhða minnkandi
fiskafla leiði það til hörmunga og
atvinnuleysis. Hægt sé að fleyta sér
áfram á lánum en samtökin hafna
þeirri leið. „Aðeins einn mælikvarði
verður lagður á stjómvöld, hvemig
þau duga í baráttunni við verðbólg-
una.“
- Samtökin benda á að reka verði
ríkissjóð með tekjuafgangi og taka
fyrir aukningu á erlendum lánum
og telja „að þjóðarvakning í baráttu
við verðbólgu, sem hæfist með niður-
færslu launa, verðlags og vaxta, sé
farsælasta leiðin í efnahagsmálum.
Þannig verði óumflýjanleg kjara-
skerðing léttbærust fyrir launþega
þessa lands,“ segir í ályktun-
inni.
Aðalfimdur Samtaka fiskvinnslustöðva:
Hlutverk samtakanna er að
sameina fiskvinnsliifyrirtæki
------------ Violli ficb-ínrmolnnnar mirSofS \riA nií. Viorr rrvoinorimi'i*' i C s
Jónas Fr. Jónssan, DV, Stykkishólmi:
Fiskvinnslufyrirtæki er einka-,
hluta-, sameignar- eða sameignarfé-
lag sem vinnur að framleiðslu eða
sölu á sjávarafurðum. Þessa skil-
greiningu er að finna í nýsamþykkt-
um lögum Samtaka fiskvinnslu-
stöðva. Þau gömlu þóttu úrelt og
voru tekin til gagngerðrar endur-
skoðunar, meira aö segja nafni fé-
lagsins var breytt, það var áður Sam-
band fiskvinnslustöðvanna. Hlut-
verk samtakanna er samkvæmt lög-
unum að sameina öll fiskvinnslufyr-
irtæki í ein samtök og vera málsvari
þeirra út á við. í ársskýrslu stjómar-
innar, sem samþykkt var, segir að
halli fiskvinnslunnar miðað við nú-
verandi aðstæður sé tveir milljarðar
á ári og er hlutur frystingarinnar þar
langmestur en hún er rekin með 12%
halla, söltunin með 1% halla og fisk-
vinnslan samanlagt með 8% halla. í
skýrslunni kemur fram að laun í
fiskvinnslu hafa hækkað um tæp
18%, fiskverð um tæp 8% og annar
kostnaður um 15 til 30%. Fjármagns-
kostnaður hefur vaxiö gífurlega
vegna mikillar birgðasöfnunar tap-
reksfrar og hárra raunvaxta. Á sama
tíma hafa orðið verulegar lækkanir
á sjávarafurðum erlendis. Segir í
skýrslunni aö íslensk fiskvinnsla
muni stöðvast á næstu vikum verði
ekki gripið til ráöstafana sem bæta
hag greinarinnar.
Annað sem gerir útlitið dökkt á
næsta ári er fyrirsjáanlegur sam-
dráttur í þorskveiðum á næsta ári,
mögulegar verðlækkanir á frystum
sjávarafurðum á Bandaríkjamarkaði
og ótryggt verð í Evrópu.
í skýrslunni kemur fram ánægja
með störf starfsfræðslunefndar fisk-
vinnslunnar. Á vegum hennar hafa
fiögur þúsund fastráönir starfsmenn
lokið tilskildum námskeiðum en ætla
má aöqsamtals vinni niu þúsund
manns í fiskvinnslu hérlendis. Und-
irbúningur er að hefiast að gerð
námsefnis fyrir starfsmenn í fiski-
mjölsverksmiðjum og fyrstu nám-
skeiðin hefiast á komandi vetri.
Þetta er í fyrsta skipti sem aöal-
fundur Samtaka fiskvinnslustöðva
er haldinn utan Reykjavíkur en sam-
tökin eru næststærstu samtök innan
Vinnuveitendasambands íslands. Á
fundinn mættu óvæntir gestir, for-
menn stjómarflokkanna og lítill
spörfugl sem flaug um salinn og
einkum yfir borði sfiórnmálamann-
anna. Höfðu menn á orði að vel hefði
verið við hæfi að þetta heföi verið
friðardúfa og sættir tækjust í Stykk-
ishólmi. Steingrímur Hermgnnsson
sagði að þetta væri að minnsta kosti
ekki ránfugl.
Stjómin endur-
kjórin og óbreytt
verkaskipting
Jónas Fr. Jónsson, DV, Stykkishólrru:
Stjóm Samtaka fiskvinnslu-
stöðva var Kjörin á aðalfundi í
Stykkishólmi í gær. Stjómin er
skipuð sömu mönnum og sátu í
henni á síöasta kjörtímabili og
verkaskipting er hin sama. Form-
aður er Arnar Sigurmundsson
frá Samfirosti í Vestmannaeyjum,
varaformaður Ágúst Sigurösson
frá Hraöfrystistöðinni í Reykja-
vík. Aðrir sfiómarmenn em Árni
Guðmundsson, Skildi hf., Sauð-
árkróki, Bryifiólfur Bjamason,
Granda hf„ Konráð Jakopsson,
Hraðfrystihúsinu hf., Hnifsdal,
Kristján Guðmundsson, Fisk-
verkun HeUissands, Sofianías
Cecilsson, Fiskverkun S. Cecils-
sonar, Grundarfirði, Þórbergur
Þórarinsson, Fiskvinnsluimi hf„
Seyðisfirði, og Þorsteinn Áma-
son, Utvegsmiðstöðinni hf„
Keflavík.
Jarð-
skjálfti í
Grímsey
Jarðskjálftakippir og órói fund-
ust í Grímsey í gær. Haröasti
kippurinn mældist vera 4,5 á
Richter. Sá kippur kom klukkan
14.40. Annar veikari fannst
klukkan 17.09. í gærkvöldi fór
óróinn minnkandi.
Ekki er vitað um neinar
skemmdir af völdum jarðskjálft-
anna.
Veikur jarðskjálftakippur
fannst einnig á Þórshöfn á Langa-
nesi í gær.
-sme
Skákmótiö í Tilburg:
Jóhann
tapaði
fýrir
Portisch
Jóhann Hjartarson mátti sætta sig
við tap fyrir Portisch frá Ungverja-
landi í 3. umferð stórmótsins í Til-
burg í Hollandi. Jóhann var með
svart í skákinni og sá ekki til sólar
enda hefur honum ávallt gengið mjög
illa gegn byijanasnillingnum Port-
isch. Karpov, sem vann sína skák við
Timman, er efstur með 2 Vi vinning
eftir 3 umferðir. Jóhann er með einn
vinning. -SMJ
Skemmdarverk á ísafírði:
Bíll fannst
á kafi
í höfninni
Einhver hefur, annaðhvort af
slysni eða í skemmdarhug, komið bíl
í höfnina á ísafirði. Lögreglan hefur
engan grunaöan en rannsókn máls-
ins er skammt á veg komin. Bílhnn
fannst í höfninni í gærmorgun. Hann
hafði staðið á bryggjunni einn eða
tvo daga.
Bíllinn er mikið skemmdur. Sá sem
kom bílnum í höfnina hafði ekki ráð-
stöfunarrétt yfir honum.
-sme
Atta ára stúlka
varð fyrir bíl
Átta ára gömul stúlka hljóp fyrir
bíl við Kennaraháskólann í hádeginu
í gær. Stúlkan slasaðist og var flutt
á slysadeild. Bílnum var ekið austur
Flókagötu á hægri ferð þar sem hann
var nýfarinn yfir hraðahindrun. Tal-
iö er að hraðahindrunin hafi komið
í veg fyrir alvarlegra slys en raun
varð á.
Þriggja bíla árekstur varö á mótum
Reykjanesbrautar og Bústaðavegar
um klukkan þijú í gærdag. Einn öku-
maöur var fluttur á slysadeild. Bíl-
arnir skemmdust mikið þar sem
áreksturinn var nokkuð harður.
-sme
RHisber og kartöflur
DV-mynd BB, ísafirði Regína Thararensen, DV, SeHosá:
Bíllinn er mikið skemmdur eftir að hafa verið í sjó um hálfan sólarhring.
Lögreglan leitar þess sem framdi þetta skemmdarverk.
Góð rifsbeijaspretta er á Selfossi
og hefur fólk verið við tínslu undan-
fama daga því að berin eru orðin vel
þroskuð. Einnig er góð kartöfluupp-
skera og Selfossbúar löngu farnir að
borða upp úr eigin görðum. Auðvitað
finnst öllum bestar kartöflurnar úr
sínum garði.