Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988. 3 dv Fréttir ^ -i. i. . M Astandið í ríkissijórninm orðið rafmagnað: 011 skynsemi er nú horf- in úr atburðarásinni - segir einn stjómarliða um ástandið Ástandið í ríkisstjórninni er nú orðið rafmagnað. Á sama tíma og forystumenn stjórnarflokkanna keppast við að hafna tillögum hver annars skjóta þeir fóstum skotum á samstarfsflokkana í fjölmiðlum. Nú eru aflar leiðir opnar sem aldrei fyrr; stjómarsflt, kosningar, stjórnar- myndun og sámkomulag. Ahrifamaður innan Sjálfstæöis- flokksins sagði í samtali við DV að framsóknarmenn hefðu að undan- fómu verið að þrýsta á Þorstein svo hann sliti stjómarsamstarfinu en nú væri Þorsteinn byijaður að þrýsta á móti. Einn stjórnarliða lýsti ástand- inu svo að öfl skynsemi væri horfin úr atburðarásinni. Það væri með engum hætti hægt lengur að reikna framhaldið af því sem gerðist hveiju sinni. Annar lýsti því svo að aflir vildu út en enginn vildi verða til þess að slíta stjórnarsamstarfinu. Sjálfstæðismenn huga að kosningabaráttu Á meðan forsætisráðherra sat ásamt samráöherrum sínum ársfund Sambands fiskvinnslustöðvanna unnu menn í Þjóðhagsstofnun, Seðlabanka og forsætisráöuneytinu við að útfæra tillögur hans í efna- hagsmálum. Meðal þess sem verið er að kanna eru áhrif verðbóta úr frystideild Verðjöfnunarsjóös sjávarútvegsins og endurgreiðslu söluskatts á af- komu frystingarinnar. Þá er og verið að reikna út hvaða áhrif það hefði á stöðu greinarinnar ef 3 prósent geng- isfelling, sem Seðlabankinn hefur þegar fengið heimild fyrir, yrði fram- kvæmd. Áhrifin eru bæði kannaðar í ljósi þess að gengið verði fellt um næstu mánaðamót og einnig að geng- ið verði látið síga um 3 prósent á nokkrum vikum. Þá eru og gerðar verðbólguspár, byggðar á hugmyndum forsætisráð- herra, og kannað hvaða áhrif þær hafa á kaupmátt og vexti. Á sama tíma er mikið rætt innan Sjálfstæðisflokksins um hugsanleg stjómarslit. Mikil fundahöld eru ráð- gerð um helgina. Innan flokksins er ráðgert að reikna út til hlítar bæði tillögur Þorsteins og niðurfærsluna, samkvæmt heimildum DV. Ef engin samstaða fer að myndast innan stjómarinnar er ætlunin að birta þessa tvo kosti opinberlega. Með þeim hætti hugsa sjálfstæðismenn sér að byija komandi kosningabar- áttu, það er stilla saman þeim kosti, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafnaði, og þeim sem hann vildi fá í gegn og áhrifum þeirra á kaupmátt og af- komu fyrirtækjanna. Framsóknarmenn hafna millifærslu Það er þegar orðið ljóst að fram- sóknarmenn munu eiga erfitt með að kyngja einhvers konar mifli- færsluleið, hvort sem hún yrði í anda tillagna Þorsteins eða í þeim búningi sem Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra hefur hugsað henni. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra hefur lýst þvi yfir að hann telji þessa leið hættulega. I samtali við blaðamann DV í Stykkishólmi í gær sagði Steingrím- ur Hermannsson utanríkisráðherra að millifærsla væri bráðabirgðaúr- ræði sem ekki mætti vara nema í fáeina mánuði. Til hennar mætti ekki grípa nema við tæki eitthvað sem fæfl í sér raunhæfar úrbætur. Steingrhnur bætti því við að hann efaðist um að það yrði ef gripið yrði til millifærsluleiðarinnar nú. Alþýðuflokksmenn hafa unnið að fullmótim sinna tillagna og útreikn- ingum á áhrifum þeirra. í millifærslu þeirra er gert ráð fyrir frystingu verðlags yfir sama tíma og laun verða fryst. Eins og fram kom í DV í gær hafn- aði Þorsteinn Pálsson verðstöðvun og sagðist ekki vilja skrökva að neyt- endum með þeim hætti. Jón Sigurðs- son svarar þessum ummælum í DV í dag og segist heldur ekki vilja skrökva. Hann segir sínar tillögur velta á framkvæmdinni á sama hátt og tillögur Þorsteins. -gse Það er heldur óskemmtileg tilhugsun að vita til þess að í heimahúsum liggur fjöldinn allur af spariskírteinum ríkissjóðs sem láðst hefur að innleysa, og mörg þeirra eru því hætt að bera ávöxt. Ef þú átt slík skírteini viljum við hvetja þig til að koma til okkar í Verzlunarbankann og innleysa þau. 10. september er nýr innlausnardagur fyrir spariskírteini að upphæö 2,6 milljarða. MARGIR KOSTIR - ALLIR GÓDIR. Við erum reiðubúin að hjálpa þér að vega og meta hentugar ávöxtunarleiðir fyrir andvirði skírteinanna. Þú getur t.d. valið KASKÓREIKNING, RENTUBÓK eða ný SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS, allt eftir því hvað hentar aðstæð- um þínum og markmiðum. Verzlunarbankinn býður þér einnig upp á þá þægilegu þjón- ustu að taka skírteinin þín í geymslu og sjá um áframhaldandi ávöxtun þegar kemur að innlausnardegi. Alltaf velkomin (n). VERZLUNARBANKINN -vituucittteðfiái! ÞARABAKKA 3 UMFERÐARMIÐSTÖÐINNI VATNSMÝRARVEGI 10 BANKASTRÆTI 5 LAUGAVEGI 172 GRENSÁSVEGI 13 HUSI VERSI.UNARINNAR KRINGLUNNI 7 ÞVERHOLTI 6, MOSFELLSBÆ VATNSNESVEGI 14, KEFLAVÍK An ÞU SPARISKIRTEINI SEM ERU HÆTT AÐ BERA ÁVÖXT?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.