Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Side 4
4 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988. KENNARAR - KENNARAR Héraðsskólann í Reykjanesi við ísafjarðardjúp vantar 2 áhugasama kennara til að kenna ensku, dönsku, íslensku og samfélagsgreinar. Mjög góð vinnuaðstaða og gott ódýrt húsnæði. Nánari upplýsingar eru fúslega veittar hjá skólastjóra í símum 94-4840 og 94-4841 og hjá grunnskóla- deild menntamálaráðuneytisins, sími 91 -25000. Héraðsskólinn Reykjanesi MYNDBANDAGERÐ (VIDEO) INNRITUN 7 vikna námskeið í myndbandagerð hefst 12. sept- ember nk. Kennt verður 2 sinnum í viku, mánudaga og miðvikudaga, 4 klst. hvert kvöld. Megináhersla er lögð á: kvikmyndasögu, mynduppbyggingu, eðli og notkun myndmáls í kvikmyndum, handritsgerð, auk æfinga í meðferð tækjabúnaðar, ásamt upptöku, klippingu og hljóðsetningu eigin myndefnis nem- enda. Kennari: Ólafur Angantýsson. Kennslustaður: Miðbæjarskóli. Kennslugjald er kr. 6000,- sem greið- ist í fyrsta tíma. Innritun í símum 12992 og 14106 kl. 13-19, 6.-9. september. Innritun í aðra frjálsa námshópa verður 21. og 22. sept. NEW LOOK Snyrtivöruverslun / heildverslun Þingholtsstræti 1, 101 Rvík sími 91-24666 Naglalakk 11 ml NID Lltír 38 Smásolu- verft 185,- Naglalakk 7ml NID 38 155,- Naglalakk 7m!SignéParis 38 155,- Varalitir NID 38 175,- Varalitir Signé Paris 38 185,- Varalitir Serge Obena 18 350,- 220,- 250, 220,- Maskarar NID 12 Maskarar Signé Paris 12 Eyeliner NID 6 225,- Eyeliner Signé Paris 6 200,- Gloss NID 12 250,- Gloss Signé Paris 12 90,- Augnblýantar NID 23 125,- Augnblýantar Signé Paris 23 90,- Varablýantar NID 6 125,- Varablýantar Signé Paris 8 250,- 275,- 260,- 300,- Augnskuggar NID(2 saman) 12 Augnskuggar SigneParis(2 saman) .24 Augnskuggar NID(3saman) 12 250,- Augnskuggar Signé Paris(3 saman) 12 300,- Steinpúður NID 3 225,- Steinpúður Signé Paris 8 275,- Kinnalitir NID 10 1.200,- KinnalKir Signé Paris 10 865,- Burstasett lOstk 8 250,- Parfume 100 ml 10 Hárlakk Chantal gorðlr 150,- 350,- Hárfroða Indjánamold Chantal Póstsendum Paris Cosmetics Fréttir Ólafur Ragnar Grímsson, formaöur Alþýöubandalagsins: Hægt að mynda nýja stióm á skömmum tíma - neitar að forystumenn Alþýðuflokks og Framsóknar hafi rætt við sig „Fyrsta krafa okkar er aö þaö fari fram kosningar. Ef ekki verður orðið við henni þá erum við tilbúnir til stjórnarmyndunarviðræðna á grundvelli efnahagstillagna Alþýðu- bandalagsins. En númer eitt er að ríkisstjómin kvitti fyrir dauða sinn,“ sagði Olafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins. í DV í gær sagði Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra að sér hefði verið það ljóst lengi að Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur ynnu að því að mynda ríkisstjóm án Sjálfstæðis- flokks. Ólafur Ragnar neitar hins vegar alfarið að við sig hafi verið rætt í þessu sambandi. „Eðlilega hefur ekki verið rætt við okkur um nýtt ríkisstjómarmynst- ur. Það em nú ákveðin siðalögmál sem gilda í þessu og þessir blessaðir menn sitja enn að forminu til í ríkis- stjóm. Það er einfaldlega ekki til siðs að menn séu þá á kafi í því að búa til nýja ríkisstjóm. En í þessu htla póhtíska kerfi okkar talast menn Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins. auðvitað við í samræðum út og suð- ur. En það er eitthvað sem ekki er hægt að gefa neitt burðugt nafn. Rikisstjómin þarf og verður að biðjast lausnar. Ég tel að Þorsetinn Pálsson sé fýrir löngu kominn yfir öh mörk hvað snertir embættis- skyldu forsætisráðherra. Hann er í raun og vem að ónýta stöðu forsætis- ráðherra gjörsamlega. Það sér það hver maður aö þessi ríkisstjórn hefur ekki burði til að taka ákvörðun um neina stefnu. Það er óþarfi að rekja það sem þjóðin hefur þurft að horfa upp á síðustu vikur og mánuði. Þessi Stykkishólmsferð er ein útgáfan. Þegar þessi ríkisstjóm er farin frá er kominn tími til að velta því fyrir sér hvort hoða eigi til kosninga eða hvort þingmeirihluti er fyrir nýrri ríkisstjórn. Ég tel að það sé bæði hægt að láta kosningar fara fram á skömmum tíma og eins að það sé hægt að mynda ríkisstjóm á mjög skömmum tíma,“ sagði Ölafur Ragn- ar Grímsson. -gse Þorsteinn segir veröstöövunartillögur krata óframkvæmanlegar: Við erum ekki að skrökva að neytendum - segir Jón Sigurðsson viöskiptaraöherra „Við höfum heldur engan áhuga á að skrökva að neytendum. Alveg á sama hátt og hægt er að segja um tihögur Þorsteins þá er það fram- kvæmdin sem ræður úrshtum. Það er augljóst að verðstöðvun í fimm mánuði er flóknara fyrirbæri en verðstöðvun í einn mánuð og fleira getur komið upp á á svo löngum tíma,“ sagði Jón Sigurösson aðspurö- ur um þau ummæh Þorsteins Páls- sonar í DV í gær um að framhald verðstöðvunar til áramóta væri aug- ljóslega óframkvæmanleg og að þeir sem héldu shkum tillögum fram væru að skrökva að neytendum. Framhald verðstöðvunar til ára- móta er þungamiðjan í tillögum Al- þýðuflokksins, sem Jón Sigurðsson er aðalhöfundur að. Á henni byggir möguleg 10 til 12 prósent nafnvaxta- lækkun og síðan 3 prósent lækkun raunvaxta. - Verður ekki htið eftir af tillögum ykkar ef verðstöövunarhlutinn er Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra. tekinn út? „Ég tel að thlögurnar, sem eru nú á borðum ríkisstjómarinnar og þing- ílokka hennar, hafi hvergi verið sett- ar fram sem úrshtakostir, að minnsta kosti ekki af okkar hálfu. Við erum í einlægni að leita leiða til að taka í alvöru og þegar í stað á þeim efnahags- og stjómarvanda sem við ghmum við. Við leitum einnig leiða sem skynsemi er í og hægt er að framkvæma. Við höfum lagt fram okkar tillögu og teljum hana fram- kvæmanlega en vitum vel að í henni felst vandi víða eins og í sérhverri tillögugerð. Ég ætla ekki að segja neitt meira um þetta, enda er máhð hvergi nærri útrætt. Nú er að störf- um hópur manna að bræða saman eitthvað sem hægt er að mynda sam- stöðu um,“ sagði Jón.Sigurðsson. -gse Mönnun grunnskólanna: Vantar í um 50 stöður „Við erum á svipuðu róh og í fyrra. Það er nær fullráðið í Reykjavík. Það vantar í einstaka litlar stöður, upp á örfáa tíma á viku, meðal annars heimihsfræði, en það vandamál leysist væntan- lega. í heildina erum við að ræða um 40-50 stöður víðs vegar um landið og þá eina stöðu á mörgum stöðum. Skólastjóra vantar á þrjá staði úti á landi og á ísafirði, Tálknafirði og Akureyri vantar fleiri en einn kennara eða leið- beinanda," sagði Sigurður Helga- son í menntamálaráðuneytinu við DV þegar hann var inntur eftir stöðunni í mönnun grunnskól- anna. Sagði hann að í fyrra hefðu 690 leiðbeinendur fengið undanþágu og verið ráðnir, um 440 beiðnir væru komnar inn á borð í ráðuneytinu nú og búið væri að afgreiða um 400. Væru leiðbeinendur, sem eru kennarar án kennararéttinda, ekki ráðnir fyrr en í síðustu lög og því ekki hægt að segja endanlega til um stöðuna fyrr en seinna í mán- uðinum. Margir skólar úti á landi, 8 mán- aða skólamir, byija ekki fyrr en eftir göngur. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.