Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988.
BORGARALEG FERMING
- Ert þú eða átt þú ungling nálægt fermingaraldri?
- Vilt þú valkost við kirkjuathöfn?
- Veist þú að í Noregi fermast nú 10% barna borgara-
lega ár hvert?
- Vilt þú vita meira?
Hringdu í Hope Knútsson, s. 73734
Námskeið til 30 rúmlesta réttinda (pungaprófs) hefst 12. sept.
Kennsla fer fram tvö kvöld í viku frá kl. 7-11.
Námskeiðsgjald er 10.000 kr.
Hjónaafsláttur 10%.
Öll kennslugögn á staðnum.
Innritun og greiðsla námskeiösgjalda er í Lágmúla 7
kl. 2-6 um helgina og á mánudag kl. 4-6.
Nánari upplýsingar á sama tíma í síma (91) 68 98 85,
en á öðrum tíma í síma (91) 3 10 92.
Sigiingaskólinn, Vatnsholti 8, 105 Reykjavík
Meðlímur í Alþjóðasambancii síglingaskóla
Innritun er hafin
Vefnaður 12. sept.
Silkimálun 17. sept.
Fatasaumur 19. sept.
Prjóntækni 19. og 28. sept.
Myndvefnaður 20. sept.
Tauþrykk 20. sept.
Útskurður 21. sept.
Leðursmíði 22. sept.
Bótasaumur 27. sept.
Tuskubrúðugerð 27. sept.
Knipl 29. sept.
Innritun fer fram á skrifstofu skólans að Laufásvegi
2, II. hæð, og í sýningarbás skólans á sýningunni
Veröldin 88 í Laugardalshöll. Námskeiðaskrá afhent
við innritun og hjá ísl. heimilisiðnaði, Hafnarstræti 3.
Upplýsingar í síma 17800 frá kl. 16.15-19.00 dag-
lega.
Heimilisiðnaðarskólinn
Laufásvegi 2-101 Reykjavík
Fréttir
Onnur nauðungarsala á Hótel Ork náði fram að ganga:
Helgi Þór og fjölskylda
buðu hæst allra eða 195
milljónir króna
«*
- þriðja og síðasta sala á að verða í byijun október
„Ég er ekki búinn að taka afstöðu
til þess hvort ég vísa þessu til Hæsta-
réttar. Það var boðið lægra en ég
hafði reiknað með. Ætli við höldum
ekki fast við kaupin," sagði Pétur Þór
Sigurðsson, lögfræðingur Helga Þórs
Jónssonar, eiganda Hótel Arkar.
Önnur nauðungarsala á Hótel Örk
náði fram að ganga í gær. Hæsta boð
í eignina átti Hótel Örk hf., 195 millj-
ónir króna. Eigendur Hótel Arkar
hf. eru Helgi Þór Jónsson, eiginkona
hans, tvö börn og systir hans.
Áður en til uppboðsins kom mót-
mælti lögmaður Helga Þórs að upp-
boöið yrði haldiö. Jónatan Sveinsson
hæstaréttarlögmaður mótmælti
kröfu lögmanns Helga Þórs og krafö-
ist þess að uppboðið næöi fram að
ganga. Dómarinn, Þorgeir Ingi Njáls-
son, beitti réttarneitun og ákvað að
uppboðið færi fram. Lögmaður Helga
Þórs tilkynnti þá að hann myndi vísa
málinu til Hæstaréttar. Það breytti
ekki afstöðu dómarans.
Fyrsta boö kom frá lögmanni
Framkvæmdasjóðs, 50 milljónir
króna. Næst kom boð frá Byggða-
stofnun, 80 milljónir. Feröamálasjóð-
ur bauð 130 milljónir. Þýsk-íslenska
bauö 140 milljónir króna. Fram-
kvæmdasjóður bætti um betur og
bauð 175 milljónir. Þá bauð Pétur Þór
Sigurðsson, fyrir hönd Hótel Arkar
hf., 195 milljónir. Enginn bauð betur.
Lögmennirnir virtust ekki hafa átt
von á þessu boði. Flestir þeirra vildu
efast um ágæti þessa fyrirtækis. Að
lokum óskaöi einn þeirra eftir að
þriðja sala færi fram. Þaö var ákveð-
ið og mun hún fara fram á eigninni
sjálfri klukkan tíu að morgni sjötta
október næstkomandi.
Mótmæli lögmanns Helga Þórs
voru byggð á ýrskurði um að honum
væri heimilt að reyna nauðungar-
samninga við skuldunauta sína.
Taldi lögmaöur aö á þeim forsendum
ætti uppboðið ekki að fara fram. Jón-
atan Sveinsson neitaði þessu. Hann
sagði að þeir aðilar, sem ekki heföu
átt aðild að samkomulagi um nauð-
ungarsamninga, væru ekki bundnir
af því. Úrskurður dómarans var að
uppboöið færi fram.
Helgi Þór Jónsson situr og biður þess sem verður. Lögmennirnir leggja á
ráðin og huga að næsta leik i stöðunni. DV-myndir GVA
„Við erum á síðustu metrunum og
ég hef sagt við Helga Þór að þeir veröi
erfiðastir. Ég hef mikla trú á að þetta
tilboð, sem komið er frá Holle'nding-
unum, gangi eftir. Viö höfum aldrei
gefist upp. Það verður ákveðið í
næstu viku hvort þessu verður vísað
til Hæstaréttar. Ég hef aldrei verið
bjartsýnni en nú að þetta leysist,“
sagði Pétur Þór Sigurðsson.
„Það er ekki markmið kröfuhafa
aö komast yfir þessa eign. Ef til kem-
ur greiöslugeta til að leysa þetta þá
er það vel. Helgi Þór Jónsson hefur
í mörgum tilfellum ekki greitt eina
einustu krónu inn á þessar skuldir.
Ekki frá upphafi. Hann hefur engan
lit sýnt. Þetta verður einhvers staðar
að enda,“ sagði einn lögmannanna.
Aörir tóku í sama streng.
Allajafnan er hæsta tilboði tekiö.
Uppboðshaldari metur hvort svo
verði. Aörir tilboðsgjafar eru bundn-
ir af sínum tilboðum veröi hæsta
boði ekki tekið.
-sme