Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Page 11
LAUGARDAGÚR 10. SEPTEMBER’Í9§8l
Pétur Björnsson, umsvifamikill fjár-
sýslumaður, heima í stöfu með
„syninum" Kambi. „Ég er sár og
svekktur." DV-mynd KAE
staðið undir þessu lengur. Málið hjá
okkur var að bjarga þessum verð-
mætum. Margt fólk var búið að stóla
á að fá út peninga núna og sumir
urðu að fá þá strax. Það voru margir
aðrir sem gátu beðið.“
- Var ástæða fyrir lögreglurann-
sókn?
„Þeir eru bara að gera skyldu sína.
Það er aukaatriði."
- Var ólögleg starfsemi í gangi hjá
fyrirtækinu?
„Ekki sem ég átta mig á nema ef
vera skyldi gömlu Ávöxtunarreikn-
ingarnir. Kannski erum við brotlegir
þar en það eru mest persónulegir
reikningar. Þeim er velkomið að fara
yfir bókhaldið. Ég er þannig gerður
að ég tel að maður eigi ekki að sjá
um eigið bókhald og veit því ekkert
hvað stendur í því. Mér finnst að
Ólafur Ragnar hefði átt að koma til
okkar áður en hann fór að blása yfir
landslýð. Hann leggur sig mjög lágt
að mínu mati. Af hverju gekk hann
ekki hreint til verks?“
Ekki meira í peningamálum
- Hvað tekur nú við?
„Ég vil aö það komi fram að ég er
sár yfir því hvernig málið þróaðist.
Ég heíði viljað fylgja þessu máli til
loka og aðstoða okkar viðskiptavini.
Málið er einfaldlega það að meiri-
hluti viðskiptavina okkar neyddi
okkur til þess að loka með því að
biðja um innlausn. Við misstum
traustið. Kjaftagangurinn var mikill.
Illar tungur úr samkeppnisgeiranum
eiga þar líka hlut að máli. En ég ætla
ekki að láta deigan síga. Ég reyni að
koma mér upp litlu fyrirtæki, að
þessu sinni einn, og ég _kem ekki til
með að sýsla með periinga. Ég vil
nota tækifærið og þakka frábærum
starfsmönnum Ávöxtunar, því það
fólk hefur.unnið mikið og gott starf.“
- Nú er sagt að bankaeftirlitiö hafi
hafið rannsókn á fyrirtækinu áður
en Ólafur Ragnar fór að tala um
málið. Er þaö rétt?
„Nei, enginn haföi komið til okkar
og beðið um gögn, hvorki ráðherra,
bankaeftirlitið né neinn annar. Það
stenst ekkert að því sem verið er að
segja. Ég hef orðið fyrir miklum von-
brigðum með að fólk skuli blása út
einhverri vitleysu. Við hjónin vorum
úti á landi þegar við heyrðum fyrstu
frétt um þetta mál í útvarpinu. Ég
hugsaði með mér að þetta hlyti að
vera vitleysa því ég vissi ekki til að
neitt fyrirtæki væri svo illa statt.
Síst af öllu datt mér í hug mitt eigið
fyrirtæki."
- Er kannski eftirliti með verðbréfa-
sjóðunum ábótavant?
„Þeir hafa aldrei komið til okkar
nema til að ræða við okkur. Það hefur
sjálfsagt eitthvað skort á eftirlitið og
ég held að aðhald sé öllum nauðsyn-
legt,“ sagði Pétur Bjömsson. -ELA