Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Page 16
16
LAUGARDAGUR 10. SLPTEMBER l|§a
Breiðsíðan
Kvenbílstjórar í sendiráðum:
„Fáum ekki að opna
dyrnar fyrir hemmum''
- karlavígin eru enn að falla
„Þetta er mjög skemmtilegt og íjöl-
breytilegt starf," sögöu þær Ingibjörg
F. Ottesen og Maria Engström en
starf þeirra er aö aka sendiherrum
Noregs og Svíþjóöar á milli staða.
Enn eitt karlavígiö er fallið. Reyndar
féll það fyrir tæpum sjö árum er Ingi-
björg sótti um starf bílstjóra norska
sendiráðsins og var ráðin úr hópi
umsækjenda. Frændunum Svíum
þótti þetta hafa tekist svo vel aö í vor
réðu þeir Mariu til starfa sem bíl-
stjóra sendiráðsins. Þar með er sýnt
að þar sem konur koma mega karlar
fara að vara sig.
Ingibjörg er íslensk en Maria er
sænsk og hefur aðeins verið hér á
landi eitt ár. Engu að síður talar hún
mjög góða íslensku. „Það'var kona
sem réð mig í starfið," sagði Ingi-
björg. „Þá var kvenmaður sendi-
herra hér fyrir Norðmenn. Það uröu
margir undrandi þegar kona kom
akandi með sendiherrann. Sérstak-
lega fannst mörgum gestum þetta
skrýtið. Annars er ég meira en bíl-
stjóri því ég sinni einnig ýmsum
störfum hér innanhúss," sagði Ingi-
björg.
- Hefur starfið aldrei valdið erfið-
leikum?
„Kannski lítillega þegar karlsendi-
herra tók við hér. Hann átti erfitt
með að sætta sig viö að láta konu
opna og loka dyrum fyrir sig en ég
hef ekið með marga norska ráðherra
og þeim finnst þetta mjög skemmti-
legt og ræða mikið við mig. Ég þarf
þó alltaf að hlaupa út úr bílnum ef
ég ætla að vera á undan að opna en
það tekst nánast aldrei. Herrarnir
leyfa mér heldur ekki að bera fyrir
þá töskurnar.V
Það hefur verið mikið að gera og
stress hjá Ingibjörgu síðustu daga á
meðan Ólafur Noregskonungur
staldraði hér við. „Ég þurfti nú ekki
að keyra hann en átti alltaf að vera
til taks."
Þær Ingibjörg og Maria aka báðar
um á Volvo. Maria tók við starfl bíl-
stjóra sænska sendiráðsins í maí sl.
„Ég kom hingað til lands fyrir ári
sem ferðamaður. Mig langaði að vera
áfram hér á landi svo ég sótti um
vinnu hjá sænska sendiráðinu. Þegar
bílstjórinn fór á eftirlaun í vor buðu
þeir mér að taka við starfmu hans,"
sagöi Maria.
Hvorug þeirra hafði áður starfað
sem bílstjóri en báðum líkar það vel
svo að þær ætla að halda áfram svo
lengi sem þær geta. Ingibjörg er eina
konan í norsku utanríkisþjón-
ustunni sem starfar sem bílstjóri.
Að sögn Mariu finnst þeim mjög
gaman, Svíunum, að sjá konu við
stýrið. „Ætli þeim hafi ekki fundist
reynslan góð hjá norska sendiráð-
inu,“ sagði Maria. Þegar bílstjórarnir
voru búnir að hagræða bifreiðunum
fyrir myndatöku kom upp smámet-
ingur um hvor fáninn væri fallegri.
Ingibjörg sagði að norski fáninn væri
miklu fallegri en Maria sagði að
henni fyndist nú blái Volvoinn sinn
fallegri en þessi grái norski. En þetta
var nú allt í gríni ... -ELA
Ró og friður er ekki það fyrsta
sem mönnum dettur í hug þegar
minnst er á Joan Collins. Núna
er hún mikill óvinur arabískra
nágranna sinna í London. Ástæð-
an er sögð sú að Collins sakar þá
um hræðilega vonda matarlykt.
Hins vegar eru arabamir tjúk-
andi illir út í leikkonuna vegna
þess aö hún spilar háværa tónlist
á nætumar. Já, það getur stund-
um verið erfltt í henni veröld...
Hinn myndarlegi leikari Michael
J. Fox hefur farið þess á leit við
konu sína, sem hann kvæntist
fyrir stuttu, aö hún skrifaði undir
plagg þess efnis að hún geti ekki
krafið hann um stórar upphæðir
ef komi til skilnaðar. Kannski
Bruee Springsteen og aðrir ættu
að fara aö dæmi hans...
Þegar Sophia Loren leikkona
hafði brugðið sér stutta stund á
salerni á veitingastað, þar sem
hún var gestkoraandi, veitt hún
því athygli aö aödáendur hennar
störðu skrýtnir á fætur hennar.
Sophia leit niður og sá þá að hún
hafði dregið á eftir sér talsvert
af salemispappír. Hún var ekki
sein á sér að fmna út hvað gera
skyldi. Tók upp pappírinn, skrif-
aði nafnið sitt á blöðin og útdeildi
honura meðal gestanna. Snagg-
aralega hugsað hjáleikkonunni,..
Þaö hefur ætið verið kalt milli
söngkvennanna tveggja, Diönu
Ross og Whitney Houston. Ekki
batnar það. Diana Ross varö víst
snarbijáluð er henni var tilkynnt
að Houston myndi leika aðal-
hlutverkið í my ndinni Dreamgirl.
Myndin fjallar um The Supremes
og eins og flestir vita var Diana
Ross aðalsöngkona þeirrar
grúppu,
Þær taka sig vel út, Ingibjörg hjá norska sendiráðinu og Maria frá því sænska, þar sem þær standa í einkennis-
búningum sínum fyrir utan atvinnutækin. DV-mynd KAE
Sveinn Þormóðsson, Ijósmyndari DV, myndaði þennan hóp fyrir stuttu fyrir utan Farfuglaheimilið. Þetta eru allt ungmenni sem búsett eru á Kefla-
víkurflugvelli og voru hér í biblíulestri. Aðeins einn i hópnum er íslendingur, sá í hvíta bolnum. Hann er einnig búsettur á Keflavíkurflugvelli. Að
þessu sinni er það hann sem hlýtur tvö þúsund krónurnar. Peninganna má vitja hér á ritstjórn helgarblaðsins, Þverholti 11. .gi a