Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Side 18
18
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988.
Kvikmyndir__________________dv
HEILAGT STRÍÐ
Nýjasta k\'ikmynd Martin Scorsese
um líf Jesú virðist hafa vakið al-
menna hneykslun fólks. Það er þó
athyglisvert að aðeins lítill hluti
þeirra, sem fordæma myndina,
hafa séð hana. Þaö neita því fæstir
að kvikmyndin er einn áhrifarík-
asti tjáningarmáti sem listamenn
hafa. Kvikmyndin hefur hreyfing-
una fram yfir ílest önnur tjáningar-
form. Á hvíta tjaldinu er hægt að
upplifa sorg jafnt sem gleði og auð-
velt er að draga upp þá mynd af
atburðum líðandi stundar sem leik-
stjórinn hefur áhuga á að komi
fram. Það er því gefið mál að kvik-
myndir geta ekki.síður orðið deilu-
efni en margt annað.
Hömlur á sölu og dreifingu kvik-
mynda hafa alltaf verið við lýði.
Kvikmyndaeftirlitið ákveður
hvaða aldurshópar megi sjá við-
komandi mynd og getur krafist
þess aö sum atriði úr henni verði
fjarlægð til þess að hún teljist sýn-
ingarhæf. Hér er aðailega um of-
beldi og klám að ræða.
Siðgæði
Enn sem komið er hafa kvik-
myndaframleiðendur í Bandaríkj-
unum og Vestur-Evrópu haft nokk-
uð frjálsar hendur með hvaða efni-
við þeir nota í myndir sínar. Yfir-
leitt er váhð áhugavert efni sem er
talið höfða til áhorfenda til að
tryggja aðsókn. En auðvitaö veit
enginn fyrirfram hvað verður vin-
sælt og hvað ekki. Ekki má heldur
gleyma öllum þeim hugsjóna-
mönnum sem ganga lengi meö
draum í maganum aö kvikmynda
ákveðna sögu sem þeir hafa tekiö
ástfóstri við. Þannig hófust að
minnsta kosti vandræði banda-
ríska kvikmyndagerðarmannsins
Martins Scorsese. Hann las á sín-
um tíma bók Nikos Kazantzaki um
líf Jesú, sem hann skrifaði 1955, og
honum leist vel á söguna sem
grunn að kvikmyndahandriti.
Hann gekk síðan í mörg ár með
þessa hugmynd í kollinum en
hrinti henni aldrei í framkvæmd
m.a. vegna þess aö ekkert kvik-
myndaver vildi styðja við bakið á
honum.
Það var svo ekki fyrr en Univer-
sal ákváð í fyrra að kosta gerð
myndarinnar að hjóhn fóru að snú-
ast.
Hér sést krossfestingin.
Fjölbreytileiki
Ástæðan fyrir stuðningi Univer-
sal var einföld. Scorsese hefur gert
margar góðar myndir eins og Mean
Streets, Raging Bull og The King
of Comedy. Ein nýjasta mynd Scor-
seses, The Color of Money með
Paul Newman, hefur auk þess gert
það mjög gott. Það varð því að sam-
komulagi að Scorsese fengi að gera
draumamynd sína, The last Tempt-
ation of Christ, sem ekki mátti
kosta mikið fé, gegn því að hann
gerði fleiri myndir fyrir kvik-
myndaverið. Það má ætla að kvik-
myndaverið sé í dag að velta fyrir
sér hvort það hafi keypt köttinn í
sekknum.
Löngu áður en kvikmyndin var
frumsýnd fóru að berast sögusagn-
ir þess efnis að myndin væri mjög
óvenjuleg miðað við hið trúarlega
efni sem hún átti að fjalla um.
Kvikmyndahúsagestir sjá í mynd-
inni Krist hafa holdlegt samneyti
við Maríu Magdalenu og síðar
drýgja hór. Júdas er einnig gerð-
ur að hetju og besta vini post-
ulanna.
Þar sem hér er um mjög við-
kvæmt efni að ræða hafði Univers-
al kvikmyndaveriö gert ákveðnar
ráðstafanir með því að ráða kirkj-
unnar mann til að sjá til þess að
aht væri samkvæmt hinum heilaga
boðskap. Hann sagði síðan upp
störfum í júní sl. með þeim orðum
að Universal kvikmyndaverið hefði
ekki staðið við sitt. Universal hafði
lofað að sýna myndina trúarleiö-
tögum fyrir frumsýningu til að
þóknast ofsatrúarmönnum.
Mótmælaalda
Þegar fréttist um efni myndar-
innar hófst mikil mótmælaalda þar
sem mörgum ókristhegum aðferð-
um var beitt. Gekk áróðurinn það
langt að Unversal kvikmyndaverið
ákvað að flýta frumsýningu mynd-
arinnar til að gefa fóíki minni tíma
th mótmæla.
Mörg trúfélög voru heldur ekki
að leyna skoðunum sínum. Bih
Bright, sem er leiðtogi einna þess-
ara samtaka, thkynnti að hann
gæti safnað það miklu fé að hægt
væri að kaupa upp öll eintök mynd-
arinnar sem yrðu síðan strax eyði-
lögð. Universal svaraði með heil-
siðu auglýsingu þess efnis aö tján-
ingarfrelsi væri eitt af undirstöð-
um frelsins og að tjáningarfrelsiö í
trúmálum væri ekki th sölu.
Sumir trúarsöfnuðurnir lögðu
fram mikið fé í áróðurinn. Einn
þeirra sendi út 2,5 mhljónir bréfa
í pósti ásamt því að láta útbúa
bæði sjónvarps- og útvarpsauglýs-
Leikstjórinn Martin Scorsese.
ingar. Þetta gerði það að verkum
að sumar kvikmyndahúsakeöjur
neituðu að sýna myndina.
Fyrir um það bh mánuði var sjón-
varpað beint frá sjónvarpsstöö í
Bandaríkjunum umræðum for-
manns samtaka kvikmyndafram-
leiöenda og móður Angelicu sem
stofnaði á sínum tíma sjónvarps-
stöð sem eingöngu sendir út efni
trúarlegs eðhs. Þar tilkynnti móðir
Angelica að hún ætlaði að gera aht
sem í hennar valdi stæði til að
stöðva dreifingu myndarinnar þótt
hún viöurkenndi að hafa aldrei séð
myndina. Hún lýsti því einnig yfir
að þeir sem sæju myndina myndu
bera varanlegt andlegt tjón af.
Sýning hafin
En hvernig hefur annars gengið
eftir að sýningar hófust? Svo virð-
ist vera sem mótmæhn hafi farið
tiltölulega friðsamlega fram og á
flestum stöðum hafi verið húsfyhir.
Þó voru þess dæmi að fólk hafi far-
ið inn í kvikmyndasýningarsali og
skvett þar grænni málningu á hvíta
tjaldið í mótmælaskyni.
Þaö er ef th vih Martin Scorsese
sem situr eftir sem sigurvegari. Það
er að minnsta kosti tekið eftir
myndinni hans og enn virðist vera
svo að hún gangi vonum framar
fyrir meira eða minna fuhu húsi.
Martin hefur látiö hafa eftir sér að
honum hafi fundist meira en nóg
gert úr þessu deilumáli.
„Að khppa myndir er bæði sein-
legt og erfitt: Þess vegna á ég oft
erfitt með að tala við blaöamenn
vegna anna. Ég vh þó samt sem
áður taka það fram að myndin var
gerð með kristilegu hugarfari. Ég
búinn að vera aö undirbúa gerð
þessarar myndar í ein 15 ár.“
Framhaldið.
Það má búast við að viðbrögð víð-
ast hvar í Evrópu verði eitthvað
dempaðri en í Bandaríkjunum. Þó
hefur Vatikanið í Róm látið í ljós
óánægju sína með að kvikmynda-
hátíðin í Feneyjum skuh hafa
áhuga á að sýna myndina þar.
Tíminn getur þó einn leitt í ljós hve
almenn viðbrögðin verða.
En hvernig er myndin? Jú, hún
hefur fengið þokkalega dóma en er
þó ekki talin neitt hstaverk heldur
sérstæður kafh í listferli Martins
Scqrsese. Myndin sé eitthvað sem
hann hafi orðið að losna við th að
geta náð sér á strik sem leiksljóri.
Þar sem Universal er dreifandi
myndarinnar má búst við að hún
hti dagsins ljós í Laugarásbíói, von-
andi innan tíðar, svo ahir geti tekið
sjálfstæða ákvörðun um það hvort
nokkur ástæða hafi verið th að
hneykslast.
Baldur Hjaltason