Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988. Reagan í hlutverki James Bond Það er ekki að sjá annað en að það sé líf í ríkisstjórninni þrátt fyrir orðróm um lífleysi og að munn við munn aðferðin verði notuð til blása lífi í hana. Það verður öruggiega koss aldarinnar. Grettir sökk á skömmum tíma „Grettir sökk á mjög skömmum tíma,“ sagöi í fyrirsögn DV á miövikudaginn um það þegar dýpkunarskipiö Grettir sökk vestur af Dritvíkurtöngum á Snæfellsnesi. Þaö er greinilegt að Grettir gamli hefur kafaö of djúpt í þetta skiptið. Svo eru menn eitthvað aö efast um spakmælið kunna; sér grefur gröf. Rekstrarfiárerfiðleikar ,,Rekstrarfjárerfioleikar viö aö knésetja fiskeldi," sagði Tíminn með miklum upp- slætti á miðvikudaginn. Þetta eru óvenjulegir rekstrarfjárerfiö- Léttmeti á laugardegi Jón G. Hauksson leikar. En þá er auðveldlega hægt aö leysa. Menn ættu bara aö drífa í því aö setja meiri peninga í fiskeldið svo hægt sé aö koma því snarlega á höfuðið. Sundurlaust hænsnaspark „Sundurlaust hænsnaspark," hefur Tíminn eftir Ólafi Þ. Þórðarsyni framsóknarmanni um tillögur Jóns Baldvins varöandi fjár- lagagatið. Það er greinilegt að goggunarröðin er í algleymingi í stjórnarsamstarfinu um þess- ar mundir. Annars er vel líklegt að tillögurnar hafi verið svo illa skrifaðar að þar hafi verið um tómt hrafnaspark að ræöa. Slíkt spark er miklu sundurlausara en hænsnaspark. Ólafur V Blöðin höfðu ekki við að segja frá heimsókn Ólafs fimmta Noregskonungs í vikunni. Var Ólafur ýmist kallaður Ólafur V eða Ólafur Noregskonungur V. Nú þykjast ýmsir sjá að Ólafur vaff hefði getað hitt Ólaf tvöfalt vaff. Hann hefði að- eins þurft að bregða sér í dómsmálaráðu- neytið og hitta Ólaf Walter Stefánsson, skrif- stofustjóra ráðuneytisins. Fjárfestingar í trú „Ijárfestum í trú á framtíðina," var yfir- skrift Morgunblaösins á viðtali við Geir Zoega, framkvæmdastjóra Krossanesverk- smiðjunnar á Akureyri, á þriðjudaginn. Manni finnst einhvern veghm að Geir þessi heíði átt að fjárfesta í loðnuverk- smiðju frekar en trúarbrögðum. Sýnileg tónlist „Synileg orusýnileg tónhst,“ var fyrirsögn í Mogganum í vikunni. Þessi sýnilega tón- list hefur vakið ánægju manna þar, gott er að geta séð tónlistina þegar heymin fer að dala. Þetta ber raunar keim af því þegar Ólafur Jóhannesson sagði eitt sinn við ónefndan þingmann: „Ég heyri að þingmaðurinn hristir höfuðið.“ Blóðugur niðurskurður „Samdráttur en ekki „blóðugur niðurskurð- ur“,“ er haft eftir Jóni Baldvin í Mogganum um nýjar fiárlagatillögur hans. Samkvæmt þessu ætlar Jón ekki að taka á Landakotsmálinu. Fékk ekki að segja af sér „íran: Forsætisráðherra fékk ekki að segja af sér.“ Svo segir í fyrirsögn í Morgunblað- inu um forsætisráðherrann í íran sem hafði áhuga á að segja af sér. Nú spyrja margir hvort Þorsteinn Pálsson megi ekki örugglega segja af sér? Yfir járntjaldið Tíminn segir frá því með rosalegum upp- slætti að austur-þýsk stúlka hafi valið ísland til að fara yfir jámtjaldið. Leitaði stúlkan hælis sem pólitískur flóttamaður í sendiráði Vestur-Þjóðverja við Túngötuna. Sagt er að Vestur-Þjóðverjamir hafi tekið þessu létt og kallað stúlkuna járnfrúna. Fræðslustjórar lagðir af? Blað fiármálaráðherra, Alþýðublaðið, skýr- ir frá því á forsíðu að í fiárlagatillögum Jóns Baldvins verði embætti fræðslustjóra lögð af. Það em margir á því að Sverrir Her- mannsson, fyrrum menntamálaráðherra, hafi verið með puttana í tillögum Jóns, þetta sé nefnilega svohtiö sturlað. Kópavogsbúar í fýlu Hluti íbúa Kopavogs var í fýlu í tvo daga, að sögn DV, vegna bóndans í Lundi. Sá var ekki með neina ilmvatnssýningu að hætti Dior heldur dreifði hann hæsnaskít á tún sín viö bæinn. En fyrst aðeins hluti Kópavogsbúa var í fýlu, í hvernig skapi var þá hinn hlutinn? Seifur seldur í misgripum Einhver besta frétt vikunnar var um gæð- inginn Seif, víðfrægan skeiöara, sem seldur var þýskri konu í fyrra. Með í kaupunum fylgdi klárhestur. Sú þýska hljóp heldur betur á sig og seldi auralitlum þýskum bónda Seif í misgripum fyrir klárhestinn. Þetta kallar maður hrossakaup í lagi. Það er alveg klárt. lan Rush „Ég er ánægður meö helmingi lægri laun en áður,“ er haft eftir Ian Rush, knatt- spyrnumanni með Liverpool, í DV á mánu- daginn. Það er greinilegt að niðurfærslan er ahs staðar í gangi. Ronald Reagan njósnari Sviðsljós DV sagði okkur í vikunni að Ron- ald Reagan hefði verið njósnari á sínum yngri árum í Hollywood. Enginn veit um hvað karlinn hefði átt að njósna. Hitt er víst að Reagan heföi farið létt með að leika James Bond. Lögreglan ræðst á heimilin „Lögreglumenn: Ráðist á heimilin," segir Þjóðviljinn um samþykkt lögreglumanna þar sem þeir mótmæla kjaraskerðingu kröftuglega. En æth lögreglan að ráðast á heimilin, ætti hún að byrja á stjómarbeimilinu. ER ÞAÐ 1 EÐA X EÐA 2 19 A SkáldsaganHreiðriðereftir: I: ÓlafJóhannSigurðsson X: Svövu Jakobsdóttur 2: JónÓskar F Hinn ágæti teiknari Morgunblaðsins, Sigmund, er fæddur í I: Svíþjóð X: Danmörku 2: Færeyjum B Hann heitir Einar Oddur og hafði forgöngu í hinni um- deilduforstjóranefnd sem vill niðurfærslu. Einar Oddur erfrá: 1: Súðavík X: Þingeyri 2: Flateyri C Samtökin sem reka Lottó 5/38 hafa opinbert heiti sem er: I: íslenskalottóið X: íslensk getspá 2: íslenskargetspár Q Marel heitir íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í fram- leiðslufyrir: I: Byggingariðnaðinn X: Fiskvinnsluna 2: Skipasmíðar H Á Skákþingi íslands 1988 urðu Margeir Pétursson og Jón L. Árnason efstir og jafnir með 9,5 v. Næstur, með 8 v., kom i 1: ÞrösturÞórhallsson X: Hannes H. Stefánsson 2: KarlÞorsteins Þetta merki er notað í auglýsingum frá: 1: FerðaskrifstofunniÚrvali X: FerðaskrifstofunniÚtsýn 2:1 FerðafélaginuÚtivist Sendandi Þetta merki táknar alheimssam- band í íþróttagrein, nánar tiltekið í: I: Knattspymu X: Handknattleik 2: Körfuknattleik Heimili Rétt svar: A □ E □ B □ C □ D □ F □ G □ H □ Hér eru átta spurningar og hverri þeirra fylgja þrír mögu- leikar á réttu svari. Þó er a,ðeins eitt svar rétt við hverri spurn- ingu. Skráið réttar lausnir og sendið okkur þær á svarseðlin- um. Skilafrestur er 10 dagar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veit- um þrenn verðlaun, öll frá póst- versluninni Primu í Hafnar- firði. Þau eru: 1. Fjölskylduteppi að verðmæti kr. 5.430,- 2. Fjölskyldutrimmtækiað verðmætikr. 2.750,- 3. Skærasett að verðmæti 1.560,- í öðra helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu en nýjar spurningar koma í næsta helgarblaði. Merkið umslagið 1 eða X eða 2, c/o DV, pósthólf 5380,125. Reykjavík. Vinningshafar fyrir 1 eða X eða 2 í sautjándu getraun reyndust vera: Kolbrún Þorsteinsdóttir, Blöndu- hlíð 20,105 Reykjavík (hitateppi); Haha Gunnlaugsdóttir, Espilundi 18,600 Akureyri (trimmtæki); Kristjana Ágústsdóttir, Hólum 15, 450 Patreksfirði (skærasett). Vinningarnir verða sendir heim. Réttlausnvar: X-X-2-1-2-2-X-2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.