Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Side 27
LA'UGARDAmm'10. SEPTEMB'ER 'Í988. Heilogsæl! ... Sykurinolam- ir marsára áfram upp banda- riska breiðskifulistann og þegar listinn verður birtur opinberlega í næstu viku, sitja Sykurmolamir i 57. sæti listans en vom í þvi 64. i þeirri viku sem nú er að renna sittskeið á enda. Er þetta aldeilis frábær árangur hjá hljómsveit sem var gjörsam- lega óþekkt i Bandaríkjunum fyrirrúmuhálftiári ...Gitar- hétjur poppsins hafa verið margar i gegnum tiðina og má þar nefna menn á borð við Eric Clapton, Jeff Beck, Jimmy Page, George Harri- son, Jinfi Hendrix og Ritchie Blackmore frá fyrri tíð og menn eins og Eddie Van Ha- len, Robert Cray og Bmce Springsteen á siðari tímum. Ognúerþaðspá vitringa vestanhafs að í hóp gítarsniil- inga bætist senn náungi að nafni Jeff Healey, sem er i forsvari fyrir hljómsveit sina Jeff Heaiey Band en hljóm- sveitin sendir i næstu viku frá sér sína fyrstu plötu. Þess má svo geta að Healey þessi er blindur og hefur verið frá því skömmu eftir fæðingu ... OgmeiraumJeff Healey Band. Patrick Swayze, sá sem sté dansinn svo lipurlega i kvikmyndinni Dónadansi, Dirty Dancing, er nú með aðra kvikmynd i smiðum. Heitir sú Roadhouse og þar leikur Jeff Healey Band nokk- ur valinkunn rokklög, White Room sem Cream gerðu frægt um árið og Roadhouse Blues sem Doors sálugu léku og sungu á sínum tíma ...Af- gangurinn af Duran Duran er enn á lifi og 26. september næstkomandi kernur ný plata á markað f rá þeim félögum og mun hún bera nafnið Big Thing! ...Sögusagnirheyrast um það vestur í Amríku að Pet Shop drengimír séu önn- um kafnir við að semja lög og stjóma upptökum á næstu plötu Lizu Minelli! ... Alla Pugachova hin ókrýnda drottning sovéskra rokkara er nú á tónleikaferð um Banda- ríkin og skemmtir þarlendu fólki með hljóðfæraslætti og söng fram til 22. september næstkomandi ...góða skemmtun ... -SþS- t 27 x>v Nýjar plötur Bubbi Morthens - 56: Tölvaður úlfur Hugh Comwell - Wolf hyglisverðari meðan h<mn nennti enn að brýna raustina. - Þó kann Cornwell einnig að beita mjúkmælg- inni þegar svo ber undir, svo sém í lögunum Golden Brown, Strange Little Girl og Always the Sun, svo að örfá séu nefnd. En því miður er ekkert lag aö finna á plötunni Wolf sem kemst í hálfkvisti við þau. -ÁT- Eftir nær samfellda stígandi í plötuútgáfu síðustu árin kemur lítils háttar bakslag í seglin hjá Bubba Morthens með þessari nýju plötu, 56. Ekki er þar með sagt að þetta sé handónýtt efni, fjarri því; við gerum bara meiri kröfur til Bubba en flestra annarra íslenskra tónlistarmanna. Fyrir það fyrsta er þessi plata æði sundurleit; það er rétt eins og Bubbi hafi verið að taka til í lagasafninu hjá sér og rekist þar á lög sem hafa orðið útundan á síðustu plötum og ákveðið að skella þeirn á plötu með nýja laginu Foxtrot. Það lag stendur upp úr á þessari plötu; ekta meló- dískt rokklag a la Bubbi og ekki ónýtt fyrir íslenska kvikmyndagerðar- Sjöund - Gott í bland menn að geta leitað í smiðju Bubba þegar vantar lag í kvikmynd. Auk Foxtrotsins vekur athygli lag- ið Klóakkrossfarar þar sem ónefnd fréttastofa í bænum fær á baukinn; þetta er hrátt rokklag sem vinnur á. Önnur lög á plötunni eru af trúbad- úrgerðinni; frekar þunglamaleg lög og Bubba mislagðar hendur í texta- gerðinni. En Bubbi er ekki óskeikull í sinni tónlistarsköpun frekar en aðrir tón- listarmenn og þvi hef ég engar áhyggjur af því þó þessi plata valdi nokkrum vonbrigðum. Mönnum get- ur mistekist. -SþS- Einfalt og lítið spennandi Hljómsveitin Sjöund er frá Vest- manneyjum og hefur starfað þar og á meginlandinu í nokkurn tíma. Fé- lagamir sex, sem skipa hijómsveit- ina, hafa nú lagt í að gefa út plötu sem nefnist Gott í bland. Satt er það að blandan er fyrir hendi en varla er hægt að telja afurðina góða. Lögin eru léttrokkuð og eru flest eftir þá sjálfa. Því miður eru frum- sömdu lögin lítið spennandi og flutn- ingur eftir því Skást þykir mér Frikki pabbi þar sem örlar á þeim léttleika í tónlistinni sem ætlunin hefur verið að einkenndi plötuna. Þau tvö lög sem heyrst hafa áður eru mjög ólík. Ég veit þú kemur eftir Oddgeir Kristjánsson er og verður alltaf tengt Vestmannaeyjum og breytist lítið í meðferð Sjöundar. Hitt lagiö Ikki fara frá mær sem er jafn- framt lengsta lag plötunnar er tekið úr söngbók Robbie Robertson og hræddur er ég um að kappinn sá yrði ekki ánægður með útgáfu Sjö- undar. Sjöund er sjálfsagt ágætis dans- hljómsveit og í textum þeirra er húmor sem oft er gaman að. Þeir eiga aftur á móti nokkuð í land með að teljast með fullboðið efni á heila LP- plötu. HK Ég efast um að mörg lög af Wolf kæmust í úrvalsliðið, þaö er á plötu með Stranglers. Varla fleiri en eitt eöa tvö. Kannski er það meinið að hlust- andanum er ofarlega í huga að Hugh Cornwell er einn mest áberandi liðs- maður hljómsveitarinnar Stranglers á meðan Wolf rennur í gegn. Því er platan óhjákvæmilega sífellt borin saman við það sem sveitin sú hefur sent frá sér. Og þótt hlustandinn þurrkaði Stranglers út úr forritinu og setti sig í hlutlausar stellingar gagnvart plöt- unni held ég að hún yrði aldrei nema í slöku meðallagi. Tölvutrommur, tölvubassi og alls kyns tölvustýrð hljómborð vaða uppi, reyndar í bland við „handspiluð" hljóðfæri og gefa henni hálf tölvað yfirbragð. Þessi blanda er ekkert sérstök á að hlýða. Að minnsta kosti kemur út um þess- ar mundir fjöldinn allur af plötum sem mér þyukja áhugaverðari en Wolf. Hugh Comwell, einn hressilegasti byltingarmaöur síðasta áratugar, er orðinn skelfing mjúkmáll núna, tíu árum síðar. Mér þótti hann öllu at- Svo bregðast krosstré... Scritti Politti - Provision Lygn streymir Provision Provision er einhver jafnasta plata sem ég hef lengi heyrt. Hún líður í gegn eins og fljótið Don (samanber Lygn streymir Don). Engin straum- köst í tónlistinni, heldur einungis svolítil tilbrigði líkt og þógar fljótið brotnar á kletti eða hólma. Green Garthside er aðalmaður Scritti Politti. Hann á stóran hlut í lagasmíðum og útsetningum á Pro- vision líkt og á fyrri plötum Scritti Politti. Green syngur einnig öll lög plötunnar. Bing heitinn Crosby var oft kallaður konungur raularanna. Hann var þó sannkallaður Pavarotti í samnburði við Green Garthside. Af framansögðu má ráða að mér þykir Provision með Scritti Politti ekki sérlega tilkomumikil. Og sú er einmitt raunin. Platan er álíka bragðlítil og tvöfaldur blávatn í kóki. Þó er hún fagmannleg og auðheyri- lega til hennar vandað eins og fyrri verka Scritti Politti. Auk helstu að- standendanna kemur skari fólks við sögu á plötunni. Marcus Miller plokkar bassa, Fonzi Thornton syng- ur bakrödd og Miles Davis blæs í trompett, svo að fáir einir séu nefnd- ir. Sumsé ágætis lið. Það er bara plat- an sjálf sem er svo skrambi rislítil. -ÁT-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.