Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Blaðsíða 42
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988. Helgi stórmeistari sigraði á níunda landsbyggðarmótinu Helgi Ólafsson stórmeistari stóð uppi sem öruggur sigurvegari á níunda alþjóðamóti tímaritsins Skákar sem haldið var á ísafirði og Bolungarvík sömu daga og skák- þing íslendinga stóð yfir í Hafnar- borg. „Alþjóðamót við Djúp“ var mótið nefnt en auk Skákar stóð Taflfélag ísafjarðar fyrir móts- haldinu með dyggum stuðningi nokkurra brottfluttra Vestfirðinga. Framkvæmdanefnd mótsins skipuðu Daöi Guðmundsson, Einar S. Einarsson, Guðfinnur Kjartans- son, Jón Friðgeir Einarsson, Kristj- án Haraldsson og Magnús Reynir Guðmundsson; skákdómarar voru Ásgeir Överby, Daði Guðmunds- son, Einar Garðar Hjaltason að ógleymdum Högna Torfasyni sem jafnframt var mótsstjóri og ritstjóri veglegs mótsblaðs sem dreift var ókeypis í öll hús á svæðinu. Jóhann Þórir Jónsson á hug- myndina og um leið mestan heiður- inn af landsbyggðarmótunum níu. Fyrsta mótið var haldið í Grindavík 1984 og sama ár var teflt í Neskaup- stað. Arið eftir var teflt á Húsavík, í Borgamesi og Vestmannaeyjum, þá opið mót á Egilsstöðum, síðan var teflt í Ólafsvík og á Suðurnesj- um sl. haust og loks við Djúp. Mótið við Djúp þótti fara hið besta fram í hvívetna. Teflt var við prýðilegar aðstæður í sal Mennta- skólans og erlendu keppendumir bjuggu á heimavistinni. Sjöunda umferðin var reyndar tefld í Ráð- hússalnum í Bolungarvík og hófst hún nokkru seinna en áætlað var, því að skákmennirnir notuðu tæki- færið og fóru upp á Bolafjall fyrir IX. ALÞJÓÐAMÓTIÐ VIÐ DJÚP 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn. Röð 1. Helgi Ólafsson SM 2525 X 1 >/2 1 '/2 1 1 1 '/2 1 1/2 1 9 1. 2. Guðmundur Halldórsson ísafj. 2270 0 X 0 0 0 1 1 0 1 ‘/2 '/2 0 4 9. 3. Jan Johansson FM Svíþj. 2350 '/2 1 X 1 0 1 ‘/2 ‘/2 '/2 1 '/2 1 7‘/2 3.-4. 4. Magnús Pálmi Örnólfsson Bol. 2200 0 1 0 X 0 0 ‘/2 0 0 0 0 0 l!/2 12. 5. Glenn Flear SM Eng. 2470 '/2 1 1 1 X 1 ‘/2 1 0 1 0 1 8 2. 6. Guðmundur Gíslason ísafj. 2290 0 0 0 1 0 X ‘/2 0 1 0 1 0 3'/2 10. 7. Ægir Páll Friðbertsson Súðav. 2200 0 0 ‘/2 >/2 '/2 '/2 X '/2 0 0 0 0 2‘/2 11. 8. Helgi Ólafsson, Hólmavík 2210 0 1 '/2 1 0 1 '/2 X 0 ‘/2 0 0 4>/2 8. 9. Orest Popovych FM USA 2295 '/2 0 '/2 1 1 0 1 1 X 1 0 0 6 6. 10. Andri Áss Grétarsson 2325 0 ‘/2 0 1 0 1 1 '/2 0 X 1 0 5 7. 11. Yrjö Rantanen SM Finnl. 2370 '/2 ‘/2 '/2 1 1 0 1 1 1 0 X /2 7 5. 12. Lars Schandorff FM Danm. 2415 0 1 0 1 0 1 1 1 1 1 '/2 X 7'/2 3.-4. Séð yfir skáksalinn á alþjóðamótinu við Djúp. Fjær teflir Magnús Pálmi örnólfsson við Helga Ólafsson stórmeistara, nær eigast við Andri Áss Grétarsson og Guðmundur Gíslason. taflið, í fegursta veðri. Það em kannski einmitt þessi augnablik sem gera íslensku skákmótin svona vinsæl meðal erlendra kappa. Helgar Ólafssynir vom menn mótsins. Helgi stórmeistari fyrir góðan sigur og Helgi eldri frá Hólmavík fyrir að hafa komið mest á óvart. Hann varð skákmeistari íslands 1964 og hefur lítið teflt síð- an. Þó krækti hann sér í 4,5 vinn- inga og var nálægt því að fá fleiri. Sérstaklega var eftir því tekið hve hann teflir endatöflin vel og er lærður á því sviði. Helstu keppinautar Helga stór- meistara um efsta sætið var Svíi nokkur, Jan Johansson að nafni, Danmerkurmeistarinn Lars Schandorff og stórmeistaramir Glenn Flear frá Englandi og Yijö Rantanen frá Finnlandi. Helgi náði að hrista þá alla af sér. Undir lokin var Johansson orðinn einna erfið- astur en hann var á titilveiðum og hafði lítinn augastað á efsta sætinu. Flear náði að lokum 2. sæti, vinn- ingi á eftir Helga, en Skandínav- amir komu í humátt á eftir. Þessi varð lokastaðan: 1. Helgi Óláfsson stórmeistari 9 v. 2. Glenn Flear (Englandi) 8 v. 3. -4. Lars Schandorff (Danmörku) ög Jan Johansson (Svíþjóð) 7,5 v. 5. Yijö Rantanen (Finnlandi) 7 v. 6. Orest Popovych (Bandaríkin) 6 v. 7. Andri Áss Grétarsson 5 v. 8. Helgi Ólafsson, Hólmavík, 4,5 v. 9. Guðmundur Halldórsson 4 v. 10. Guðmundur Gíslason 3,5 v. 11. Ægir Páll Friðbertsson 2,5 v. 12. Magnús Pálmi Örnólfsson 1,5 v. Úrslit í Bikarkeppni BSÍ á Hótel Loftleiðum um helgina Úrsht í Bikarkeppni Bridgesam- bands íslands munu ráöast um þessa helgi á Hótel Loftleiðum en í morgun kl. 10 hófust undanúrslitaieikirnir milli sveita Pólaris og Modem Ice- land annars vegar og Braga Hauks- sonar og Kristjáns Guðjónssonar frá Akureyri hins vegar. Sigurvegaramir úr þessum leikj- um spila síðan til úrslita á morgun. Alhr leikimir veröa sýndir á sýning- artöflu. Einhverjir munu sakna sveitar Flugleiða 1 úrshtnum en hún tapaði fyrir sveit Pólaris í hörkuspennandi leik fyrir stuttu. Flugleiðasveitin var sex impa yfir eftir tíu spil, tíu undir eftir tuttugu, átta yfir eftir þijátíu en tapaði að lokum með 34 impum. Munaði þar mestu í eftirfarandi spih. S/alhr ♦ 8432 ¥ D84 ♦ D43 + G42 ♦ - V K1065 ♦ G1075 4> ÁKD63 í opna salnum sátu n-s Þorlákur Jónsson og Guðmundur Páh Arnar- son en a-v Valur Sigurösson og Jón Baldursson. Þar gengu sagnir á þessa leið: N ♦ D1076 V A Á9732 Suður Vestur Norður Austur S ♦ 92 1S pass 2L pass 2T pass 2H pass * AKG95 3L pass 3G pass V G ♦ ÁK86 5H pass 6L pass + 875 pass pass Valur spilaði út tígh og Þorlákur varð að spila nákvæmt til þess að þræða spilið heim. Hann drap á kónginn og sphaði hjartagosa. Drottning, kóngur og ás. Meiri tígull, ásinn, síðan tveir hæstu í spaða og tíglunum kastað að heim- an. Þá var spaði trompaður, hjarta trompað, spaði trompaður, hjarta trompað, trompin tekin og hjartatían varð síðan tólfti slagurinn. Það voru 1370 th Pólaris. STÖBIN SEM HLUSTAB ER 'A! Pétur Steinn Guðmundsson SÉR UM ÍSLENSKA LISTANN á laugardögum frá 16-18. Pétur Steinn fer yfir stöðu 40 vinsælustu laga landsins í hverri viku. Hér er ekki þurr upptalning á númerum heldur margþættur fróðleikur um listamennina sem flytja lögin. Hlust- endum íslenska listans .er boðið í ævintýraferð um tónlistarheiminn á laugardögum. BYLGJAN,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.