Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Síða 45
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988. 61 FerðamáJ hlíðar er um Svínaskarð og Móskörð. Sú leið liggur milli fjaila með ólík einkenni, og má þar sjá helstu berg- myndanir íslenskra fjalla á einum stað. Á hægri hönd eru Haukafjöll og Stardalshnjúkar, úr grágrýti og víða sorfin ísaldarjökli. Skálafellið er hins vegar móbergsfjall. Ef farið er norður fyrir Esju og gengið upp Kjósarmegin, er um margar leiðir að velja. Ein slíkra leiða er frá Hjarðarholti, eyðibýli við vesturenda Meðalfellsvatns. Þar er farið upp svokallaðar Sneiðar og eft- ir Nónbungu uns kemur á Skálatind. Þessi leið er mjög auðveld uppgöngu, sem sést best á því að í eina skiptið sem ekið hefur verið á bílum upp á há-Esjir, var farið um þessar slóðir, að vísu á harðfenni um hávetur. Að lokum er ekki úr vegi að minn- ast á nafn Esjunnar, sem sveipað er miklum dulúðarhjúpi. Enginn veit með vissu hvaöan nafnið kemur en um það eru margar sagnir og getgát- ur. Kjalnesingasaga segir frá því að kerling nokkur af írlandi, Esja að nafni, hafi búið á Esjubergi. Esju- nafnið kemur aðeins fyrir í einu öðru örnefni á íslandi, í Esjufjöllum í Vatnajökli. í orðabók Blöndals er sagt að nafnið geti táknað lausamjöll eða mökk. Enn önnur skýringin á nafninu er sú að í vissum fannalög- um á haustin megi lesa það úr snjó- línum á einum stað í hlíðum fjalls- ins. Esjunafnið mun þar að vísu vera ritað með sérkennilegu fornu letri. Heimildir: Landið þitt ísland og árbækur Ferðafélags íslands. Hrafnabjörg, til vinstri á myndinni, eru áberandi i fjallahring Þingvalla. Hengillinn er eitt af svipmestu fjöllunum í nágrenni Reykjavíkur. Maríuhöfn á Búðasandi í Hvalfirði var stærsti kaupstaður landsins á 14. öld og þaðan gerðu biskupar Skálholts út skip. Schiphol í Amsterdam er fyrsti alþjóðaflugvöllurinn sem býður fötluðum upp á sérstaka þjónustu við að komast leiðar sinnar. Schiphol 1 Amsterdam: Fötluðum veitt aöstoð Jafnframt eru fatlaðir aðstoðaðir við að komast á salerni. Sérstök bílastæði fyrir fatlaða eru fyrir framan ílugstöðvarbygginguna þar sem þeir geta lagt bifreiðum sínum við upphaf ferðar. Starfsmenn þjónustunnar sjá síðan um að koma bílunum í geymslu. Schiphol er fyrsti alþjóðaflugvöU- urinn sem veitir aðstoð af þessu tagi. Hún er á vegum félagsskapar sem heitir International Support Services (ISS), í samvinnu við flug- vallaryfirvöld og styrktarsjóð sem heitir Hohday & Handicap Found- ation. Fatlaðir ferðalangar, sem leið eiga um SchipholflugvöU í Amst- erdam, geta nú fengið alla þá aðstoð sem þeir þurfa. Sérstöku af- greiðsluborði hefur verið komiö upp í nyrðri komusal og þar býður sérhæft starfsfólk fram þjónustu sína. Þjónusta þessi er ætluð öllum fotluðum ferðamönnum sem koma til Schiphol, skipta þar um flugvél eða leggja upp þaðan. Afgreiðsluborðið er mannað alla daga frá kl. 6 á morgnana til mið- nættis, auk þess sem hægt er að fá hjálp við að komast úr hjólastól upp í flugvél aUan sólarhringinn. FYRIR BAK OG HNAKKA t pm Vegna sérstaks samnings við framleiðanda getum við nú boðið á kynningarverði nokkur hundruð hitateppi á aðeins kr. 3.900,- ^áður kr. 5.430,- Hitateppi hentar öllum, ungum sem öldnum. Pantið strax. Dregur úr vöðvaspennu með hita. Vinnur sérstaklega gegn verkjum í baki og hnakka og almennri þreytu. Ver úr 100% bómull sem hægt er að þvo. Tvær hitastillingar. Tengi fyrir 60/30 W. 220 volt. Stærð ca 37x55 cm. Póstverslunin Príma Pöntunarsími 62-35-35. Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00. © VISA © EUROCARD Fótóhúsið - Príma - ljósmynda- og gjafavöruverslun, Bankastræti, sími 21556. m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.