Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988. Útlönd Pakistönsk mafía í evrópskum bönkum Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló: Norski hlutinn af starfsemi pakist- önsku eiturhijamafiunnar viröist vera langtum víötækari en lögreglan haföi haldið. Bankastarfsmaöurinn Abdul Rashid. sem í fjölda ára hefur hreinsaö heróínpeninga og yfirfært til enskra banka. hefur unniö sem hluti af peningakerfi sern nær út um alla Evrópu og til Pakistan. Mafían hefur sína menn i bönkum víðs vegar um Evrópu. Þeir koma eiturlyíjamilljónunum smátt og sntátt inn á rnarga mismunandi reikninga og þaöan í löglega umferö til Pakistan. Unt helgina opinberaöi lögreglan í Hollandi skýrslu um hollenskan hluta kerfisins í Hollandi. Fimm manns hafa veriö handteknir í Hol- landi vegna málsins. Þar komst lög- reglan á sporið eftir aö hafa hand- tekið Pakistana sem haföi undir höndum 26 kíló af heróíni. Norska lögreglan heldur nú áfram rannsóknum sínum í samvinnu viö lögregluna í Englandi og Hollandi. HEILSUEFNI - AUKINN LÍFSKRAFTUR OG ÞREK Visindalegar niöurstööur hafa sýnt að þeir sem taka daglega inn BIO- SELEN + ZINK eru hressari og hafa meira úthald og að þeir sem voru gjarnir á að kvefast fengu siður kvefpestir. Organisk bundet Selen og Zink med vitaminer - det ideelle antioxidant-komplex Bio-Selen +Zink + A-vitamin + C-vitamin + E-vitamin (da - E) + B6-vitamin 4r BIO-SELEN + ZINK hafði góð áhrif á liðamótin og fólk taldi sig i betra formi líkam- lega og andlega. Greiniiegt var að hár, húð og neglur tóku miklum framförum af BIO-SELEN + ZINKI. Hinn kunni læknir og visindamaöur, dr. Matti Tolonen, sem stjórnaði þess- um rannsóknum, segir: Ég tek daglega BIO-SELEN + ZINK, til öryggis góðri heilsu. Það byggir upp ónæmiskerfiö gegn sjúkdómum. í mörg ár hef ég ráðlagt sjúklingum minum BIO-SELEN + ZINK, Bio-Chrow og Bio Glandin-25 til að byggja upp vörn gegn sjúkdómum. Dragðu ekki að fá þér Bio-heilsuefnin. Dreifing: Bio-Selen umboðið, sími 76610 ■ Dýrahald Palestinumenn kasta grjóti í þorpinu Jaber Mukaber nálægt Jerúsalem i gær. Simamynd Reuter Rabin ver skot- árásimar ísraelsk yfirvöld verja nú þá aöferð ísraelskra hermanna að skjóta Pal- estínumenn með plastkúlum í því skyni að særa þá. Þrír Palestínu- menn létu lífiö í gær eftir að hafa orðið fyrir kúlum úr byssum ísra- elskra hermanna. Tveir þeirra létust eftir að hafa fengið plastkúlur í sig. Þijátíu eru sagðir hafa særst í átök- um á herteknu svæöunum. Varnarmálaráðherra ísraels, Yitz- hak Rabin, sagði á fundi meö frétta- mönnum í gær að markmið ísraelska hersins væri að særa fleiri Palestínu- menn sem þátt tækju í óeirðum. Markmiðið væri hins vegar ekki að drepa þá. Rabin var spurður um orðróm um leynilega heimsókn suður-afrískra herforingja til Vesturbakkans í síð- ustu viku. Breskur þingmaður sagði í Amman á laugardaginn að honum hefði veriö sagt í ísrael að suður- afrískir ráðgjafar væru að hjálpa ísraelska hernum við að.bæla niður uppreisnina á herteknu svæðunum. Rabin sagði aö sendinefndir frá herjum margra erlendra ríkja heim- sæktu ísrael en að það væri hins vegar stefna stjórnarinnar að greina ekki nánar frá heimsóknunum. Rab- in sagðist einnig vera þeirrar skoð- unar að ísraelsmenn þyrftu ekki á aðstoð annarra að halda til að kljást við vandann. Reuter Vextir valda verðbólgu ViÖ fengum okkur tvær um daginn, bara fyrir krakkana, þær eru svo sætar......svona fyrst ” 4» 4» - og nú vantar okkur töframann I smAauglýsingar SÍMI 27022 Hér sýnir Lurie skoðun sína á því hve vextir eru öflugt vopn gegn verð- bólgu. Þvi hærri sem vextirnir eru þvi betur fer um verðbólguna, en banka- kertið stofnar sér hins vegar i mikla hættu, þegar vextir eru hækkaðir um of, og getur kollsteypst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.