Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1988, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1988. Utlönd Með fríverslunarsamningnum fengu Bandarikjamenn kanadísk yfirvöld til að leggja niður það sem þeir kalla óeðlilega viðskiptahætti. Var þá aðallega átt við afskipti af atvinnurekstri, svo sem beinan og óbeinan stuðn- ing stjórnvalda við sjávarútveg á austurströnd Kanada. Myndin er frá sjávarþorpi á Nýfundnalandi. Viðskiptin milli Kanada og Bandaríkjanna eru mjög umfangsmikil. Þau eru enn mikilvægari fyrir Kanada þar sem 75 prósent af útflutningi Kanadamanna fara til Bandaríkjanna. Fríverslunarsámningurinn eitt stóru kosningamálanna Ágúst Hjörtur, DV, Ottawa: Á síðasta ári gerðu Kanada og Bandaríkin með sér umfangsmik- inn fríverslunarsamning. Báðar deildir Bandaríkjaþings hafa nú samþykkt hann með yfirgnæfandi meirihluta. Öldungadeild kana- díska þingsins neitaði hins vegar aö samþykkja hann en þar eru í meirihluta öldungadeildarþing- menn úr Frjálslynda flokknum sem nú er í stjómarandstöðu. Með því móti vildi Frjálslyndi flokkurinn knýja fram kosningar um málið. Það tókst honum því eitt af stóru málunum í kosningunum, sem fram fara í nóvember næstkom- andi, er einmitt fríverslunarsamn- ingurinn. Skiptar skoðanir í grófum dráttum liggur landið þannig að íhaldsmenn, sem nú mynda stjórn í landinu, styðja samninginn. Frjálslyndi flokkur- inn og Nýi demókrataflokkurinn eru hins vegar báðir á móti honum. Innan Frjálslynda flokksins eru þó skiptar skoðanir. Þannig styður Bourrassa, leiðtogi flokksins og fylkisstjóri í Quebec, samninginn og það gerir einnig nýkjörinn leið- togi Ftjálslynda flokksins í Al- bertafylki. Fríverslunarsamningurinn milli Kanada og Bandaríkjanna er mjög umfangsmikill enda eru þjóöimar stærstu viðskiptaþjóðir hvor ann- arrar. Árleg viðskipti landanna nema um tvö hundruð milljörðum dollara. Viðskiptin eru þó Kanada- mönnum enn mikilvægari en Bandaríkjamönnum því um 75 pró- sent af útflutningi landsins fara til Bandaríkjanna. Þess ber þó að geta að nú þegar eru um 80 prósent af viðskiptum landanna fijáls svo samningurinn tekur aðeins til þess hluta sem enn er hömlum háður. Ýmsar undanþágur Megininntak samningsins felur í sér að fella skuli niður allar hömlur á viðskiptum milli landanna á tiu ára aðlögunartímabili sem hefjast á nú um áramótin. Á þessu eru þó ýmsar undanþágur. Til að mynda er svokallaður menningariðnaður Kanada, það er íjölmiðlar allir, menningar- og listastarfsemi, imd- anþeginn ákvæðum samningsins. Bandaríkjamenn lögðu á það mesta áherslu við samningagerð- ina að fá Kanadamenn til að leggja niður það sem þeir kalla óeðlilega viðskiptahætti. Með því áttu þeir aðallega við ýmis opinber afskipti Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Brian Mulroney, forsætisráðherra Kanada, eru báðir hlynntir friverslunarsamningi milli rikjanna. Frjálslyndi flokkurinn og Nýi demókrataflokkurinn í Kanada eru andvígir samningnum sem nú eru eitt af stóru kosningamálunum í Kanada. Simamynd Reuter af atvinnurekstri sem tíðkast í Kanada. Á þetta meðal annars við beinan og óbeinan stuðning stjórn- valda við sjávarútveg á austur- strönd Kanada og við olíuleitarfyr- irtæki. Einnig fengu Bandaríkjamenn því framgengt að ýmsum takmörk- unum, sem gilda um útflutning á náttúruauðlindum, eins og olíu og vatni, var aflétt. Þá var og um það samið að það eftirlit, sem Kanada- stjórn hefur með fjárfestingum Bandaríkjamanna, yrði minnkað,- Bandaríkjamarkaður Stuðningsmenn samkomulagsins í Kanada benda á að það komi til með að tryggja aðgang kanadískra framleiðenda að Bandaríkjamark- aði um ókomna framtíð. Þar með sé komið í veg fyrir að sú vemdar- stefna, sem talsvert hefur átt upp á pallborðið í Bandaríkjunum að undanfómu, skerði útflutnings- kvótann. Þetta telja þeir tryggt með tilkomu sérstaks dómstóls sem komiö verður á fót og skera á úr um öll viðskiptadeilumál land- anna. í öðm lagi benda stuðningsmenn samningsins á að hagur kana- dískra neytenda muni batna. Þær bandarísku vörur, sem nú eru toll- aöar, muni lækka í verði og það sama gildi um margar kanadískar vörur þar sem framleiðendur þeirra neyðast til að keppa við bandarískan innflutning. Refsitollar Gagnrýnendur samningsins hafa fundið honum flest til foráttu og hafa óspart sakað Brian Mulroney, forsætisráöherra landsins, um að selja landið Bandaríkjamönnum fyrir slikk. í fyrsta lagi benda þeir á að samn- ingurinn nái ekki markmiði sínu þar sem viðskiptadómstóflinn, sem setja eigi upp, verði í raun lítils megnugur. Máílsmeðferð einstakra mála komi til með að taka tvö til þijú ár og á meöan geti Bandaríkja- menn óhindrað lagt á þá refsitofla sem þeim sýnist. í öðru lagi halda gagnrýnendur samkomulagsins því fram að það sem Kanada gefi eftir sé miklu meira en það fái í staðinn. Benda þeir á að stjórnin hafi afsalað sér réttindum til auðlindastjórnunar sem sé sérhverri fullvalda þjóð nauðsynleg. Þá komi samningurinn í veg fyrir eðlileg afskipti ríkisstjórnarinnar af efnahag einstakra svæða. Þannig verði erfiðara um vik að hjálpa ein- stökum starfsgreinum á erfiðum tímum, svo sem bændum og inn- fæddum, þar sem Bandaríkjamenn líti á slíka aðstoð sem „óeðlilega viðskiptahætti". Samningurinn sjálfur, ásamt skýringum, er doðrantur mikill og þrátt fyrir tilraunir fjölmiðla til að útskýra hvað raunverulega felst í honum viröast deilur um kosti hans og galla fyrst og fremst byggj- ast á tilfmningalegri afstööu manna gegn Bandaríkjunum. Tvísýn úrslit Skoðanakannanir sýna að þjóðin skiptist nokkurn veginn jafnt í af- stöðu sinni með og á móti samn- ingnum. Svo takist Frjálslynda flokknum að gera þetta að aðal- máli kosningabaráttunnar verða úrslitin tvísýn. Fái íhaldsflokkurinn ekki meiri- hluta þingsæta í komandi kosning- um er samningurinn fallinn um sjálfan sig. En jafnvel þó að svo fari verða deilur um fríverslunar- samninginn ekki úr sögunni. Sum ákvæði samningsins heyra undir lögsögu fylkjanna og þau gætu hugsanlega hindrað fulla framkvæmd hans. Þannig hefur David Peterson, fylkisstjóri í Ont- ario, sem er fjölmennasta fylki landsins og á mest viðskipti við Bandaríkin, hótað því að fara ekki eftir ákvæðum samningsins. Hvað sem gerist þá hefur þessi fríverslunarsamningur vakið upp umræður hjá kanadísku þjóðinni sem snerta samskipti hennar við grannann stóra í suðri á miklu víð- ari grundvelli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.