Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1988. 15 30 -50% ódýrari miðað við afköst en fyrirrennarinn Verðið á AS/400, tækninýjung áratugarins, er okkur mikið á- nægjuefni. Það er ennþá álitlegra fyrir þær sakir að tölvunni fylgir alíslenskað skrifstofukerfi! (ritvinnsla, tölvupóstur, dagbækur, fyrirspurnarkerfi o.s.frv.) í krafti nýrrar hönnunar er AS/400 ætlað stærra hlutverk en öðrum millitölvum. Hún margfaldarframleiðni starfsfólksins og leggur því sitt af mörkum til aukinnar arðsemi fyrirtækisins. AS/400 býr yfir öflugum gagnagrunni og hefur feiknarlega vaxt- armöguleika. Margfalt lægri viðhaldskostnaður IBM AS/400 er ótrúlega ódýr í rekstri. Við hvetjum þig til að kynna þér viðhaldsverð hennar í samanburði við aðrar millitölvur hérlendis! Taktu vel eftir súluritinu. Þar sést að sjálfsagt er að taka mið af viðhaldsverði á vél- og hugbúnaði ef reikna á út hagkvæmasta kostinn við tölvukaup. Samanburður við helstu samkeppnisaðila leiðir í Ijós afburðahagkvæmni IBM búnaðar þegar viðhaldsverð er réttilega reiknað inn í heildarverðið. Beinlínuþjónusta IBM Þessi einstæða þjónustunýjung IBM fylgir hverri AS/400 vél. Með henni tengist viðskiptavinurinn beint við tölvubanka IBM er- lendis, tæknimenn IBM á íslandi og hugbúnaðarhús. í ofanálag getur AS/400 greint vanda sjálf og óskað aðstoðar hjá þjónustu- deild IBM. Þannig er þjónustukerfi IBM komið inn ágólf hjá öllum fyrirtækjum óháð því hvar á landinu þau eru. IBM AS/400 TÖLVAN SEM ÞÚ KAUPIR FEGINS HUGAR! i ' I I □ Ég óska eftir frekari upplýsingum um AS/400. □ Markaðsfulltrúi IBM hafi samband. Kostnaður af eignarhaldi á helstu millitölvum tii 5 ára / með viðhaldsverði á vél- og hugbúnaði. Stofnverð á vél og hugbúnaöi Viðhaldsverð á vél- og hugbunaði í 5 ár. Nafn Staða Heimilisfang Síríil Sendist IBM FYRST OG FREMST SKAFTAHLÍÐ 24 105 REYKJAVÍK SÍMI 697700 J '

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.