Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1988.
25
linu. Hér veður hann inn og heyr einvígi
DV-mynd Gylfi
ntak
igur
KA á Akureyri
hálfleik. Skyttur liðsins komust lítið
áleiðis í leiknum og Guðmundur á lín-
unni var ekki öfundsverður að ná til
þeirra bolta sem á hann voru gefnir enda
missti hann af þeim flestum. En þrátt
fyrir ósigurinn er óþarfi fyrir KA-menn
að örvænta, liðið er betra en áður, en
það er auðvitað slæmt fyrir lið sem ætl-
ar sér að vera í toppbaráttu að tapa stig-
um á heimavelli.
Mörk KR: Alfreð Gíslason 6(2), Sigurð-
ur Sveinsson 4, Páll Ólafsson 3, Konráð
Ólafsson 3(1), Jóhannes Stefánsson 3.
Mörk KA: Jakob Jónsson 7(1), Pétur
Bjarna 5, Erlingur Kristjánsson 3(1), Sig-
urpáll Aðaisteinsson 2(2) og Þorleifur
Ananíasson 1.
Dómarar voru Gunnar Kjartansson og
Rögnvaldur Erlingsson. Þeir dæmdu vel
þótt auðvitað gerðu þeir sín mistök eins
og aðrir í þessum harða leik.
í * 1, deild
Stada
Valur 3300 82-59 6
KR 3300 73-59 6
KA 3201 73-63 4
I Grótta.... 3201 65-63 4
! FH 3201 71-65 4
! Víkingur 3 1 0 2 70-76 2 (
UBK 3102 64-70 2
ÍBV 3102 63-72 2
Stjarnan .3 0 0 3 61-67 0
Fram 3003 61-89 0
íþróttir
Valur ekki í vandræðum
- Stjaman bætti stöðuna í lokin og Valur vann 20-16
íslandsmeistarar Vals gátu leyft
sér að slaka verulega á og láta skipti-
mennina um að klára leikinn við
Stjörnuna í Digranesi í gær. Staðan
var 19-11 þegar sjö mínútur voru eft-
ir en fimm Stjörnumörk í röð og einn
fleygur Sigurðar Sveinssonar á síð-
ustu sekúndunni breyttu lokatölun-
um í 20-16.
Stjarnan skoraði aöeins tvö mörk
fyrstu 20 mínútumar, staðan þá 7-2
og síðan 10-4 í hléi. Þrátt fyrir ágæt-
an kafla Stjörnunnar í byrjun síðari
hálfleiks varð minnsti munur þá
fjögur mörk.
Valsmenn spiluðu út trompunum
strax, firnasterkri vörn og kraftmikl-
um sóknum þar sem allir eru jafn-
hættulegir. Jón Kristjánsson átti
einna bestan leik og margar sending-
ar Sigurðar Sveinssonar voru frá-
bærar en hann tók lífinu of létt á
lokakaflanum. Einar varði vel og
einnig skiptimaður hans, Páll
Guðnason.
Stjarnan er með betra lið en staðan
í deildinni segir, enda eru Garð-
bæingarnir búnir með þau þrjú lið
sem reiknað var með á toppnum.
Liðið er ungt og reynslulítið en mik-
ið býr í því og það ætti að lyfta sér
fljótlega upp í miðja deild. í þetta
skiptið voru mótherjarnir einfald-
lega alltof sterkir og ekki bætti úr
skák að Gylfi Birgisson meiddist á
nára í fyrri hálfleiknum og Sigurður
Bjarnason fékk rauða spjaldið fyrir
sáralitlar sakir eftir 20 mínútna leik.
Axel Björnsson er liðinu greinilega
góður styrkur, öflugur hornamaður
og sterkur miðjumaður í vörn.
Mörk Stjörnunnar: Axel Björnsson
4, Hafsteinn Bragason 3, Skúli Gunn-
steinsson 3, Hilmar Hjaltason 3/1,
Valdimar Kristófersson 1, Þóroddur
Ottesen 1, Valdimar Kristófersson 1.
Mörk Vals: Jón Kristjánsson 5, Sig-
urður Sveinsson 5/2, Valdimar
Grímsson 4, Júlíus Jónasson 3, Jakob
Sigurðsson 2, Geir Sveinsson 1.
Sigurður Baldursson og Björn Jó-
hannesson dæmdu þokkalega en það
var alger óþarfi hjá Sigurði að sýna
nafna sínum Bjarnasyni rauða
spjaldið fyrir að sparka í stól sem
ekkieinusinnitókstáloft! - -VS
HALIFAX
NEWYORK
PORTSMOUTH
VIÐBÆTUM ÞJÓNUSTUNA OG
FÆRUM AMERÍKUIMÆR!
Með siglingum vestur um haf á 10 daga fresti í stað 14 daga áður
styttum við bilið milli íslands og Ameríku um 30%.
Nú höfum við Reykjafoss og Skógafoss í stöðugum beinum
siglingum til New York, Portsmouth og Halifax. Nýja siglingakerfið er
stórbætt þjónusta við alla inn- og útflytjendursem eiga viðskipti í
Vesturheimi.
HALiFAX NEWYORK/ PORTSMOUTH
F.K. Warren Ltd. • EIMSKIP USA
P.O.Box 1117 Wheat Building - Suite 710
2000 Barington St P.O.Box 3589
Suite 920 Cogswell Towers Norfolk, Virginia, 23514 U.SA.
Halifax, N.S.B3J2X! Sími: 804-627-4444
Sími: 902-423-8136 Gjaldfrjáls sími: 800-446-8317
Telex: 019-21693 Telex: 684411
Telefax: 902-429-1326 Telefax: 804-627-9367
C3
FLUTNINGUR ER OKKAR FAG
EIMSKIP