Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1988. Fréttir Ólafsfjörður: Tvö frystihús verða sameinuð Gylfi Krisfiánsson, DV, Akureyii Nú er unnið hörðum höndum að , því á Ólafsfirði að sameina frysti- húsin tvö á staðnum, Hraðfrysti- hús Magnúsar Gamalíelssonar hf. ög Hraðfrystihús Ólafsfjaröar hf„ en vinna hefur legið niðri í báðum húsunum að undanfornu. „Mér sýnist vera góður vilji fyrir þvi hjá mönnum að af þessari sam- einingu geti orðið og takmarkið, sem stefnt er að, er að koma vinnsl- unni af staö í ársbyrjun í samein- uöu frystihúsi beggja fyrirtækj- anna,“ sagði Óskar Þór Sigur- björnsson, forseti bæjarstjórnar á Ólafsfirði, er DV ræddi þetta mál við hann. Geysilegt atvinnuleysi hefur ver- ið og er á Ólafsfirði eftir að vinnslu var hætt í frystihúsunum og munu um 100 manns vera á atvinnuleys- isskrá í bænum sem er mjög mikið í ekki stærra bæjarfélagi. Óskar Þór sagði að konur, sem margar hverjar hefðu unnið hálft starf, væru í miklum meirihluta í þessum hópi en karlar hefðu yfirleitt haft fulla vinnu í bænum og á sumum sviðum hefði meira að segja vantað karlmenn. Hann sagði einnig að ef samein- ing frystihúsanna yrði að veruleika myndu tveir ísfisktogarar og bátar leggja upp hjá fyrirtækinu, og það ætti að nægja ef allt væri eðhlegt. „Þó höfum við áhyggjur vegna frekari skerðingar á kvóta á næsta ári en slíkt kemur verr niður á stað eins og Ólafsfirði en öðrum þar sem hér byggist nánast allt upp á vinnslu sjávarfangs." Guðmundur Hermannsson, sveitarstjóri Ölfushrepps. „Brúin breytir ekki miklu fyrir okkur.“ DV-mynd BG Ölfushreppur: Áttatíu manns á atvinnuleysisskrá - Óseyrarbrúin breytir litlu segir sveitarstjórinn „Það eru áttatíu manns á atvinnuleysis- skrá. Það er með þvi mesta sem gerist hér og meira en undanfarin haust. Þessi árstími er alltaf erfiður. Bátar eru búnir eða langt komnir með kvótann og fiskvinnslan því ekki rekin á fullum afköstum. Við gerum okkur vonir um að þetta breytist eftir ára- mót þegar vertíð hefst,“ sagði Guðmundur Hermannsson, sveitarstjóri Ölfushrepps. Guðmundur sagði að ef Meitillinn réði ekki fólk í sama mæh og áður eftir áramót kæmi það fyrst niður á hinum fjölmörgu aðkomumönnum sem starfa að jafnaði í Þorlákshöfn. „Það er erfiðara að vita hvað tekur við. Við vitum ekki með hvaða hætti fisk- vinnslufyrirtækin verða rekin á næstunni. Staða þeirra er erfið. Það má segja til dæm- is að þau hafi nánast ekkert greitt af gjöldum til sveitarsjóðs á þessu ári. Skuldir sjávarút- vegsfyrirtækja við sveitarsjóð eru nú um tuttugu og tvær milljónir. Skil hafa verið góð að öðru leyti. Hér bindum við töluverðar vonir við fisk- eldi. Hér eru reknar tvær strandeldisstöðv- ar og sú þriðja hefur starfsemi innan skamms en hjá hverri stöð starfa um tíu manns að jafnaði. Eins er nýtt og afar tækni- vætt frystihús að hefja starfsemi á næstu dögum. Við vonum því allt það besta,“ sagði Guðmundur Hermannsson. Þrátt fyrir að sjávarútvegsfyrirtæki skuldi sveitarsjóði Ölfushrepps umtalsverðar fjár- hæðir sagði sveitarstjórinn að fjárhagsstað- an væri vel við unandi og góð ef hún er borin saman við mörg önnur álíka sveitarfé- lög. íbúar í Ölfushreppi eru um 1.500 og þar af búa 1.250 manns í Þorlákshöfn. „Ég hef ekki mikla trú á að Óseyrarbrúin breyti svo mjög fyrir okkur. Það eru frekar hin byggðarlögin, Eyrarbakki og Stokks- eyri, sem koma til með að njóta góðs af brúnni - vegna hafnarinnar hér. Þó má vel vera að ferðamenn komi hingað í ríkari mæli en áður. Á sameiningu sveitarfélag- anna á svæðinu hef ég enga trú. Samvinna hlýtur áð aukast með bættum samgöngum. Það er venja stjórnmálamanna að tala um sameiningu sveitarfélaga þegar illa árár. Sveitarfélögin hafa verið til í 1100 ár og verða áfram,“ sagði Guðmundur Her- mannsson sveitarstjóri. -sme Dagfinnur Stefánsson hættur millilandaílugi: Eins og strákur í matrósafötum Dagfinnur Stefánsson flugstjóri tók við blómvendi frá Jóhannesi Markús- syni viö komuna til Keflavíkur eftir að siðasta ferðin var farin. Jóhannes hætti í september sl. DV-mynd S. „Æth ég taki ekki til í bílskúrnum,“ sagði Dagfinnur Stefánsson flug- stjóri sem fór sína síðustu mihi- landaferð sem flugstjóri á laugardag- inn. „Ég er ekki búinn að gera mér grein fyrir að ég sé hættur enda býst ég við að ég fái mér einkaflugvél og fljúgi hér innanlands. Flugið er eins og fíkniefni, það er vanabindandi," sagði Dagfinnur. „Nú er stríðsframleiðslan í flug- stjórum að hætta, Jóhannes Markús- son hætti í september og Skúli Magn- ússon hættir eftir tvo eða þrjá mán- uði.“ Dagfinnur fór með sonardóttur sína með sér í síðustu ferðina og fékk hún að fara með afa í Disneyworld og á fleiri skemmtilega staði. „Við skemmtum okkur vel saman,“ sagði Dagfinnur. Áhrif frá flugveliinum Hann ákvað að gerast flugmaður strax á unga aldri enda alinn upp á Hringbrautinni móti Þjóðminjasafn- inu. „Flugvöllurinn hafði áhrif á mig. Ég fór til Bandaríkjanna nítján ára og lærði flug og fékk vinhu ári seinna hjá Loftleiðum. Fyrsta árið var ég í síldarleitarflugi og það var skemmtílegasta flugið á ferh mínum. Ég var mjög ungur og leit út eins og strákur i matrósafótum í flugbún- ingnum," sagði Dagfinnur. Fyrsta flugið til útlanda fór hann árið 1948. „Eg var í innanlandsflugi þegar vantaði flugmann í Kaup- mannahafnarflug. Þeir sögðu að ég yrði að reyna, létu mig lenda vélinni þrisvar á Reykjavíkurflugvehi og farþegarnir biðu á vellinum á meðan. Baron Moore vár með mér í ferð- inni. Hann var frægur flugstjóri, var í skóla með Lindberg. Hann var hér á landi til að koma upp milhlanda- fluginu fyrir Lofleiðir. Þá var flogið á Sky Master og ég man að þegar við vorum komnir á loft sagði Baron Moore mér aö taka við og settist sjálf- ur afturí til að skrifa ævisögu sína. Ég flaug út og heim aftur.“ Skrifar ævisögu? Dagfinnur hefur sjálfur ekki tekið ákvörðun um hvort hann gefl út sína ævisögu enda segist hann hafa gleymt að skrifa dagbók. En flug- tímabókina á hann og getur séð hvar hann var á hvaða tíma. „Maður hef- ur upplifað mjög margt. Ég lenti í Geysisslysinu en ég þakka guði og forsjóninni hvaö ég hef verið far- sæh,“ sagði hann ennfremur. Dagfinnur hefur komið til flestra landa í heiminum nema Sovétríkj- anna og hann stefnir á að skoða þann heimshluta sem farþegi áður en langt um líöur. - En hvað er svona spennandi við flugmannsstarfið? „Hér áður fyrr heihuðu ferðalögin. Þetta er hrífandi starf og maður lét sér ekki detta í hug að starfið myndi gefa af sér peninga í þá daga. Ég held i irsl tfi l iati’ fc tói'jóva ir.rs ,; að ungir menn í dag sæki fremur í starfið vegna launanna. En starfið er fyrst og fremst hvetjandi, maður vinnur sjálfstætt og tekur eigin ákvarðanir. Það verður erfitt að sætta sig við hið jarðbundna líf aft- ur,“ sagði Dagfinnur Stefánsson sem á að baki þijátíu þúsund flugtíma. -ELA Sandkom Sannleikurinn um Framsókn ívelheppn- aðriræðusinni á þingi fram- sóknarmanna urn helgina sagði Jón Bald- vin Hannibals- sonskemmti- legasöguí stjórnmála- bráttunnisem skýraáttiþað vopnahlésem núríkir.Árið 1948 var forsetabaráttan í Bandaríkj- unum óvenju hörð ogmenn spöruðu ekki hin breiðu spjót. Harry Trutnan barðist þá við Dewey og var að lokum komlð á fundi þar sem fy lkingarnar sættust. Efhr fundinn sagði Truman við blaðamenn að þaö heíði orðið aö samkomulagi að ef repúblikanar hættu að breiða út lygi um hann þá ætlaði hann að hætta að segja sann- leikann um þá. Nu erbara spurning- inn: Ætlar Jón Baldvin að hætta að segja sannleikann um framsóknar- menn? Handtaka séra Gunnars Ámynd hérí DV um síðustu helgi mátti sjá skemmtilcgu uppákomulyr- irframan l-'rí- kirkjunaþegar „handtaka séra Gunnatv vtir scttásvið. Gunnarvarð ekkert mjög hrifinnafþess- arimyndeftir allt saman og hefur ákveðið að hún veröi ekki á forsíðtmni á væntanlegri bók. Þess má geta að upphaflega hug- myndin varðandi þessa myndatöku var sú að séra Gunnar yrði dreginn í burtu aftveim íllefldum lögreglu- þjónum. Þá hefur hann ákveðið að brey ta nafninu á bókinni en hún átfl einfaldlega að heita Séra Gunnar. Ekki fylgir sögunni hvert endanlegt nafnhennarverður. Stöðuverðir Tveirhug- rakkirstöðu- verðir brugðu sér upp í Há- skólann i vik- unnien þareru ftestirólöglega siaðsettirbíle.r áfermetrahér álandi.Ákaf- inn við að sekta varsvoinikill aöþeirhlupu frásínumeigin bil í gangi og opnum upp á gátt. Nokkrir viðskíptafræðinemar sáu sér leik á boröi og tóku bílinn trausta- taki og keyrðu hann upp á Suðurgötu þar sem þeir skildu hann eftir í gangi og raeð ljósmn. Stöðu verðirnir þurftu að fá hús vörð í Norræna húsinu til að keyra sig í leit að bílnum. Hatrn fannst að lokum en viðskiptafræði- nemar segja að þetta hafi verið aðvör- un. Næst verði stöðuverðirnir að leita að bilnum á bílapartasölum. Húsogbíó Þessierfeng- inaðlániúr l'naliogcr þeim ril hug- hreyslingar scmstandaí húsakaupum: lleyrðuelskan mín.eigumvið ekkibaraaðslá þessuuppí kæruleysi og takapeningana semviðhöfum safnað saman til íbúöarkaupanna og bregðaokkuríbíó. Umsjón: Slgurður Már Jórtsson í Háskóla

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.