Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1988. MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1988. 21 Iþróttir Frétta- stúfar • Adrian Heath. Heath til Espanol Spænska knatt- spyrnuliöið Espanol frá Barcelona keypti í gær sóknarmanninn Adrian Heath frá Everton fyrir um hálfa milljón punda. Heath samdi um aö leika meö hðinu út þetta keppnistimabil og að gengið yrði frá tveggja ára samningi i vor ef vel gengi. Fyrrum félagi hans hjá Ever- ton, Gary Lineker, leikur með nágrannaliðinu Barcelona. For- ráðamenn þess félags neituðu í gær að til stæði að selja hann þrátt fyrir að honum hafl gengið illa að skora það sem af er keppn- istímabilinu. Barcelona væri hins vegar alltaf opið fyrir góðum til- boðum. ekki aðeins i Lineker heldur í aðra leikmenn félagsins. Tyrkir æfir Segja má að allt Tyrkland logi af reiði yfir þeirri ákvörðun Knatt- spyrnusambands Evrópu, UEFA, að dæma 5-0 sigur Gaiatasaray yfir Neuchatel Xamax frá Sviss í Evrópukeppni meistaraliða ógildan. Tyrknesk blöð birtu um helgina síma-, telex- og telefax númer UEFA og síðan hefur hringingum og skeytasendingum frá Tyrklandi til höfuðstöðvanna í Genf ekki linnt. Talsmaður UEFA sagði í gær að símakerfið þar heíði látið undan álaginu. UEFA úrskuröaði á fóstudaginn að leikurinn skyldi leikinn aftur vegna óláta áhorfenda og að Gal- atasaray skyldi leika næsta heimaleik sinn í Evrópukeppni í 300 km flarlægð frá bækistöðvum sínum. 44 vitaspyrnur Þaö þurfti 44 vítaspyrnur til að knýja fram úrslit í leik Argentin- os Juniors við Racing Club í arg- entínsku 1. deildinni í knatt- spymu um síðustu helgi. Þar var tekin upp sú regla í haust að víta- spymur réðu úrslitum ef lið væru jöfn að loknum venjulegum leik- tíma. Þegar Mario Videla, vam- armaður Racing Club, spyrnti framhjá marki Argentinos í 44. spymu var ljóst að lið hans hafði tapað, 19-20, i vítakeppninni en staðan í leikslok var 2-2! Mark- vörður Argentinos, Carlos Goy- en, var í sviðsljósinu því hann varði tvær spyrnur og skoraði einnig tvisvar. Gunnar meö Leikni Gunnar Öm Gunnarsson, sem hefur leikið með Víkingum síð- ustu árin, hefur verið ráðinn þjálfari kriattspymuliðs Leiknis úr Breiðholti, sem leikur í 3. deild. Gunnar Örn hætti að leika með Víkingum á miðju síöasta sumri. Leiknir hefur einnig feng- ið til sín Ingvar G. Jónsson sem var þjálfari og leikmaður með Skallagrími sl. sumar. Herrakvöld hjá Fram Ómar Ragnarsson verður á með- al gesta á herrakvöldi Fram sem verður á föstudagskvöldið. Fleiri gestir munu mæta og fluttar verða misgóðar ræöur. Herra- kvöldið verður í félagsheimili Fram viö Safamýri og hefst klukkan 19.30. Iþróttir Markafjöldinn í l.deild handbolta 140 130 120 110 100 - 90 0 ■ Skoruö mörk □ Fengin mörk Valur Víkingur Stjarnan Grótta ÍBV KR FH KA UBK Fram Grótta sækir Vals- menn heim í kvöld - og þrír aðrir leikir 11. deild Fyrsta deildin í handknattleik karla heldur sínu striki í kvöld en þá eru fjórir leikir á döfinni. Hæst ber líklega leik íslandsmeist- ara Vals og Gróttu að Hlíöarenda. Seltirningar hafa komið mjög á óvart það sem af er íslandsmótinu. Lið þeirra markast af mikilli baráttu og oft á tíðum vel útfærðum leik. Víg- staða Valsmanna er hins vegar sú besta í deildinni og lið þeirra hefur verið ægilegt heim aö sækja til þessa. Leikur liðanna hefst klukkan 18.15. í Höllinni eigast við lið Fram og Eyjamanna og er sá leikur gríðarlega mikilvægur báðum í botnslagnum. Sá leikur hefst klukkan 20. Noröan heiða leika KA-menn við Stjörnuna og má ætla að norðan- menn taki nú á en þeir lágu heima í síðasta leik gegn Fram. Stjarnan hef- ur hins vegar unnið tvo leiki í röð og er lið Garðbæinga til alls líklegt eftir rysjótt gengi í fyrstu umferðun- um. Leikur þessara aðila hefst klukkan 20. í Firðinum mætast heimamenn og Blikar, einnig klukkan 20. Blikar hafa sótt á brattann það sem af er mótinu en lögðu þó Fram að velli í Laugardalshöll fyrir nokkru. Víst er að þeir bíta rækilega frá sér í kvöld. FH-ingar munu verða vígreifir að sama skapi en þeir lágu fyrir Víking- um um helgina. JÖG Runar komið í hóp efstu liða Heimundur Sigmundsson, DV, Noregi: Runar, lið Steinars Birgissonar og Snorra Leifssonar, er komið í 4.-5. sæti 1. deildarinnar í handknattleik eftir 25-20 sigur á Sandefjord. Þetta er mjög góður árangur þar sem Runar lék í 2. deildinni í fyrra. Steinar var annar markahæsti leikmaður Runar með 7 mörk en Valur fór létt með Stúdenta Valsmenn unnu auðveldan sigur á Stúdentum, 98-54, þegar félögin léku í Flugleiðadeildinni í körfuknattleik á Hlíðarenda í gærkvöldi. Eins og búast mátti við höfðu Vals- menn mikla yfirburði en þó munaði aðeins 12 stigum í hálfleik, 45-33. Eins og oft áöur var leikur ÍS ekki upp á marga fiska og leikmenn liðs- ins gerðu mistök sem ekki ættu að sjást í efstu deild. Bárður Eyþórsson var stigahæstur Valsmanna, skoraði 21 stig, og Hreinn Þorkelsson kom næstur með 16. Valdimar Guðlaugsson skoraði mest fyrir ÍS, 14 stig, og Páll Arnar gerði 11. -SK Snorri náði ekki aö skora. Hann hef- ur ekki komist enn á fullt skrið í lið- inu eftir að hann handarbrotnaði seinni part sumars. Stavanger hefur náð þriggja stiga forystu, er með 16 stig eftir 10 um- ferðir. Fredensborg/Ski og Bækkela- get koma næst með 13 stig og síðan Runar og Urædd með 11 stig. 1 O X Körfuboltí / Staðan / Flugleiðadeild: A-riöill: Njarðvík.....13 13 0 1163-927 26 Valur........14 9 5 1201-1043 18 Grindavík... 14 7 7 1118-1047 14 ÍS...........14 1 13 877-1343 2 Þór..........14 1 13 1044-1334 2 B-riðill: Keflavík.....13 11 2 1124-919 22 KR...........13 10 3 1064-980 20 Haukar.......13 6 7 1162-1083 12 ÍR...........13 6 7 992-1004 12 Tindastóll... 13 3 10 1076-1161 6 1. deild kvenna: Keflavík .5 5 0 308-211 10 KR .6 5 1 294-260 10 ÍS .6 4 2 302-283 8 ÍR .7 4 3 382-365 8 Haukar .6 2 4 260-204 4 Njarðvík .7 2 5 251-284 4 Grindavík .7 0 7 287-377 0 „Arnljótur hef ur fall ist á tilboð okkar“ - segir framkvæmdastjóri gríska félagsins Iraklis Saloniki „Viö höfum gert Arnljóti Davíössyni ákveðiö tilboð sem hann hefur fallist á fyrir sitt leyti en við eigum eftir aö ræða við félag hans, Fram. Eftir þær viðræður verður fyrst ljóst hvort af þessu verður, ef Fram setur fram háar kröfur þurfum við að leita annað - en Arnljótur er geysilega efnileg- ur knattspymumaður sem á framtíðina fyrir sér og ég vona svo sannarlega að allir aðilar nái saman þannig að hann gerist leikmaður með okkur,“ sagði George Gsamouchlidis, annar tveggja framkvæmdastjóra gríska 1. deildar liðsins Iraklis Saloniki, í samtali við DV í gærkvöldi. Arnljótur mun leika vináttuleik með Iraklis gegn júgóslavnesku félagi í dag en heldur síðan áleiöis heim og er vænt- anlegur til landsins á morgun. Hann hefur dvalið hjá félaginu við æfingar í eina viku. Sá um kaupin á Sigurði Grétarssyni Gsamouchlidis hefur átt veg og vanda að því aö fá Arnljót til Iraklis. Hann sá um kaupin á Sigurði Grétarssyni, sem lék með Iraklis veturinn 1984-85, og segist vera mikilí vinur hans síðan og ræða við hann í viku hverri. Sigurður sé frábær knattspyrnumaður og það hafi verið félaginu mikið áfall að missa hann til Sviss á sínum tíma. Sá Arnljót hita upp í Istanbúl „Ég var staddur í Istanbúl þegar ís- land mætti Tyrklandi í haust og í leik- hléinu sá égAmljótleika sér með knött- inn, skjóta á mark og spila létt með hinum varamönnunum. Ég hreifst af honum og fór á hótel íslenska liðsins eftir leikinn, ræddi við Atla Eðvaldsson þar sem ég var einnig spenntur fyrir honum, og hann sagði mér meira frá Arnljóti. Ég hringdi síðan í Sigurð Grét- arsson og fékk nánari upplýsingar frá honum.“ Sannfærður um að áhættan borgar sig „Það er mikil áhætta að fá til félagsins leikmann sem maður hefur ekki séð til í leik en ég sannfærður um að hún borg- ar sig. Arnljótur á framtíðina fyrir sér, ég er ekki viss ura að hann fari beint í aðalliðið og reikna með að hann þurfi smátíma til aðlögunar fyrst. Þjálfarinn er mjög ánægður raeð hann og ætlar að meta endanlega getu hans í leiknum á morgun (í dag),“ sagði Grikkinn. Iraklis hefur gengið miög vel það sem af er keppnistímabilinu og er í öðru sæti grísku 1. deildarinnar, stigi á eftir öðru liði frá Saloniki. -VS • Arnljótur Daviðsson er á mörkunum með að verða neesti atvinnu- maöur íslands i knattspyrnu. UEFA-bikarinn: Stuttgart í óskastöðu vann Groningen, 3-1, í Hollandi Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi: Ásgeir Sigurvinsson og félagar í Stuttgart eru nánast öruggir með sæti í 8-liða úrslitum UEFA-bikarsins í knattspymu eftir 3-1 útisigur gegn hollenska liðinu Groningen í gær- kvöldi. Stuttgart fékk dauðafæri strax á 8. mínútu þegar Júrgen Klinsmann átti skalla rétt framhjá marki Groningen. Tíu mínútum síðar var Karl Allgöw- er ekkert að tvínóna við hlutina - átti þá þrumuskot af 30 metra færi, yfir markvörðinn og í netið, 0-1. Þremur mínútum eftir það stóö Ás- geir einn og óvaldaður fyrir framan markið eftir glæsilega skyndisókn en honum tókst hið ótrúlega, hitti ekki markið með hægrifótar skoti. Á 33. mín. skoraði Mauritio Gaud- ino eftir aukaspyrnu Allgöwers, 0-2, og gerði síðan sitt annað mark á 40. mínútu eftir stungusendingu frá Allgöwer. Þórsarar steinlágu Ægir Mar Kárason, DV, Suöumesjum; Grindvíkingar rúlluðu Þórsurum upp í Flugleiöadeildinni í körfu- knattleik í gærkvöldi. Lokatölur urðu 114-76 eftir aö staðan í hálfleik hafði veriö 61-32. Fyrstu 6 mínútumar var leikurinn í jafnvægi en eftir að Steinþór son og Ástþór höfðu skorað nokkrar 3ja stiga körfur vóru úrslitin ráðin. Stig UMFG: Guðmundur 25, Stein- þór 20, Jón P. 17, Ástþór 15, Rúnar 13, Ólafur 9, Guðlaugur 6, Hjálmar 5, Dagbjartur 2 og Sveinbjörn 2. Stig Þórs: Konráð 23, Eiríkur 15, Guðmundur 13, Björn 9, Stefán 6, Þórir Jón 4, Kristján 4, Aðalsteinn 2. Leikmenn Groningen komu ákveðnir til síðari hálfleiks en kom- ust lítt áleiðis gegn sterkri vörn Stuttgart. Á 65. mínútu var Katanec borinn af leikvelli eftir að hafa snúið sig illa og var þar skarð fyrir skildi í liði Stuttgart. Skrúfjárni og kveikjurum kast- að inn á og boltar sprengdir! Þegar korter var eftir munaði litlu að dómarinn flautaði leikinn af vegna óeirða áhangenda Groningen sem staddir voru fyrir aftan mark Stuttgart. Dósir, kveikjarar og stærð- ar skrúljárn komu fljúgandi frá þeim inn á völlinn og þeir sprengdu tvíveg- is keppnisbolta! Meijer náði að minnka muninn í 1-3 á 82. mínútu með skalla eftir hornspyrnu en öruggum sigri Stutt- gart varð ekki ógnað. Þjóðverjarnir voru mun betri aðilinn og áttu sigur- inn skilið. Ásgeir var með allan tim- ann þrátt fyrir meiðsli og lék vel. Guðni lék með varaliði Spurs í gærkvöldi - æföi með aðalliðinu 1 gærmorgun Guðni Bergsson, landsliðsmaður úr Val, lék í gærkvöldi vináttuleik með varaliði enska 1. deildar félagsins Tottenham Hotspur gegn utandeilda- liðinu St. Albans. Hann hélt utan á mánudag og æfði í fyrsta skipti með aðalliði félagsins í gærmorgun. ,,Ég lék í minni gömlu stöðu í vörn- inni og var nokkurn tíma að venjast samherjum sem ég hafði ekki leikið með áður en gekk að ég held ágæt- lega.-Við höfðum nokkra yfirburði og unnum 3-1 en þó kom mér styrk- leiki mótherjanna talsvert á óvart. Leikurinn fór fram á velli þeirra sem er svipaður og gengur og gerist heima,“ sagði Guðni í samtali við DV í gærkvöldi. Leikið í Ipswich á laugardag Tottenham leikur við Ipswich á Portman Road í Ipswich næsta laug- Thorstvedt undir mark- slána hjá Tottenham • Guðni Bergsson vakti athygli hjá Tottenham fyrir að æfa og leika i angóruuilarbuxum í gær! Á sama tíma og enska stórveldið Tottenham sýnir landsliðsmannin- um íslenska, Guðna Bergssyni, áhuga sækjast þeir eftir norska • landsliðsmarkverðinum Erik Thorstvedt að sögn norskra dag- blaða. Segir norska pressan að for- ráðamenn Tottenham hafi hug á að gera Thorstvedt dýrasta leikmann í norskri knattspyrnusögu en liðiö hefur boðið sænska liðinu Gautaborg miklar fúlgur fyrir kappann. Raunar segir Terry Venables, stjóri Tottenham, að liðið hafi nú að fullu gengið frá kaupum á Norðmannin- um. Eiríkur var fyrir ári síðan á leið til Arsenal en þá fékkst ekki atvinnu- leyfi og mátti Norðmaðurinn því sætta sig við að verja mark í Svíþjóð. JÖG ardag í deildakeppni varaliðanna og Guöni reiknar með þvi að spila þann leik. Fyrir leikinn í gærkvöldi var gengið frá öllum pappírum og leyfi fengið hjá Val, KSÍ og enska knatt- spyrnusambandinu þannig að Guðni gæti leikið. Mjög góðar viðtökur „Allar viðtökur hér hafa verið mjög góðar og ég bý á hóteli ásamt nokkr- um leikmanna Tottenham. þar á meðal Paul Gascoigne og Paul Stew- art, sem félagið keypti í sumar. Hér er líka Spánverjinn Amar sem Tott- enham er meö á leigu frá Barcelona og hann spilaði með í kvöld en 15 manna hóp aðalliðsins var haldið fyrir utan leikinn þar sem það spilar í deildabikarnum annað kvöld. Það vakti mikla athygli hérna þegar sjálf- ur íslendingurinn mætti á æfingu og í leik í sérstökum angóruullarbuxum til að halda á sér hita. Hér eru menn vanir að vera léttklæddir í vetrar- kuldanum, í stuttbuxum og þunnum bol!" sagði Guðni Bergsson. -VS • Brynjar Valdimarsson meö sigur- launin en auk bikara fékk hann 65 þúsund krónur. Brynjar krækti sér í 65 þúsund krónur Úrslitaleikurinn í opna Suðurnesjamótinu í snóker fór fram á biiliardstofunni Ballskák á dögunum. Til úrslita léku Viðar Viðarsson, fyrrverandi íslandsmeist- ari, og Brynjar Valdimarsson, núverandi íslandsmeistari. Viðureign þeirra var æsispennandi og fengu áhorfendur að sjá snóker eins og hann geiist bestur hér á landi og jafnvel víöar. Viðar sigraði í fyrsta rammanum en tii að sigra í leiknum varð að vinna fjóra ramma. Brynjar vann síðan næstu tvo ramma en í íjórða rammanum var áber- andi glæsilegur varnarleikur í fyrirrúmi. í lokin var aðeins svarta kúlan eftir á borðinu og gekk á ýmsu. Fór svo að lokum aö Brynjar sigraði og staðan því orðin 3-1 fyrir hann. Viðar gafst ekki upp og sigraði í næstu tveimur römmum og því varð sjöundi ramminn úrslitarammi. Brynjar sýndi þar snilldartakta. Náði hann stuði sem gaf honum 107 stig og er það hæsta skor sem náðst hefur í sjónvarpsútsendingu hér á landi. Brynjar sigraði því 4-3 og fyrir sigurinn fékk hann 50 þúsund krónur og 15 þúsund að auki fyrir hæsta skor á mótinu. Fyrir annað sætið fékk Viðar Viðarsson 30 þúsund krónur. Gleraugnaverslun Keflavíkur og Billiardstofa Suðurnesja voru bakhjarlar að mótinu sem tókst í alla staði mjög vel. -SK Guðmundur aftur til Blikanna - lelkur á ný meö Breiðabliki næsta sumar Þrír „gamlir jaxlar“ hafa myndað nýtt meistaraflokksráð hjá Breiða- bliki með það að markmiði að rífa liðið upp úr þeim öldudal sem það hefur verið í síðustu ár. Það eru þeir Hákon Gunnarsson, Benedikt Guð- mundsson og Ólafur Björnsson en líkur eru á að Ólafur, sem hefur ver- ið fyrirliði Blikanna um árabil, hætti að leika sjálfur með liðinu. Benedikt hætti á miðj u síðasta sumri og Hákon fyrir tveimur árum. Þeir Sigurður Þorsteinsson og Guð- mundur Helgason Verða þjálfarar Breiðabliks á næsta keppnistímabili en ekki hefur þó enn verið gengið frá samningum við þá. Guðmundur Þ. Guðmundsson, miðjumaðurinn öflugi sem lék með Völsungi í 1. deildinni sl. sumar, er genginn til liðs við Breiðablik á nýjan leik og leikur með liðinu í 2. deild- inni á næsta ári. Guðmundur lék með Blikunum í nokkur ár áður en hann fór til Völs- unga sl. vor. Hann lék mjög vel með Völsungum í sumar og var kjörinn knattspyrnumaður ársins hjá liðinu og Blikunum er því mikill fengur í honum. Eins og DV hefur áður sagt frá eru miklar líkur á að þeir endur- heimti einnig Þorstein Geirsson sem lék með Leiftri sl. sumar. Duffield þjálfar KS Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Mark Dufiield mun þjálfa lið KS frá Siglufirði í 3. deild knatt- spymunnar næsta sumar og leika einnig með liðinu. Mark hefur gert nokkuð við- reist undanfarin ár. Hann lék fyrst með Þrótti frá Neskaupstað og síðan KS, þá KA og Víði í 1. deild og kom aftur til KS1987. Sl. sumar spilaöi hann síðan meö Skagamönnum í 1. deildinni. Mark er 24 ára og á að baki leiki með öllum landsliðum, 16 ára, 18 ára, 21 árs og a-landsliði. Ekki er vafamál aö koma hans til KS mun styrkja liöið en Skaga- menn tapa aö sama skapi sterk- um leikmanni. Siglfirðingar féllu í 3. deildina í haust efdr sex ára dvöl í 2. deild og ættu að eiga góða möguleika á að vinna aftur sæti sitt í fyrstu atrennu. Naumur sigur Dýrlinganna Southampton vann nauman sigur á 4. deildar liði Scarboro- ugh, 1-0, í enska deildabikarnum í knattspymu í gærkvöldi. „Dýrl- ingarnir" fá nú Tottenham í heimsókn í 4. umferð keppninn- ar. Bradford tryggði sér einnig sæti þar með því að vinna Scunt- horpe, 1-0, á útivelli. í 2. deild gerðu Birmingham og Leeds markalaust jafnteili og Blackburn tapaöi óvænt fyrir Shrewsbury, 0-1. Úrslit í FA- bikamum: Brandon - Doncaster 1-2, Carlisle - Telford 4-1, Crewe - Stafford 3-2, Sheff. Utd - Mans- fleld 2-1, Tranmere - Preston 3-0, Wrexham - Runcorn 2-3. -VS Rúmeninn kemur í Leiftur Nú er ljóst að rúmenski knatt- spymumaöurinn Arthur David mun leika með Leií'tri frá Ólafs- íiröi í 2. deildar keppninni næsta sumar en nokkuð er síðan Leift- ursmenn komust í samband við hann, eins og DV hefur áður skýrt frá. David er 25 ára gamall miðju- maöur og hefiir verið búsettur í Bandaríkjunum síðustu árin en hann var nálægt þvi að leika landsleiki fyrir fyrra heimaland sitt. -VS til IA Vaigeir Barðason, knatt- spymumaður frá Akranesi, er genginn í raðir 1. deildar liðs ÍA á nýjan leik. Hann lék sl. sumar með KA á Akureyri í 1. deildar keppninni. Valgeir er mjög raark- sækinn sóknarmaöur og skoraöi grimmt fyrir Skagamenn áður en hann hélt norður og ætti aö vera þeim góður liðsauki fyrir næsta timabil. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.