Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1988.
Viðskipti_____________________________________
Álver og Alþýðubandalag:
Flokksfélaginn er
inni en flokkurinn úti
Baldur Óskarsson er alþýöubanda-
lagsmaður í stórpólitískri nefnd sern
á að ræða við útlendinga um álver á
íslandi. Baldur er vinur Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, formanns Alþýðu-
bandalagsins, og talar við hann ann-
an hvern dag. Samt er Baldur ekki
fulltrúi ílokksins í nefndinni.
„Ég er fulltrúi iðnaðarráðherra í
þessari nefnd." segir Baldur. „ég er
aðeins áhugamaður um framgang
íslensks atvinnulifs og það hefur
ekkert með málið að gera að ég er
flokksbundinn í Alþýðubandalag-
inu."
Það vakti athygli á Alþingi í fyrra-
dag að Ólafur Ragnar Grímsson
þvoði hendur Alþýðubandalagsins
af nefnd iðnaðarráöherra. skipaðri
til að ræða við erlend fyrirtæki stór-
iðju á íslandi. Alþýðubandalagið hef-
ur löngum verið eindregnastur
stjórnmálaflokka í andstööu við er-
lenda stóriðju á ísiandi.
Einn af fimmmenningunum í nefnd
iðnaðarráðherra er Baldur Óskars-
son. baráttufélagi Ólafs Ragnars úr
Framsóknarílokknum. Þeir félagar
gengu á sínunt tíma saman úr Fram-
sóknarílokknum og festu ráð sitt í
Alþýðubandalaginu.
„Mér er alveg ókunnugt um það
hvað hefur farið á rnilli Ólafs Ragn-
ars og iðnaðarráðherra um þessa
nefndarskipan," sagði Baldur að-
spurður. Hann segist hitta Ólaf
Ragnar oft, „ég tala stundum við
hann annan hvern dag," en þeir hafi
ekki rætt um skipan Baldurs í viö-
ræðunefndina. „Mér þykir samt sem
áöur ekki óeðlilegt að ólafur Ragnar
beri til mín traust og bæði honum
og öðrum alþýðubandalagsmönnum
er sjálfsagt að fá mig til viöræðu um
nefndarstörfin."
Baldur dregur ekki dul á aö honum
þykir það forneskja að vera á móti
stóriðju bara af því að það er stór-
iðja. „Við lifum á öðrum tímum núna
en þegar stóriðjustefna Alþýðuband-
lagsins var mótuð. Ég mun ganga að
þessu verki án nokkurra fordóma og
ekki vera með neinar fyrirframskoð-
anir á því hvort bygging álvers sé
æskileg eða óæskileg, hagkvæm eða
óhagkvæm. Efnisatriði málsins leiöa
það í ljós," sagði Baldur.
-pv
Baldur spilar stóriðjuvals.
Er Olafur Ragnar ánægður með tón-
inn?
Peningamarkaöur
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækuiób 5-7 Bd
Sparireikningar
3ja mán. uppsogn 5-8 Sd Sp
6mán. uppsogn 5-9 Vo.Sb,- Sp
12mán. uppsogn 6-10 Ab
18 mán. uppsogn 15 Ib
Tékkareikmngar. alm. 1-2 Vb Sb,- Ab
Sértékkareikmngar 5-7 Ab.Bb - Vb
Innlán verðtryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsogn 1.5-2 Bb.Vb,- Sp
6 mán. uppsogn 2-3.75 Vb.Sp
Innlán meðsérkjorum 5-12 Lb.Bb,- Sb
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 7.25-8 Vb
Sterlmgspund 10.50- 11.25 Vb
Vestur-þýsk mork 4-4.25 Ab.V- b.S- b.Ub
Danskarkrónur 7-8 Vb.Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 15.5-18 Sp
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 16.5-21 Vb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareiknmgar(vfirdr.) 19-22 Lb.Ub
Utlan verötryggö
. Skuldabréf 8-8.75 Vb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 17-20 Lb.Bb
SDR 9-9.75- Lb.Úb,- Sp
Bandaríkjadalir 10.25 Allir
Sterlingspund 13.50- 14.50 Lb.Úb
Vestur-þýsk mork 6.75-7.25 Allir nema Vb
Húsnæðislán 3.5
Llfeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 27.6 2,3 á
mán.
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. nóv 88 20.5
Verðtr. nóv. 88 8.7
VÍSITOLUR
Lánskjaravísitala nóv. 2272 stig
Byggmgavísitala nóv. 399.2 stig
Byggingavísitala nóv. 124,8 stig
Húsaleiguvísitala Engin hækkun 1. okt Verðstoðvun
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3.375
Einmgabréf 2 1.920
Einingabréf 3 2.189
Fjólþjóðabréf 1.268
Gengisbréf 1,565
Kjarabréf 3.366
Lífeyrisbréf 1.697
Markbréf 1,780
Skyndibréf 1.032
Sjóðsbréf 1 1,621
Sjóðsbréf 2 1,409
Sjóðsbréf 3 1.156
Tekjubréf 1,568
HLUTABRÉF
Sóluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 118 kr.
Eimskip 346 kr.
Flugleiðir 273 kr.
Hampiðjan 130 kr.
Iðnaðarbankinn 172 kr.
Skagstrendingur hf. 160 kr.
Verslunarbankinn 134 kr.
Tollvorugeymslan hf 100 kr.
(1) Við kaup ’á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um bg nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
Stóriðja getur klofið
Alþýðubandalagið
- og fellt ríkisstjómina
Kratinn og Hafnfirðingurinn, Kjart-
an Jóhannesson þingmaður, neitar
að styðja ríkisstjórnina ef hann fær
ekki álver í fjörðinn. Fyrrum iðnað-
arráðherra og núverandi þingmaður
Alþýöubandalagsins, Hjörleifur
Guttormsson, mun ekki styðja þá
ríkisstjórn sem leyfir útlendingum
að setja upp álverksmiðju í landinu.
Samtímis er náinn vinur Ólaf^ Ragn-
ars Grímssonar, formanns Alþýöu-
bandalagsins, í opinberri viðræðu-
nefnd sem á aö ftnna út hvort þaö
borgi sig ekki að selja útlendingum
orku og aðstöðu til aö reka hér stór-
iðju.
Ríkisstjórnin er með eins atkvæðis
meirihluta í sameinuðu þingi og situr
uppi með minnihluta þingmanna í
neöri deild. Þessár staðreyndir gera
hótanir einstakra þingmanna alvar-
legar um að styðja ekki stjórnina
gangi stefna stjórnvalda þvert á vilja
einhvers þingmanns eða þingmanna.
„Ég held að einn þriðji hluti flokks-
manna Alþýðubandalangsins sé al-
farið á móti stjóriðju, hvaða nafni
sem hún nefnist. Tveir þriðju hlutar
flokksmanna eru tilbúnir til að at-
huga með opnum hug hvort stóriðja
sé æskileg," segir alþýðubandalags-
maður sem þekkir vel til í flokknum.
Sé þetta mat rétt er nokkurn veg-
inn víst að við núverandi aðstæður
er afar ósennilegt að Alþýðubanda-
lagið samþykki nýtt álver. Sérstak-
lega ef tillit er tekið til þess aö íslend-
ingar munu ekki geta selt rafmagn á
ýkja háu verði til stjóriðju.
„Það er alveg ljóst að stjóriöja er
ekki sá happadrættisvinningur sem
hún löngum þótti," sagði Birgir
Árnason, hagfræðingur og aðstoðar-
maður iönaðarráöherra. Birgir telur
að í besta falli geti íslendingar samið
við erlenda stóriöju upp á það aö
landinn fái kostnað viö virkjanir
endurgreiddan og kannski rétt rúm-
lega það. Hreinn hagnaður í pening-
um mælt yrði óverulegur.
Þaö er skoðun Birgis að íslendingar
ættu engu að síður að athuga vel
möguleikana sem liggja í því að selja
raforku til stóriðju.
Ragnar Árnason, dósent í við-
skiptadeild Háskólans, er þeirrar
skoðunar aö íslendingar hafi farið
rangt að í samskiptum erlenda stór-
iðju. „Við höfum ráðist í virkjanir
og ætlað að selja raforkuna eftir á.
Þetta er skólabókardæmi um þaö
hvernig á ekki að fara að hlútunum.
Fyrst eigum semja um sölu á raf-
orkunni og síðan virkja í samræmi
við það,“ segir Ragnar.
Núna fer af stað hagkvæmniathug-
un á nýju álveri. Á meðan sú athug-
un fer fram er líklegt að dragi úr stjó-
riðjukarpi í íslenskum stjórnmálum.
Hins vegar gæti dregið til tíðinda
næsta vor en þá á aö liggja fyrir hvort
hafnar verða alvöruviðræður við
samsteypu fjögurra evrópskra fyrir-
tækja um byggingu álvers.
-pv
Stóriðjan á að taka við af sveitasælunni. Það kann að kosta ríkisstjórnina lífið.
Bjórf undur á Hótel
Loftleiðum
Menn veröa að bíða eftir 1. mars
til að kaupa bjórkollu á krá á ís-
landi. En þangað til er hægt aö tala
um ölið og velta vöngum hvernig
löglegur bjór muni smakkast á ís-
landi eftir áratugabjórbann.
í kvöld efnir kynníngarnefnd
Verkfræðingafélags íslands til
bjórfundar á Hótel Loftleiðum þar
sem mælskir menn og bjórþyrstir
segjafrá ölinu. Líklegir bjórkóngar
á Islandi, Tómas Agnar Tómasson
frá Ölgerðinni og Ragnar Birgisson
hjá Sanitas, gefa yfirlit yfir þróun
bjórframleiðslu og hvernig brugg-
un er háttað á íslandi.
Guttormur Einarsson frá
Ámunni mun sýna kvikmynd um
bjórbruggun og einnig talar brugg-
verkfræðingurinn Hinrik Guð-
mundsson.
í tilefni fundarins verður til sýnis
safn af umbúðum og merkingum á
íslenskum bjórtegundum, gömlum
og nýjum. Þá getur að líta hráefni
sem notuö eru til bruggunar.
Fundurinn hefst klukkan hálfníu
og segir ekki í fundarboöi hvort eöa
hvaöa veitingar verða á boðstólum.
-pv
Berlingske Tidende:
Gott og vont um
íslenskan
Danskurinn sýnir efnahagsmálum
íslendinga áhuga og segir bæði gott
og vont um hagsældina á Fróni. ís-
lendingar héldu fullri atvinnu og
náðu verðbólgunni niöur en tókst
ekki að hamla gegn oíþenslu er
myndin af efnahagsástandinu sem
dregin er upp í viðskiptablaöi Ber-
lingske Tidende nýlega.
Fréttin er aðallega byggö á skýrslu
efnahags- og þróunarstofununarinn-
ar OECD en skýrslan sú er einkum
fræg fyrir það að Steingrímur Her-
mannsson nennti ekki að lesa hana,
sagði hana soðna upp úr frjáls-
hyggjukreddum möppudýra á ís-
landi.
í Berlingi segir að á árunum 1983-
1987 hafi þjóðarframleiðsla á íslandi
efnahag
stigið um tuttugu prósent og það sé
langt yfir það sem gerðist í Evrópu
á sama tíma, enn fremur að þjóðar-
tekjur á mann hafi aukist meira en
nam í öllum þeim 24 þjóðlöndum sem
OECD færir tölur yfir. íslendingar
högnuðust á lægra olíuveröi og
hærra fiskverði sem jók útflutnings-
tekjurnar.
Yfirstjórn efnahagsmála er aftur á
móti ábótavant, segir í fréttinni, og
munar mestu um að'ekki var dregiö
úr þenslu. Góðærið varð til þess að
verðbólga tók að vaxa. Berlingur
hefur eftir OECD-stofnuninni að
nauösynlegt sé að draga úr eftir-
spurn til að komast hjá víxlverkun
launa og verðlags með tilheyrandi
verðbólgu. -pv