Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1988.
17
Lesendur
Samanburður á kreppum hjá Stöð 2:
Einkennileg úttekt
Jóhann hringdi:
í fréttum á Stöö 2 nýlega sá ég
fréttamann vera að bera saman
kreppueinkenni árin 1967/1968 við
þau einkenni sem nú blasa við hér
og taldi hann að þau einkenni sem
nú blöstu við væru ekki lýsandi
dæmi fyrir kreppu, ef borið er sam-
an við þær aðstæður sem voru á
þeim árum. -Síðan tók hann dæmi.
í fyrsta lagi sagði hann að nú
værum við um 45 þúsundum fleiri
en á árunum 1967/1968. - Ekki skal
það rengt, en hefur lítið með það
að gera hvort kreppueinkenni megi
merkja eða ekki.
í ööru lagi benti fréttamaðurinn
á að nú ættum við mun fleiri bíla
en þá var og tók, að mig minnir,
dæmi um það. - í þriðja lagi benti
hann á, að mun fleiri færu í sighng-
ar en þá tíðkaðist og væri það varla
sérstök kreppueinkenni. - í fjórða
lagi tók fréttamaðurinn dæmi um
húsnæðiseign manna sem væri
mun meiri nú en þá var.
Ég vil lýsa þeirri skoðun minni
að allt þetta sem fréttamaðurinn
tók fram og týndi til, fleiri bílar,
stærra húsnæði, og fleiri og tíðari
sighngar fólks séu einmitt einkenni
kreppunnar sem nú heldur innreið
sína hér, eða réttara sagt orsök
hennar.
Það er nefnilega ekki eðhlegt að
svo fámenn þjóð sem íslendingar
búi í því stóra húsnæði sem hér
tíðkast, eigi allan þennan bílafjölda
og fari í ahar siglingarnar sem fólk
fer í. - Fréttamaðurinn hefur rétt
fyrir sér að því leyti að þessi ein-
kenni eru ekki kreppueinkenni í
sjálfu sér og fljótt á htið en eru
augljóslega kreppuvaldur þegar
grannt er skoðað. - Sá óhóflegi lúx-
us sem hér er til staðar og hin óhóf-
lega eyðsla hefur skapað kreppu-
ástand sem er komið th að vera,
ef ekki verður undið ofan af þensl-
unni með hörðum efnahagslegum
aðgerðum.
„Takmarkið ætti að vera að losa okkur við krónuna sem gjaldmiðil," segir
hér m.a.
Krónuna burt
Óskilamun-
ir sund-
laugagesta
Gunnar hringdi:
Þar sem ég er daglegur gestur á
einum sundstað borgarinnar tekur
maður eftir ýmsu á þessum stöðum,
sem eru að öðru jöfnu vel reknir og
vinsæhr með afbrigðum.
Starfsfólk sundlauganna í Laug-
ardal t.d. er afskaplega undrandi á
því hve menn eru hirðulausir um
eigur sínar. Og fólk vitjar jafnvel
ekki dýrmætustu hluta sem það skil-
ur eftir.
Þama er t.d. lengi búin að vera
taska með íþróttagalla, skóm og fót-
bolta merktum ÍBV. Taskan er rauð
að ht og íþróttagallinn er nýlegur.
Nú'er ég ekki persónulega aö auglýsa
þetta fyrir simdlaugaverði, en þetta
er bara dæmi um það sem maður
heyrir um og leggur á minnið. Þess
vegna datt mér í hug að hringja til
lesendasíðu DV og vekja máls á
þessu.
áskilursér rétttil
að stytta bréf og
símtöl sembirt-
ast á lesendasíð-
um blaðsins
B.T. skrifar:
Það hefur talsvert verið rætt og
ritað um gjaldmiðil okkar, krónuna,
bæði nú og áður og allt snýst þetta
vandræðaástand, sem nú er sagt vera
að skeha yfir, um gjaldmiðil okkar,
krónuna, í einu eða öðru formi. Og
þvi má sannarlega spyrja: Er erlend-
ur gjaldmiðih eitthvað órökréttari
hér á landi en erlendar mælieiningar
sem við tökum góðar og gildar?
Ég held að ahir geti verið sammála
um að ekki borgi sig fyrir okkur að
halda hér uppi sjálfstæðum gjald-
miðli, vegna hins htla hagkerfis sem
við höfum hér og er svo næmt fyrir
utanaðkomandi áhrifum. Eða eru
ekki alhr að sækjast eftir erlendum
gjaldeyri?
Það er ekkert þjóðarstolt að geta
státað af eigin gjaldmiðli ef hann er
svo vesæh og valtur að ahir, innlend-
ir sem erlendir aðhar, forðast hann
og reyna að komast hjá að taka við
honum. íslenska krónan er hreint
ekkert th að vera stoltur af. „Kot-
ungskróna, sem hríðfellur í verði“,
segir Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son og munu áreiðanlega margir
taka undir með honum.
Það er svo annað mál hversu lengi
ennþá við streitumst tU að halda í
þennan ónýta gjaldmiðil áður en við
bindum hann við einhvern annan
traustari eins og okkur hefur verið
bent á að gera. - Ég legg til að ráða-
menn þjóðarinnar reyni nú að koma
sér saman um lausn á gjaldmiðils-
vandamáli hennar um leið og þeir
leggja tíl atlögu við efnahagsvand-
ann eina ferðina enn. Takmarkið
ætti að vera það að losa okkur að
fullu við krónuna því þar með leys-
ast mörg önnur efnahagsmál í leið-
inni.
Akureyri
Blaðburðarfólk
óskast í Innbæinn.
Uppl. á afgreiðslu DV í síma 96-25013.
KÓPAVOGSBÚAR
Stofnfundur Félags eldri borgara I Kópavogi, 60 ára
og eldri, verður haldinn laugardaginn 26. nóv. nk.
kl. 14 I Félagsheimili Kópavogs á 2. hæð. - Fundar-
boðendur leggja fram tillögu að stofnun hagsmuna-
félags aldraðra I Kópavogi-og drög að samþykktum
fyrir félagið.
Kópavogsbúar, 60 ára og eldri, fjölmennið
á fundinn.
Undirbúningsnefndin.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir októbermánuð 1988
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan virkan dgg eftir eindaga uns þau eru orðin
20% en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. desem-
ber.
Fjármálaráðuneytið
BLAÐ
BURÐA RFÓLK
j. i á öMvtrw adcl'tA ób/uxóC
REYKJAVIK
Safamýri
Háaleitisbraut 11-52
Tjarnargötu
Suðurgötu
Bólstaðarhlíð 40-út
Kleppsveg 2-60
Suðurlandsbraut 4-16
Síðumúla
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
SIMI 27022
£
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið seg-
ir máltækið og því er mál að huga
aðeinsaðjólabakstrinum. í Lífsstílá
morgun verða birtar nokkrar upp-
skriftir að girnilegum smákökum og
gefin nokkur heilræði.
Jólabókaflóðinu fylgja oftast
nokkrar matreiðslubækur. í ár er efni
þeirra mjög fjölbreytt og má nefna
ostarétti, örbylgjuofnarétti, græn-
metisfæði og smárétti.
Lffsstíllinn skoðaði þessar bækur
og munum við kynna þær hverja
fyrirsig.
Hafa sýrubindandi lyf áður óþekktar hliðar-
verkanir? í grein sem birtist í sænska blað-
inu Dagens Nyheter er það stutt rökum að
slík lyf geti valdið beinþynningu sé þeirra
neytt í meira mæli en ráðlagt er.
Lyf þessi þekkja flestir undir heitunum
brjóstsviðatöflureða magamjólk. Um það
bil tíu slík lyf eru flutttil íslands og flest
seld án lyfseðils beint úr apótekum.
Hvorki innflytjandi lyfjanna né Lyfjaeftir-
litið könnuðust við að notkun þeirra ylli
hliðarverkunum. Sænskir læknartelja hins
vegar löngu tímabært að upplýsa almenn-
ing um þessar hliðarverkanir. Nánar á neyt-
endasíðu á fimmtudag.