Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1988. Sviðsljós Ólyginn sagði ... Bjöm Borg er svo yfir sig hrifinn af hinni ít- ölsku Loredana að hann getur varla haft augun af henni. Þau komu nýlega til Svíþjóðar þar sem Björn var að kynna ný fót undir merki sínu, og voru eins og tvær turtildúfur, héldust í hendur og hvísluðust á svo áber- andi að ljósmyndararnir vildu heldur taka myndir af þeim en fötunum. Þau hafa þekkst í lang- an tíma, en það var fyrst á Ibiza í sumar sem ástin byrjaði að blómstra. Björn segist aldrei hafa verið jafnhamingjusamur. Cher og kærastinn hennar Rob Camill- etti eru ekki skilin að skiptum þrátt fyrir sögusagnir þess eölis. Þegar var verið að taka upp aug- lýsingar fyrir „Uninhibited", nýtt ilmvatn sem Cher er að koma með á markaðinn, þá sást til hennar og Rob í miklum ástar- hugleiðingum. Þrátt fyrir aö dag- blöð segi að Rob hafi ílutt út úr villu Cher og sé farinn að afgreiöa á bar á Manhattan, þá hafa kunn- ugir borið á móti því og segja aö allt sé í lukkunnar velstandi. Rob þurfti að undirbúa hlutverk í kvikmynd í New York, en Cher varð aö vera eftir í Los Angeles við vinnu. Strax og unnt var hitt- ust þau og eru saman núna. Janni Spies sem erföi eftir mann sinn Simon Spies stærstu ferðaskrifstofu Danmerkur, er nú orðin Janni Kjær. Hún giftist lögfræðingnum Christian Kjær í sumar, en hann er litlum 20 árum eldri en hún. Þeirra markmið er nú að eignast erfmgja sem fyrst, enda veitir ekki af því aö tryggja einhverjum allar Spies-milljónirnar. Christ- ian Kjær er einnig einn af auðug- ustu mönnum Danmerkur svo þau ættu ekki að líða skort hjón- in. Hveragerói: Sigríður E. Gunnarsdóttir, DV, Hverageröi: Það hefur verið til siðs undanfarin ár í grunnskólanum í Hveragerði aö bjóða foreldrum nemenda til fagnað- ar á skólaárinu. í síðustu viku var slíkur fagnaður haldinn af sjöttu- bekkingum, tveim bekkjardeildum, undir stjórn kennara sinna, Birnu Frímannsdóttur og Pálínu Snorra- dóttur. Dagskráin var ekki af lakari end- anum, skemmtiatriði 18. Frumsamd- ir leikþættir, sem 6. bekkingar sömdu sjálfir, söngleikur, píanóleik- ur og fjöldasöngur. Foreldrar voru látnir spreyta sig í mælskukeppni og spurningaleikjum við mikinn fögn- uð. Foreldrar, systkini og aörir gestir íjölmenntu og skemmtu sér hið besta. Þar mátti sjá áhuga og gleði á hverju andliti. Eftir skemmtiatriðin voru veitingar fram bornar og sáu foreldrar um þann þáttinn. Skemmtunin fór fram í glæsilegri nýbyggingu skólans sem tekin var í Elísabet Taylor mun enn á ný ryðja brautina fyrir konur á komandi vetri þegar hún kemur fram í auglýsingu fyrir bandaríska bjórinn Miller Lite, karlmannlegasta bjór í gervallri Ameríku. Hún má þola það aö fá á kjammann frá Múhameð Alí, svo og aðra pústra frá öðrum mönnum. Mín manneskja er þó svo vön aö ekki fer dropi af guöaveigunum til spillis. Þetta er eitt af því sem spámenn vestanhafs segja aö muni gerast í heimi fræga fólksins á næstu vikum og mánuðum. En þeir eiga margt fleira skemmtilegt í pokahorninu. Andrew Bretapriris og skipsfélagar hans í flota hennar hátignar munu lenda í árekstri við sovéskt flugmóð- urskip í fárviðri á Kyrrahafmu. Manntjón mun ekki hljótast af óhappi þessu, en skip prinsins mun laskast það mikið að þaö verður dregið aÚa leiö til Ástralíu. Stefanía prinsessa af Monaco mun koma öllum á óvart með því aö ganga í klaustur og gangast undir heit um skírlífi og fátækt. Prinsessan mun síðan viðurkenna að hún sé miðill og hafi verið í stöðugu sambandi við móður sína, Grace Kelly. Stefanía verður gerð brottræk úr klaustrinu, en hún mun helga líf sitt bágstöddum börnum. Karl Bretaprins, erfingi krúnunn- ar, mun setja allt á annan endann þegar hann fer að gera sér dælt viö hina brjóstgóðu' Bambi Barracuda, Karl Bretaprins stendur í ástarævin- týri með hljómsveitarstjóranum Bambi Barracuda. Díana verður ekki par hrifin. en hún er hljómsveitarstjóri af ein- hverri tegund. Díana prinsessa, eig- inkona Karls, verður fjúkandi ill þeg- ar hún svo kemst að því að Bambi starfar sem fatafella á kvöldin svo hún geti kostaö nám bróður síns í prestaskóla. Hollywood mun heiöra Ronald Re- agan meö sérstökum óskarsverð- launum fyrir leik sinn sem forseti. Nancy fær líka óskar fyrir fram- göngu sína í aukahlutverki, þ.e. sem forsetafrú. Stéttarfélag leikara mun í fyrstu mótmæla verölaunaveiting- unni, en samþykkir hana þó að lok- um og leggur yfir blessun sína. Frá skólaskemmtuninni í Hvera- gerði. DV-mynd Sigríður notkun í haust. Foreldrar barna í skólahljómsveitinni smíðuðu nýtt leiksvið um eina helgi nýlega en flest félagasamtök og margir einstakling- ar hér hafa lagt fram vinnu og fé til að gera skólastarfið sem litríkast. Hvergerðingum er það vel ljóst að gróskumikið skólastarf er mikils virði fyrir byggðarlagið. Gormánaðargleði Sunnudagskvöldið 20. nóvember var svo haldin gormánaðargleði á sama Foreldrar og systkini fylgdust spennt með. DV-mynd Sigríöur stað en kennarar og annað starfsfólk grunnskólans í Hveragerði og einnig tónlistarskólans stóð fyrir þessari kvöldvöku. Einnig komu nemendur þar fram. Aðgangseyrir var kr. 300 og skemmtunin var liður í fjáröflun til að bæta félagsaðstöðu nemenda. Fjölmenni var og öll skemmtiatriðin voru ílutt af starfsliði skólanna. Elísabet Taylor ryður brautina eina ferðina enn: hún ætlar að auglýsa karla- bjór. Foreldrafagnaður og gormánaðargleði Kíkt í kristalskúluna Háhyrningur leitar eftir hjálp manna Sérfræðingar segja að háhyrningar hafi ýmsa svokallaða mannlega eig- inleika. „Ég hef veriö til sjós í mörg her- rans ár en aldrei séð þvílíka sjón. Þetta var sérkennlilegasta og jafn- framt sorglegasta. sýn sem ég hef séð,“ sagði Vincent Galazzo, 66 ára sjómaður. Galazzo og þrír aðrir fiskimenn voru staddir á veiöum á Miðjarðar- hafi fyrir skömmu þegar háhyrning- ur kom hratt syndandi að htla flski- bátnum. Mennirnir reyndu í fyrstu að ýta háhyrningnum í burtu. En þeir urðu hissa þegar háhyrningur- inn hreyföi sig hvergi. „Allt í einu rann upp fyrir mér ljós aö háhymingurinn vildi að við eltum hann,“ sagði Galazzo. „Ég hef heyrt margar furðulegar háhyrningasögur en ég hef aldrei vitað til þess að þeir kæmu til manna eftir hjálp.“ Háhyrningurinn vísaöi sjómönn- unum veginn að kvenháhyrningi sem flaut á sjónum, alblóðugur og hafði greinilega orðið fyrir einhverri árás. „Karlkynsháhyrningurinn synti undir þann særða og færöi hann að bátnum til okkar og grátbað um hjálp," sagði Galazzo sem er frá Nice í Frakklandi. „Við sáum undir eins að háhyrn- ingurinn var dauöur. Hann haföi að öllum líkindum orðið fyrir hraðbáti þar sem hann var meö djúpt sár. Karlháhyrningurinn hélt áfram að biöja um aðstoð en við gátúm ekkert gert að svo komnu. Hann vissi aö hákarlarnir myndu fljótlega ráðast á hana. Við gátum ekkert gert annað en að sigla burtu daprir í bragði. Við vorum gráti næst að geta ekki hjálp- að þessari góðu skepnu.“ Er það virkilega mögulegt að há- hyrningar leiti til manna eftir hjálp, eða voru fiskimennirnir að ímynda sér að svo væri? Peter Evans, kennari við Oxford- háskólann, sagði að það væru mögu- leikar á að svona gæti gerst. Þessar skepnur hafa oft hjálpað mönnum úr ógöngum á hafi úti. En hins vegar hafa þær sjaldan komið til manna og beðið um hjálp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.