Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Page 36
36
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1988.
j
f
i
|
|
I
i
B
Andlát
Lotte Gramlow, sem starfaöi lengi
viö íslandshaus í St-Peter-Ording í
Vestur-Þýskalandi, andaðist í
sjúkrahúsi þriöjudaginn 15. nóvemb-
er sl.
Guðný Sigvaldadóttir, Sandhólum,
andaöist á sjúkrahúsi Húsavíkur 21.
nóvember.
Hafsteinn Magnús Hafsteinsson.
Yi%ufelli 11, lést af slysfórum 20. nóv-
ember.
Guðmundur Kristinn Guðnason
bréfberi, Bankastræti 10. Skaga-
strönd, er látinn.
Jarðarfarir
Útfór Eggerts Emils Hjartarsonar.
Holtageröi 20. Kópavogi. fer fram frá
Fossvogskirkju fóstudaginn 25. nóv-
ember nk. kl. 13.30.
Finnbogi Hallsson trésmiöur. Hrafn-
istu. Hafnarfiröi. veröur jarösunginn
frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi föstu-
daginn 25. nóvember kl. 13.30.
Björg S. Björnsdsóttir. Lækjarkinn
24. Hafnarfirði. verður jarðsungin
frá Hafnarfjaröarkirkju fimmtudag-
inn 24. nóvember kl. 15.
Sigríður Karitas Gísladóttir, fyrrum
húsfrevja í Ytra-Skógarnesi í Mikla-
holtshreppi. verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 24.
nóvember.
Kristbjörg Jónsdóttir frá Sjólyst.
Grindavík. Eikjuvogi 3. lést í Hafnar-
búðum laugardaginn 12. nóvember.
Bálfór hefur fariö fram.
Jónina Jónsdóttir lést 15. nóvember
sl. Hún fæddist í Akurhúsum í Garði
28. desember 1914. dóttir hjónanna
Jóns S. Sigurðssonar og Guðrúnar
Einarsdóttur. Jónína giftist Guð-
mundi Jóhannssyni en hann lést áriö
1947. Þau hjónin eignuðust 3 börn.
Útfór Jónínu verður gerö frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag kl. 13.30.
Fundir
Opinn fundur ITC Melkorku
verður haldinn í kvöld, 23. nóvember, kl.
20 í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi
í Breiðholti. Stef fundarins er: Reynslan
er besti kennarinn en skólagjaldið er
hátt. Á dagskrá er meðal annars fræðsla
í fundarsköpum, að þessu sinni um til-
lögugerð með virkri þátttöku fundar-
manna. Gestir eru velkomnir. Mætum
stundvíslega. Upplýsingasími er 46751.
Ferðalög
Útivistarferðir
Miðvikudagur 23. nóv. kl. 20.
Tunglskinsganga. Gengið um Lækjar-
botna og Setbergshlíð við HafnarQörð.
Áð(við ksrtaljós í Kershelb. Létt ganga.
Bróttfór frá BSÍ, bensínsölu (í Hafnar-
firði v/Sjóminjasafnið). Verð 400 kr., frítt
f. böm m. fullorðnum. Munlð aðventu-
ferðina í Þórsmörk 25.-27. nóv. Sjáumst.
Tilkyimirigar
Kvöldvaka Ferðafélagsins
í kviild, 23. nóvember, veröur fyrsta
kvöldvaka vetrarins í Sóknarsalnum,
Skipholti 50a, og hefst stundvíslega kl.
20.30. Efni kvöldvökunnar verður: Eftir-
taka af kvikmynd sem Guðmundur frá
Miödal tók á árunum 1944-1954, að mestu
leyti í Tindfjöllum. Myndin er þögul en
Ari Trausti, sonur Guðmundar, skýrir
það sem fyrir augu ber og svarar spum-
ingum gesta. Hér er um að ræða áhuga-
verða hebnildarmynd um fjallaferðir og
einstakt tækifæri að kynnast ferðamáta
á þessum árum. Myndagetraun að lok-
inni dagskrá og verðlaun veitt fyrir réttar
lausnir. Allir velkomnir, félagar og aðrir.
Aðgangur kr. 150. Veitingar í hléi.
Tónleikar
Bubbi Morthens
í Tunglinu
Bubbi Morthens mun halda trúbador-
tónleika í Tunglinu nk. fimmtudags-
kvöld, 24. nóv. Bubbi hefur að undan-
fómu verið á tónleikaferð í skólum höf-
uðborgarsvæðisins. Bubbi hefur spilað
fremur lítið hérlendis og þá einkum
vegna anna við útgáfuna á Serbian Flow-
er í Skandinavíu. Upptökum á Serbian
Flower lauk í vor en nokkra síðar hófst
tveggja mánaða langt hljómleikaferðalag
um Skandinavíu sem gerðist í kjölfar
útkomunnar á smáskífunni Moon in the
Gutter. Nokkrar vikur era nú liðnar síð-
an Serbian Flower kom út og nú síðast á
fóstudaginn gáfu Mistlur út aðra smá-
skifu af plötunni. Lagið, sem varð fyrir
valinu, er Voices for Freedom eða í frels-
arans slóð í verulega breyttri útsetningu.
Tónleikar Bubba í Tunglinu nk. fimmtu-
dagskvöld verða síðustu sólótónleikar
hans um skeið því að í næstu viku kemur
út plata Bubba og Megasar, Bláir draum-
ar. sem fylgt verður eftir meö annars
konar uppákomum.
Tónleikar Sinfóniu-
hljómsveitar íslands
Nk. fimmtudag, 24. nóv.. heldur Sinfóníu-
hljómsveit íslands tónleika utan áskrift-
ar í Háskólabíói og hefjast þeir kl. 20.30.
Á efnisskrá verður tónlist úr þekktum
og vinsælum söngleikjum þessarar aldar.
Leikin verður tónlist úr Birtingi
(Candide) og Sinfóniskir dansar úr West
Side Story eftir Leonard Bernstein, lög
úr söngleiknum Cats eftir Andrew Lloyd
Webber og að lokum sönglög úr Porgy
og Bess eftir George Gershuin. Til að
syngja þessa sönpa hefur hljómsveitin
féngið til liðs við sig tvo bandaríska
blökkusöngvara, Priscillu Baskerville,
sópransöngkonu og Michael Lofton, bar-
ítónsöngvara. Hljómsveitarstjóri er
Murry Sidlin.
Briáge
Bridgesamband íslands
íslandsmót kvenna og yngri spilara
1988 í tvímenningi var haldiö helgina
19. og 20. nóvember í Sigtúni 9. í
kvennaflokki var keppnin mjög hörð
en Steinunn Snorradóttir og Þor-
gerður Þórarinsdóttir tryggðu sér
sigurinn í lokaumferðinni. í ungl-
ingaflokki leiddu Matthías Þorvalds-
son og Hrannar Erlingsson mestallt
mótið og sigruðu næsta örugglega.
Þátttaka í íslandsmótinu nú var
heldur dræm. 18 pör tóku þátt í
kvennaflokki og aöeins 12 pör í flokki
yngri spilara. Spiluð voru íjögur spil
milli para en spilarar í yngri flokkn-
um spiluðu tvöfalda umferð. Lokast-
aöa efstu para varð þessi:
1. Steinunn Snorradóttir-
Þorgerður Þórarinsdóttir 96
2. Anna Þóra Jónsdóttir-
Hjördís Eyþórsdóttir 82
3. Júlíana Isebarn-
Margrét Margeirsdóttir 76
4. Hrafnhildur Skúladóttir-
Kristín ísfeld 62
5. Esther Jakobsdóttir-
Valgerður Kristjónsdóttir 42
Yngri spilarar:
1. Matthías Þorvaldsson-
Hrannar Erlingsson 81
2. Ari Konráðsson-
Júlíus Sigtujónsson 41
3. Bemharð Bogason-
Hlynur Garðarsson 34
4. Guttormur Kristmundsson-
Jón Bjarki Stefánsson 17
5. Guðjón Bragason-
Daði Bjömsson 15
Fréttir
Kjamorkuvopnatilraimir:
Enn breytt
afstöðu hjá
íslendingar sátu hjá þegar tillaga
um stöðvun allra kjarnorkuvopna-
tilrauna var samþykkt í nefnd á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna í lok síðustu viku. Þar með
er ljóst að atkvæði okkar falla
öðruvísi en í fyrra en þá greiddum
við atkvæði með þessari tillögu.
Hún kemur líklega til afgreiðslu í
allsherjarþinginu sjálfu í næstu
viku. Afstaða okkar nú er orðin sú
sama og í. utanríkisráðherratíð
Matthíasar Mathiesen á 41. alls-
herjarþinginu.
Mexíkó er fyrsti flutningsmaður
tillögunnar en Finnland og Svíð-
þjóð eru meðflutningslönd. 118
þjóðir greiddu atkvæði með tillög-
unni og þar á meðal hin Norðurl-
öndin. 3 lönd voru á móti en 13 ríki
sátu hjá.
Þá hefur afstöðu okkar til álykt-
unar um framkvæmd afvopnunar
verið breytt en það er tillaga sem
Tékkóslóvakía og Úkraína flytja.
Við greiddum atkvæði með þessari
tillögu í fyrra fyrir mistök, eins og
frægt varð, en nú sitjum við hjá
eins og flest Vesturlönd.
-SMJ
Félagsvísindastofiiim:
Framsókn sækir á
í könnun sem Félagsvísindastofn-
un Háskólans gerði fyrir Morgun-
blaðið 9. til 14. nóvember kemur fram
að Framsóknarflokkurinn er nú
næststærstur stjórnmálaflokka með
23,3% fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn er
stærstur með 29,6% fylgi. Kvenna-
listinn er með 21,3%, Alþýðubanda-
lag 10,6%, Alþýöuflokkur 10,5% og
Borgaraflokkur 3%.
Frá því að Félagsvísindastofnun
gerði sína síðustu könnun hefur
Framsóknarflokkurinn aukið fylgi
sitt verulega en þá var hann með
19,1%. Alþýðubandalagið hefur einn-
ig bætt nokkuð við sig en Kvennalist-
inn tapar mestu, var með 28,4%.
-SMJ
Memung i
Þrír gullhringar
í kaffibolla
- sýning Kristins G. Harðarsonar í Nýlistasafninu
Kristinn Guðbrandur Harðarson - Nútima sálarfræði, útsaumur, 1988.
DV-mynd Brynjar Gauti
Kristinn Guðbrandur Harðarson
er tvimælalaust einhver uppáfmn-
ingasamasti myndlistarmaður sem
við eigum, eins og hlýtur að blasa
viö hverjum þeim sem skoðar sýn-
ingu hans í Nýlistasafninu (til 4.
des.).
Á boðskorti Kristins stendur að-
eins að hann ætli að sýna skúlptúr,
útsaum og lágmyndir sem út af fyr-
ir sig sætir ekki tíðindum.
En þegar á vettvang er komið
kemur upp úr kafinu að Kristinn
leggur nokkuð annan skilning í
hugtök eins og „skúlptúr", „lág-
myndir" og myndmótun yfirleitt
heldur en flestir, ef ekki allir,
starfsbræður hans.
Hann lætur sér ekki nægja sam-
setningu á traustUm og gamal-
reyndum efniviði, eins og tré, gifsi,
steinsteypu og gleri, heldur bætir
hann við ýmsu öðru sem hingað til
hefur lítið sem ekkert komið við
sögu myndlistarinnar: rusli úr ryk-
sugupokum, mold, sagi, bandspott-
um, sultu, glerkrukkum, lyklum,
rakvélarblöðum, og er þá fátt eitt
nefnt.
En Kristinn er ekki einasta öld-
ungis hleypidómalaus í vali sínu á
fastaefnum heldur virðist hann
ekki gera mikinn greinarmun á
þeim og orðum, setningum og af-
strakthugtökum er kemur að hinni
eiginlegu smið verkanna.
Upphrópanir
Eitt mesta verkið á sýningunni,
„Nótt eina“, er í senn nokkurs kon-
ar myndræma með klassisku yfir-
bragði, lágmynd í dadaískum stíl
og myndasaga þar sem KGH leggur
að jöfnu ýmsar prentaðar upplýs-
ingar og upphrópanir („Dautt og
þungt loft“, „Pamela Panda (úr
pappa) hallast upp að veggnum",
„Þrír gullhringar í kaffibolla",
„Lykt af nýju gólfteppi“ ...) og
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
áþreifanlegar staðreyndir verks-
ins, rakvélarblöö, kaffikorg, tin-
dáta o.fl. og lætur áhorfandanum
síðan eftir að tengja á milli.
En þrátt fyrir hin gjörólíku efni
og hugmyndir, sem koma saman í
verkum Kristins, eru þau langt frá
því að vera ágeng eða ósamhljóma.
Svo er fyrir að þakka kankvísri
og ljóðrænni skaphöfn listamanns-
ins, þeim ásetningi hans að grafast
sífellt fyrir um það sem Barthes
kallaði „ófarganlega merkingu
hlutanna", frémur en að sviðsetja
dramatískar myndrænar uppá-
komur.
Áhorfandinn hefur á tilfinning-
unni að fyrir listamanninn sé
myndlistin í hefðbundnum skiln-
ingi aðeins ein af ótal mörgum
rannsóknaraðferðum sem skap-
andi einstakhngi sé frjálst að nota.
í því sambandi má geta þess að
Kristinn hefur bókfært ýmsar hug-
myndir sínar og gefiö út.
Einlægni og elskusemi
Því hleypur hstamaðurinn ekki
aðeins á milli gjöróhkra efna og
aðferða - allt frá klambursmíði til
völundarsmíði - heldur notar hann
einnig hin ýmsu stílbrigði og stefn-
ur hstasögunnar eftir lientugleik-
um.
Þannig bróderar KGH í settlegum
afstraktstíl, límir saman glerbrot
og gerir úr nýexpressjónískan kah,
afbakar táknum hlaðnar lágmynd-
ir Einars Jónssonar eða raðar sam-
an kubbum eins og naumhyggju-
menn.
Allt er þetta gert af einlægni og
elskusemi sem slær á alla vandlæt-
ingu hjá áhorfandanum og vekur
hjá bestu mönnum löngun til að
taka þátt í leiknum.