Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Blaðsíða 21
,«er ijol .8 HUOAag^.quAJ cs LAUGARDAGUR 8. JÚLI 1989. o LífsstOl SÝNING UM HELGINA LAUGARDAG KL. 11-16, SUNNUDAG KL. 12-16 ALLT í ÚTILEGUNA HEPPNUÐ ÚTILEGA BYRJAR HJÁ OKKUR VINSÆLU FELLIHÝSIN KOMIN AFTUR. ÖRFÁ EINTÖK. Innifalið: Eldavél, ísskápur, hitari. Eitt með öllu. Reist á 30 sek. FURUSETT SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJARSLÓÐ 7 Sími 621780 Hvert skyldi ríka, fína fólkið í útlöndum fara til að slappa af? Jú, á hina ýmsu staði en ef afslöppun, rómantík, fagurt landslag og veð- ursæld eiga að fara saman er Nec- ker gjarnan litin hýru auga. En Necker er smáeyja í eyjaklasa bresku Jómfrúreyjanna í Karíba- hafi. Á Necker fer fólk á borð við Dí- önu prinsessu, Steven Spielberg, Harrison Ford og fleiri í frí. Hún er einmitt rétti staöurinn fyrir fólk sem á - tja, allt of mikla peninga, svo mikla að það veit ekki hvað það á að gera við þá alla. Dvöl á Necker kostar 450.000 ís- lenskar krónur á dag. En dvalar- gestir telja það svo sannarlega þess virði að eyða þeirri upphæð tíl að komast á Necker og eiga yndislegar stundir. Necker var bara ein af þessum eyðieyjum í klasanum en fýrir um tíu árum skrifuðu tveir breskir blaðamenn um dvöl sína þar. Þeir ætluðu að búa á eynni í einn mán- uð og fræða svo lesendur um hverju það líktist að dveljast á eyði- eyju í nokkum tíma. Blaðamenn- imir gáfust upp eftir hálfan mánuð þar sem þeir vora svo þaktir flugnabiti að þeir þoldu ekki við lengur. Þeir lýstu dvöl sinni sem hræðilegri upplifun. En einn maöur var nógu furðu- legur til aö láta sér detta snjallræði nokkurt í hug eftir lestur greinar- innar. Um var að ræða Richard Branson, ungan „braskara". Hann var staðráðinn í að eignast þessa eyju, byggja þar lúxusvillu og laða ríka fólkið að. Og það gerði hann. Nú níu ámm síðar hefur veski Bransons „gildnaö um mörg hundmð milljónir". Necker þykir mjög faUeg eyja og landslag hennar sérkennilegt. Því var Branson ákveðinn í að láta vill- una vera í sem mestu samræmi við umhverfið. Helst vildi hann láta hta svo út sem hún væri hluti af landslaginu. Og vel tókst til. Húsið sómir sér sérstaklega vel í um- hverfi sínu. Það er 10 herbergja, glæsilega búið húsgögnum og hlut- um víðs vegar að úr veröldinni. Innviðir hússins em hafðir sem náttúrlegastir og var vitaskuld ekkert sparað til að árangurinn mætti verða sem glæsilegastur. Og efnað fólk lætur sig ekki muna um að greiða fyrir glæsileikann. í 180 daga á ári er slagur um eyjuna. En á sumrin er hún ekki leigð út þar sem hitinn verður óþolandi. Og sautján manna starfshð er til- búið að þjóna og stjana við gestina. En matur og drykkjarföng eru inn- ifalin í verðinu. Á eynni er tenn- isvöllur, smábátar til sighnga, bihj- ardborð og sundlaug. Starfshðið er hundið þagnarskyldu og má ahs ekki og hvergi segja neitt frá því hverjir sæka eyna heim né hvað þeir gera sér th skemmtunar og yndis. SVEFNP OKAR TJOLD Þar sem þeir ríku hvílast og skemmta sér

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.