Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989.
Hnetu- og bauna-
réttur Diddúar
„Ég kynntist heilsufæðinu þegar
ég var úti í London,“ segir Sigrún
Hjáimtýsdóttir söngkona sem er
matreiðslumaður helgarinnar að
þessu sinni.
„Ég rambaði inn á veitingastaði
sem sérhæfðu sig í grænmetis- og
heilsufæði og féll þar með alveg
fyrir mat af þessu tagi. Maður hafði
ímyndað sér að einungis hippar
kæmu inn á svona veitingastaði en
svo voru þeir þéttsetnir jakkafata-
fólki,“ segir Sigrún.
„Síðan fór ég sjálf að prófa og hef
notað mikið grænmeti og baunir
við matargerð. Að óskoðuðu máli
halda margir að grænmetisfæði sé
einhæft og lítið spennandi enraun-
in er auðvitað allt önnur. Þessi rétt-
ur, sem ég gef uppskrift að nú, er
mjög sérkennilega samansettur.
Hnetumar gefa mjög sérstakt
bragð á móti baunum, indversku
kryddi og ávöxtum. En ég get lofað
því að hann er mjög Ijúffengur."
Hér kemur uppskriftin.
Hnetu- og baunaréttur
Diddúar:
Fyrir 2-3.
1 bolh kjúkiingabaunir
ólífuolía
1 stór laukur .
4 hvítlauksrif
2 tsk. garam masala
1 tsk. madraskarrí
500 g niðursoðnir tómatar
'A bolli rúsínur
'A bolli þurrkaðar sveskjur eða
apríkósur
1 væn matskeið af hnetusmjöri
150 ml af eplasafa
'A bolh kashewhnetur
safi úr Zi sítrónu
sjávarsalt og mulinn pipar eftir
smekk
Baunimar em lagðar í bleyti í
einn sólarhring. Þær em svo skol-
aðar mjög vel og látnar sjóða í 1
klst. Athuga að láta vatnið vera vel
yfir baununum. Soðið er geymt.
Þá er laukurinn saxaður og hvít-
laukurinn pressaður og léttsteiktiu-
á pönnu. Garam masala kryddið
og karríið sett yfir laukinn. Ávext-
imir skomir niður og settir út á
pönnuna, einnig hnetusmjörið,
tómatamir, eplasafinn og dálítið
af soðinu. Látið malla í 20-30 mín-
útur.
Hnetumar eru ristaðar inni í 150
g heitum ofni í um það bil 10 mínút-
ur, eða þangað til þær fara að
dökkna.
Loks em baunimar settar í sós-
una á pönnunni og salti og pipar
bætt út í efdr smekk. Suðan látin
koma upp og sítrónusafi settur út
í. Hnetunum er þá bætt við en
nokkrar em skildar eftir til að setja
ofan á réttinn þegar hann er borinn
fram.
Sigrún segist oft bera fram brauð
og osta með þessum rétti. Það
hljómar kannski sérkennilega en
er að hennar sögn mjög gott. Létt
salat, búið til úr tómötum, papriku,
gúrkum og salatkáli, er nauðsyn-
legt með.
RóG.
DV-mynd JAK
Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona gefur uppskrift aö girnilegum baunarétti.
13
Hlutastarf á íslandi -
Au-pair í Bandaríkjunum
(Löglega leiðin til Bandaríkjanna)
Starfsmaður óskast í hlutastarf til að ræða við um-
sækjendur um „au-pair" störf í Bandaríkjunum.
Umsækjandi þarf að hafa aðstöðu og síma á heimili
sínu til að sjá um viðtöl af þessu tagi, ásamt reynslu
í viðtölum og áhuga á menningarlegum samskiptum.
Þeir sem hafa áhuga hafi sambandi við Dorothy Stu-
art, manager, 37 Queens Gate, London, SW7 5HR.
Tel: London 581 2730
Útboð
Snjómokstur á Hólmavíkurvegi
1989-1991
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í snjó-
mokstur með vörubíl á Hólmavíkurvegi árin 1989
til 1991. Um er að ræða kaflann frá Hólmavík
að Guðlaugsvík. Lengd alls 72,3 km.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Isafirði, Hólmavík og í Reykjavik (aðalgjald-
kera) frá og með 10. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 24. júlí 1989.
Vegamálastjóri
___________________________________________________J
Verkefnisstjóri
Verkefnisstjórn um eflingu skógræktar á Fljóts-
dalshéraði óskar eftir að ráða verkefnisstjóra.
Nú stendur yfir undirbúningur að umfangs-
miklu skógræktarátaki á Fljótsdalshéraði og
leitað er eftir verkefnisstjóra til að undirbúa
framkvæmd verkefnisins.
Ekki eru gerðar ákveðnar menntunarkröfur en
um er að ræða sjálfstætt starf sem krefst góðra
skipulagshæfileika og sjálfstæðis. Umsækjandi
þarf að geta hafið störf sem fyrst og ráðning
er til áramóta í fyrstu.
Upplýsingar um starfið veitir formaður verkefn-
isstjórnar, Edda Björnsdóttir, Miðhúsum, 700
Egilsstöðum, í s. 97/11365. Umsókn, ásamt
upplýsingum um menntun og starfsreynslu,
sendist fyrir 1. ágúst nk.
Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar
sem hafa skemmst í umferðaróhöppum.
Mazda E 2200 1989
Suzuki Swift 1988
Citroen BX 16 TRS 1988
Lada Sport 1987
Opel Corsa 1987
Daihatsu Hi Jet 4x4 1987
Toyota Corolla 1986
Honda Civic 1985
Toyota Cressida turbo dísil 1985
Fiat Argenta 1984
Toyota Carina 1983
MMC Colt 1982
Ford Taunus GL 1981
Daihatsu Charade 1980
Toyota Hi Lux 4x4 1980
Chevrolet Malibu 1979
BMW 528 1977
Bifreiðarnar verða til sýnis miðvikudaginn 10. júlí í
Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 9-15. Tilboðum óskast
skilað fyrir kl. 16.00 sama dag til bifreiðadeildar
Tryggingar hf., Laugavegi 178, Reykjavík, sími
621110.
VERNDOEONUÍ
TRYGGING HF
LAUGAVEG1178 SIMI621110