Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Blaðsíða 32
II Yfirvinnubann heilladísanna - Tapskákir Karpovs frá Rotterdam Anatoly Karpov: Ófarsæll i síðustu skákunum í Rotterdam. Sumir skákmeistarar hreykja sér af því að hafa ekki tapað skák í langan tíma og líta út fyrir að hafa sigrað heiminn. Oftast fylgir ekki sögunni hve vinningsskákir tíma- bilsins eru margar en stvmdum vill það fara saman, að tapa sjaldan og vinna sjaldan. Þeir eru færri sem tefla til vinn- ings í hverri skák og hafa um leið þann yfirskilvitlega hæfileika að skynja hættuna og sjá við henni löngu áður en mótherjinn kemur auga á möguleikana. Þessum kost- um er Anatoly Karpov gæddur, umfram aöra menn. Því telst ávallt til tíðinda ef hann neyðist til að játa sig sigraðan, hvað þá ef hann tapar þremur skákum í beit. Karpov virtist hafa tryggt sér sig- urinn á heimsbikarmótinu í Rott- erdam og venjulega hefur hann við slíkar aðstæður látið sér vel hka jafntefli í lokaskákunum. Nú brá hins vegar svo við að hann vildi meira. I keppninni við Kasparov um heimsbikartitilinn skiptir hver vinningur máh. Með því að sigra með yfirburðum í Rotterdanl hefði Karpov bætt samkeppnisstöðu sína verulega og þá hefði allt getað gerst á síðasta mótinu, sem hefst 10. ágúst í Skelleftea í Svíþjóð. En Karpov glutraði öllu saman niður með því að tapa þremur skákum í röð og hollenski stórmeistarinn Jan Timman krækti sér í efsta sæt- ið. Lánleysi Karpovs í þremur síð- ustu skákunum er með mestu ólík- indum. ísköld yfirvegun og rósemi hefur allajafnan einkennt kappann og venjulega lætur hann fátt koma sér úr jafnvægi. Hann hefði alls ekki átt að tapa taflinu gegn Salov, var búinn að yfirspila Ljubojevic og teygði sig of langt á móti Nunn. Öllum þessum skákum tapaði hann. Það var engu líkara en að happagyðjumar hefðu skyndilega ákveðið að setja á yfirvinnubann! Vart þarf að taka fram að þetta er í fyrsta sinn á ferlinum sem Karpov tapar þremur skákum í lotu á skák- móti. Ég hygg að lesandinn gæti haft nokkra skemmtan af því að skoða þessar skákir Karpovs og sjá meö eigin augum hvílík örlög honum voru búin. Hann hefði betur látið stýrast af máltækinu góða „Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi.“ Það er ekki hans stíh að seilast eftir of miklu. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Valery Salov Drottningarindversk vörn 1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Bb7 5. Bg2 Be7 6. Rc3 Re4 7. Bd2 Bf6 8. Hcl!? Hér hefur jafnan verið hrókað en þessi athyglisverði leikur sást á skákmóti í Sovétríkjunum nýlega. I þeirri skák þorði svartur ekki að taka peðið, eins og Salov gerir nú, en það hefur miklar flækjur í för með sér. 8. - Bxd4!? 9. Rxd4 Rxc3 10. Bxb7 Rxdl 11. Hxdl c6 12. Bf4! Hvítm- hefur gefið drottninguna og hefur aðeins tvo menn til mót- vægis. Hrókurinn á a8 er hins veg- ar dauöans matur en spumingin er hvort veiðimaðurinn sleppi aft- ur til byggða. 12. - 0-0 13. Bd6 He8 14. Bxa8 Dc8 15. b4! Ra6 16. b5 Björgunarsveitin kemur í tæka tíð. Nú má svara 16. - Rc5 með 17. Bxc6 dxc618. Rxc6 (18. Bxc5!? fyrst) og þessi fílsterki riddari lamar Uðs- menn svarts. Salov fmnur einfald- ari leið. 16. - Dxa8! 17. bxa6 c5 18. Rf3 De4 I * i i i Á A Á Jk. á k A A íiá fi & A a* s ABCDEFGH Hrókur og tveir léttir menn þykja aö jafnaði meira en nóg fyrir drottningu en hér hefur drottning- in þó yfirhöndina. Hvítu mennimir ná ekki að vinna saman og drottn- ing svarts býr sig undir að ganga á peðaröðina. Karpov þarf nú að halda vel á spöðunum 111 að ná jafn- væginu. Skák Jón L. Árnason 19. Hcl fí> 20. a3 Forðar peðinu úr skotfæri og undirbýr 21. 0-0 Dxe2 22. Kg2. 20. - Dc6 21. Hdl Da4 22. Rd2 Dc6 23. Rf3 Da4 24. Rd2 Dxa3! 25. 0-0 Dxa6 26. e4 Da4 27. e5 Dc6 28. Hfel a6 29. He3 h6 30. Hcl Ha8 31. Re4 fxe5 32. f3! Nú hefur Salov átta peð gegn fjór- um en takið eftir hve Karpov hefur komið mönnum sínum haganlega fyrir. Riddarinn og biskupinn em óhrekjanlegir á miðjunni og skorða hnefafylU peða. 32. - a5 33. Ha3 a4 34. h4 Ha5 35. Kg2 b5 36. cxb5 Hxb5 37. Kh3 Hb3 38. Hxc5 Da6 39. Hc3 Db5 40. Kg4 Kh7 41. h5 Hxa3 42. Hxa3 g6 43. Bf8 Kg8 Lagleg gildra. Ekki 43. - d5?? 44. Rf6+ Kh8 45. hxg6 og 46. g7 mát verður ekki forðað með góðu. Eða 43. - gxh5+ 44. Kxh5 d5?? 45. RÍ6 + Kh8 46. Kxh6 og aftur er svartur í vondum málum. 44. Bd6 Kf7 45. Hc3?? Takið eftir að alhr hvítu menn- imir em valdaöir og því er eðUlegt að Karpov sofni á verðinum. Eftir 45. hxg6+ Kxg6 46. Kh3 er ekki aö sjá að hann geti tapað taflinu. 45. - gxh5+ 46. Kxh5 8 A 6 JIl Á Á 5 W Á 4 Á 3 E 2 A A ABCDEFGH 46. - Dfl! Það er lyginni Ukast en skyndi- lega getur hvítur enga björg sér veitt! Hótunin er 47. - Dh3 mát. Ef 47. Kxh6, þá 47. - Dh3+ 48. Kg5 Df5+ 49. Kh4 Dh7+ 50. Kg5 (50. Kg4 Kg6) Dg6+ 51. Kh4 Dh6+ 52. Kg4 Kg6 og gegn hótuninni 53. - Dh5 mát er ekkert viðunandi svar. 47. Kg4 Kg6 48. Bxe5 IU nauðsyn en kóngurinn þurfti flóttareit. 48. - d5 49. Rc5 Dhl+ 50. Kf4 Dh5 51. Ke3 Annars kæmi 51. - Dg5 mát. 51. - Dxe5+ 52. Kd2 d4 Og Karpov gafst upp. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Ljubomir Ljubojevic Slavnesk vörn 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 dxc4 5. a4 Ra6 6. e3 Be6 7. a5 Bd5 8. Rd2 g6 9. e4 Be6 10. Rxc4 Júgóslavinn lumar oft á ýmsum skemmtilegum uppátækjum í byij- unum en hér hefur tilraunastarf- semi hans Utinn árangur boriö. Menn hans hafa orðið að hrökklast til baka og eftir situr hann með þrönga og vonda stöðu. 10. - Bg7 11. Re5 Hc8 12. Da4 0-0 13. Be2 Rd7 14. Rd3 Rc7 15. Be3 f5 16. e5 Bf7 17. Hdl De8 18. h4 h6 19. Bf3 Kh7 20. Rf4 Hb8 21. Dc2 Kg8 22. g4 e6 23. Hgl Kh8 24. Dd2 Hd8 25. De2 De7 26. gxf5 gxf5 27. Bh5 Hg8 28. Bg6 Rf8 29. Dh5 Hd7 30. Hd3 De8 31. Bd2? Vel má vera að Karpov hafi misst af enn betri leiðum fyrr í skákinni eftir aö hafa byggt upp yfirburða- stöðu. Hér gerir hann sig aftur á móti sekan um einfalda reikniviUu. Nauðsynlegt var 31. Bxf7. 31. - Rxg6! 32. Rxg6 + Kh7 33. Hdg3 Öðmvísi valdar hann ekki ridd- arann en nú er peð í dauðanum. 33. - Hxd4 34. De2 Bxg6 35. Hxg6 Dxg6! 36. Hxg6 Kxg6 AUt í einu lifnar yfir svörtu stöð- unni. Tveir hrókar og peð eru hér meira virði en drottningin. 37. Be3 Hxh4 38. f4 Hd8 39. Df3 Rd5 40. Bxa7 Hxf4 41. Dd3 Bxe5 42. Re2 He4 43. Kf2 Hg8 44. Dc2 Kh7 45. Kf3 Hh4 46. Bgl Hh3+ 47. Kf2 Bh2 48. Dc5 Bxgl+ 49. Rxgl Hh2+ 50. Kf3 e5! Og Karpov gaf. Hvítt: John Nunn Svart: Anatoly Karpov Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Rd7 10. d4 Bf6 11. a4 Hb8 12. axb5 axb5 13. Be3 Re7 14. d5 Rc5 15. Bc2 c6 16. b4 Ra6 17. dxc6 Rxc6 18. Ra3 Rc719. De2 De8 20. Hedl Be7 21. Bd3 Rd8 22. c4 Bd7 23. c5 dxc5 24. bxc5 f6 25. Bc2 Be6 26. Habl Dc6 27. Bd3 b4 28. Hdcl Kh8 29. Rc4 Bxc4 30. Hxc4 Ra6 31. Rd2 Re6 32. Rb3 Hfd8 33. Hbcl Rac7 34. H4c2 Rb5 35. Bxb5 Dxb5 36. Dxb5 Hxb5 37. c6 Kg8 38. Ha2 Kf8 39. Ha7 Ke8 40. Hb7! Hxb7 41. cxb7 Bd6 42. Ba7 Hd7 43. b8=D+ Bxb8 44. Bxb8 h5 45. Hal Hd3 46. Hbl Hd7 47. Ra5 Hd4 48. Rc6 Hxe4 49. Rxb4 Hd4 50. Ba7 Hd7 51. Be3 Kn 52. Hal Kg6 53. Ha6 Rg5 54. Rc6 Kf5 55. Ha7 Hxa7 56. Rxa7 Re6 57. Kfl Ke4 58. Ke2 Kd5 59. Rc8 Rd8 60. Rb6+ Ke6 61. Kd3 Rf7 62. Kc4 Rd6+ 63. Kc5 Rf5 64. Rc4 Rh4 65. g3 Rf5 66. Rd2 Re7 67. Re4 Kf5 68. Rd6+ Ke6 69. Re8 Kf7 70. Rc7 Rf5 71. Kd5 Re7+ 72. Kd6 Rf5+ 73. Kd7 Re7 74. Bc5 Rg6 75. h4 Rh8 76. Re6 g5 77. hxg5 Rg6 78. gxfB Kxf6 79. Rf8 Rh8 80. Be7+ Kf5 81. Ke8 Og nú loks gafst Karpov upp, eft- ir vonlausa baráttu í fjömtíu leiki. -JLÁ Vestfjarðamót í sveitakepnni 9/6-11/6 Spilastaður Núpur Úrslit Nr. Bveit »tig 1. Hfilgí M. Gunnaraaon, Þtngeyri JóhanneaSigmarHBon Jóhannt‘8 Oddur Bjarnaaon Hermann Sigorósson 170 2. Guómundur M. Jónaaon, í&aftröi 163 3. Má Ini ngarlagorin n Boi./íaaf. 157 4. Ævar JónasKon, TálknafirÓi 141 5. Haukur Árnason, TáÍknafírðÍ 138 6. Sturla ólafnson, Suðureyri 134 7. Eiríkur KrÍHtófersson, Ísaítrði 115 8. Gunnar Jóhannesaon, Þing- 114 eyri 9. Bjórn Bry njólfsson, Isafirði 93 Keppnisstjóri Steinberg Ríkharðs- son. Svæðis8tjóri Ævar Jónasson. á veginn! Hraðakstur er orsök margra slysa. Miðum hraða aUtaf við aðstæður, m.a. við ástand vega, færð og veður. Tökum aldrei ÓhættUl yu^jFERÐAR EM í Finnlandi: Þungur róður í Turku íslenska sveitin á Evrópumótinu í Finnlandi fór vel af stað þegar hún lagði að velU V-Þýskaland og Sovét- ríkin á fyrsta degi mótsins. Síðan kom fimm leikja vondur kafli sem vonandi endaði þegar okkar menn lögðu sveit Stóra-Bretlands meö 22-8. Þegar þetta er skrifað er vonandi um kaflaskipti aö ræða, þvi Bretar eru með eitt af bestu landsliðum mótsins. Hér fara á eftir úrslit cinstakra leikja: Ísland-V-Þýskaland 1&-14 Ísland-Sovétríkin 17,5-12 Ísland-Holland 8-22 ísland-ítaha 2-25 ísland-írland 12-18 Ísland-Tékkóslóvakía 11-19 jsland-Belgía 6-24 Ísland-Bretland 22-8 Þótt Uðið tapaði stórt fyrir Hol- lendingum beit það aðeins frá sér eins og eftirfarandi spU frá leiknum gefur til kynna. S/AV ♦ G 9 5 2 ¥ K 10 9 7 ♦ K + Á 7 6 3 * K D 8 4 3 V Á 6 3 ♦ 98 + D G 9 ♦ 6 ¥ D G 8 5 4 3 ♦ Á G 10 + K 10 8 »A1U I ¥ - ♦ D765432 jL c a o Bridge Stefán Guðjohnsen Suður Vestur Norður Austur lhjarta lspaöi 4 hjörtu 4 spaöar ðhjörtu dobl pass pass pass Eflaust heföu íjórir spaðar doblaðir gefið vel, Uklega ekki minna en 800, en Valur vildi ekki spila vörn með sín spU. Vestur spUaði út spaðakóngi og skipti síðan í tígul. Valur tromp- aði spaða heim, spilaði hjarta og tók slaginn í bUndum. Síðan meira tromp, sem vestur drap með ás og spilaði laufadrottningu. Valur drap heima á kónginn, trompaði tígul og trompaði síðan spaða heim. Síðan tók hann trompin í botn og vestur var fastur í kastþröng með spaðadrottn- ingu og laufagosa. í lokaða salnum sátu n-s Jónas P. Erlingsson og Valur Sigurðsson en a-v Leufkens og Westra. Sagnir gengu á þessa leið: ísland fékk því 650 og græddi sex impa, því í opna salnum unnust að- eins fjögur hjörtu slétt en ódobluð. Stefán Guðjohnsen

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.