Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1989, Page 2
2
FÖSTUDAGUR14. JÚLÍ 1989.
Fréttir
Langtímaveöurspá frá 15. júlí til 15. ágúst:
Sólsveltir Islendingar hafa
ekki ástæðu til bjartsýni
„Það eru 55 prósent líkur á því
að úrkoma veröi meiri en í meðal-
lagi fram i miöjan ágúst á meðan
nokkuð jafnar líkur eru á meðal-
hita við ísland á þessum tíma,“
sagöi veðurfræöingur hjá banda-
rísku veðurstofunni í samtali viö
DV.
DV halði samband við Banda-
rikjamennina í þeirri von aö geta
fengið hjá þeim langtímaveöurspá
er gæti lyft íbúum á Suöur- og Vest-
urlandi upp úr þungum rigningar-
þönkum sinura. Þaö er hins vegar
ekki mikil von á að rofi mikið til
ef marka má orö veðurfræðingsins.
Spáin fyrir tímabiliö 15. júlí til 15.
ágúst virðist gera ráða fyrir frekar
votviðrasamri tið fyrir landsmenn,
alla vega vel vætta íbúa Suðvestur-
lands. Ef veðrið hagar sér á svipað-
an hátt með tilliti til landshluta og
það hefur gert ætti ekki að væsa
um fólk á norðan- og austaverðu
landinú.
Hversu áreiðanleg er þessi spá?
Nógu áreiöanleg telja sumir, og
vísa til takmarkaðs áreiðanleika í
veðurspám yfirleitt. Aörir gefa
henni hins vegar ekki mörg prik.
DV hefur birt nokkrar langtíma-
spár þaö sem af er árinu og virtust
þær spár ganga eftir í meginatrið-
um. Þannig var til að mynda bjart
en svalt vor i ár, alveg í samræmi
við langtímaspá DV.
Þessi langtímaspá er byggð á lofl-
straumum í um 10 þúsund metra
lofthæö og segir til um megintil-
hneigingar í veðri. Ef spá á um
vinda við yfirborð jarðar, sem geta
ráðið hvar á landinu er sól þann
og þann daginn, vilja veðurfræö-
ingar ektó. spá lengra en i mesta
lagi5-10 dga fram í tímann. „Lengri
spár eru marklausar í því sam-
hengi,“ sagði bandariski veður-
fræðingurinn.
Það má segja að fólk suövestan-
lands hafi veðrið á heilanum þessa
dagana, ef ekki þá alla vega rigning-
una í hárinu. Ef sólin raá vera aö
þvi að kikja á okkur hér á suðvest-
urhominu eina morgunstund ætlar
allt vitlaust að verða. „Sumarið er
komið!“ Svo líöur að hádegi og við
tekur sama gamla tuggan - skýjað
veður, síðan rignmg. Svo vakna
menn í þoku og súld daginn eftir.
Er það nokkur von að veðriö sé eitt
aöalumræðuefnið í upphafi hunda-
daga? Það eina sem hægt er að gera
í stöðunni er að bíða og vona að það
verði sól og sumarylur. -hlh
Langtímaspá yfir veður á N - Atlantshafi í júlí/ágúst
Byggt á gögnum NOAA(National Oceanic and Atmospheric Adminstration)
Barst til sýslumanns
í gegnum tölvukerfið
- Hagvirki ætlar að áfrýja
„Þetta virðist hafa lagast eitthvað,
krafan hefur þó lækkaö um 45 millj-
ónir. Það er bara spuming hvort að
hún lækkar ekki um 108 milljónir
næst um leið og við fáum skaðabæt-
ur,“ sagði Jóhann G. Bergþórsson,
forstjóri Hagvirtós, en niðurstaða í
söluskattsmáli fyrirtækisins var
send út frá Rítóskattanefnd í gær.
Reyndar höfðu þeir Hagvirtósmenn
ekki enn fengið niðurstöðuna form-
lega én þeim verið tjáð að hún væri
á leið í pósti. Jóhann sagði að lög-
menn og endurskoðendur fyrirtæk-
isins hefðu leitað eftir niðurstöðu
málsins eftir að fregnir fóru að ber-
ast um það í fjölmiðlum en án árang-
urs.
Þá sagöi Jóhann að fyrirtætóð
myndi áfrýja máhnu en reyndar er
það ennþá til meðferðar í bæjar-
þingi. Jóhann sagðist ekkert geta
sagt til um þaö hvort fyrirtætóð
myndi greiða kröfuna núna til að
koma í veg fyrir frekari lokanir.
Að sögn Kristjáns Þorkelssonar,
fulltrúa sýslumanns í Rangárvalla-
sýslu, þá barst niðurstaða málsins til
hans um tölvukerfi embættisins
seint í gær. Þar fékst staðfest að sölu-
skattskrafan hafði verið lækkuð úr
153,5 milljónum í 108 milljónir. Hann
hafði hins vegar ektó fengið neinar
efnislegar útskýringar á því af
hverju krafan var lækkuð. Eftir þeim
verður hann að bíða þar til pósturinn
stólar þeim.
-SMJ
Fækkanir hjá lögreglumii á Keflavikurflugvelli:
Hef ekkert heyrt um það
- segir Þorgeir Þorsteinsson lögreglustjóri
„Ég hef bara ekkert heyrt um
þessar fyrirætlanir þannig að ég
get ekkert tjáð mig um þær,“ sagði
Þorgeir Þorsteinsson, lögreglu-
stjóri á Keflavíkurflugvelli, þegar
hann var spurður álits á fyrir-
hugaðri fækkun í lögregluliði fiug-
vallarins. Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráöherra hefur látið
hafa eftir sér að til standi að fækka
um 24 störf í hði lögreglunnar á
Qugvelhnum.
Þorgeir Ver Hahdórsson, formað-
ur lögreglufélags Suðumesja, sagði
að slikar hugmyndir kæmu á óvart
en sagði þó aö starfsmenn hefðu
heyrt einhvem ávæning af þessu.
í hði lögreglunnar á flugvelhnum
em 50 lögregluþjónar og þar að
auki em um 30 starfsmenn hjá
Tollgæslunni en samdrátturinn
átti einnig að koma fram hjá þeim.
-SMJ
Thomas Black sem hetur starfað einn við rannsóknir á Vatnajökli.
DV-mynd Hanna
Ungur Bandaríkj amaður:
Einn við rannsóknir
á Vatnajökli
Franskættaður flakkari stal
fjármunum af fullorðinni konu
Franskur ferðamaður stal nærri
100 þúsund krónum af eldri konu á
Lækjartorgi um klukkan sjö í gær-
kveldi. Lögregla fann manninn fljót-
lega. Hann var þá í Austurstræti.
Maðurinn reyndi að fleygja pening-
unum frá sér þegar hann gerði sér
grein fyrir því að hann átti enga
möguleika á að flýja yfirvaldið.
Á manninum fundust 96 þúsund
krónur. Honum hefur því ekki tekist
að eyða miklu af ránsfengnum. Mað-
urinn var í fangageymslu 1 nótt.
Rannsóknarlögreglan hefur mál
hansthathugunar. -sme
Ungm- Bandaríkjamaður af ís-
lenskum ættum, Thomas Black að
nafni, hefur dvalið hér á landi í sum-
ar við rannsóknir á Vatnajökh. Mið-
ast rannsóknimar að því að bera
saman stærð Vatnajökuls og Öræfa-
jökuls nú og fyrir tíu þúsund ámm.
Thomas, sem er 23 ára landafræði-
nemi við Coloradoháskóla, kom til
landsins í lok maí og eftir því sem
hann segir sjálfur þá hefur hann
vart gert annað síðan hann kom en
að hendast upp og niður jöklana.
Mestan tímann hefur hann verið
einn viö þessar rannsóknir sínar en
um tíma naut hann aðstoöar vinar
síns sem er japanskur vísindamaður.
Þegar hann var spurður hvort það
væri ekki einmanalegt að vera svona
aleinn uppi á jökli, kvað hann það
ektó vera því starfið væri mjög
áhugavert og þar að auki væri nátt-
úra landsins mjög falleg. Thomas
mun dvelja hér á landi tíl 7. ágúst nk.
-GHK