Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1989, Side 7
7
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989.
Fjórtán hafa sótt um stöðu hér-
aðsdýralæknis í Gullbringu- og
Kjósarsýslu en staðan var nýlega
auglýst laus til umsóknar. Um-
sækjendumir eru:
Björn Steinbjörnsson, dýra-
læknir í Rcykjavík, Ólafur Jóns-
son, dýralæknir á Rannsókna-
stofu mjóikuriðnaðarins, Helgi
Sigurðsson, sérfræðingur á Keld-
um, Halldór Runólfsson, deildar-
dýralæknir hjá Hollustuvenid
ríkisins, Lars Hansen, fisksjúk-
dómalæknir á Keidum, Gunnar
Örn Guðmundsson, héraðsdýra-
læknir í Borgaríjarðarumdæmi,
Gumiar Þorkelsson, héraðsdýra-
læknir á Kirkjubæjarklaustri,
Steinn Steinsson, héraðsdýra-
læknir á Sauðárkróki, Binar Otti
Guömundsson, héraðsdýralækn-
ir í ísaflarðarumdæmi, Birnir
Bjamason, héraðsdýralæknir á
Höfh i Hornafiröi, Þorvaldur
Hlíðdal Þórðarson, dýralæknir í
Reykjavík, Rögnvaldur Ingólfs-
son, héraðsdýralæknir í Búðard-
al, Guðbjörg Anna Þorvarðar-
dóttir, héraðsdýralæknir á
Hólmavík, og Þorsteinn Ólafsson,
dýralæknir hjá Búnaðarsam-
bandi Suðurlands.
-hlh
Húsavík:
Ekkert eftiriit
á eftirsóttum
ferðamanna-
stöðum
Lögreglan í Þingeyjarsýslum
neyðist til að leggja af eftirlit á
vinsælum ferðamannastööum í
sýslunum. Búiö er að skera niður
stóran hluta yfirvinnu lögregiu-
manna og því verður ekki lög-
gæsla í Vaglaskógi, Mývatns-
sveit, Ásbyrgi og fleiri eftirsótt-
um ferðamannastöðum.
Þá verður vegaeffirlit lögregl-
unnar í Þingeyjarsýslum með
minnsta móti. Vegalðgreglan úr
Reykjavík er á færri bílum á þjóð-
vegum landsins en síðustu ár og
að sjálfsögöu dregur það úr lög-
gæslu á vegum landsins.
-sme
Grindavik:
FjórhjóEa-
menn valda
skemmdum
Lögreglan í Grindavík hefur
þurft að hafa nokkur afskipti af
fjórhjólamönnum í sumar. Einn
þeirra gerði sér lítið fyrir og fór
í ökuferö á nýræktuðmn íþrótta-
velti. Með háttalagi sínu
skemmdi ökumaðurinn völlinn
talsvert. Lögreglan hefur haft
uppi á þeim sem olli skeramdun-
um.
Fjórhjólamenn hafa víðar vald-
ið skemmdum en á íþróttavellin-
um. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Grindavík hefur
aðeins dregið úr umferð fjórhjóla
síðustu daga.
-sme
Verður leng-
varðhaldi
Maður sá, sem enn er í gæslu-
varðhaldi vegna rannsóknar um-
fangsmesta kókaínmáls sem
komið hetur upp hér á landi, hef-
ur verið úrskurðaður til að sitja
í gæsluvarðhaldi til 1. ágúst. Sam-
kvæmt fyrri úrskurði átti maður-
inn að verða laus í fyrradag.
Að kröfu lögreglunnar féllst
sakadómur í ávana- og flkniefna-
málum á framlengingu úrskurö-
arins. -sme
Fréttir
Sumarafleysingar hjá slökkvíliðinu:
Neituðu að fara með
afleysingamanninum
- borgarráð íjallar um vandann
„Þeir neituðu að vera með mann-
inum á sjúkrabíl. Við fundum bráða-
birgðalausn á þessu máli. Þeir telja
sig hafa heimildir fyrir því að máliö
sé ekki endanlega afgreitt hjá borgar-
ráði. Ég tel hins vegar að málið sé
endanlega afgreitt og maðurinn sé
ráðinn til starfa hér hjá okkur. Borg-
arráð er ábyrgt fyrir ráðningum og
ef það ræður menn til starfa verða
menn að beygja sig undir það,“ sagði
Hrólfur Jónsson, varaslökkviliðs-
stjóri í Reykjavík.
Brunaverðir hafa neitað að vinna
með manni sem ráðinn var reynslu-
ráðningu. Þeir segja manninn ekki
standast þær kröfur sem gerðar eru
til brunavarða. Maðurinn var settur
á símann til bráðabirgða þar til end-
anleg lausn fæst á þessu máli.
- Er það rétt að maðurinn standist
ekki þær kröfur sem gerðar eru til
brunavarða?
„í samþykktum um slökkvilið
kveður á um hvaða skilyrði menn
þurfa að uppfylla til að fá ráðningu
sem brunaverðir. Þeir þurfa að hafa
iðnmenntun eða sambærilega
menntun, hreint sakavottorð, stand-
ast læknisskoðun og þrekpróf, hafa
meirapróf bifreiðarstjóra, ekki vera
haldnir lofthræðslu né neinu slíku
og vera á aldrinum 20 til 28 ára. Það
sem þessi starfsmaður uppfyllir ekki
af þessum skilyrðum er að hann hef-
ur ekki framhaldsmenntun eftir
gagnfræðaskóla og hann verður 29
ára í desember. Hann var ráðinn
reynsluráðningu. Það eru allir
starfsmenn ráðnir fyrst til reynslu."
- Heldur þú að hann hafi verið ráð-
inn þar sem faðir hans er einkabíl-
stjóri Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra?
„Það veit ég ekki og legg ekki mat
á það. Þessi maður var hér fyrir sex
árum. Hann hætti þá eftir átta mán-
aða starf. Þá var í gildi reglugerð um
námskeið fyrir nýhða. Það fóru tíu
menn á námskeiðið og fimm þeirra
voru ráðnir. Hann var ekki einn af
þeim sem fengu ráðningu. Hann hef-
ur síðan fylgst stöðugt með því hvort
losnaði starf hjá slökkviliðinu.“
- Er það ekki rétt að námskeiðinu,
sem þú nefnir, hafi lokið með prófum
og þessi ákveðni maður hafi ekki
staðist öll prófin?
„Hann náði ekki tilskildum árangri
í tveimur skriflegum fögum, um ör-
yggismál og umferðarlög. Maðurinn
er hér núna og ég gerði samkomuiag
við mennina um að hann færi ekki
í sjúkraflutninga fyrr en borgarráð
hefur fjaliað um málið eina ferðina
enn. Þannig stendur málið. Þeir telja
að þetta snúist um launamál og
fleira. Menn verða bara að gera sér
grein fyrir því að það er borgarráð
sem ákveður. Það er þess að ákveða
hvort farið er út fyrir þær vinnuregl-
ur sem eru í gildi,“ sagði Hrólfur
Jónsson. -sme
Ný starfsemi í
Henson-húsinu
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi:
Bæjaryfirvöld á Akranesi eiga í
viðræðum við ónefnt fyrirtæki um
hugsanlega iðnaðarstarfsemi í húsi
sem Henson átti áður en fyrirtæki
þess á Akranesi varð gjaldþrota fyrir
einu og hálfu ári. Iðnlánasjóður á
húsið nú.
„Það er óhætt að fullyrða að það
sé alvara í þessum viðræðum en það
skýrist betur á næstu dögum hvað
úr verður," sagði Jóhann Arsælsson
bæjarfulltrúi í samtah við DV en
Jóhann er jafnframt formaður
stjómar Atvinnuþróunarsjóðs Akra-
ness.
Ef af samningum viö þetta ónafn-
greinda fyrirtæki verður mun sjóð-
urinn að öllum líkindum leggja fram
hlutafé en óljóst er hvort um frekari
fyrirgreiðslu verður að ræða frá
bæjarins háifu.
Síðan Henson á Akranesi varð
gjaídþrota hefur verið reynt að fá
ýmsa aðila til þess aö koma á fót ein-
hverri atvinnustarfsemi í húsinu en
ávallt hefur slitnað upp úr viðræð-
um. Bæjaryfirvöld hafa átt viðræður
um þetta bæði við innlend og erlend
fyrirtæki.
Um 25 manns, aðallega konur,
misstu atvinnu sína þegar starfsemi
Henson stöðvaðist.
Snemma beygist krókurinn. Þessi ungmenni í Vestmannaeyjum vinna við
humarvinnslu í sumar. Þrátt fyrir að vinnudagurinn sé oft langur skin gieði
úr hverju andliti. Verkstjórinn sagði unglingana vera ágæta starfsmenn.
Hann fór þó öllu fallegri orðum um stúlkurnar en strákana.
DV-mynd BG
Nýr sýslumaður Snæfells- og Hnappadalssýslu
Jón Magnússon hefur verið skip- sama stað. son, sýslumaður í Barðastrandar- dalssýslu hefur aðsetur í Stykkis-
aður í embætti sýslumanns Snæfells- Umsækjendur um sýslumannsem- sýslu, Þorfinnur Egilsson, lögmaður hólmi en er jafnframt bæjarfógeti í
og Hnappadalssýslu frá og með 1. bættið voru, auk Jóns Magnússonar, í Reykjavík, og loks einn sem óskaði Ólafsvík.
ágúst næstkomandi. Jón hefur starf- Ríkharður Másson, sýslumaður í nafnleyndar. -hlh
að sem aðalfulltrúi sýslumanns á Strandasýslu, Stefán Skarphéðins- Sýslumaður Snæfells- og Hnappa-
KR-vöUur í kvöld kl. 20.00
KR-VALUR
í íslandsmótinu - Hörpudeild
KR-ingar, mætum tímanlega
og hvetjum okkar menn.,
RAUÐA LJONIÐ
í hálfleik verður ferðaleikur Útsýnar og KR.
Ferdavinningar aö verömæti
60.000 kr.
tlTSÝN
Tölvupappír
FORMPRENT
Hvorlisgotu /8. sim.ir i’SObO 2bb66