Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1989, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 14, jJÚLÍ 1989.
Utlönd
Bjartsýnir á árangur
Gennady Gerasimov, talsmaöur utanríkisráöuneytls Sovétstjórnarinn-
ar, sagði í gær aö yfirvöld þar í landi fögnuðu ákvörðun Atlantshafs-
bandalagsins, Nato, um aö leggja fram tillögur'um afvopnun i hefð-
bundnum vigbúnaöi fyrr en til stóð og myndu leggja áherslu á að ná
samkomulagi innan sex mánaða. í gær, fimmtudag, kynntu fulltrúar
Nato nýjar afvopnunartillögur í Vín en þar fara fram viðræður um fækk-
un í heföbundnum herafla í Evrópu.
Gerasimov sagði að sovésk yfirvöid teldu tilboðiö jákvætt og lagt fram
af alvöru. Tiiboðið var fyrst kynnt af Bush Bandaríkjaforseta á leiötoga-
fundi Nato í maí síðastliðnum. í því er m.a. gert ráð fyrir hámarksfjölda
hermanna í Evrópu, 275 þúsund, og verulegri fækkun í fjölda skriðdreka
og fiugvéla.
Á leiötogafúndinum kvaðst forsetinn vonast til að hægt væri aö ná samn-
ingum á sex tl ólf ~'ánuðum. Yfiriýsing Gerasimovs firá í gær gefur í
skyn, i fyrsta sinn, að Sovétmenn hafi sömu tímaáætlun í huga.
Fulltrúamir í Vín segja að vel hafi gengiö í viðræðunum en þær hófust
í mars i fyrra. Þó segja þeir aö enn beri margt á milli. Einn vestrænn
stjórnarerindreki kveðst teija að erfiöast verði aö ná samkomúlagj um
skilgreiningar á vígbúnaði. Aðalsamningamaöur Sovétrikjanna í Vin,
Oleg Grinevsky, kvaöst telja mögulegt aö ná samkomulagi á næsta ári
en hann hefur þó gagnrýnt tilboð Nato harölega.
Kúrdar myrtir í Vín
Lik eins Kúrdanna, sem myrtir voru i Vin, fiutt frá morðstaðnum.
Simamynd Reuter
Þrír menn, sem taldir eru vera íranskir Kúrdar, fundust i gær skotnir
til bana í íbúö í Vín í gærkvöldi. Svo virðist sem mennimir hafi verið
skotnir i höfuðið af stuttu færi, að þvi er lögreglan í Vín segir. Lögreglan
vildi ekki gefa upp hvemig hún heföi frétt af morðunum. Fjórði maður-
inn fannst meö sár á hálsi nálægt íbúöarhúsinu.
Hinir látnu vom allir með írönsk skjöl á sér. Einn þeirra var aðalritari
kúrdíska lýöræöisflokksins í íran.
Létust í troðningi
Sex Egyptar létust í troðningi þegar þeir reyndu að verða sér úti um
kjöt sem boðið haföi veriö ókeypis, að því er sagöi í egypskum dagblöðum
í morgun.
Um tvö hundmð aldraöar konur þustu inn í hús í Sahel fyrir norðan
Kaíró þar sem húseigandinn hafði lofað aö úthluta til fátækra ókeypis
sneiöum af kálfi sem hann hafði slátrað. í látunum sem uröu tróðust sex
manns undir.
Símamynd Reuter
Bandarísku forsetahjónin, George og Barbara Bush, og Thatcher, forsætisráðherra Breta, ræðast við.
S
Leiðtogafundur sjö helstu iðnríkja heims:
Skuldir þróunar
landa ber hæst
Fyrir leiðtogum sjö helstu iðnríkja
heims liggur nú að taka ákvöröun
um hvernig sé best að létta á gífur-
legri skuldasöfnun þróunarland-
anna og hjálpa þeim á braut meiri
hagsældar og velmegunar. Talið er
að þaö verði eitt helsta umræðuefni
fundar leiðtoganna sem hefst í París
í dag.
Fréttaskýrendur telja að þeir muni
bregðast jákvætt við beiðnum leið-
toga þróunarlandanna um frekari
aðstoð. Talið er að niðurfelling
vaxtagreiðslna eða hiuta lánsfjárins
komi einna helst til greina. Þá er tal-
ið líklegt að leiötogarnir muni lýsa
yfir stuöningi sínum við áætlun sem
Nicholas Brady, bandaríski fjármál-
aráherrann, hefur lagt fram og gerir
ráð fyrir nokkrum afskriftum lána
bankastofnana og annarra lána-
stofnanan til þróuncirlandanna. Þó
er taliö að þeir setji það sem skilyrði
fyrir stuðningi við Brady-áætlunina
að stjórnvöld í þeim löndum sem fá
aðstoð samkvæmt henni hleypi af
stokkunum víötækum efnahagsum-
bótum.
Efnahagsástandið í ríkjum A-
Evrópu mun án efa koma til umræðu
á fundinum um helgina. í kjölfar
opinberrar heimsóknar Bush Banda-
ríkjaforseta til Póllands og Ungverja-
lands í síðustu viku mun hann leggja
áherslu á aö ná samþykki leiðtog-
anna fyrir aukinni efnahagsaðstoð
til þeirra ríkja.
Umhverfismál munu einnig koma
til umræðu á fundinum um helgina.
Umhverfisverndarsinnar segja að
iðnríkin þurfi að verja allt að 500
milljónum á ári aukalega til átaks í
umhverfisvernd eigi að bjarga regn-
Skógunum. Reuter
Fæddist með byssukúlu í brjóstinu
Það þykir kraftaverk að þessi nýtædda stúlka skuii hafa lifað af í móður-
kviði með byssukúlu i brjóstinu. Simamynd Reuter
Þessi litla stúlka fæddist á laugardaginn í Memphis í Bandaríkjunum
með byssukúlu í brjóstinu. Móðir hennar var skotin í kviöinn af árásar-
manni sem reyndi aö þröngva henni inn í bíl sinn.
Segja læknar það kraftaverk að bamið skuli hafa lifað af skotárásina
en bæði móður og bami liöur vel miðað viö það sem á undan er gengiö.
Fimm hundruð hafa látist í fflóðum
Taliö er að fimm hundruð tuttugu og einn hafi þegar látist í kjölfar
mikilla ílóða í Suchuan héraði í suðvesturhluta Kína í þessum mánuöi.
Að sögn embættismanns í Chengdu, höfuðborg héraðsins, berast daglega
fregnir af fleiri dauðsföllum.
Erfitt er að segja til um hversu margir hafa látjst af völdum flóöa og
aurskriða í þessum hluta Kína vegna þess að mörg þorp og bæir em úr
alfaraleið og samgöngur þangaö stiröar. í tölum yfirvalda um látna er
ekki gert ráð fyrir um 180 manns sem er enn saknað frá því á mánudag
þegar þorpiö sem þeir bjuggu í varö undir aur- og grjótskriöu.
Flóö í Kína eru árlegur viöburður. í fyrra létust meira en tvö þúsund,
flestirfráausturhéruðumlandsins. Reuter
Hátíðastemmning í París
Fjöldi þjóöarleiðtoga tekur þátt í hátíðahöldunum í París. Hér sjást Gand-
hi, forsætisráðherra Indlands, Bhutto, forsætisráðherra Pakistans, og Thatc-
her, forsætisráðherra Breta. Simamynd Reuter
víðar en í stórborgum og í þrjátíu og
Það var hátíðlegt í París í gær þeg-
ar þjóðarleiðtogar fjölda ríkja komu
þangað til að taka þátt í hátíöahöld-
unum vegna 200 ára afmælis stjórn-
arbyltingarinnar. Fulltrúar þrjátíu
og tveggja þjóða hvaðanæva að tóku
þátt í minningarathöfn um mann-
réttindayfirlýsinguna en franska
þingið samþykkti yfirlýsinguna árið
1789. í táknrænni athöfn var fimm
hundruð hvítum dúfum sleppt til aö
bera boðskap yfirlýsingarinnar til
allra þjóða heims.
Frakkar þyrptust út á götur borga
Gífurlegar öryggisráðstafanir hafa
verið gerðar vegna komu fulltrúa
rúmlega þrjátíu þjóða. Hér sjást
franskir öryggisverðir við störf.
Símamynd Reuter
og bæja til að taka þátt í hátíðahöld-
unum og gagnrýni vegna hins gífur-
lega kostnaðar hátíðarinnar virtist
gleymd og grafin, alla vega um hríö.
Kampavínið flóði segir í fréttum frá
París og alls staðar var fólk að fagna
afmælinu. Skemmtanir fóru fram
átta þúsund þorpum viðsvegar um
landiö voru uppákomur í tilefni
dagsins.
Hátíðahöldunum er síður en svo
lokið því Frakkar munu skemmta
sérnæstuþrjádaga. Reuter