Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1989, Síða 9
FÖ^UDAGÚR'14. JÚLÍ 1989.
Palmemálið:
Dómur eftir
tvær
Dómur í Palmemálinu verður
kveðinn upp 27. júlí og þangað til
verður ákærði áfram í gæsluvarð-
haldi, að því er tilkynnt var í gær.
Þá komu saman tveir dómarar
og sex neíhdarmenn sem kveða
eiga upp dóminn. Þeir munu hittast
aftur 18. júlí og er það túlkað sem
að þeir hafi enn ekki gert upp hug
sinn um hvort ákæröi er sekur eða
saklaus. Það getur einnig þýtt að
menn séu ekki sammála um hvem-
ig dómurinn eigi aö hljóða. Bæði
saksóknari og verjandi eru sam-
mála um að engar aðrar ályktanir
sé hægt aö draga af tilkynningunni
frá því í gær og segir veijandi að
enn sé málið ekki tapað.
Ef tekin hefði verið ákvöröun um
að ákæröi væri saklaus hefði þurft
vikur
að láta hann lausan tafarlaust áður
en dómur verður kveðinn upp
formlega. Saksóknari hefur krafist
lífstíðarfangelsisdóms yfir ákæröa
sem enn heldur fram sakleysi sínu.
Ýmis vitni benda á ákærða sem
mann þann er sást nálægt þeim
stað þar sem Olof Palme, forsætis-
ráðherra Svíþjóöar, var myrtur en
ekkert þeirra sá hann með byssu í
hönd og morðvopniö hefur ekki
fundist. Sænsku lögreglunni berast
enn ábendingar sem em athugunar
virði.
Eftir aö réttarhöldunum, sem
staðið höfðu yfir í fimm vikur, lauk
hefur ákærði fengið leyfi til aö
horfa á sjónvarp, lesa dagblöð og
hlusta á útvarp. Enn fær hann ekki
aölesabréfsemhonumberast. rr
Málefni Hong
Kong enn
í brennidepli
Sir Geoffrey Howe, utanríkisráð-
herra Breta, kvaöst í gær viss um aö
yfirvöld í Kína muni fylgja tíl hlítar
samkomulagi Breta og Kínveija um
námfstu framtíð Hong Kong þegar
Bretland lætftr Kína í hendur stjóm
nýlendunnar. Samkvæmt samkomu-
laginu fá Hong Kong búar að halda
núverandi efnahags- og félagskerfi í
fimmtíu ár eftir að Kínverjar taka
við stjórn nýlendunnar. Kína fær
yfirráð yfir Hong Kong árið 1997.
Howe sagði á þingfundi í gærkvöldi
að kínversk yfirvöld hefðu ítrekað
að þau myndu standa við samkomu-
lagið og kvað utaníkisráðherrann
bresk stjómvöld fagna því. En Howe
kvaðst þó eiga í viðræðum við önnur
ríki um hvemig best væri að bregð-
ast við, „kæmi til hins versta“.
Hann sagði að í kjölfar blóðbaðsins
á Torgi hins himneska friðar í Peking
í júní yrðu kínversk yfin'öld að
sanna fyrir íbúum Hong Kong að þau
myndu standa við gefin loforð. Her-
inn lét til skarar skríða gegn mót-
mælendum í Kína í byrjun júní og
er óttast að hundmð ef ekki þúsund-
ir hafi látist.
í Kína hafa tveir menn til viðbótar
verið teknir af lífi sakaðir um andóf
Sir Geoffrey Howe, breski utanríkis-
ráðherrann, í augum Luries
Teikning Lurie
gegn stjórnvöldum vegna aðildar að
mótmælunum í síðasta mánuði. Þar
með hefur verið tilkynnt opinberlega
um tólf aftökur í tengslum við mót-
mælin í Kína. Andófsmenn telja aö
fleiri hafi veriö teknir af lífi án þess
að stjórnvöld hafi tilkynnt um það
opinberlega. Reuter
Danski fanginn
látinn laus
Dönsk kona, sem verið hefur í
haldi yfirvalda í ísrael frá því í síð-
ustu viku, verður látin laus í dag, að
því er talsmaður ísraelska sendiráðs-
ins í Kaupmannahöfn tilkynnti í gær.
Konan, Ulla Lyngsby, var hand-
tekin á flugvellinum í Tel Aviv síð-
astliðinn laugardag og hefur verið í
einangrun í fangelsi í Haifa frá því á
mánudag á meðan rannsókn í máli
hennar hefur fariö fram. Var hún
grunuð um fjandsamlega starfsemi
gegn ísrael.
Ulla Lyngsby, sem er barnshafandi
og býr með Palestínumanni í Dan-
• mörku, kom á fimmtudaginn í síð-
ustu viku í fyrsta sinn til ísraels. Hún
ætlaði meðal annars að heimsækja
íjóra palestínska námsmenn sem í
vor komu í heimsókn til Danmerkur.
Við komuna til landsins var hún yfir-
heyrð af öryggislögreglunni í einn
og hálfan klukkutíma og var farangri
hennar haldið eftir. Á laugardags-
morgun fékk Ulla tilkynningu um að
hún mætti sækja farangur sinn á
flugvöllinn. Við komuna þangað var
hún handtekin. Þrír af námsmönn-
unum fjórum, sem Ulla ætlaði að
heimsækja, voru handteknir um
helgina.
Talsmaður ísraelska sendiráðsins
í Kaupmannahöfn sagði í gær að
sannanir væru fyrir því að Ulla
tengdist Fatah-hreyfingimni innan
Frelsissamtaka Palestínumanna,
PLO. Allar fréttir af málinu hafa ver-
ið ritskoðaðar í ísraelskum fjölmiðl-
um.
Útlönd
Minnast Khomeinis
Tugir þúsunda írana hættu bók-
staflega lífi sínu í gær til að votta
hinum látna trúarleiðtoga sínum,
ayatollah Khomeini, hinstu virðingu.
Mikill fjöldi írana tók þátt í minning-
arathöfn um Khomeini sem haldin
var við grafhýsi hans í gær. Þá var
liðinn fjörutíu daga sorgartími sem
lýst var yfir í landinu í kjölfar láts
hans.
Athöfnin fór fram í Behesht-e Za-
hra kirkjugarðinum í útjaðri Teher-
an, höfuðborgar íran, en tugir þús-
unda fómarlamba úr átta ára styrj-
öld írana og íraka bera bein sín þar.
Mannfjöldinn hrópaði slagorð gegn
Bandaríkjuninn en Khomeini var
mjög andvígur Vesturlöndum. Sonur
trúarleiðtogans, Ahmad, flutti eftir-
mæh um foður sinn. Fyrr um daginn
hafði artaki Khomeinis, Ali Khame-
nei, heitið því að viðhalda strangtrú-
arlögmálum þeim er Khomeini setti
í íran eftir að hann komst til valda.
Mikill hiti var í Teheran og féllu
þúsundir syrgjenda í yfirhð. Ekki er
vitað um nein mannslát en um þijá-
tíu þúsund urðu að leita læknisað-
foðar. Hin opinbera fréttastofa sagði
;v3 sumir hefðu hlotið slæm meiðsl,
i iikum vegna mikhs troðnings.
Hópur íranskra kvenna bíður þess að geta veitt Khomeini hinstu virðingu.
Minningarathöfn fór fram í gær um hinn látna trúarleiðtoga en þá var lið-
inn fjörutiu daga sorgartimi sem lýst var yfir i íran í kjölfar láts hans.
Símamynd Reuter
Nokkir létust þegar Khomeini var
borinn til grafar þann 6. júní en þá
flykktust um tíu milljónir írana tíl
kirkjugarðsins.
Þyrlur flugu yfir kirkjugarðinum í
gær th að sprauta vatni á mannfjöld-
ann en 42 stiga hiti var í Teheran.
í íran eru nú framundan forseta-
kosningar en þær fara fram 28. júh.
Reuter
VERIÐ VELKOMIN
TIL KL. 20
í KVÖLD
Laugardag kl. 9-18.
Sunnudag kl. 11-18.
KJÖTMIÐSTOÐIN
Garðabæ, sími 65 * 64 * 00
GOTT VÖRUÚRVAL: - GOTTVERÐ
- GÓÐ BÍLASTÆÐI
Reuter og Ritzau