Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1989, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989.
Úflönd
Neðansjávargos víð Japan
Eldgos varð um hundrað og (immtiu kilómetra suðvestur af Tokýo {
gærkvöldi. Símamynd Reuter
Eldgos varð í gærkvöldi í sjónum um hundrað og fimmtíu kílómetra
suðvestur af Tokýo. Gosiö varð um kílómetra undan strönd Izu skagans
þar sem fjöldijarðskjálfta hefur gengiö yfir frá því seinni hluta júnimánaö-
ar. Á sunnudaginn varö þar öflugur jarðskjáifti með þeim afieiðingum
að átján manns slösuöust
Ekká hefur veriö tilkynnt um meiösli eða t)ón vegna eldgossins sera
hófstígær. Reuter
Loksins g'rft
Hamingjusöm brúðhjón. Dimitra Uani og Andreas Papandreou giftu sig
í gær. Sfmamynd Reuter
Dimitra Liani og Andreas Papandreou, fyrrum forsætisráðherra Grikk-
lands, gengu loksins í þaö heilaga í gær í Aþenu. Papandreou, sem er
sjötugur, sagðist aldrei hafa verið jafn hamingjusamur.
Liani hefur undanfama tíu mánuði komið fram eins og hún væri forsæt-
isráðherrafrú þrátt fyrir aö Papandreou hefði ekki fengið skilnað fyrr en
í júní, tveimur dögum fyrir kosningamar sem hann tapaði.
Samtímis því sem Papandreou gekk í hjónaband tilkynnti hin nýja ríkis-
stjórn Grikklands að hafin væri rannsókn á meintri spillingu stjórnar
hans
Aftökur á Kúbu
Byltingarhetjan Amoldo Ochoa Sanchez og þrir aðrir háttsettir menn
í hemum á Kúbu voru teknir af lífi í gær fyrir aðild að eiturlyfjasmygli.
Aðeins nokkmm klukkustundum eftir aftökuna fór Castro, sem lítið
hefur sést opinberlega síðan Ochoa og þrettán aðrir foringjar voru hand-
teknir, í hefðbundna heimsókn til verkamanna.
í sjónvarpsfréttum í Kúbu í gærkvöldi var varla minnst á aftökurnar en
í staöinn var greint frá heimsókn Castros til verkamannanna og öðmm
innanríkismálum.
Verkfall í Síberíu
Um tuttugu þusund námuverkamenn á fundi i gær i borginni Mezhdurec-
hensk. Simamynd Reuler
Námuverkamenn á næstmesta kolaframleiöslusvæði Sovétríkjanna,
sem efnt höfðu til alvarlegasta verkfalis í Sovétríkjunum frá því aö Gor-
batsjov forseti komst til valda 1985, sneru aftur til vinnu eftir að gengiö
hafði verið að flestum kröfum þeirra.
Meö verkfallsaögerðunum vom námuverkamennirnir að krefjast betri
lífsskilyrða. Pólitik kom þó fljótt í spihð og heimtuðu verkamennirnir að
völd kommúnistaflokksins í málefnum staðarins yrðu minnkuð.
Sovéska fréttastofan Tass sagði í gær að gengið heföi verið að kröfum
verkamannanna um hærri laun fyrir næturvaktir, betri matvæli, betra
húsnæði og aðgerðir til aö minnnka mengun.
Hættir við
að hætta?
Leiðtogar Verkamannaílokksins í
ísrael velta því nú fyrir sér hvort
þeir eigi nokkuð að hætta stjórnar-
samstarfmu með Likud-ílokknum
eins og þeir hótuðu fyrr í þessari viku
þar sem þeir sjá ekki fram á að þeir
græði neitt á því.
Verkamannaílokkurinn hefur hót-
að að hætta vegna harðorðra skil-
yrða sem bætt var í tillögu Likud-
flokksins um frið á herteknu svæð-
unum. Samkvæmt skoðun Verka-
mannaflokksins er útilokað að arab-
ar samþykki kosningatillögurnar
eftir að sett voru þau skilyrði að
arabar í austurhluta Jerúsalem megi
ekki taka þátt í kosningunum, að
ekki verði rætt við Palestínumenn
fyrr en uppreisnin sé hætt og að sjálf-
stætt ríki Palestínumanna sé aUs
ekki inni í myndinni.
Shamir forsætisráðherra er sagður
vera farinn að reyna að blíðka
Verkamannaflokkinn sem gerir sér
grein fyrir að hann kæmi ekki tíl
með að hljóta fleiri þingsæti ef kosn-
ingar yrðu haldnar nú. Einnig gætu
kosningar haft það í för með sér að
Shimon Perez myndi missa embætti
flokksleiðtoga Verkamannaflokks-
ins í hendur Yitzhak Rabin vamar-
málaráðherra.
Ráðherrar úr Verkamannaflokkn-
um segja að þeir muni halda áfram
stjórnarsamstarfinu ef Shamir sýni
fram á að atkvæðagreiðslan í Likud-
flokknum muni ekki breyta friðará-
ætluninni eins og hún var samþykkt
afstjórninni. Reuter
Utanríkisráðherra ísraels, Shimon Peres, á tali við Palestínumenn í Nablus. Verkamannaflokkurinn óttast að ef
kosið verði nú muni Peres missa sæti flokksformanns í hendur Rabin varnarmálaráðherra.
Simamynd Reuter
Edward Koch í framboð
Borgarstjórinn í New York, Ed-
ward Koch, tUkynnti í gær að hann
ætlaði að bjóða sig fram í fjórða sinn.
Það var í útvarpsviðtali sem Koch
tUkynnti þessa ákvörðun sína.
Koch, sem er gyðingur, er fyrsti
borgarstjórinn í New York sem býð-
ur sig fram í fjórða sinn. Hann hefur
nú verið borgarstjóri New York-
borgar í tólf ár og tekist að laga efna-
hag borgarinnar sem á miðjum síð-
asta áratug var nær gjaldþrota.
David Dinkins, hverfisstjóri í Man-
hattan, sem einnig býður sig fram
fyrir demókrata, er talinn sigur-
stranglegri en Koch. Rudolf Giuliani,
fyrrum saksóknari New York-borg-
ar, er helsti maðurinn á Usta repú-
blikana. Samkvæmt skoðanakönn-
unum myndi hann bera sigurorð af
Koch. Reuter
Milljarðar til hreinsunar
Samþykkt var í fulltrúadeild ít-
alska þingsins í gær að verja sem
svarar 56 milljörðum íslenskra
króna til að hreinsa Adríahafið þar
sem gul froða er við baðstrendurnar.
Hafa þúsundir ferðamanna afpantað
sólarstrandaferðir sínar vegna froð-
unnar. Hún er taUn stafa af þörung-
um sem nærast á áburði sem berst
með ám til sjávar.
Hafa heilbrigðisyfirvöld ráðið fólki
með sár og skrámur frá því að baða
sig í sjónum þar til vísindamenn hafa
lokið rannsóknum sínum á hversu
mikU hætta stafar af þörangaplág-
unni.
Ferðamannaiðnaðurinn á Ítalíu
hefur oröið fyrir gífurlegu tjóni. Eru
bókanir 25 til 30 prósentum færri en
í fyrra vegna frétta af ástandinu við
strendur Adríahafs.
Samkvæmt tiUögunni sem sam-
þykkt var í fulltrúadeildinni í gær á
hreinsunarátakið að standa í þrjú ár
en öldungadeildin á eftir aö sam-
þykkja tUlöguna.
Einn þingmannanna, nýfasistinn
Berselli, var færður úr þingsal í gær vatni til að mótmæla aðgerðaleysi
eftir aö hann klæddi sig úr skóm og stjórnvalda.
sokkum og steig í bala með menguðu Reuter
Sýni tekin úr Adriahafinu þar sem þörungaplága herjar á baðstrendur.
Símamynd Reuter