Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1989, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989.
11
Utlönd
Öryggisveröir við námu í Andesfjöllum í Perú. Símamynd Reuter
MUnDU EFTIR
FERÐAGETRAUn
Við viljum minna á að skilafrestur í
Ferðagetraun DV II, sem birtist i
Ferðablaði DV 28. júní, er til 15. júlí.
Misstu ekki af glæstum vinningi.
í tilefni 5 ára afmælis síns gefúr Framköllun sf„
Lækjargötu 2 og Ármúla 30, fimmtán
vinningshöfúm í Ferðagetraun DV II
Wizensa alsjálfvirka 35 mm myndavél að
verðgildi 3.500 kr.
Framköllun sf. hefúr einnig í tilefni afmælisins
tekið upp nýja þjónustu: Stækkanir á litfilmum í
plakatstærð á 6 mínútum.
Víggirtar
námur
Námurnar í Andesfjöllum í Perú
eru farnar að líkjast herbúðum.
Umhverfis þær eru gaddavírsgirð-
ingar, varðturnar og verðir vopnaðir
skammbyssum og haglabyssum sem
eiga að hindra árásir maóískra
skæruliða. Námueigendur segjast
ekki fá næga vernd frá lögreglunni
og hernum og verði þess vegna að
grípa til eigin ráða.
Námugröftur er helsta tekjulindin
í Perú. í fyrra voru fluttir út málmar
fyrir jafnvirði rúmlega milljarðs
bandarískra dollara sem samsvarar
nær helmingnum af útflutningstekj-
unum það árið. Mikilvægi þessa at-
vinnuvegar er skæruliðum ljóst og
hafa þeir það sem af er þessu ári
gert ellefu sprengjuárásir á námur,
málmhreinsunarstöðvar og jám-
brautir. Hika skæruliðar ekki við að
skjóta á þá sem á vegi þeirra verða
til að geta komið fyrir sprengiefni.
Eru sprengjuárásirnar liður í til-
raunum samtaka skæruliða, Hinn
lýsandi vegur, til að steypa stjórn
Alan Garcias forseta.
Ástandið við námurnar hefur vald-
ið verkalýðsleiðtogum áhyggjum og
saka þeir öryggisverðina um mis-
beitingu á valdi. Eru námuverka-
menn sagðir verða fyrir árásum ör-
yggisvarðanna sem njósni um þá og
ræni þá. Að sögn verkalýðsleiðtoga
óttast námuverkamenn bæði árásir
skæruliðanna og öryggisvarðanna.
Það sé samt deginum ljósara að
verkamennirnir og námueigendur
þarfnist verndar. Skæruliðar hafa
myrt að minnsta kosti tvo verkalýðs-
leiðtoga síðan í apríl og tvö hundruð
og fimmtíu námuverkamönnum hef-
ur verið hótað lífláti.
Þrátt fyrir ofbeldið segja námueig-
endur að takmörk séu fyrir hversu
mikið þeir geti vígbúið sína eigiu
menn þar sem skæruliðar komi þá
ekki einungis til að sprengja nám-
urnar heldur einnig til að myrða
verðina og taka af þeim vopnin.
Reuter
Stöðumælaverðir
stálu milljónum
Stöðumælaverðir í Bergen í Noregi
hafa viðurkennt að hafa stolið rúm-
lega átta milljónum íslenskra króna
á árunum 1987 og 1988 þegar þeir
tæmdu gjaldmæla. Fyrir peningana
hafa nokkrir stöðumælavarðanna
keypt sér lúxusbíla og dýra báta.
Ekki er ljóst hversu margir stöðu-
mælaverðir eru viðriðnir málið.
Upp komst upp þjófnaðinn vegna
hversu miklu munaði á þvi sem vakt
•umræddra stöðumælavarða skilaði
inn og því sem aðrir skiluðu.
Við rannsókn málsins hefur komið
fram að stöðumælaverðirnir, sem
viðurkennt hafa þjófnaðinn, neituðu
alltaf að fá afleys'ingafólk þegar ein-
hver þeirra var veikur eða í fríi.
Einnig hefur lcomið fram að fleirum
en þeim sem játað hafa var kunnugt
um hvernig í pottinn var búiö.
í sambandi við rannsókn málsins
eru margir aðrir stöðumælavTðir
sagöir hafa viðurkennt að Lafa
stungið í vasann nokkrum krónum
stöku sinnum. Talið er að samanlagt
geti verið um talsverðar upphæðir
að ræða.
Nýr Briggs & Stratton mótor
kostar minna en þú heldur
Komdu viö hjá okkur áður en þú hendir verðmætum tækjum.
Við eigum Briggs & Stratton mótora í flestar gerðir smærri
vinnuvéla.
Góð viðgerðaþjónusta.
Athugið að fyrirtækið er flutt úr Kópavogi í Nútíðina,
Faxafeni 14, Skeifunni.
Iláiiuwéla
markaðurinn
G.Á. Pétursson hf. Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80