Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1989, Page 26
34
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989.
Lífsstni
Það er Ifklega einna hagkvæmast fyrir þá sem vilja lítið magn að kaupa
hálfan lax sporðmegin. DV-myndS
heilan lax?
- hvað borgar sig að kaupa?
Margir hafa sjálfsagt velt þvi fyr-
ir sér hvort hagkvæmara sé að
kaupa laxinn í heilu eða 1 sneiöum.
Við vitum að kílóverðið er mun
lægra á heilum laxi en hitt er svo
önnur saga hvað maður hefur við
mikið magn að gera. Við fengum
Guðmund Júliusson í Melabúðinni
til liös við okkur til að kanna þetta
mál.
Fyrst tókum við heilan, slægðan
Hvítárlax og vigtuðum. Hann
reyndist vera 2.420 g, kílóverðiö var
650 kr. sem þýðir að fiskurinn kost-
aði 1573 kr. Síöan skárum viö haus-
inn af, en margir nýta ekki þann
hluta skepnunnar. Við vigtuðum
hann aftur og nú var hann 2.135
g. Miðað við þá þyngd má segja að
kílóverð hafi í raun verið komið
upp í 737 krónur.
Ef við tökum til samanburöar
kílóverð á hálfum laxi, sporðstykki
þá er munurinn í raim ekki mikill
en hann er á 750 kr. kílógrammið.
Neytendur
Þar sera kilóverð á sneiðum er hins
vegar mun hærra er augljóst að
hálfur lax sporömegin er mun
vænni kostur en sneiðar ef kaupa
á í minna magni.
Hitt er svo annað mál að mörgum
þykir fremri hluti fisksins betri og
fallegri til að bera fram. Þess má
geta að margar verslanir selja lax-
hausa á lágu verði og einnig er
hægt að fá flakaðan, beinlausan lax
sumstaðar.
Að sögn eins verslunareiganda
má jafnvel búast við að verð á villt-
um laxi lækki enn frekar á næst-
unni því nóg framboð er þessa dag-
ana.
-gh
Eldislax og villtur lax:
Auðvelt að þekkja
þá í sundur
Nú er rétti tíminn fyrir laxunnend-
ur að skella sér i lax. Þeir sportlegu
fara erfiðari leiðina og beita alls
kyns kúnstum til að fá hann í fall-
vötnum landsins. Hinir heima-
kæru láta sér hins vegar nægja að
kaupa hann í næstu búö.
Að ýmsu er aö huga viö kaup á
laxi. Spurningin er hvort hann er
villtur eða eldis. Sá siðamefndi er
mun ódýrari. Sumum finnst hann
ekki eins góður og þykir hann
stundum lausari í sér en sá villti.
Auövelt er að greina villtan lax og
eldislax í sundur á útlitinu. Sá villti
er silfúrgrár á meöan hinn hefur
brúnni blæ yfir sér. Sporðurinn á
Mikið er um fallegan lax, sem ekki
er of stór, í verslunum um þessar
mundir. DV-mynd S
eldislaxinum er yfirleitt minni og
töluvert tættur eða skorinn. Fisk-
holdið á eldislaxinum er rauðara
en á þeim villta.
DV kannaði verð á laxi í nokkr-
um verslunum í Reykjavík nýlega.
Bæði var athugað verð á eldislaxi
og villtum sem gengur ýmist undir
nöfnunum hafbeitarlax eða Hvítár-
lax. Verö var töluvert mismunandi
á milli verslana, tegunda og svo að
sjálfsögöu á milli þess í hvaða formi
laxinn var keyptur. Lægsta kíló-
verðið er fyrir heilan lax, næst
kemur kílóverð fyrir hálfan lax
sporðhluta (stupdum er þaö reynd-
ar það sama og fyrir sneiðar),
sneiðar sem teknar eru af fremri
helmingi fisksins eru dýrastar.
í Hagkaupi við Eiðisgranda kost-
ar kílóið af hafbeitarlaxi 536 kr. í
heilu og 790 kr. í sneíðum. Eldislax-
inn er á 386 kr. kg í heEu og 599 kr.
í sneiðum.
Verslunin Nóatún við samnefnda
götu er með þann villta á 525 kr. kg
í heilu og 695 kr. í sneiðum. Þar var
kflógrammið af eldislaxinum í
heflu á 390 kr. og i sneiðum á 525 kr.
í Melabúðínni við Hagamel kost-
ar Hvítárlaxinn 650 kr. kg í heilu
og 850 kr. kg í sneiðum. Eldislaxinn
er á 490 kr. kg í heilu og 590 kr. kg
í sneiöum.
Kílóverðið í Melabúðinni og Hag-
kaup miðast við að fiskurinn sé
slægður en í Nóatúni miðast það
viðóslægðanfisk. -gh
Afmæli
Amheiður Böðvarsdóttir
Arnheiður Böðvarsdóttir, Efri-
Brú, Grímsneshreppi, Árnessýslu,
er áttatíu og fimm ára í dag. Arn-
heiður er fædd í Útey í Laugardal
og ólst upp á Laugarvatni. Hún var
í námi í kvennaskóla í Þýskalandi
1929-1930 og einn vetur við handa-
vinnu- og hannyrðanám í Reykja-
vík. Arnheiður var fyrsti handa-
vinnukennari stúlkna í Héraðsskól-
anum á Laugarvatni fyrsta vetur
skólans og húsfreyja á Efri-Brú.
Arnheiður giftist 21. júní 1930 Guð-
mundi Guðmundssyni, bróður
Tómasar skálds, f. 3. október 1898,
d. 10. maí 1982, b. á Efri-Brú. For-
eldrar Guðmundar voru Guðmund-
ur Ögmundsson, b. á Efri-Brú og
kona hans, Steinunn Þorsteinsdótt-
ir, systir Sigrúnar, móður Hannesar
þjóðskjalavarðar og Þorsteins hag-
stofustjóra, Þorsteinssona, og Jó-
hönnu, móður Óskars Gíslasonar
ljósmyndara og ömmu Ævars Kvar-
an og Gísla Alfreðssonar þjóðleik-
hússtjóra. Börn Arnheiðar og Guð-
mundar: Ingunn, f. 25. mars 1934,
gift Bergi Jónssyni rafmagnseftir-
litsstjóra og eiga þau íjögur böm;
Böðvar Magnús, f. 8. nóvember 1935,
b. og búfræðingur á Efri-Brú og átti
hann fimm böm, sambýliskona
hans er Hildegard Dúrr; Guðmund-
ur, ft 23. febrúar 1950, kennari í
Rvík, kvæntur Svölu Árnadóttur og
eiga þau fiögur börn; og Steinunn,
f. 5. september 1931, gift Guðlaugi
Torfasyni, b. á Hvammi í Hvítársíðu
í Borgarfirði, og eiga þau fimm böm.
Systkini Amheiðar: Ragnheiður, f.
7. nóvember 1899, gift Stefáni Dið-
rikssyni, d. 18. janúar 1957, b. og
oddvita á Minni-Borg í Grímsnesi;
Sigríður Guðný, f. 1901, lést vik-
ugömul; Magnús, f. 18. júní 1902, d.
12. nóvember 1971, b. í Miðdal í
Laugardal, kvæntur Aðalbjörgu
Haraldsdóttur; Laufey, f. 24. nóv-
ember 1905, d. 1974, gift Páli Diðriks-
syhi, d. 1972, b. á Búrfefli; Hrefna,
f. 26. nóvember 1906, d. 8. júlí 1976,
gift Stefáni Ingvarssyni, d. 12. nóv-
ember 1963, b. í Laugardalshólum í
Laugardal; Magnea Guðrún, f. 20.
mars 1908, d. 22. maí 1977, gift Jón-
asi Þorvaldssyni, d. 2. júlí 1978,
skólastjóra í Olafsvík; Hlíf, f. 11.
apríl 1909, gift Guðmundi Gíslasyni,
skólastjóra héraðsskólans á Reykj-
um í Hrútafirði; Sigríður, f. 29. ágúst
1912, gift Valtý Guðmundssyni,
fyrrv. b. í Miðdalskoti í Laugardal;
Lára, f. 25. ágúst 1913, gift Hauki
Eggertssyni, framkvæmdastjóra í
Rvík; Auður Brynþóra, f. 13. júlí
1915, gift Hjalta Bjarnfinnssyni, d.
30. maí 1984, framkvæmdastjóra í
Rvík; Anna Bergljót, f. 19. júní 1917,
gift Benjamíni Halldórssyni, tré-
smið á Laugarvatni; og Svanlaug, f.
24. desember 1918, gift Jóni Leós, d.
16. febrúar 1978, bankagjaldkera í
Landsbankanum í Rvík. Fóstursyst-
ir Arnheiðar er Áslaug Stefánsdótt-
ir, f. 18. júní 1928, dóttir Ragnheiðar
Böðvarsdóttur, skrifstofumaöur í
Rvík, gift Sigurði Vigfússyni, er lát-
inn, forstöðumanni Heimatrúboðs-
ins.
Foreldrar Amheiðar vom Böðvar
Magnússon, b. og hreppstjóri á
Laugarvatni, og kona hans, Ingunn
Eyjólfsdóttir. Föðursystir Arnheið-
ar var Guðrún, móðir Ragnheiðar
Jónsdóttur rithöfundar, móður
Sigrúnar Guðjónsdóttur myndlist-
armanns. Böðvar var sonur Magn-
úsar, b. í Holtsmúla á Landi, Magn-
ússonar, b. á Stokkalæk, bróður
Guðrúnar, langömmu Hrafnkels
Helgasonar yfirlæknis. Magnús var
sonur Guðmundar, b. í Króktúni,
Magnússonar, bróður Þorsteins,
langafa alþingismannanna Þórhild-
ar Þorleifsdóttur, Eggerts Haukdal
og Benedikts Bogasonar. Móðir
Guðmundar var Guðrún, langamma
Magnúsar Kjaran, afa Jóhanns Sig-
urjónssonarsjávarlíffræðings. Guð-
rún var dóttir Páls, b. á Keldum,
Guömundssonar og konu hans, Þu-
ríðar Jónsdóttur, systur Páls
skálda, langafa Ásgeirs Ásgeirsson-
ar forseta. Móðir Böðvars var Arn-
heiður Böðvarsdóttir, b. á Reyðar-
vatni, Tómassonar, og konu hans,
Guðrúnar Halldórsdóttur, b. í Þor-
lákshöfn, Jónssonar. Móðir Guð-
rúnar var Guöbjörg Sigurðardóttir,
systir Jóns, afa Jóns forseta. Systir
Arnheiður Böðvarsdóttir.
Guðbjargar var Salvör, amma Tóm-
asar Sæmundssonar Fjölnismanns.
Móðurbróðir Arnheiðar var
Brynjólfur, langafi Víglundar Þor-
steinssonar, formanns Félags ís-
lenskra iðnrekenda. Ingunn var
dóttir Eyjólfs, b. á Laugarvatni,
bróður Kolbeins, langafa Unnar,
móður Þórunnar Sigurðardóttur
rithöfundar. Eyjólfur var sonur Ey-
jólfs, b. á Snorrastöðum í Laugar-
dal, Þorleifssonar og konu hans,
Ragnheiðar Bjamadóttur, b. í Ef-
stadal, Jónssonar. Móðir Ragnheið-
ar var Jórunn Narfadóttir, systir
Andrésar, föður Magnúsar, alþing-
ismanns í Syðra- Langholti, langafa
Ásmundar Guðmundssonar bisk-
ups og Sigríðar, móður Ólafs Skúla-
sonarvígslubiskups. Systir Jómnn-
ar var Elísabet, langamma Hannes-
ar þjóðskjalavarðar, Þorsteins hag-
stofustjóra og Jóhönnu, móður
Óskars Gíslasonar ljósmyndara og
ömmu Gísla Alfreðssonar þjóðleik-
hússtjóra og Ævars Kvaran leikara.
Móðir Ingunnar var Ragnheiður
Guðmundsdóttir, b. í Eyvindart-
ungu, bróður Halldóm, ömmu
Björns Þórðarsonar forsætisráð-
herra og langömmu Guðrúnar,
móður Ragnars Arnalds. Guðmund-
ur var sonur Ólafs, b. á Blikastöðum
í Mosfellssveit, Guðmundssonar,
bróður Ragnheiðar, langömmu
Guðlaugar, ömmu Péturs Sigur-
geirssonar biskups.
Elín Sæmundsdóttir
Elín Sæmundsdóttir, verkakona
og húsmóðir, til heimilis að Hjalla-
vegi UC, Njarðvík, varð sjötug í
gær.
Elín fæddist að Hraunhálsi í
Helgafellssveit og ólst þar upp.
Hún giftist 28.10.1948, Kristbergi
Elíssyni, sjómanni og síðar verka-
manni, f. 15.9.1912, d. 8.6.1982, en
foreldrar hans vom Elís Gíslason,
b. að Vatnabúðum í Eyrarsveit, og
kona hans Vilborg Jónsdóttir.
Elín og Kristbergur hófu búskap
í Grundarfirði og bjuggu þar nokkur
ár en fluttu til Njarðvíkur 1955 þar
sem Elín hefur búið síðan. Krist-
bergur stundaði sjómennsku fyrir
vestan en hóf störf hjá Skipasmíða-
stöð Njarðvíkur og starfaði þar síð-
amÆlín starfaði hins vegar við fisk-
vinnslu í nokkur ár en hóf störf í
bakaríi 1973 og vann þar í fimmtán
ár.
E:í:.i og Kristbergur eignuðust þrjá
syni jn sá elsti lést í fæðingu. Auk
þess ólu þau upp fósturdóttur. Börn
Elínar og Kristbergs: Kristberg E.
Kristbergsson, skipasmiður í Njarð-
vík, kvæntur Jónínu Guöbjarts-
dóttur og eiga þau fjögur böm, og
Jóhann S. Kristbergsson, skipa-
smiður í Keflavík, kvæntur Jó-
hönnu Árnadóttur og eiga þau þrjú
börn. Fósturdóttir Elínar og Krist-
bergs er Guðný Elíasdóttir, hús-
móðir í Grindavík, og á hún eina
dóttur en maður Guðnýjar er Ólafur
Jónsson.
Elín var yngst tíu systkina og eru
fimm þeirra nú á lífi.
Foreldrar Elínar voru Sæmundur
Guðmundsson, b. að Hraunhálsi í
Helgafellssveit, f. 4.6.1874, d. 2.1.
1934, og Jóhanna Elín Bjarnadóttir
húsmóðir, f. 28.10.1877, d. 13.6.1954.
Elín tekur á móti gestum að Stað-
Elín Sæmundsdóttir.
arvör 1, Grindavík, laugardaginn
15.7. eftir klukkan 15.
90 ára
Sólveig Þórðardóttir,
Furugeröi 1, Reykjavík.
75 ára
Einar Guðmundsson,
Hrauntúni 11, Vestmannaeyjum.
70 ára
Halldór Bjamason,
Strandgötu 9, Ólafsfirði.
Tryggvi Friðlaugsson,
Kúrlandi 3, Reykjavík.
Einar Guðjónsson,
Fjarðarvegi 10, Þórshöfti.
Þorsteinn Thorsteinsson,
Ðrápuhlíö 30, Reykjavík.
60 ára
Karl Þorbergsson,
Bjarmalandi J4, Miöneshreppi.
Jóhannes Matthias Guðjónsson,
Furubrekku, Staðarsveit.
50 ára
Ingibjörg Jóhannesdóttir,
Laufvangi 13, Haftiarfirði.
Rúnar Guðmannsson,
Grænuhhð 17, Reykjavík.
Kari Kristjánsson,
Miðtúni 40, Reykjavík.
40 ára
Rúnar Sigurðsson,
Hraunbæ 190, Reykjavík.
Margrét Bjamadóttir, (
Stekkholti 21, Selfossi.
Gerður S. Sigurðardóttir,
Fagrahvammi 7, Hafnarfírði.
Mikael Chu,
Melgerði 18, Kópavogi.
Sigurður P. Rögnvaldsson,
Austurgötu 16, Hofsósi.
Hrönn Oskarsdóttir,
Miögarði 6, Keflavík.
Helga Kristjánsdóttir,
Hæðarbyggð 4, Garðabæ.
Erlendur Guðmundsson,
Amarhóh, Vestur-Landeyjum.