Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1989, Qupperneq 28
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989.
36
Andlát
Þórdis Hallgrímsdóttir, Brautarási
15, Reykjavík, andaðist í Borgar-
spítalanum 12. júlí.
Jarðarfarir
Marta Ólafsson lést(4. júlí. Hún var
fædd 10. október 1915 í bænum
Kosice í Tékkóslóvakíu. Foreldrar
hennar voru Leona og Hinrik Lakn-
er. Marta lagði stund á læknisfræði
í Manchester. Hún giftist Braga Ól-
afssyni, en hann lést árið 1975. Þau
hjónin eignuðust þrjú börn. Útför
Mörtu verður gerð frá Langholts-
kirkju í dag kl. 13.30.
Sigurbjörg Ólafsdóttir lést 7. júlí.
Hún var fædd í Reykjavík 24. júní
1914, dóttir hjónanna Guöbjargar
Guðmundsdóttur og Ólafs Þorvarð-
arsonar. Eftirlifandi eiginmaður
hennar er Guðmundur Brynjólfsson.
Þau hjónin eignuðust níú börn sam-
an. Áður hafði Sigurbjörg eignast
dreng sem Guðmundur gekk í föður-
stað. Útför Sigurbjargar verður gerö
frá Bústaðakirkju í dag kl. 15.
Gísli Kristjánsson lést 6. júli sl. Hann
var fæddur í Sandhúsi í Mjóafirði 12.
desember 1893. Foreldrar hans voru
Lars Kristján Jónsson og María
Hjálmarsdóttir. Gísh stundaði lengst
af sjómennsku og útgerð. Eftirlifandi
eiginkona hans er Fanný Ingvars-
dóttir. Þau hjónin eignuðust sex
börn. Útför Gísla verður gerð frá
Garðakirkju í dag kl. 13.30.
Steinunn Gróa Sigurðardóttir frá
Seyðisfirði lést hinn 6. þessa mánað-
ar. Útförin fer fram í dag, þann 14.
júlí, kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
Guðný Helga Pétursdóttir, Engi-
hjalla 11, Kópavogi, lést 3. júlí í
Landspítalanum. Jarðarfórin hefur
fariö fram.
Minningarathöfn um Magnús Þórar-
inn Guðmundsson skipstjóra, Braut-
arholti 19, Ólafsvík, er fórst með mb.
Sæborgu SH 377 7. mars sl., fer fram
frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn
15. júlí kl. 14.
Steinunn Ólafsdóttir, Droplaugar-
stöðum, áður til heimilis á Grettis-
götu 29, verður jarðsungin frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík mánudaginn
17. júlí kl. 13.30.
Arnoddur Marinó Einarsson frá Hól-
koti, Miðneshreppi, verður jarðsung-
inn frá Hvalsneskirkju laugardaginn
15. júlí kl. 14.
Margrét Hreinsdóttir, Hvolsvegi 7,
Hvolsvelli, verður jarðsungin frá
Stórólfshvolskirkju laugardaginn 15.
júlí kl. 14.
Tapað fnndið
Kötturtýndurfrá
Sólheimum
Svartur, loðinn, 1 árs köttur hvarf frá
heimili sínu, Sólheimum 42. Ef einhver
hefur orðið var við harm eða veit hvar
hann er niðurkominn þá vinsamlegast
látið vita í síma 688159.
Læða týnd úr Þingholtunum
Fjórlit læða, svört, hvít, rauöbrún og
brún, mjög smávaxin týndist frá heimili
sínu í Þingholtunum 1. júlí sl. Hún er
ekki með hálsól. Sá sem hefur orðið var
við hana vinsamlegast hringi í Helgu í
s. 24091.
Æfingastöð hjarta- og lungna-
sjúklinga fær gjöf
Fjórir félagar í Lionsklúbbi Reykjavikur,
þeir Magnús Pétursson, Friðþjófur K.
Eyjólfsson, PáU Franzson og Einar Sæ-
mundsson, komu þann 26. júní sL fær-
andi hendi í Æfingastöð hjarta- og
lungnasjúklinga á Háaleitisbraut 11. Þeir
afhentu andvirði sjö æfmgahjóla af Mon-
ark gerð, samtals aö verðmæti 350 þús-
und krónur. Þetta er önnur stórgjöfin
sem Lionsklúbbur Reykjavíkur gefur
stöðinni. Við opnun stöðvarinnar 1. apríl
sl. gáfú þeir Ambu-neyðartösku sem er
mikilvægt öryggistæki við þjálfún og
endurhæfingu hjarta- og lungnasjúk-
dóma. Formaður framkvæmdastjómar,
Haraldur Steinþórsson, veitti gjöfinni
viðtöku og þakkaði þann mikla skilning
sem í þessu fælist á starfsemi hinnar
nýstofnuðu endurhæfmgarstöðvar. End-
urhæfingarstöðin er lokuð í júlí og ágúst
vegna sumarleyfa en starfsemin hefst að
nýju 1. september.
Kennarar!
Kennara vantar að Grenivíkurskóla.
Aðalkennslugrein: stærðfræði í 7. og 9. bekk.
Uppl. gefur Björn Ingólfsson skólastjóri i síma
96-33131 eða 96-33118.
Meiming
Myndræn og
hnitmiðuð
Þessi bók geymir nær fjörutíu
ljóð og rúmast flest þeirra á einni
síðu. Undirtitillinn; Ljóðahandrit
númer 5 & 6, bendir til þess að
höfundur hafi ýmislegt ort áður,
enda segir það sig sjálft.
Ég get lítið alhæft um þessa bók.
Ýmislegt er hér vel gert og ber
mest á augnabliksmyndum og
vangaveltum um skáldskap, vísun-
um til fornra, grískra sagna o.fl.
Dæmi þessa er í fyrsta ljóðinu, þaö
minnir á dísina Echo sem missti
málið nema hvað hún gat endur-
tekið það sem aðrir sögðu. Svo
tærðist hún upp af óendurgoldinni
ást til unglingsins Narkissus en
hann varð ástfanginn af eigin speg-
ilmynd í lind og veslaðist þar upp.
Til hvers er verið að rifja þetta upp
hér? Þessi forna sögn um sam-
bandsleysi sem leiðir til dauða fell-
ur vel inn í myndina af einfara í
hvítri auön, draugalegt tungl og
nístandi vindur.
Á miðjum vetri
Hljóðlega skríður dagur yfir fannir,
sér ei til spora, öll vötn eru lögð.
Hér á Narkissus heima
og kveðst á við Ekkó.
Á himni yrkir tunglið hálft í skýjum,
vindar sverfa af skóm þess sem á leið
í þögn og holri angist
burt til baka.
Hér er tilíinning einmanaleika
miðpunktur en erfiðara er að sjá
Bókmeimtir
Örn Ólafsson
slíkan kjama í öðru ljóði sem grípur
andartak og stiklar frá tungli til
manns, af vanga hans til spors hans,
en í spori er snigill sem leitar merk-
ingar eins og lesandinn. Fjallar ekki
ljóðið fyrst og fremst um leit að
merkingu, um það hvemig skáld-
skapur snýr við margbrotnum ytri
veruleika, efnisheiminum, sem í
sjálfu sér er meiningarlaus?
Með kínverskum blýanti #2
Tunglinu bregður fyrij
eins og í leiðslu.
Grönn ör af ljósi
skýst út um glugga á húsi
og stendur í vanga manns
með hendur á baki.
Hann kom inn í kvæðið
óbeðinn eins og hvert annað
tákn, sem skáldið hirðir ekki um
og hverfur
því sporlaust að heita
úr því aftur.
Spor hans í gljúpri moldinni
fóstra skugga,
sem verður seinna er dagar
skjól einum snigli
á ferð um merkur merkinga
eins og þú sjálfur.
En það var um tunglið,
sem rétt eins og í leiðslu,
sló í kvöldkrónu trés í garði
og hönd
sem reyndi að fanga það,
sem var ort.
• Eins og sjá má eru hér vönduð
ljóð, myndræn og hnitmiðuð.
Vissulega er sumt léttvægara,
fremur einhliða (t.d. Burt úr rjóðr-
inu, Blindi drengurinn, Laugardag-
urinn 14di) en það er óhætt að
mæla meö þessari bók, hér er
margt sem gaman er að pæla í.
ÖÓ
Tvö skáld og gítar
Guöbrandur Siglaugsson
Eigin útgáfa 1989
Guðbrandur Siglaugsson.
Athugasemd frá Sem-
entsverksmiðju ríkisins
Vegna ummæla Gunnars Björns-
sonar, formanns Meistara- og verk-
takasambands byggingamanna, í
aukablaöi DV, Hús og garðar, 12.
júlí 1989.
í viötalinu segir Gunnar undir
millifyrirsögninni: „Léleg vinnu-
brögð og lélegt íslenskt sement?“,
aö byggingamenn treysti íslenska
sementinu illa og það veki grun-
semdir að íslenskt sement hafi ekki
verið notaö í virkjanir hér á landi.
Sementsverksmiðja ríkisins telur
þessi ummæli Gunnars mjög
ámælisverð, svo að ekki sé meira
sagt. Af öllum þeim aðilum sem
rannsakað hafa íslenska sementið
hefur það fengið hina bestu dóma
hvað gæöi og notagildi snertir. Er
þar bæöi um erlenda og innlenda
aðila að ræða. Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins hefur haft eft-
irlit með íslenska sementinu í yfir
20 ár. Gunnar Bjömsson er í stjóm
þeirrar stofnunar og hefur þar með
tekið undir þá góðu dóma sem ís-
lenska sementið hefur fengið hjá
stofnuninni.
Hin fullyrðingin um að íslenskt
sement hafi ekki veriö notað í
virkjanir, heldur erlent sement, er
alveg úr lausu lofti gripin. íslenskt
sement var notaö í Sigölduvirkjun,
Hrauneyjarfossvirkjun og Blöndu-
virkjun, sem em stærstu virkjanir
landsins. Væri Gunnari Björnssyni
ráðlegt að skoða steypuna í þessum
mannvirkjum, en hún er til mikill-
ar fyrirmyndar og Landsvirkjun til
sóma.
Sementsverksmiðjan undrast
mjög þekkingarskort formanns
þessara s'tóru samtaka og vonar að
það séu ekki sjónarmið Meistara-
og verktakasambands bygginga-
manna sem hann er þarna að túlka.
Leiðrétting vegna ummæla
Gunnars S. Björnssonar
Gunnar S. Bjömsson, formaður
Meistara- og verktakasambands
byggingamanna, hefur óskað þess
að eftirfarandi leiðrétting verði
birt:
„Vegna ummæla minna í viötali
við mig í aukablaði DV, Hús og
garðar, sl. miðvikudag, um að ekki
hafi veriö notaö íslenskt sement í
virkjunarframkvæmdir, vil ég biðj-
ast afsökunar. Þessi ummæli eru
tilkoirún vegna misskilnings og
rangra heimilda. Hið rétta er að
íslenskt sement hefur verið notað
í virkjunarframkvæmdir allt frá
því að Búrfellsvirkjun var byggð.
Ég get tekiö undir með Sements-
verksmiðjunni að íslenskt sement
er trúlega orðið mjög gott í dag.
Hins vegar bera alkalískemmdir í
íslenskum húsum þess vitni að það
hafi ekki veriö nægilega gott hér
fyrr á árum.“