Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1989, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjóm » Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989.
Talið er að kveikt hafi verið í ný-
byggingunni. DV-mynd S
Kópavogur:
Bruni í
byggingu
Slökkviliö Reykjavíkur var kallaö
út í gærkvöldi. Eldur varö þá laus í
plasteinangrun í nýbyggingu við
Hlíöarhjalla í Kópavogi. Greiölega
gekk aö slökkva eldinn. Talsvert af
byggingarefni skemmdist og eins
urðu skemmdir vegna sóts sem
komst víöa um bygginguna. Taliö er
*að kveikt hafi veriö í einangruninni.
Einvígi Jóns L. og Margeirs:
Jafnt í
biðskákinni
Þriðju skák þeirra Jóns L. Árna-
sonar og Margeirs Péturssonar í ein-
víginu um íslandsmeistaratitibnn í
skák lauk meö jafntefli teftir æsi-
spennandi biöskák. Skákiii varö 105
leikir en aimennt var tabö að Mar-
geir ætti betri biðstöðu. Rannsóknir
Móns. L. virtust þó betri og fljótlega
eftir biö tókst honum að snúa skák-
inni sér í vil. Eftir langa setu var þó
sæst á jafntefli þannig að Jón L. hef-
ur vinningsforskot fyrir síðustu
skákina sem tefld verður í kvöld kl.
18. -SMJ
Kópavogshöfn:
Sjósleði og segl-
skúta í árekstri
Árekstur varð í Kópavogshöfn í
gærkvöld. Sjósleða var siglt á skútu
sem lá bundin við bryggju. Árekstur-
jjipn var ekki harður. Ekki uröu slys
á fólki. Skemmdir á sjósleðanum og
skútunni uröu ekki miklar. -sme
LOKI
Þingsetan er þá
með kvölum!
Lífsbjörg í norðurhöfum:
Sýnd í banda-
riska þmginu
„Það er rétt, ég var beðinn af
nokkrum nánum ráðgjöfum forset-
ans aö senda nokkur eintök af
myndinni í Hvíta húsiö,“ sagði
Magnús Guðmundsson er hannvar
spurður hvort háttsettir aðilar í
Bandaríkjunum hefðu sýnt mynd
hans, Láfsbjörg í norðurhöfum,
áhuga.
Magnús sagði að þegar hann var
í Bandaríkjunum fyrir skömmu
heföi verið haft samband við hann
og hann beðinn um að koma upp í
öldungadeildina til að sýna mynd-
ina þar. Hefði hann síðan verið
beðinn um að senda nokkur eintök
af myndinni út, og hefðu fimm ein-
tök verið send. Hugmyndin hefði
verið aö Lífsbjörg í norðurhöfum
yrði sýnd í lokuöu innanhússkerfi
þinghússins til fróðleiks fyrir þá
þingmenn sem áhuga hefðu á mál-
inu. En Magnús hefur orðið var við
mikinn áhuga hjá Bandaríkja-
raönnum.
í gær var haft samband við Magn-
ús af óháðu fyrirtæki sem sér um
að koma efni inn á stóru sjón-
varpsstöðvarnar vestanhafs. Unn-
ið er að fullu að því að myndin
verði sýnd almenningi í Bandaríkj-
unum, en ekki er enn ákveðið
hvaða stöð tekur myndina til sýn-
ingar. Þegar eru nokkur hundruð
eintök af heimi farin til aðila í
stjórnsýslu- og viðskiptaheimm-
mn.
-GHK
Veðrið á morgun:
Sumar fyr
ir austan
Á morgun verður hæg vestlæg
átt á landinu, með bjartviðri og
hlýindum fyrir austan. Veörið
vestanlands verður svipað og áður,
þ.e. skýjað að mestu. Hitinn verður
11-16 gráður.
Flugfreyjudeilan:
Þokast í átt
að samkomulagi
Heldur hafði þokast í samkomu-
lagsátt í deilu Flugfreyjufélags fs-
lands og viðsemjenda þeirra í morg-
un. Fundur deiluaðila hefur staðið
frá 10 í gærmorgun og stóð enn þegar
blaðið fór í prentun. Að sögn Guð-
laugs Þorvaldssonar þokast viðræð-
ur í átt að samkomulagi og lítið ber
á mOli en nóg til þess að viðræður
gætu siglt í strand. Guðlaugur taldi
líklegt að fundi lyki fyrir hádegi,
hvort sem samkomulag tækist eða
ekki. -JJ
EM 1 bridge:
Erfiðir leikir
í dag
ísland vann tvo sigra gegn tveimur
veikum þjóðum í 21. og 22. umferð
Evrópumótsins í bridge. Fyrst
vannst góður sigur á Búlgaríu, 21-9,
en síðan olli nokkrum vonbrigðum
að aðeins náðust 17 stig gegn þrettán
stigum San Marínó. Landshð San
Marínó hefur vermt botnsætið allan
tímann í mótinu. Við þessa sigra
náði íslenska landsliðið að lyfta sér
upp um 3 sæti, og er liðið nú í því
14. með 318,5 stig.
Stórtíðindi gerðust í 22. umferð er
Danir, sem hafa verið í toppbarátt-
unni allt mótið, töpuðu illa fyrir
ítölum, 25-3. Við það duttu Danir úr
þriðja sæti niður í það sjötta. Pólverj-
ar hafa töluverða forystu á toppnum
og verður að telja þá mjög líklega
sigurvegara úr þessu, þar sem aðeins
þrjár umferðir eru eftir. Staðan á
toppnum er þannig að Pólverjar eru
með 412 stig, Svíar með 391 í öðru
sæti, Frakkar eru komnir í þriðja
sætið með 388,5 stig og Austurríki í
fjórða með 377,5. Grikkir eru í
fimmta sæti með 375,5, Danir í sjötta
með 374 og Vestur-Þýskaland er í sjö-
unda sæti með 371,5 stig.
ísland á yfirsetu í síðustu umferð-
inni sem spiluö verður á morgun og
fær þá 18 stig, en í dag verður leikið
gegn erfiðum andstæðingum, Svíum
og Grikkjum. Þær þjóðir hafa til mik-
ils að vinna og verða því eflaust erf-
iðarviðfangs. ÍS
Frjáls verðlagn-
ing á loðnu
Þessar glaðbeittu stúlkur sigldu um Nauthólsvikina í blíðunni í gær. En þar eru haldin siglinganámskeið á hverju
sumri. Hundadagar hófust i gær og segir þjóðtrúin að sams konar veður og á þessum degi eigi að haldast út
hundadaga en þeir enda 23. ágúst. -gh/DV-mynd Brynjar
Á fundi Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins, fyrr í vikunni, varð sam-
komulag um að gefa frjálsa verðlagn-
ingu á loðnu. Tekur frjálsa verðlagn-
ingin gildi við upphaf loðnuvertíðar
á þessu sumri. Hún verður í gildi til
loka vertíðarinnar á næsta vori 1990.
-gh
SKteJASKAonn
GÆÐI -
GLÆSILEIKI
4
4
4
4
4
4
4