Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Side 4
4 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989. Fréttir Greiðslur framkvæmdarvaldsins umíram Qárlög: Brot á stjórnarskránni segir Kristinn Pétursson alþingismaður „Eg hef skrifaö undir drengskap- arheit að stjómarskránni og því þyk- ir mér lágmark að menn fylgist með að hún sé haldin,“ sagði Kristinn Pétursson alþingismaður en hann hefur skrifað fjármálaráðherra bréf þar sem hann fer fram á aö framvarp til fjáraukalaga fyrir árið 1989 verði lagt fram á Alþingi um leið og þing kemur saman í haust. Kristinn skrif- aði ráðherra bréfið 25. maí og bað um svar mánuði síðar. Enn hefur hann ekkert heyrt frá ráðherra. Kristinn segir það vera brot á stjórnarskránni að framkvæmdar- valdið skuli afgreiða íjármuni út úr ríkissjóði án þess að fyrir því sé heimild í íjárlögum eða fjáraukalög- um. Þá sagði Kristinn að það væri langt síðan hann benti á þessi aug- ljósu og margendurteknu brot fram- kvæmdarvaldsins. Þess má geta að svipaðar skoðanir komu frá fjárveit- ingarnefnd Alþingis í vetur. „Eg álít að það að borga fé út úr ríkissjóði, án heimildar frá Alþingi, sé ekkert annað en prentun á folsk- um seðlum sem rýrir gjaldmiðil landsins og setur verðbólguna í gang. Þetta er grundvallarmeinsemd í stjórn íslenskra efnahagsmála," sagði Kristinn. Hann bætti því við aö ef frumvarp til fjáraukalaga yrði lagt fram í haust, þar sem kæmi fram hvemig loka ætti gatinu sem á fjár- lögum er, væri þjóðþingið að ákveða hvernig endum yrði náð saman í þjóðarbúskapnum eins og 41. grein stjórarskrárinar gerir ráð fyrir. -SMJ Fjármálaráöherra leggur fram fjáraukalög 1989 í haust: „Tímamótabreyting“ - segir Sighvatur Björgvinsson, formaður hárveitingamefndar „Við höfum rætt þetta mikið við fjármálaráðherra og hann hefur tjáð okkur að í haust sé í vændum mikil tímamótabreyting. Hann mun leggja fram fjáraukalög strax í upphafi þings fyrir yfirstandandi ár og ríkis- reikning fyrir árið 1988. Þetta hefur bara aldrei gerst áður,“ sagði Sig- hvatur Björgvinsson, formaður fjár- veitingamefndar Alþingis. Sighvat- ur sagði að þar með væri tryggt að Alþingi mundi fjalla um og taka af- stöðu til fjárlagahallans strax og það kemur saman. Það hefur verið gagnrýnt mjög af Kristni Péturssyni alþingismanni hvernig framkvæmdarvaldið fer með það ákvæði stjómarskrárinnar að engin gjöld megi greiða nema heimild sé fyrir því í fjárlögum og fjáraukalögum. A síðasta þingi af- greiddi Alþingi fjáraukalög allt aftur til 1979. Þá hefur verið skipuð undirnefnd í fjárveitingamefnd sem mun fara sérstaklega í það í sumar að skoða reglur varðandi aukafjárveitingar í samvinnu við íjármálaráðherra. Sagði Sighvatur að þar yrði farið nákvæmlega í það hvað teldist vera aukafjárveiting og hvað ekki. Ásamt Sighvati sitja þau Ólafur Þ. Þórðar- son, Margrét Frímannsdóttir, Pálmi Jónsson og Málmfríður Sigurðar- dóttir í nefndinni. -SMJ Skýrsla Byggðastofhunar um húsnæðisþörfina: Umsóknir landsbyggðar um kaupleiguíbúðir langt umfram þörf í skýrslu Byggðastofnunar um uninniðurstöðuhennarviðúthlut- Þá er bent á í skýrslunni að það húsnæðisþörf landsmanna kemur un féiagslegra íbúða fyrir stuttu. geti orðið landsbyggöamönnum til fram að þeir telja að heildarþörf Þá komast skýrsluhöfundar að óþurftar ef veriö sé aö byggja í landsbyggðarinnar fyrir íbúöir þeirri niðurstööu aö framkvæmdir byggðalögum þar sem engin þörf næstu Ðmm árin sé 322 íbúöir á á höfuðborgarsvæðinu þurfi að sé fyrir íbúðarhúsnæði. Það geti áiiÁhöfuðborgarsvæðinuerþessi auka ef reiknað er áfram með leitt til lækkunar á verði þeirra þörftalin vera 1.120 íbúöir. Samtals óbreyttum fólksílutningum. Aftur íbúða sem fýrir eru. þurfa þvi landsmenn 1.442 ibúðir á á móti virðist skýrsluhöfundum að Sighvatur Björgvinsson, formað- ári næstu fimm árin miðaö við þær fyrirhugaöséaðbyggjamunmeira ur fjárveitinganefndar Alþingis, forsendur sem Byggöastofnun gef- á Vestfjörðum en útreikningar sagöi aö kvartaö hefði verið yfir ur sér um fólksfjöldaþróun og bú- þeirra bendi til að þörfsé á. Þá teija því aö ýmislegt í skýrslunni væri ferlaflutningainnanlands.Þaðskal þeir að nokkurt misræmi viröist ekki rétt. Nefiidi hann sértaklega tekiðframaöþettaerheildaríbúða- vera á milli fyrirhugaðra fram- búsetuþróun á ísafirði. Þá sagði þörfinenekkiþörffyrirfélagslegar kvæmda í einstökum landsbyggð- hann að erfitt væri að taka lands- íbúöir. um. Það leiöi til þess að ekki sé byggðinasemeinaheildþegarværi Þessi skýrsla var unnin fyrir alltaf verið að byggja þar sem sé verið að raeta húsnæðisþörf. Húsnæðisstofnun og notaði stofn- raunveruleg þörf fyrir húsnæði. -SMJ Grænlenska knattspyrnufélagið TM 62 frá Kulusuk er á keppnisferð hérlendis og mun mæta íslensku stórliðunum Leikni og Aftureldingu ásamt Bílddælingum um helgina. Ferðin er verðlaun félagsins fyrir hreinsunarátak sem það stóð fyrir ásamt flugfélaginu Odin air. Þeir geta þvi hreinsað fleira en boltann frá markinu. DV-mynd BG Mikið blíðviðri hefur verið á austanverðu landinu i sumar. Hafa ferðalang- ar streymt að til að geta spókað sig ■ 20 stiga hita og sólskini. Á tjaldstæð- inu á Egilsstöðum snæddu menn morgunmatinn úti undir berum himni í lognmollunni. Tjaldstæðið er einstakt að þvi leyti að birkiskjóibelti mynda afmarkaða bása fyrir tjöldin. DV-mynd Sigrún Kristinn Gunnarsson, bæjarfulltrúi í Bolungarvík: Þörfin á félagslegum íbúðum er á höfuð- borgarsvæðinu - húsnæðisvandamál í dreifbýli á að leysa á annan hátt „Húsnæðisstjóm verður að vinna eftir lögum sem kveða á um að út- hlutanir á félagslegum íbúðum skuli vera eftir þörf - en ekki kjördæmum. Þess vegna tel ég að sú gagnrýni sem stofnunin hefur fengið sé ómakleg. Ég tel að landsbyggðin hafi ekki bor- ið skarðan hlut frá borði hvað þessar úthlutanir snertir. T.d. fékk ísafjörö- ur 27 íbúðir í sinn hlut á síöasta ári og Bolungarvík fékk 12 íbúðir. Þann- ig var hlutfall ísfirðinga 11,5% af úthlutunum á kaupleiguíbúðum á móti 3,8% Reyknesinga“, sagði Krist- inn Gunnarsson, bæjarfuiltmi á Bol- ungarvík, í samtali við DV. „Hins vegar tel ég að sum sveitarfé- lög, sem fengu synjun, t.d. Siglufjörð- ur, hafi rök fyrir því að fá úthlutaö. En til þess að mæta því þarf að auka fé Húsnæðisstofnunar. Þörfin á fé- lagslegum íbúðum er mest á höfuð- borgarsvæðinu - þar er mest af lág- tekjufólki. Algengt vandamál stjórn- ar Verkamannabústaða í dreifbýli, t.d. á Vestfjörðum, hefur falist í aö þar hafa umsækjendur ekki uppfyllt skilyrði um lágmarkstekjur." Þarf að byggja úti á landi? - Hvernig er ástand húsnæöismála á Vestfjörðum - er þörf á að byggja meira þar? „Hér emm við komin að því vanda- máli að illa gengur að selja húsnæði á almennum markaði. Hér verða stjómvöld að grípa inn í. Til þessa hefur engum aðila verið falið að leysa þessi mál - Húsnæðisstjórn getur það ekki því henni er ekki ætlað það á þeim gmndvelii. En almenni markaðurinn tengist á engan hátt félagslegu íbúðakerfi. Ég heflagt fram ákveöna tillögu sem var færð fram sem fmmvarp á Alþingi árið 1986. Þar er hugmyndin að stofn- aður yrði sjóður sem grípur inn í húsnæöismál þegar hallar á seljend- ur um að koma eignum sínum í verð á viðunandi hátt. í fumvarpinu fólst sú hugmynd að sjóðurinn keypti húseignir á ákveðnu verði og tryggði þannig væntanlegum kaupendum aö þeir gætu selt aftur án þess að tapa - það er einmitt þetta óöryggi sem hrjáir kaupendur. Ég tel að það sé enginn hörgull á fólki sem vill kaupa víða úti á landi. Óöryggið er verst - það þarf að endurreisa hinn almenna markað án félagslega kerfisins - koma á eðlilegri virkni framboðs og eftirspumar. í Húsbréfakerfinu felst að veita öll- um seljendum ríkisábyrgð en með því kerfi sem ég er aö tala inn fengju kaupendur ríkisábyrgð." - Meinar þú að með traustari að- gerðum í húsnæðismálum á almenn- um markaöi úti á landi drægi úr óþörfum félagslegum byggingum þar? „Já - þannig væri betur farið með almannafé. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.