Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Síða 17
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989. 17 I>V Smælki Sælaftur!.., Réttur er settur: Bandarísk stúlka, Lucy Haram- ond að nafni, hefur stefnt Billy karlinum Idol fyrir rétt vestur í Bandaríkiunum vegna meiðsla sem hún hlaut á tónleikum Idols í maí 1987. Hammond slasaðist illa þegar tónleikagestir ruddust upp að sviðinu eftir að Idol að sögn Lucy sagðist vera einmana. Billy Idol segist alls ekki muna eftir þessu tilviki en tapi hann málinu þarf hann að greiða sem svarar'einni og hálfri milljón ís- lenskra króna í skaðabætur... Martin Degville, söngvari Sigue Sigue Sputnik, var fyrir skömmu dæmdur í nokkur þúsund króna sekt af rétti í Lundúnum fyrir mótþróa við lögregluna. Mála- vextir voru þeir að Degville og nágranni hans sátu í góðu yflr- læti uppá svölum nágrannans og dreyptu á kampavíni sér til ánægju og yndisauka. Eitthvað skvettist úr glösunum og niðrá mann sem átti leið um götuna fyrir neðan. Að sögn Degville tók hann þessu alls ekki illa og því kom það mjög á óvart þegar lög- reglan umkringdi staðinn skömmu síöar og handtók ná- granna Degville. Sem góðum granna sæmir vildi Degville fylgja vininum á stöðina en var þá handtekinn fyrir að hindra lögregluna að störfum. Má segja að honum hafi þar með orðið að ósk sinni... Ferðalög: Bobby Brown er nú á tónleika- ferðalagi um Bretlandseyjar og trekkir vel. Hann átti meðal ann- ars að koma fram í hinum vin- sæla sjónvarpsþætti, Top of the Pops, en af þvl varð ekki. Hann sagðist hafa geflst upp á að hanga og bíða eftir að röðin kæmi að sér og því gengið út. Forsvarsmenn BBC segja hins vegar að Brown hafi hagað sér eins og spihtur dekurkrakki og þeir þvi ákveðið að hafa hann ekki með í þættin- um... Atvinna óskast: Liðsmenn hljómsveitarinnar Public Enemy eru atvinnulausir eftir að Chuck D, foringi sveitar- innar, leysti hana upp á dögun- um. Upphafið að endalokunum voru ummæli eins hðsmanna sveitarinnar um gyðinga í blaða- viðtah. Viðkomandi liðsmaður var látinn róa eftir þetta en við þaö liðaðist sveitin sundur... veri hún sæl og þiö líka... -SþS- Nýjarplötur Magnús Þór - Island er land þitt Rós í hnappagatið Það er orðið nokkuð síðan Magnús Þór Sigmundsson hefur sent frá sér plötu og fannst mörgum kominn tími til. Þessi ágæti tónhstarmaður, sem komið hefur víða við á litríkum tón- hstarferh, hefur nánast eingöngu verið viðloðinn barnaplötur á und- anfomum árum. Hefur hann þar glatt mörg bamshjörtun með lögum á borð við Póstinn Pál og fleiri áhka. En með plötunni ísland er land þitt sýnir hann svo ekki verður um villst að hann er enn hinn leitandi tónhst- armaður sem leitar fanga í textum þjóðskálda okkar. Að þessu sinni er farið í kistu Kristjáns frá Djúpalæk og nokkrir gullmolar dregnir upp á yfirborðið. Tónhstin á plötunni er sérle’ga jöfn og góð. Lögin eru öh fremur róleg og útsetningar látlausar. Textinn nýtur sín vel í guUfaUegum stefum Magnúsar sem hann ásamt aðstoðar- mönnum sínum gerir góð skfl. Eittlag sker sig þó nokkuð úr heUd- inni. Er það titillagið sem Bubbi Mortens syngur. Það er eina lagið sem Magnús syngur ekki sjálfur. Þá er það eina lagið sem ekki er við texta Kristjáns frá Djúpalæk og eins og flestir vita er þetta ekki nýtt lag. Það birtist fyrst á Draumi aldamóta- barnsins og þá söng Pálmi Gunnars- son það. Lag þetta er nánast orðið klassískt í söngbók íslendinga og á örugglega eftir að lifa þá kynslóð sem nú byggir þetta land. Það fylhr hvem sannan íslending eldmóði og Bubbi gerir því góð skU á sinn einstaka hátt. Erfitt er að gera upp á mUh ein- stakra laga Magnúsar á plötunni. Sjálfsagt er það smekksatriði hvers og eins. Persónulega var ég hrifnast- ur af lögunum Sinfónía, Huggast við hörpu og Höndin. Þau lýsa Magnúsi ákaflega vel sem tónlistarmanni, tónskáldi og söngvara sem ekki fylg- ir neinni tísku heldur er sannur og samkvæmur sjálfum sér. Lög Magnúsar á ísland er land þitt eru engin léttmeti. Það þarf að hlusta á þau og skynja textann til að, geta horfið inn í hugarheim Magnúsar. Þeir sem leggja það á sig verða ekki fyrir vonbrigðum. -HK Julian Lennon - Mr. Jordan Full Moon Fever - Tom Petty Ávallt í skugga Tommi popp föður síns Að vera þekktur tónhstarmaður og heita Lennon að eftimafni er ekkert skemmtilegt til lengdar. Það hefur Juhan Lennon fengið að reyna. Sjálfsagt hefur nafnið veitt honum einhverja forgjöf þegar hann var að byrja tónhstarferil sinn. En æ síðan hefur hann veriö borinn saman við hinn fræga fóður sinn og það ekki að ástæðulausu. Hann er nefnilega fæddur með líka rödd og faðir hans, rödd sem er ein- stök í poppsögunni og þekkist á fyrstu tónunum. Juhan Lennon getur þakkað það fööurnafninu að hann átti auðveld- ara með að koma sjálfum sér á fram- færi. En hefur hann hæfileika til að standa undir eigin nafni? Fyrsta plata hans gerði það mjög gott og var jafnt keypt af forvitnum Lennon- aðdáendum og aðdáendum sonarins. Síðan hefur verið frekar hljótt um drenginn á öldum ljósvakans þótt alltaf séu að berast fréttir af ein- hverri uppákomu þar sem hann kemur fram. Eins hefur verið frekar hljótt um nýjustu plötu piltsins, Mr. Jordan. Hvers vegna er erfitt að gera sér grein fyrir því að Julian Lennon sannar að hann er alls ekki slæmur lagasmiður, lögin á plötunni eru vel yfir meðahagi og flutningurinn allur hinn frískasti. Ástæðan hlýtur að vera sú að farið er að miða lög Jul- ians við það besta sem kom frá föður hans og þar á strákurinn langt í land. Julian Lennon Það er því komið að því að hið fræga Lennon-nafn er orðið honum fjötur um fót. Þetta veit Julian Lennon sjálfsagt og því reynir hann mikið að komast frá áhrifum föður síns á Mr. Jordan. Reynir meira að segja að breyta röddinni í einstaka lögum. í heild er platan hin áheyrhegasta þótt ekkert eitt lag standi upp úr. í hröðum rokklögum á Julian auð- veldast með að vera hann sjálfur en í mýkri lögunum minnir rödd hans alltaf á John. Það er og verður akki- lesarhæll Julians Lennon. -HK Tom Petty er allur að mýkjast upp. Það gerir sennilega aldurinn. Hann sem eitt sinn taldist til reiðustu ungu mannanna í bandarísku poppi virðist nú vera orðinn sáttur við hfið og til- veruna. Að minnsta kosti er ekki annað að merkja á nýjustu plötunni hans, Full Moon Fever. Þetta er kannski ekki alveg rétt orðað. Full Moon Fever er nefnilega bara fyrsta plata Toms Pettys. Allar fyrri plötumar voru skrifaðar á Tom Petty And The Heartbreakers. Því þótt Petty hafi óumdeilanlega verið foringinn var hljómsveitin með í spil- inu af fullum krafti. Nú hefur hún fengið frí. Einhvem veginn virtist tónhstar- leg thvera Pettys hér á árum áður ekki vera byggð á næghega traustum gmnni. Hann hljómaði sem eins kon- ar blanda af Roger McGuinn eftirlík- ingu og Springsteen fátæka manns- ins. Vissulega áttu hann og The He- artbreakers sínar góðu stundir eins og th dæmis á plötunni Damn The Torpedos. En þeir kumpánarnir virt- ust dæmdir th að verða ahtaf annars flokks þrátt fyrir að flestir gerðu sér grein fyrir því að efniviðurinn, sem Tom Petty And The Heartbreakers létu frá sér fara, væri ekkert síðri en margt það sem mestum vinsæld- ' um nær í heiminum. Tímamótin komu þegar Tom Petty og Bob Dylan kynntust á Live Aid. Og til að gera langa sögu stutta hlóðst utan á félagsskapinn þar th komin var hljómsveitin Traveling Whbur- ys. Hún hefur sent frá sér eina plötu en ekki er hægt annað að segja en að andi Whburybræðra svífi yfir vötnunum á Mystery Girl Roy heit- ins Orbisons og Fuh Moon Fever Pettys. Og helsti skapandi þessa anda er gamh leiðtoginn úr Electric Light Orchestra, Jeff Lynne. Hann kom sannarlega mikið við sögu á síðasta áratug með hljómsveit sinni. En nú upp á síðkastið er Lynne að skapa sér nafn sem mikhvirkur upptöku- stjóri og lunkinn lagahöfundur. Sennhega hafa menn ekki áttað sig á hæfileikum hans fyrr en George Harrison réð hann th að stýra gerð plötu sinnar, Cloud Nine. Plötur Ásgeir Tómasson Það er tvímælalaust fyrst og fremst Jeff Lynne að þakka að Fuh Moon Fever hljómar eins og hún gerir: þæghegasta skífa sem aldrei særir eyrað. Fínt popp. I Won’t Back Down er aðeins fyrsti smellurinn af plöt- unni. Ahnokkrir aðrir geta fylgt í kjölfarið. Við eigum sjálfsagt eftir að hafa Tom Petty í eyrunum fram eftir árinu. Hins vegar verður fróðlegt að fylgjast með því hvaða áhrif þetta hhðarspor hefur á Tom Petty And The Heartbreakers. Hópurinn á bak við það nafn fæst fyrst og fremst við rokk. Ekki popp að hætti ELO for- ingjans fyrrverandi. Ásgeir Tómasson STEYPKKEMMI? !S steinprýði O THORO—efnin eru viðurkennd um allan heim sem framúrskarandi fljótharðnandi við- gerðarefni fyrir múr og steinsteypu. THORO—efnin eru vatnsþétt en hafa sömu öndun og steinsteypa. Ef um steypuskemmd er að ræða, hafðu þá samband við okkur. Við hjálpum þér. THORITE - STRUCTURITE - WATERPLUG - THORGRIP Stangarhyl 7, sími: 672777.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.