Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1989, Page 17
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1989.
17
Michael Dudikoff leikur aöalhlut-
verkið í Dauðafljótinu sem gerð
er eftir spennusögu Alistair McLe-
an.
Háskólabíó:
Dauða-
fljótið
Aödáendur ritverka Alistair
McLean eru margir hér á landi og
seljast bækur hans grimmt um
hver jól. í ár verður tvöfóld ánægja
fyrir aödáendur hans, því Háskóla-
bíó frumsýnir Dauðaíljótið (River
of Death) sem byggð er á skáldsögu
eftir Alistair Mclean.
Eins og í flestum ritverkum
McLean er söguþráðurinn spenn-
andi. í byijun myndarinnar erum
við stödd í nauðungarbúðum nas-
ista í seinni heimsstyrjöldinni. Er
verið að gera óhugnanlegar til-
raunir meö veiru sem gerir það að
verkum að aðeins þeir „óæðri“
drepast af henni, eða allir nema
hvítir menn af aríakynstofni.
Myndin gerist svo að megninu til
tuttugu árum seinna í frumskógum
Amazonsvæðisins þar sem tilraun-
unum er haldið áfram. Aðalhlut-
verkið leikur Michael Dudikoff,
leiðsögumanninn John Hamilton
sem óvænt leiðist inn í atburðarás
sem getur haft örlagaríkar aíleið-
ingar á allt mannkynið.
-HK
Rick Moranis leikur vísindamann-
inn i Elskan, ég minnkaði börnin
sem minnkar börnin sín niður i
örverur.
Sviðsljós
Albert prins í vafasömum félagsskap
Það ríkir lítil gleði við hirðina í
Mónakó yfir nýju vinkonunni hans
Alberts prins. Hún heitir Patrizia
Pellegrino og vinnur fyrir sér sem
hálfgerð fatafella á skemmtistað.
Sögur herma að Albert sé óvenju-
lega spenntur fyrir þessari stúlku
en aðrir fjölskyldumeðlimir hugsi
til hennar með hryllingi. Patriziu
finnst ekkert athugavert við að
sýna sig fáklædda og segist ekki
skammast sín fyrir kroppinn sinn.
Patrizia býr í Róm en skreppur
til Monte Carlo um helgar til að
eyða þeim með kærastanum. Sam-
band Alberts og hennar hefur stað-
ið í hokkrar vikur og nálgast það
persónulegt met hvað hann snertir.
Þau hafa þekkst mun lengur eða í
fimm ár. Patrizia segir að henni
hafi frá upphafi líkað við Albert og
fundist hann aðlaðandi og greindur
strákur. Hins vegar óraði hana
ekki fyrir því að hann væri jafn-
spennandi við nánari kynni og
raun ber vitni.
Menn spyrja sig nú hvort Patriziu
takist að klófesta vinsælasta prins-
inn í Evrópu. Hún sjálf er ekki í
vafa um það en bætir við. „Sú sem
hreppir Albert verður hamingju-
samasta kona í heimi.“
Albert prins og Patrizia eyða öllum helgum saman í Monte Carlo.
Eirtdaginner
2Zdesember
vegna
söluskatts
í nóvember
A
Æm ð gefnu tilefni er athygli vakin á því
að eindagi söluskatts
vegna nóvembermánaðar 1989
er miðvikudagurinn 27. desember 1989.
Forðist örtröð -gerið skil tímanlega
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI
IL