Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Blaðsíða 4
Fréttir Stöðug fjölgun afbrotamanna 1 Reykjavik: Á þriðja þúsund innbrot og þjófnaðir á árinu ' - líkamsmeiðingum íjölgaði um fímmtán prósent Rösklega tvö þúsund innbrot og þjófnaðir voru tilkynntir til lög- reglunnar í Reykjavík á árinu sem er að líða. Á síðustu fiórum mánuð- um ársins í fyrra voru framin 363 innbrot í Reykjavík sem voru til- kynnt til lögreglunnar. í ár eru inn- brotin orðin um 390 - þaö þýðir aukningu um sjö prósent miðað við þessa fjóra mánuði. Þessar tölur benda til sömu þróunar og hefur verið á síðasta áratug: stöðug fjölg- un afbrota og veruleg fjölgun fanga að sama skapi. Samkvæmt samanburði DV og lögreglunnar í Reykjavík hefur lík- amsmeiðingum í borginni fjölgað um fimmtán prósent á milli ára. í fyrra voru skráðar líkamsmeiöing- ar vegna ofbeldisverka 353 en eru orðnar 406 í ár. Er þá aðeins átt við þær líkamsmeiðingar, átök og ár- ásir sem eru tilkynntar til lögregl- unnar. Miðað við tölur og upplýs- ingar frá slysadeild Borgarspítal- ans er talið að ofbeldisverk séu fjór- um til fimm sinnum fleiri en þessar tölur gefa til kynna. Langstærsti hluti líkamsmeið- inga er framinn á skemmtístöðum eða í heimahúsum. Líkamsárásir, átök, ryskingar og ofbeldi, sem eiga sér stað utanhúss, eru í minnihluta af heildarfjölda ofbeldisverka sem framin eru í Reykjavík. Um tveir þriðju hlutar líkamsmeiðinga, sem eiga sér stað utanhúss, verða í eða við miðborgina. Ómar Smári Ármannsson hjá forvamadeild lögreglunnar segir að fjölgun um tilkynntar líkams- meiðingar eigi meðal annars rætur sínar að rekja til aukinnar umræðu um þessi málefni að undanfórnu. „Á síðustu tíu áram hefur verið töluverð stígandi í fjölda afbrota, þeim fjölgar jafnt og þétt en þó án stökkbreytinga," sagði Ómar Smári. Hann segir að svokölluðum gist- ingum í fangageymslum lögregl- unnar í Reykjavík virðist hafa fækkað í ár sem og undanfarin ár. „Orsökin er sennilega sú að tekin var upp sú stefnuhreyting fyrir nokkrum árum að aka fólki heim eins og kostur er. Auk þess er nú virkt samstarf á milli lögreglu, borgarlæknis og meðferðarstofn- ana til þess að koma í veg fyrir að sömu aðilar lendi oftar hjá lögregl- unni,“ segir Ómar Smári. -ÓTT Kjararannsóknanefnd: Fjögur prósent kaupmáttarrýrnun - frá öörum ársfjórðungi 1988 til sama tíma í ár Kaupmátturinn hefur rýrnað um fjögur prósent frá öðram ársfjórð- ungi 1988 til sama tíma á þessu ári, samkvæmt útreikningum Kjara- rannsóknanefndar. Á þessum tíma hækkaði tímakaup um 17 prósent en framfærsluvísitala um 21 prósent. Mest hefur skerðingin orðið hjá verkamönnum. Hjá þeim hefur kaupmátturinn minnkað um 7,8 pró- sent. Laun þeirra hækkuðu 11,9 pró- sent í krónum talið. Hjá verkakonum er rýrnunin 7,5 prósent. Það era að- eins skrifstofukonur sem hafa aukið kaupmátt sinna launa. Kaupmáttur þeirra hefur aukist um 3,3 prósent. Laun skrifstofukvenna jukust um 25,5 prósent í krónum talið. Kaup- máttur skrifstofukarla hefur dregist saman um 1,2 prósent. Verkamenn vinna mest allra, 50,9 klukkustundir að meðaltali á viku. Iðnaðarmenn unnu að meðaltali 47,9 klukkustundir. Afgreiðslukarlar 46,8. Afgreiðslukonur unnu að með- altali 46,6 klukkustundir. Vinnutími hefur aukist hjá öllum nema skrifstofukonum en hjá þeim er hann óhreyttur. Vinnutími virðist því vera að lengjast á ný en hann haföi dregist saman á síðasta ári. -sme Reglugerð um endurgreiðslu vasks af matvælum: Mjólk á að lækka um 9% eftir áramót í samræmi við þá -ákvörðun að endurgreiða hluta virðisaukaskatts af tilteknum innlendum matvælum, þannig að á þær leggist 14% skattur í stað 24,5% skatts. Þá hefur verið gefin út reglugerð þar að lútandi. Af eftirtöldum vörutegundum á að endurgreiða virðisaukaskatt: Ný- mjólk, léttmjólk, G-mjólk og undan- rennu. Kindakjöti í heilum og hálfum skrokkum. Neyslufiski: Ýsu, þorski, ufsa, steinbít, karfa, löngu, keilu, lúðu, kola, skötu, skötusel, rauð- maga og grásleppu - og einnig af inn- lendu grænmeti. Með þessum endurgreiðslum á að nást fram 9% verðlækkun á mjólk strax eftir áramót Einnig á að ná fram svipaðri lækkun á kindakjöti í heilum og hálfum skrokkum en eitt- hvað minna á unnum kjötvöram. Um hitt er allt óskýrara. Upptaka virðisaukaskatts mun hafa í for með sér 2 til 2,5% lækkun á matvælalið framfærsluvísitölunn- ar frá því sem annars hefði orðið. Heildaráhrifin á framfærsluvísi- töluna era metin á bihnu 0,5 til 1% til lækkunar. Á hinn bóginn er rétt að hafa í huga að undanfama mán- uöi hefur vísitalan hækkað um 1 til 1,5% á mánuði. -SMJ Bensín lækkar en olían hækkar Um áramót lækkar bensín með til- um áramót um 24,5 prósent og gasol- komu virðisaukaskatts. Hver litri af ían um 30 prósent. Erlend hækkun, blýlausu bensíni lækkar um 70 aura. um 5 prósent, er innifalin í verð- Virðisaukaskatturinn hækkar aftur hækkun gasolíunnar. á móti olíuverð. Svartolía hækkar -JH Samtök íþróttafréttamanna útnefna fimmtudaginn 4. janúar iþróttamann ársins 1989. j gær komu samtökin bikarnum fyrir í innlandsdeild Flug- leiða á Reykjavíkurflugvelli en þar verður verðlaunagripurinn glæsilegi hafður til sýnis fram að kjördegi. Flugleiðir standa að kjörinu í sam- vinnu við samtök íþróttafrétta- manna. íþróttamaður ársins fær verðlaunagripinn til varðveislu í eitt ár. DV-mynd Brynjar Gauti LAUGARDAGUR 30. DESEMBER .1989. Líkamsmeiðingar í Reykjavík* Innbrot* sept. okt. nóv. des. *Tilkynnt til lögreglu Brjóstbirtan seldist vel á Austfjörðum: Fullt út úr dyrum í Ríkinu Mikið annríki var á sölustöðum ÁTVR í Neskaupstað og á Seyðisfirði í gær. Komust til dæmis ekki allir fyrir inni í versluninni í Neskaupstað á fimmta tímanum í gær þegar mest var af viðskiptavinum. Allan daginn var stööugur straumur fólks í versl- unina. Margir Reyðfirðingar og Eskfirð- ingar lögðu leið sína í Ríkið á Norð- firði. Þrátt fyrir mikla hálku í Odds- skarði létu menn það ekki á sig fá og settu margir hverjir keðjurnar undir bíla sína. Allan daginn í gær mátti einnig sjá marga bíla Héraðs- búa við Ríkið á Seyðisfirði. í gærkvöldi var dansleikur í Egils- búð í Neskaupstað og í kvöld verður veitingahúsið við höfnina opið. Ekk- ert ball veröur þó á gamlárskvöld. Hins vegar verða áramótaböll á Reyðarfirði, Eskifirði, Egilsstöðum og Seyðisfirði. -ÓTT Arnarflug innanlands flýgur til Eyja eftir áramótin - ellefu ferðir farnar á viku Amarílug innanlands mun hefia áætlunarflug til Vestmannaeyja næstkomandi þriðjudag. Farnar verða ellefu ferðir í viku. Er þetta í fyrsta skipti sem félagið flýgur í áætl- unarflugi til Eyja. Samgönguráð- herra úthlutaði nýlega áætlunarleyfi í fyrsta skipti til annars flugfélags en Flugleiða á þessari leið. Að sögn Árna Ingvarssonar fram- kvæmdastjóra veröa farnar tvær ferðir á dag á virkum dögum. Auk þess verður boðið upp á eina ferð síðdegis á sunnudögum. Á virkum dögum verður flogið klukkan 8.15 frá Reykjavík og til baka klukkan 9.10. Síðdegis fer önnur vél af stað klukk- an 17.30 og heldur til baka klukkan 18.20. Frá 10. febrúar verður morgun- flugið úr Reykjavík heldur fyrr, klukkan 7.45. „Við höfum gert samning við Domierverksmiðjurnar um kaup- leigu á 19 sæta vél, sams konar og við notuðum í innanlandsflugi fyrr á þessu ári. Ég geri ráð fyrir að Dorni- ervélin komist í gagnið í lok janúar. Þangað til munum við nota aðrar vélar í okkar eigu,“ sagði Ámi í sam- tali við DV. „Samgönguráðuneytiö hefur heim- ilað okkur að bjóða tuttugu þúsund sæti til Vestmannaeyja á árinu. Það fer síðan eftir nýtingu þeirra sæta hver heildarfarþegafiöldinn veröur. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.