Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1989. Útlönd Hinir nýju leiðtogar Rúmeníu: Enn stafar hætta af öryggissveitunum Hinir nýju leiötogar Rúmeníu sögöu í gær aö enn stafaði hætta af liðsmönnum öryggissveita Nicolae Ceausescu, fyrrum forseta landsins, sem tekinn var af lífi á jóladag. En Cazimir Ionescu, varaforseti Þjóö- frelsishreyfingarinnar, sem nú er við völd í Rúmeníu, sagði aö þrátt fyrir það teldu yfirvöld ekki hættu á að stjórninni yrði steypt. Ionescu sagði að enginn vafi léki á um að orðrómur þess efnis að liös- menn öryggissveitanna, Securitate, ætluðu aö myrða félaga í Þjóðfrelsis- hreyfingunni væri sannur. Leiö- togum landsins stafar mest hætta af liðsmönnum USLA, þeirri deild Securitate sem sérhæft hefur sig í baráttunni gegn hryðjuverkum. Vestrænir stjórnarerindrekar segja aö liðsmenn USLA hafi verið um tvö þúsund á valdatíma Ceausescus. Nokkur þúsund öryggissveitar- manna hafa þegar verið handtekin en hundruð þeirra ganga enn laus. „En það er ekki fjöldi þeirra sem máli skiptir heldur þjálfun þeirra og vopn,“ sagði Ionescu. Leiðtogar landsins fara nú allra sinna ferða í brynvörðum bifreiðum. Enn var barist á stöku stað í Búkar- est og öðrum borgum í Rúmeníu í gær. Varnarmálaráðherra nýju stjórnarinnar gaf út lokaaðvörun til öryggissveitarmanna í gær um að leggja niður vopn eða deyja ella. Svissneskur bankamaður sagði í gær að ekki væru nein sjáanleg merki þess að Ceausescu hefði falið Herbílar og skriðdrekar yfirgáfu Lýðveldistorgið í Búkarest í gær í fyrsta sinn síðan stjórn Ceausescu, fyrrum forseta, var steypt af stóli í síðustu viku. Hér sést hvar kona ein veifar til ökumanns herbíls. Símamynd Reuter peninga á reikningum í svissneskum bönkum, alltént lægi slíkt ekki ljóst fyrir. Tahð er að Ceausescu og kona hans, Elena, hafi komið allt að einum milljarði dollara fyrir á reikningum víðs vegar um heim, þar af um fjögur hundruð milljónum í svissneskum bönkum. Þau hjón lifðu í vellysting- um á meðan margir Rúmenar liðu skort og hertu sultarólina vegna þess að forsetinn fyrrverandi vildi greiða upp erlendar skuldir þjóðarinnar. Reuter Hápunktur byltingarinnar Leikritaskáldið og einn helsti leiötogi tékknesku stjórnarand- stöðunnar, Vaclav Havel, sór emb- ættiseið sem forseti Tékkóslóvakíu í gær. Hann er fyrsti forseti lands- ins í rúm fjörutíu ár sem ekki er kommúnisti. Það var Alexander Dubcek, fyrrum leiðtogi kommúni- staílokksins og nýkjörinn forseti tékkneska þingsins, sem setti Ha- vel í embætti. Havel mun sitja í embætti þar til aö afloknum kosn- ingum á næsta ári. Havel, sem var kosinn af þing- mönnum, mótatkvæðalaust, sat í fangelsi fyrir aöeins sjö mánuðum. Alls varði hinn nýi forseti fimm árum ævi sinnar bak við lás og slá vegna skoðana sinna. Verk hans voru bönnuö í Tékkóslóvakíu í tuttugu ár, allt þar til í þessum mánuði. Havel var fyrst fangelsað- ur fyrir tólf árum fyrir að vera einn stofnenda mannrétttindasamta- kanna Carta 77. Hann var mikiö gagnrýndur og fordæmdur í fjöl- miðlum. En tilraunir kommúnista til að kveða niöur þennan umbótasinna brugðust. Þegar umbótaaldan, sem gengið hefur yfir Austur-Evrópu, náði fótfestu í Tékkóslóvakíu varð Havel fljótlega einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Og bylting- in í landinu, sem varð meðal ann- ars til þess að kommúnistar afsö- luðu sér alræði flokksins, náði svo hápunkti í gær með setningu Ha- vels í forsetaembættið. Reuter Hernaðaríhlutun Bandaríkjanna í Panama: Fékk Noriega viðvörun? Bandarískir leyniþjónustumenn telja að upplýsingum um hernaðar- íhlutun Bandaríkjanna í Panama hafi verið lekið í Manuel Antonio Noriega, fyrrum forseta Panama, tveimur dögum áður en Bandaríkin létu til skarar skríða, að því er kom fram i frétt bandaríska dagblaðsins Washington Times í gær. í fréttinni var haft eftir heimildarmanni innan Bush-stjórnarinnar að fyrir lægju „sönnunargögn" um að lekinn hefði koihið frá utanríkisráðuneytinu, ein- hver hefði hringt til Panama íjörutíu og átta klukkustundum áður en innr- ásin hófst, fyrir tíu dögum. Þaö var hlustunarstöð á vegum þjóöaröryggisráðs Bandaríkjanna, einhvers staðar nálægt Panamaborg, sem náði símtalinu, að því er sagði í frétt blaðsins. Talsmaöur varnar- málaráðuneytisins bandaríska, Bob Taylor, vísaði því á bug að um leka hefði verið að ræða. Noriega, sem er eftirlýstur í Banda- ríkjunum vegna ákæru um eitur- lyíjasmygl, sótti um hæli í sendiráði Páfagarðs í Panama á aðfangadag. Talsmaður Páfagarðs, sem í gær kall- aði Bandaríkin „hernámsveldi" í Panama, hefur hafnað beiðni Banda- ríkjastjórnar um að Noriega verði framseldur. Talsmaöurinn, Joaquin Navarro-Valls, sagði að Bandaríkja- stjórn hefði engan rétt til að fara fram á framsal Noriegas, það væru eingöngu panamísk yfirvöld sem gætu tekið við Noriega ef hann yfir- gæfi sendiráð Páfagarðs. Bandaríska dagblaðið Washington Post skýrði frá því nýlega að Endara, forseti Panama, hefði farið þess á leit við páfa að hann aflétti þeim griö- um er Noriega nyti innan veggja sendiráðsins svo aö Bandaríkjamenn gætu handtekið hershöfðingjann. Navarro-Valls sagði aftur á móti í gær að hvorki Páfagarður né sendi- ráöið heföu fengið beiðni frá forset- anum um að Noriega yrði framseld- ur. Páfagarður reynir nú aö fá Noriega til að yfirgefa sendiráöið af fúsum og frjálsum vilja, sagði Navarro- Valls. Páfagarður hefur veitt Noriega „diplómatískt hæli til bráöabirgöa" en honum hefur ekki verið formlega veitt hæli, sagði talsmaðurinn. Reuter sem nú hefur verið steypt af stóli, Bandarisk þyrla á sveimi yfir sendiráði Páfagarðs í Panama þar sem Manu- el Noriega, fyrrum forseti Panama, dvelst nú. Simamynd Reuter Einn milljarður farþega á árinu Rúmlega einn milljarður manna tók sér far meö flugvél á árinu sem er að lfða, að því er kom fram í bráðabirgðaskýrslu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um farþegaflölda flugfélaga víðs vegar um heim áriö 1989. Þetta er þriðja árið í röð sem farþegar eru fleiri en einn milljarður. í skýrslu stofnunarinnar segir að árið 1989 hafi fiöldi farþega verið 1,12 miUjarðar og er það þriggja prósenta aukning frá ár- inu áður. Þá varð einnig aukning í farmflutningum flugfélaga um alls fimm prósent. Tuttugu og fjóram listaverkum stolið Tuttugu og fjórum listaverkum eftir spænska súrrealistann Joan Miro var stolið frá Couleur-gall- eríinu í miðborg Stokkhólms að kvöldi miðvikudags. Verkin eru metin á 485 milljónh’ dollara. Að sögn eiganda gallerísins, Curts Enstrom, voru fimm stein- prentaöar myndir meðal þeirra sem stolið var. Allar myndirnar voru fiarlægðar úr römmum sín- um. „Hér voru augsýnilega sér- fræðingar á ferð,“ sagði Enstrom. „Þessi verk eru óbætanleg Reuter Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggö Sparisjóðsbækurób. 11-12 Bb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 11,5-13 Úb.V- 6mán. uppsögn 13-14 b,Ab Úb.V- 12mán.uppsögn 12-15 b,Ab Lb 18mán. uppsögn 26 Ib Tékkareikningar, alm. 2-4 Sp Sértékkareikningar 10-12 Bb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 0,75-1,5 Allir 6 mán. uppsögn 2.5-3.0 nema sP Lb.Bb,- Innlán með sérkjörum 21 Sb Allir Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 7-7,5 Sb Sterlingspund 13-13,75 Úb.Bb,- Vestur-þýskmörk 6,75-7 Ib.V- b,Ab, Úb.lb,- Danskarkrónur 10,5-11,0 Vb.Ab Úb.lb,- ÚTLÁNSVEXTIR (%) Vb.Ab lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 27,5 Allir Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 31,5-32,75 Lb.Bb Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) 32,5-35 Lb.Bb Utlari verðtryggð . Skuldabréf 7,25-8,25 Úb Utlántilframleiðslu Isl.krónur 28.5-33 Lb.Bb, SDR 10,75 Allir Bandaríkjadalir 10,25-10,5 Allir Sterlingspund 16,75 nema Úb.Vb Allir Vestur-þýsk mörk 9,75-10 Allir Húsnæðislán 3.5 nema Lb Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 40,4 MEÐALVEXTIR Óverötr. des. 89 31,6 Verðtr. des. 89 7.7 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitalajan. 2771 stig Lánskjaravísitala des. 2722 stig Byggingavísitala des. 505 stig Byggingavísitalades. 157,9stig Húsaleiguvísitala 3,5% hækkaði 1. okt. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,508 Einingabréf 2 2,481 Einingabréf 3 2,971 Skammtímabréf 1,539 Lífeyrisbréf I 2,267 Gengisbréf 1,993 Kjarabréf 4,460 Markbréf 2,368 Tekjubréf 1,898 Skyndibréf 1,346 Fjölþjóðabréf 1,268 Sjóðsbréf 1 2.169 Sjóðsbréf 2 1,662 Sjóðsbréf 3 1.523 Sjóðsbréf 4 1,281 Vaxtasjóðsbréf 1,5225 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv Sjóvá-Almennar hf. 400 kr. Eimskip 400 kr. ' Flugleiðir 162 kr. Hampiðjan 172 kr. Hlutabréfasjóður 166 kr. Iðnaðarbankinn 180 kr. Skagstrendingur hf. 300 kr. Útvegsbankinn hf. 155 kr. Verslunarbankinn 153 kr. Olíufélagið hf. 318 kr. Grandi hf. 157 kr. Tollvörugeymslan hf. 114 kr. Nánari upplýsingar um peningamarkaö- inn birtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.