Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Síða 21
.<!«?! RMVHddtl .61- KUí;/. iba.juaj - 0£ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1989. 21 DV Skák Bræðravíg í Palma - þriðja opna mót stórmeistarasamtakanna A skáksviöinu hefur árið sem nú er að líða einkennst af ótrúlegri sigurgöngu Kasparovs heims- meistara. Síðan Bobby Fischer var og hét hefur enginn náð að sýna slíka yfirburði eins og Kasparov nú sem sigrað hefur á hverju stór- mótinu af öðru með glæsibrag. En Kasparov er fleira til lista lagt en að tefla skák. Hann hefur unun af alls kyns skipulagningu og sem forseti stórmeistarasamtakanna hefur hann verið potturinn og pannan við að koma heimsbikar- keppninni á legg. Sjálfur varð hann fyrsti heimsbikarmeistarinn og nú stendur hann í ströngu við undir- búning heimsbikarkeppninnar 1991-1992. Þar eiga þátttökurétt 24 skák- meistarar: Sex efstu úr síðustu heimsbikarkeppni; sex efstu menn á stigum og tólf efstu úr sérstöku úrtökumóti sem væntanlega verð- ur haldið í Belgrad næsta vor. Slag- urinn um sæti á úrtökumótinu hef- ur nú staðið í ár, fyrst með opna mótinu í Belgrad í desember í fyrra, þá með opnu móti í Moskvu í maí og loks með opna mótinu í Palma á Mallorca á dögunum. Alls staðar hefur Kasparov vasast í mótshald- inu og ekkert hefur virst honum óviðkomandi. í Palma voru 184 þátttakendur, þar af 140 stórmeistarar karla og 15 kvenstórmeistarar. Teflt var í Auditorium í Palma og var borðun- um dreift um ýmsa sali byggingar- innar. Þannig voru efstu níu borðin niðri á sviði; næstu borð uppi á sjö- undu hæð; þeir sem neðar komu sátu á fimmtu hæð og þeir neðstu máttu dúsa á þriðju hæðinni. Þetta fyrirkomulag gerði það að verkum að erfitt var að fylgjast með gangi mótsins nema fyrir þá keppendur sem áttu sér athvarf niðri á sviði. Aðstaða fyrir áhorfendur var slæm, aðeins fjögur sýningarborð og með óskýrum mönnum. Við vorum þrír íslendingamir á mótinu, ofanritaður, Margeir Pét- ursson og Helgi Ólafsson. Eins og aliir aðrir keppendur mótsins tók- um við stefnuna á eitt af átta efstu sætunum, sem gefa rétt til þátttöku í úrtökumótinu í vor. Margeir gerði hörðustu atlöguna framan af en í hvert skipti sem hann komst í fremstu víglínu niðri á sviði var honum jafnharðan sparkað upp á sjöundu hæð. Helgi tefidi allan tím- ann uppi á sjöundu hæð en skrifari þessara lína rokkaði hins vegar milli sjöundu og fimmtu hæðar eins og jójó - gerði jafntefli í fimm fyrstu skákunum. Það var ekki fyrr en í sjöttu um- ferð sem ég fékk minn fyrsta vinn- ing, gegn sovéska stórmeistaran- um Savon. Ég hafði hvítt í Sikileyj- arvörn og beitti afbrigði sem ég hef sjálfur átt í erfiðleikum með aö mæta með svörtu. Eftir flækjur miðtaflsins vann ég tvo létta menn fyrir hrók, svartreita biskup og riddara, og eftir mistök mótheijans var vinningurinn auðsóttur. í sjöundu umferð hafði ég aftur hvítt og nú gegn öðrum sovéskum stórmeistara, Dolmatov. Svo ein- kennilega vildi til að fyrstu leikirn- ir tefldust nákvæmlega eins og í skák minni daginn áður við Savon. Síðan skildi leiðir en þar kom að ég vann aftur svartreita biskup og riddara fyrir hrók! Þótti það tíðind- um sæta að tveir sovéskir stór- meistarar skyldu lúta í lægra haldi á sama hátt, tvo daga í röð, gegn einum og sama manninum. í næstsíðustu umferð tók búlg- arski stórmeistarinn Kiril Georgi- ev upp á því að fórna skiptamun gegn mér en fórnin stóðst ekki. Ég vann tiltölulega auðveldlega, var A móti stórmeistarasamtakanna í Palma voru 184 þátttakendur, þar af 140 stórmeistarar karla og 15 kvenstórmeistarar. Þrír íslendingarnir tefldu á mótinu Jón L. Árnason, Margeir Pétursson og Helgi Ólafsson. þá allt í einu kominn niður á svið og þar beið mín enginn annar en Margeir Pétursson! Þrátt fyrir and- mæli okkar félaganna urðum við að gera okkur að góðu að beija hvor á öðrum. Svo fór að ég hafði betur og seint um kvöldið tilkynnti Bent Larsen mér, þar sem hann sat á kaffihúsi, að ég hefði komist áfram. Ég varð jafn ellefu öðrum stórmeisturum í 4.-15. sæti en hreppti 7. sæti á stigum og það nægði. Ég átti þetta auðvitað engan veginn skilið en svona eru þessi opnu mót. Staða efstu manna: 1. Gelfand, 7,5 v. 2. -3. Kamsky og Miles, 7 v. 4.-15. Makaritsjev, King, M. Gure- vits, Jón L. Amason, Malanjúk, Balashov, Dreev, Anand, Goldin, Milos, C. Hansen og Velimirovic, 6.5 v. Margeir fékk 5,5 v. og Helgi, sem varð að bíta í það súra epli aö tapa tveimur síðustu skákunum, fékk 4.5 v. Hvítt: Jón L. Árnason Svart: Margeir Pétursson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. f3 0-0 8. Bc4 Rc6 9. De2 Sjaldséð afbrigði sem ég hef þó öðra hvoru bryddað upp á. Þaö kom mér á óvart að Margeir virtist ekki vera vel með á nótunum. 9. - Ra5 10. Bd3 e5 11. Rb3 Be6 12. 0-0 a6?! Betra er 12. - Hc8, eins og í skák- inni Tal - Gufeld frá 1972, því að 13. Bxa7? strandar á 13. - b6 og bisk- upinn verður innlyksa. 13. Df2! Rd7 14. Hfdl b5? Sartur á við vanda að glíma en 14. - f5 var betri tilraun. 15. Rxa5 Dxa5 16. Bfl! Nú dylst engum að hvítur hefur góð tök á stöðunni. 16. - Hfc8 17. a4! Ekki 17. Hxd6? Db4! og svartur nær peðinu aftur og tvístrar stöðu hvíts um leið. Nú gengur ekki 17. - Db4? 18. Rd5 Bxd5 19. c3! o.s.frv. 17. - b4 18. Rd5 Bxd5 19. Hxd5 Dc7 20. a5! ABCDEFGH Með yfirburðastöðu á hvítt. Bisk- uparnir stefna yfir á drottningar- vænginn, svartur á veikleika á d6, b4 og a6 og biskup hans er vand- ræðagripur. Margeir reynir að skapa sér gagnfæri en það er of seint. 20. - Rf8 21. Dd2 Re6 22. Hxd6 Rd4 23. Hxa6 Hab8 24. Bd3 Hd8 25. Hb6! b3 Ekki 25. - Hxb6 26. axb6 Dxb6 27. c3 og vinnur mann. . 26. Bxd4 exd4 27. Hxb3 Hxb3 28. axb3 Bf8 29. b4 Og svartur gafst upp. Að lokum er hér skák Helga við Gligoric í heild sinni en brot úr henni hefur áður birst í DV. Það er ekki á hverjum degi sem júgó- slavneski stórmeistarinn frægi er tekinn svo illilega í karphúsið. Eft- ir aðeins 16 leiki er staða hans ein rjúkandi rúst og hann getur gefist upp með góðri samvisku. Hann þráast þó við en Helgi vinnur auð- veldlega úr stöðunni og lýkur skák- inni með laglegum hnykk. Hvítt: Helgi Ólafsson Svart: Svetozar Gligoric Enskur leikur 1. c4 c5 2. Rf3 RfS 3. Rc3 Rc6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 e6 6. g3 Db6 7. Rdb5 Tískuleikurinn, sem Kasparov heimsmeistari hefur gert vinsælan með nokkrum nýlegum skákum. Áður var jafnan leikið 7. Rb3 í stöö- unni. 7. - d5 8. Bg2 d4 9. Ra4 Da5 + 10. Bd2 Dd8 Gligoric er þekktur fyrir úrvals- góða fræðikunnáttu. Hér reynir hann að endurbæta taflmennsku Vaganjans gegn Kasparov á heims- bikarmótinu í Skelleftea í ágúst, þar sem framhaldið varð 10. - Bb4 11. Rc5! 0-0 12. Rd3 Bxd2+ 13. Dxd2 Dxd2+ 14. Kxd2 og hvítur hafði yfirhöndina í endataflinu. 11. e3 e5 Eða 11. - dxe3 12. Bxe3 Bb4+ 13. Rac3 með „óþægilegum hvítum þrýstingi á drottningarvæng", eins og Nikitin, einn þjálfara Ka- sparovs, orðar það í athugasemd- um sínum. 12. exd4 exd4 13. 0-0 Bg4?? Ljóst er að Gligoric skynjar ekki hættuna - honum sést yfir lævísan möguleika hvíts. Nauðsynlegt var 13. - Be7. 14. Del + Be715. Bxc6! bxc616. Ba5 Er hér var komið sögu gekk Helgi um salinn með sigurbros á vör og láir það honum enginn þótt hann hefði átt í erfiðleikum með að leyna ánægju sinni! Ghgoric sat á hinn bóginn ijóður viö borðið og frei- staöi þess að finna leiö út úr Skák Jón L. Arnason ógöngunum. Fjöldaáhorfenda dreif að, enda virtist liggja í loftinu áð eitthvað óvenjulegt væri á seyði. Það er ekki á hverjum degi sem Gligoric fær svona meðferð. Við sjáum að svörtu drotining- unni verður ekki forðað. Ef 16. - Dc8, þá 17. Rd6 + ; ef 16. - Db8 þá 17. Bc7! og næst 18. Rd6 + og gafflar kóng og drottningu og ef 16. - Dd7, þá skerst hinn riddarinn í leikinn með 17. Rc5! og 17. - Df5, eða 17. - Dc8 er aftur svarað með 18. Rd6 + og vinnur. 16. - cxb5 17. Bxd8 Hxd8 18. cxb5 h5 19. De5 Svartur á aðeins tvo menn fyrir drottningu og á auk þess í erfiðleik- um með að finna kóngi sínum skjól. Úrvinnslan vefst ekki fyrir Helga. 19. - Kf8 20. f3 Be6 21. Rc5 Bd5 22. Dc7 Re8 23. Dxa7 h4 24. Hfel Bg5 25. f4 Bf6 26. Rd7+ Kg8 27. Hxe8+! Einfaldast. 27. - Hxe8 28. Rxf6+ gxfl6 29. Dd7 Og Gligoric lagði niður vopn. Þess ber að geta að hann tók ósigr- inum alls ekki illa, enda er hann annálaður heiðursmaður. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.