Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Qupperneq 25
LAUGARDAGUK 30, DESEMBRR 1989. cg 33 ls 1989: er r ir Eyjum Ber nafn ömmu Þórunn Sveinsdóttir VE 401, sem hefur veriö einstakt happafley, ber nafn ömmu Sigurjóns sem er látin. - Finnst þér aö amma þín hafi vakaö yfir skipinu? „Ég er ekki frá því, aö minnsta kosti hefur fylgt bátnum eitthvaö gott. Svona til gamans get ég nefnt þaö þegar báturinn var sjósettur í Stálvík. Þá kastaöi Þórunn systir mín kampavínsflöskunni, .sem var dýr- asta og besta tegund, þegar viö gáfum skipinu nafn. Þaö sem faðir minn vissi ekki var aö eftir því sem kampa- víniö er dýrara því þykkari er flask- an og þegar hún lenti á stefninu fór hún aftur með kinnungnum í stað þess að brotna. Þegar hún kom til baka greip ég hana og þeytti af öllu afli í stefnið og hún splundraðist. Seinna lásum við að þetta væri óheillamerki en annað hefur komiö í ljós.“ - Ertu hjátrúarfullur? „Ég veit þaö ekki en 'ég álít að ein- hver stjórni að hluta og fylgist meö þó að maður verði ekki var viö þaö. Mig dreymir ekki fyrir óorðnum hlutum, nema kannski einu sinni eöa tvisvar þegar ég sá eftir á aö draum- urinn heföi getað passað. Einu sinni dreymdi mig svart/hvítklædda menn yfir gröf. Ég var þá á síld. Viö lágum inni á Noröfiröi og ekkert aö hafa. Nokkru síðar erum viö staddir út af Noröfirði og ég sé háhyrningavöðu, þeir eru hvítir og svartir, og stefndi vaðan inn fjöröinn. Ég ákvaö að elta háhyrningana því oftast fylgja þeir síldinni. Eg fylgdi vööunni inn undir flugvöll og þar fylltum viö bátinn." Þetta happ þakkar Sigurjón draumnum og segir litina hafa pass- aö. Maður ársins 1989, samkvæmt vali ritstjórnar DV, Sigurjón Óskarsson, aflakóngur og bjargvættur úr Vestmannaeyjum. Ellefusinnum aflakóngur Sigurjón hefur verið aflakóngur Vestmannaeyja ellefu sinnum sem varla getur talist tilviljun. - Hafðir þú ekki talsveröa reynslu þegar þú byrjaöir þinn skipstjórafer- il? „Jú, auðvitaö. Faöir minn sótti stíft en viö aðrar aðstæður en ég á aö venjast. Þaö voru komin mun betri skiþ þegar ég byrjaði. Faðir minn var góöur sjómaöur og ég lærði mikiö af honum - einhvern veginn síaðist þetta inn hjá manni. Sjósókn og fiskirí hefst ekki nema menn stundi sjóinn og hafi áhuga á því sem þeir eru aö gera. Þaö er með þetta starf eins og önnur sem menn taka sér fyrir hendur. Þaö hefst ekki nema meö dugnaði og góöu starfsfólki eins og ég hef alltaf haft.“ Sigurjón tók viö af fóöur sínum, þrautreyndum sjómanni og afla- kóngi. „Faðir minn hefur þó aldrei reynt aö hafa áhrif á mig á nokkurn hátt. Hann skipti sér aldrei af því hvert ég fór eða hvaö ég gerði.“ En hverju sem það er að þakka þá hefur Sigurjón sýnt og sannað að hann er einn mesti og besti sjósókn- ari landsins í dag og hefur skilað sín- um hlut í þjóðarbúiö og vel þaö. Hann fetaði í fótspor fóðurins og bætti um betur. Fékkriddara- kross Eins og fyrr er getið hefur Sigurjón bjargað 27 sjómönnum úr sjávar- háska og veitti forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, honum ridd- arakross hinnar íslensku fálkaorðu sl. sumar og er hann vel að heiðrin- um kominn. Áriö 1974 bjargaði hann áhöfninni á Bylgju sem sökk undan suðurströndinni. Næst var það áhöfnin á Jóhönnu Magnusdóttur VE. Þriðja tilvikiö var þegar hann bjargaði Katrínu VE af strandstað í Meðallandsbug. Þá fór hann með skip sitt langt inn fyrir brimgarðinn til að koma taug í Katrínu. Á meðan beið varðskip fyrir utan án þess að geta aðhafst nokkuð. Þá var það á þessu ári að hann bjargaði mönnum af Nönnu VE en þar var Leó bróðir hans skipstjóri. „Það besta sem getur komið fyrir einn mann er aö geta orðið að liði þegar aörir eru í hættu. Manni líður mjög vél þegar björgunin er yfirstað- in og giftusamlega hefur til tekist. Spennan er mikil á meðan maður veit ekki hvað er fram undan hjá mönnunum sem eiga í erfiðleikum.“ Minnisstæðast þegar Nanna fórst - Hver af þessum björgunum er þér minnisstæðust? „Það var þegar Nanna fórst. Það var í langversta veðrinu, það var það tvísýnasta og stendur manni líklega næst. Víst var maður hræddur. Það var slæmt veður þegar þetta gerðist og síðast þegar ég talaði við Leó voru þeir að gera sig klára að fara í björg- unarbátinn en voru ekki búnir að blása hann upp. Svo heyrðum við ekki meira á meðan við sigldum til þeirra og vissum því ekki hvað þeim leið. Þegar svona kemur upp er spurningin hvort þeir hafa það af eða ekki." - Var það tilviljun eða ekki að þú varst á réttum staö á réttum tíma? „Það hef ég ekki hugmynd um,“ svarar hann en hefur trú á að éitt- hvað gott fylgi sér. Hvort það er amma hans, Þórunn Sveinsdóttir, er erfitt um að segja. En þess má geta að Gísli Sigmarsson, skipstjóri á Katrínu VE, sem Sigurjón dró af strandstað, er hálfbróðir Oskars, föð- ur Sigurjóns, og var Þórunn Sveins- dóttir móðir þeirra. Þetta viðtal er tekið á heimili Sigur- jóns og Sigurlaugar Alfreðsdóttur, konu hans. Þau hjónin eiga þrjú börn og einn sonurinn, Viðar, starfar á skipi fóður síns. Á heimilinu er margt sem minnir á atvinnu hans og alltaf er hann tilbúinn að ræða um sjó og sjómennsku. Hann lætur ekki mikið yfir eigin afrekum. Það er eins og hann vilji þakka þaö ein- hverjum öörum en sjálfum sér. Þegar kemur að því að spjalla um útgerð, fiskirí, kvótann eða annað sem lýtur að sjónum er ekkert hik á honum. „Kvótinn er kominn til að vera,“ seg- ir hann, „en hefur ekki skilað því sem til stóð. Við höfum ekki náð neinum árangri á þessu tímabili.“ Sjómaður af guðs náð Sigurjón sér ekki eftir að hafa gert sjómennsku að ævistarfi og væri til- búinn aö byrja upp á nýtt. Vertíðin er fram undan og hann er bjartsýnn; tilbúinn í slaginn með góðan bát og góða skipshöfn. Hefði það skipt máli hvaða starfsvettvang Sigurjón hefði valið sér? - Varla, hann hefði alls staðar skarað fram úr. En hvarflaði aldrei að honum að gera eitthvað annað? „Nei, það hefur aldrei hvarflað að mér en hitt er annaö mál að ég held ég hefði orðiö slæmur bóndi," sagði Sigurjón Óskarsson, maður ársins 1989, samkvæmt vali DV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.