Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Page 42
50
.eser H38M3?,ao oe suoACtflADUAJ
L-AUGARDAGUR 30. DESEMBER1989.
Afmæli
Jóhannes Ingvar Bjömsson
Jóhannes Ingvar Björasson
hreppstjóri, Smáragrund 1, Laugar-
bakka, verður sextugur á nýársdag,
l.janúar.
Jóhannes er fæddur aö Þverá í
Núpsdal í Vestur-Húnavatnssýslu
en alinn upp í Reynhólum í Ytri-
Torfustaðahreppi. Hann stundaði
nám við héraðsskólann að Reykjum
í Hrútafirði og varð gagnfræöingur
þaðan 1951. Jóhannes var kennari í
Staðarhreppsskólahverfi í Hrúta-
firði með námi í Reykjaskóla vetur-
inn 1950-51. Hann var skólastjóri
barnaskólans Ásbyrgi í Ytri-Torfu-
staðahreppi 1956-57,1958-66,
1968-70 og 1971-72, kennari við
Laugarbakkaskóla 1970-71 og
1972-76, og skólastjóri í Haganes-
skólahverfi í Skagafirði 1957-58. Þá
kennir Jóhannes við Laugarbakka-
skóla nú í vetur. Hann var formaður
Ungmennafélagsins Grettis í Mið-
firði 1960-62 og 1967-68, formaður
Ungmennafélags Vestur-Húnvetn-
inga 1962-64, hreppsnefndaroddviti
í Ytri-Torfustaðahreppi 1958-82 og
sveitarstjóri í sama hreppi 1982-86.
Jóhannes hefur verið reiknings-
haldari Laugarbakkaskóla frá 1958
og sat í sýslunefnd Vestur-Húna-
vatnssýslu frá 1972 og þar til þær
voru aflagðar fyrir ári. Hann var
deildarstjóri Ytri-Torfustaða-
hreppsdeildar KVH1969-78, verið
umboðsmaður skattstjóra í Ytri-
Torfustaðahreppi frá 1983 og hrepp-
stjóri Ytri-Torfustaðahrepps frá
1982. Hann hefur verið formaöur
sóknarnefndar Melstaðarsóknar í
allmörg ár og safnaöarfulltrúi frá
1981, í ritnefnd „Húna“, rits Ung-
mennasambands Vestur-Húnvatns-
sýslu frá 1976 og formaður í stjórn
Sparisjóös Vestur-Húnvatnssýslu
frá 1987. Jóhannes hefur rekið sauð-
fjárbúskap í Reynhólum frá 1976 og
þá hafa þau hjónin haft bréfhirðingu
á heimili sínu og séð um hana frá
1978.
Jóhannes kvæntist þann 25.10.
1958 Helgu Jóhannesdóttur hús-
móður, f. 23.7.1929. Hún er dóttir
Jóhannesar Ormssonar, b. í Ham-
arshjáleigu í Flóa, og Sigurbjargar
Helgadóttur.
Börn Jóhannesar og Helgu eru:
Guðmundur Reynir, f. 13.6.1958,
viðskiptafræðingur.
Jóhannes Helgi, f. 31.12.1961, lög-
fræðingur í samgönguráðuneytinu.
Björn, f. 11.3.1963, lögfræðingur,
aðalfulltrúi sýslumanns ísafjarðar-
sýslu, býr með Sigrúnu Halldórs-
dóttur og eiga þau eitt barn.
Sigurbjörg, f. 3.5.1968, stúdent, býr
með Má Hermannssyni, búsett í
Svíþjóð.
Stjúpdóttir Jóhannesar er Hrafn-
hildur Hilmarsdóttir, f. 29.8.1951,
kennari í Ytri-Njarðvík, gift Gunn-
ari Þorvarðarsyni, og eiga þau þrjú
börn.
Systkini Jóhannesar: Hólmfríður,
f. 5.9.1917, húsmóðir í Sandgerði;
Jóhanna, f. 27.1.1919, húsmóðir í
Skarfkoti í Miðfirði; Guðmundur, f.
28.8.1920, b. í Tjarnarkoti í Mið-
firði; Björgvin, f. 16.6.1925, sölu-
stjóri hjá verslun O. Ellingsen í
Reykjavík, búsettur í Kópavogi; Ól-
öf, f. 14.12.1926, húsmóðir að Kollsá
í Hrútafirði; og Elís, f. 14.7.1932,
ýtustjóri í Sandgerði.
Foreldrar Jóhannesar voru Bjöm
Guðmundsson, f. 23.2.1885, d. 24.3.
1985, b. í Reynhólum í Miðfiröi, og
Ingibjörg Jónsdóttir húsmóðir, f.
9.12.1891, d. 4.6.1974.
Björn var sonur Guðmundar, b. í
Reynhólum, Jóhannessonar, b. á
Dalgeirsstöðum, Ólafssonar.
Móðir Guðmundar var Agnes Ei-
ríksdóttir, b. á Efri-Núpi, Eiríksson-
ar, prests á Staðarbakka, Ólafsson-
ar, b. á Kjörseyri, bróður Þórðar,
afa Helga Thordarsen biskups. Ólaf-
ur var sonur Þórðar, b. á Kjörseyri,
Ólafssonar, bróður Guðrúnar,
langömmu Björns Gunnlaugssonar
stærðfræðings, langafa Ólafar, móð-
ur Jóhannesar Nordal.
Móðir Björns var Þorbjörg, systir
Sigurðar, afa Skúla Guömundsson-
ar alþingismanns. Bróðir Þorbjarg-
ar var Stefán á Hallgilsstöðum, faðir
slökkviliðsstjóranna Eggerts
Melsted á Akureyri og Egils á Siglu-
firði og afi Péturs og Valdimars
Jónssona sem voru með vöruflutn-
inga milli Reykjavíkur og Akur-
eyrar. Þriðji bróðir Þorbjargar var
Jónas, faðir Guðmundar Hlíðdal,
póst- og símamálastjóra.
Þorbjörg var dóttir Jónasar, b. á
Tittlingastöðum, Sigurðssonar.
Móðir Jónasar var Sigurlaug
Bjarnadóttir, b. á Brekkum, Sig-
urðssonar, og konu hans, Rósu Sig-
fúsdóttur, prests á Felli í Sléttuhlíð,
Sigurðssonar, föður Sigfúsar Berg-
mann á Þorkelshóli, ættföður Berg-
mannsættarinnar. Móðir Þorbjarg-
ar var Ragnhildur Aradóttur, b. á
Jóhannes Ingvar Björnsson.
Neðri-Þverá, Eiríkssonar.
Móðurbróðir Jóhannesar var
Helgi, faðir Marinós, fyrrv. kaup-
manns í Brynju. Annar móðurbróð-
ir Jóhannesar var Jóhannes, faðir
Ólafs, aðalumsjónarmanns happ-
drættis SÍBS. Ingibjörg var dóttir
Jóns, b. í Huppahlíð í Miðfirði, Jóns-
sonar, b. í Kollufossi, Jónssonar.
Móðir Ingibjargar var Ólöf Helga-
dóttur, b. í Huppahlíð, Jónssonar,
frá Tannastöðum í Hrútafiröi. Móð-
ir Ólafar var Jóhanna Jóhannes-
dóttir, frá Nýjabæ í Rifi á Snæfells-
nesi.
Hörður Ingólfsson
Höröur Ingólfsson kennari, Borg-
arheiði 18, Hveragerði, verður sex-
tugur á nýársdag, 1. janúar.
Hörður er fæddur í Reykjavík en
alinn upp í Winnipeg og Reykjavík
og nágrenni. Hann lauk bamaprófi
frá Bamaskóla Austurbæjar og
gagnfræðaprófi frá Gaggó Vest. Áriö
1946 fluttist hann með foreldrum
sínum að Fitjakoti á Kjalamesi.
Hann stundaði myndlistamám í
Handiða- og myndlistarskóla ís-
lands 1946-49 og lauk teiknikenn-
araprófi 19 ára gamall. Einnig var
hann í íþróttaskóla íslands á Laug-
arvatni 1950-57. Hörður hefur síðan
helgað sig kennslu í myndmennt og
íþróttum, þar af um 25 ára skeið í
Kópavogi. Hann var í framhalds-
námi í Osló 1972-73. Ásamt kennsl-
unni hefur Hörður veriö virkur
íþróttamaður og keppti með KR og
UMSK í fijálsum íþróttum í aldar-
fjórðung. Jafnframt því var hann í
hinum kunna sýningarflokki KR í
fimleikum sem sýndi árlega víða um
land undir stjóm Benedikts heitins
Jakobssonar. Hann fór einnig tvær
sýningarferðir til Norðurlanda og
tók þátt í fyrstu fimleikamótum á
íslandi er þau voiju endurvakin.
Þegar Hörður hætti keppni starfaði
hann sem fimleikadómari. Síðast-
liðna tvo vetur hefur hann kennt
myndmennt í Bamaskóla Selfoss.
Maki Harðar var Birna G. Ágústs-
dóttir tækniteiknari, f. 20.1.1949, en
þau slitum samvistum 1987. For-
eldrar hennar voru Ágúst Alexand-
ersson og Kristín Guðmundsdóttir.
BörnHarðareru:
Hörður Ágúst, f. 22.4.1967, mat-
reiðslumaður, býr með Guðrúnu
Sigurðardóttur, og er þeirra bam
Hörður Alexander, f. 3.7.1988.
Inga Rún, f. 4.2.1969, nemi á lista-
braut, býr með Arnari Þór Þorleifs-
syni og er þeirra bam Sveinn Val-
ur,f. 4.11.1988.
Reginn Örn, f. 21.7., býr í föður-
húsuiú.
Systkini Harðar eru: Ema sjúkra-
liði, gift Agli Stardal og eiga þau
þrjú böm; Helga Sigríður, búsett í
Bandaríkjunum, gift Hermanni
Hallgrímssyni og eiga þau tvö böm;
Ingólfur GísU, lektor í myndmennt-
um, búsettur í Kópavogi, kvæntur
Helgu Guömundsdóttur arkitek og
eiga þau fjögur börn; Lára Sigrún
skrifstofumaður, búsett í Reykjavík;
Ólafur, starfsmaður í HeimiUstækj-
um, búsettur í Reykjavík, kvæntur
Emeliou Nocon og eiga þau tvö
böm; Sigurður Valur bifvélavirki,
búsettur á Akureyri, kvæntur
Margréti Hreinsdóttur hárgreiðslu-
konu og eiga þau þrjú böm.
Hörður Ingólfsson.
Foreldrar Harðar: Ingólfur H.
Gíslason, f. 4.6.1899, d. 13.2.1968,
kaupmaður og bóndi, og Fanney
Gísladóttir, f. 4.6.1911, húsmóðir og
kaupkona.
Ingólfur var sonur Gísla Helga-
sonar og Valgerðar Freysteinsdótt-
ur frá Þverá í Ölfusi. Bræður Ing-
ólfs voru m.a. Garðar Svavar hlaup-
ari, faðir Guömundar H. Garðars-
sonar alþingismanns, og Valur leik-
ari, faðir Vals Valssonar banka-
stjóra.
Fanney er systir Guðmundar G.
Hagalín rithöfundar.
Emma Gústavsdóttir
Emma Gústavsdóttir húsmóðir,
Torfufelli 50, Reykjavík, verður sex-
tug á morgun, gamlársdag.
Emma er fædd í Vestmannaeyjum
og þar ólst hún upp. Emma bjó í
Vestmannaeyjum til ársins 1947 en
fluttist þá til Reykjavíkur og hefur
búiðþar síðan.
Emma giftist þann 30.3.1963
Kristni Ingólfssyni iðnaðarmanni,
f. 31.8.1923. Foreldrar hans vora
Ingólfur Árnason, smiður á Akur-
eyri, og Ingibjörg Þorláksdóttir.
Emma á einn son frá fyrra hjóna-
band, Gústav Sveinsson, f. 25.10.
1957. Faðir hans var Sveinn Jónas-
son, fyrrv. framfærslufulltrúi í
Reykjavík.
Böm Emmu og Kristins eru:
Kristín, f. 22.9.1962, hjúkrunar-
fræðingur í Reykjavík, gift Markúsi
Sigurðssyni, f. 13.12.1959, nema í
tæknifræði, og eiga þau dótturina
Unni,f. 19.9.1985.
Ólöf, f. 19.2.1965, nemi í Tölvuhá-
skóla Verslunarskóla íslands, gift
Viðari Ágústssyni, f. 9.11.1950,
framkvæmdastjóra í Reykjavík.
Systkini Emmu eru fimm: Stef-
anía Dwyer, f. 5.8.1918, búsett í New
York í Bandaríkjunum; Hálfdán, f.
6.7.1920, húsgagnasmiður, búsettur
í Garðabæ; Inga, f. 8.6.1922, d. 27.4.
1948; Ásta Orsini, f. 23.10.1925,
hjúkrunarfræðingur, búsett í New
Emma Gústavsdóttir.
York í Bandaríkjunum; og Gústav,
f. 19.1.1928, blikksmiðurí Reykja-
vík.
Foreldrar Emmu voru Gústav
Stefánsson, f. 22.8.1898, d. 1942, sjó-
maður í Vestmannaeyjum, og Krist-
ín Guðmundsdóttir, f. 27.5.1899, d.
1986, saumakona í Vestmannaeyj-
um.
Gústav var sonur Stefáns, kaup-
manns og útvegsbónda í Ási í Vest-
mannaeyjum, Gíslasonar, kaup-
manns í Hlíðarhúsum, Stefánsson-
ar.
Kristín var dóttir Guðmundar
Gíslasonar frá Sigluvík í Landeyj-
um, b. á Glæsistöðum, og Sigríðar
Bjarnadóttur frá Herdísarvík.
Andlát
Ágústa Haraldsdóttir, Hásteinsvegi
9, andaðist í sjúkrahúsi Vestmanna-
eyja 27. desember.
Kristmundur S. Snæbjörnsson lést
að heimili sínu 26. desember.
Gunnar Bogason, Týsgötu 6, lést í
Landakotsspítala 29. desember.
Benedikt Sveinbjarnarson, Aust-
vaðsholti, Landsveit, andaðist 29.
desember.
Tilkyimingar
Sveinspróf í stálsmíði,
vélsmíði og málmsteypu
Fyrir skömmu luku fiórtán nemar í
Reykjavík og Hafnarfirði sveinsprófum í
stálsmíði, vélsmíði og málmsteypu. Skír-
teini voru afhent við hátíðlega athöfn sem
Félag málmiðnaðarfyrirtækja og Félag
jámiðnaðarmanna gengust fyrir. Viö það
tækifæri voru þeim sem skarað höfðu
fram úr veittar viðurkenningar. Á með-
fylgjandi mynd sjást nokkrir hinna nýút-
skrifuðu jámiðnaðarsveina. í fremri röð
halda þeir Svavar Sigmundsson (t.v.) og
Heimir Hauksson á viðurkenningum fyr-
ir góðan námsárangur.
Opið hús í Kaplakrika
FH-ingar hafa ákveðið í samvinnu við
verktakafyrirtækið Hagvirki hf. að
kynna stöðu byggingarframkvæmda
íþróttahússins í Kaplakrika fyrir liðs-
mönnum Stórátaks, velunnurum FH og
Hafnfirðingum almennt á gamlársdag
milli kl. 13 og 15.
Allir sem hafa áhuga á framgangi
íþróttahússins í Kaplakrika em hvattir
til þess að koma við í Kaplakrika þennan
síðasta dag ársins og fræðast um húsið
og sjá hve vel framkvæmdum hefur mið-
að áfram.
Afgreiðslutími bensínstöðva
Gamlársdagur: kl. 8-15.
Nýársdagur: Lokað.
Bensínsjálfsalar em víða og ætti því eng-
an að skorta eldsneyti.
Heimsóknartími á
sjúkrahúsum
Borgarspítalinn:
Gamlársdagur: kl. 13-22.
Nýársdagur: kl. 14-20.
Kleppsspitali:
Frjáls heimsóknartími samkvæmt um-
tali.
Landakotsspitali:
Heimsóknartími kl. 14-20 á gamlársdag
og nýársdag.
Landspitalinn:
Gamlársdagur: kl. 18-21.
Nýársdagur: Heíðbundinn heimsóknar-
tími og eftirsamkomulagi við hjúkrunar-
fólk.
St. Jósefsspitali:
Frjáls heimsóknartími samkvæmt um-
tali.
Innanlandsflug yfir hátíðirnar
Flugleiðir:
Á gamlársdag fljúga Flugleiðir til Akur-
eyrar, ísafiarðar, Sauðárkróks, Húsavik-
ur, Homafiarðar og Vestmannaeyja. Á
nýársdag fellur allt flug niður en næstu
daga á eftir verður bætt við ferðum á
áætlunarleiðum.
Arnarfiug:
Á gamlársdag verður flogið til allra staða
fyrir hádegi nema Stranda. Flug fellur
niður á nýársdag. Ef þörf krefur verður
bætt við vélum á áætlunarleiðum í inn-
anlandsflugi svo allir komist á leiðar-
enda.
Neyðarvakt Tannlæknafélags
íslands um áramót
Laugardagur 30. desember, kl. 10-13:
Tannlæknastofa Jónasar B. Birgissonar,
Laugavegi 126, s. 21210.
Sunnudagur 31. desember, kl. 10-13:
Tannlæknastofa Sigurgísla Ingimarsson-
ar, Garðatorgi 3, Garðabæ, s. 656588.
Nýársdagur, mánudagur 1. desember,
kl. 10-13:
Tannlæknastofan Barónsstíg 5, Friðrik
Ólafsson, s. 22969.
Átthagafélag Strandamanna
heldur jólatrésskemmtun í dág, laugar-
dag, kl. 15 í Domus Medica.
OA-samtökin
OA-samtökin starfa í formi funda þar
sem fólk hittist og deilir reynslu sinni,
styrk og vonum til aö losna undan áþján
ofáts. Nú um áramótin flytjast allir OA-
fundir sem haldnir hafa verið í Þverholti
20 á nýjar slóðir. Mánudagsdeild tlytur
í Árbæjarkirkju og verða fundir þar kl.
21 öll mánudagskvöld, ekki þó mánuö.
1. jan. ’90. Miðvikudagsdeild flytur á
Barónsstig 20 og verða fundir þar kl. 21
öll miðvikudagskvöld. Byrjendafundir
flyfiast einnig á Barónsstig 20 og verða
nú á miðvikudagskvöldum kl. 20.30.
Sporadeild, sem haldiö hefur fundi á
laugardagsmorgnum kl. 11, flyst einnig á
Barónsstíg 20 og verður á sama tíma og
áður. Aðrar deildir verða óbreyttar sem
hér segir: laugardag kl. 15 í safnaðar-
heimili kaþólskra, Hávallagötu 16, fóstu-
daga kl. 21 í bókasafni Mýrarhúsaskóla,
Seltjamamesi. Á landsbyggðinni: Safn-
aðarheimili Hrepphólakirkju á miðviku-
dögum kl. 21, skrifstofu verkalýðsfélags-,
ins á Hólmavík á þriðjudögum kl. 21. í
Glerárkirkju, Akureyri, á mánudögum
kl. 20.30, Snælandi við Aragötu 12 á Húsa-
vík á mánudögum kl. 20 og í félagsheimil-
inu Melsgili á Sauðárkróki á fimmtudög-
um kl. 21.30. Fundirnir em öllum opnir
Skilafrestur fyrir jólakrossgátu og
jólamyndagátu sem birtust í jóla-
blaöi DV er til 8. janúar. Merkiö
sem löngun hafa til að hætta ofáti. OA-
samtökin, pósthólf 1783, 121 Reykjavík.
Happdrætti
Dregið í happdrætti Sjálfs-
bjargar
Dregið var í happdrætti Sjálfsbjargar
1989 23. desember 1989. Eftirfarandi núm-
er komu upp: Bifreið, Toyota 4Runner
að verðmæti kr. 2.340.000, nr. 69442.5 bif-
reiðar, Toyota Corolla, hver að verðmæti
kr. 716.000, nr. 259, 13698, 31127, 96825,
100215. 59 ferða- eða skartgripavinningar
að eigin vali, kr. 100.000, nr. 2114, 3335,
4673, 5252, 6213, 7567, 15643, 18827, 19571,
25638, 28773, 35287, 36892, 38300, 39170,
40181, 44929, 46392, 47824, 51139, 51473,
51800, 62804, 62896, 67324, 71136, 72486,
77413, 79702, 80624, 82092, 82720, 87310,
88179, 90736, 91714, 91922, 95327, 96353,
98161, 100140, 100379, 115500, 116274,
122442, 123059, 123191, 124314, 128158,
135459, 137453, 137577, 139949.
umslagið: Jólamyndagáta (eða jóla-
krossgáta eftir því sem við á) c/o DV,
pósthólf 5380, 125 Reykjavík.
Skilafrestur á lausnum
á jólakrossgátu
og jólamyndagátu