Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1990, Page 6
6
Viðskipti
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1990.
DV
Óspart grín gert að norsku flármálasnillingunum sem flárfestu á íslandi:
„Já, og svo er laxafóðrið
miklu ódýrara á íslandi“
„Vinimir úr viöskiptalífmu, þeir
Christian Thommessen, Gunnar
Bretvin, Ralph Hoibakk ásamt fleir-
um, standa á bak við algert rugl í
laxeldi á íslandi." Þannig hefst um-
fangsmikil grein í norska tímaritinu
Kapital um gjaldþrot Lindalax hf.
Fyrirsögn greinarinnar eru „Konk-
urs for kjendisene" eöa „Gjaldþrot
vinanna". Kapital er tímarit um viö-
skipti í Noregi og er eins konar Frjáls
verslun þeirra Norðmanna.
Ekki aðeins þekkt
fyrir toppfund Reagans
og Gorbatsjovs
Blaöiö segir ennfremur: „Hug-
myndin var stórsniðug. Fiskeldi á
íslandi. Eyju sem ekki er aðeins
þekkt fyrir toppfund þeirra Reagans
og Gorbatsjovs heldur líka fyrir heitt
vatn í jöröu. Þetta er jarðvarmi sem
ókeypis er hægt að nota til aö hita
upp vatnið í kerjum fiskeldisstöðv-
anna og halda því hitastigi sem gefur
mestu vaxtarmöguleikana fyrir fisk-
inn.
í kaupunum fæst ekki aðeins
ókeypis heitt vatn úr jörðu, aðstæður
allar eru svo stórkostlegar í fiskeld-
isstöðvunum á íslandi að fiskurinn
dafnar og stækkar helmingi hraðar
en í Noregi. Já, og svo er laxafóðrið
miklu ódýrara á Islandi."
Tímaritið segir að þetta hafi mátt
lesa í skýrslu hjá Norska Credit-
bankanum, skrifaðri í september
árið 1986, vegna fyrirtækisins Seafo-
od Development sem stofnað var í
febrúar þetta sama ár meö fjárfest-
ingar á Islandi í huga.
Hlutafé fyrirtækisins var á þessum
tíma aðeins 150 þúsund norskar
krónur en hugmyndin var að fjár-
festa í og þróa tvær eða fleiri fiskeld-
isstöðvar á íslandi.
Foringinn var Tommissen
Þá segir að foringi þeirra Seafood
Development hafi verið Christian
Tommissen, þekktur úr fjölmiðla-
heiminum og fyrir þetta ævintýri
reynslunni ríkari af rugli í fyrir-
tækjarekstri. Christian þessi mun
hafa fengið til liðs við Seafood Deve-
lopment nokkra þungavigtamenn úr
norsku viðskiptalifi, þá Ralph Hoi-
bakk, Gunnar Bretvin og Per Han-
son.
Ennfremur segir að útgáfa verð-
bréfa til að tryggja 49 prósenta fram-
lag Seafood Development í seiðaeld-
- norska tímaritið Kapital segir frá gjaldþroti Lindalax
Lakseoppdrett pá Island:
HANDEL
Konkurs for kjendisene
Næríngslivskjendisene Christian Thommessen, Gunnar Bretvin,
Ralph Hoibakk med flere stár bak en total fiasko inhen lakseopp-
drett pá Island.
Cftriatian Thommasaan, flalph Hoibakk 09 Qunnar Bretvtn — tre av foreganpsmennone bak oppdrettaflaskoen pá Island.
Norska viðskiptatimaritið Kapital, eins konar Frjáls verslun þeirra
Norðmanna, gerir í nýjasta hefti sínu frá 27. janúar óspart grín
að fjármálasnilli þeirra Norðmanna sem stóðu að ævintýrinu um
Lindalax og Fjallalax. Mikið háð er í greininni sem ber yfirskrift-
ina „Konkurs for kjendisene" eða „Gjaldþrot vinanna".
Kapital fjallar um „íslenskt útilíf“ sem hægt sé aö verða sér úti
um á islenskum skemmtistöðum og birtir mynd úr Broadway.
Segir blaðið að möguleikar fjármálasnillinganna hljóti að hafa
verið miklir þegar degi tók aó halla því ferðakostnaður þeirra til
íslands hati numiö hundruðum þúsunda króna á ári.
kan gá riktig galt i mediabransjen
Ideen var glimrende den. Fiskeopp-
drett pá Island. 0ya som ikke bare er
kjent for toppmete mellom Garbat-
sjov og Reagen, men ogsá for sin na-
turi
om á investere og utvikle to eller tre
larídbaserte oppdrettsanlegg
land og de tre glade iaksene,
an Thommessen. Mikke! Thc
ordvarme. Envarme som urp. sen w «•»«'«
isstööinni Fjallalax og laxeldisstöð-
inni Lindalax hafi einnig orðið tómt
rugl.
Bankarsem sitja í súpunni
vegna íslandsævintýrisins
Minnst er á þá banka sem sitja í
súpunni eftir íslandsævintýri vin-
anna bjartsýnu. Fyrst er Den Norske
Creditbank nefndur en jafnframt
Fokus Bank, Sparebanken Möre og
Sparebanken Midt Norge.
Eftir að fara frekari orðum um íjár-
málasnillingana sem ætluðu að
verða ríkir á íslandi gefur tímaritið
í skyn að snillingarnir hafi stundað
næturlífið á íslandi svona á sama
tíma og þeir stóðu í því að þyggja upp
allt of dýra stöð á tímum lækkandi
verðs á laxi.
Fóru þeir út á lífið?
„Með mörg hundruð þúsund á ári
í ferðapeninga hljóta möguleikamir
Nýtt rit um Evr-
ópubandalagið
Út er komin á vegum Háskóla-
útgáfunnar bókin Evrópubanda-
lagið eftir Gunnar G. Schram, próf-
essor við lagadeild Háskólans. í
frétt frá Háskólanum segir að bók-
in sé fyrsta almenna fræðslu- og
yfirlitsritið sem gefið er út á ís-
lensku um Evrópubandalagið í
Bmssel og starfsemi þess.
í bókinni er gerð grein fyrir
markmiðum, stefnu og starfsemi
Evrópubandalagsins en umræða
um afstöðu íslands til bandalagsins
hefur verið mjög á dagskrá undan-
farið ár og mun verða í deiglunni
er fram líöa stundir. Bókin er með-
al annars ætluð til nota í skólum
þar sem um þessi efni er fjallað.
Þá eru skýrð helstu atriðin í
störfum bandalagsins; fijáls flutn-
ingur vöru á milli aðildarlanda,
fijáls flutningur vinnuafls, frelsi til
atvinnureksturs og fijáls fjár-
magnsflutningur. Fjallað er sér-
staklega um hina sameiginlegu
stefnu EB í sjávarútvegs- og land-
búnaðarmálum og einnig á öðrum
sviðum, svo sem í umhverfis- og
menningarmálum, skattamálum,
félagsmálum og utanríkismálum.
Bókin Evrópubandalagið er 200
blaðsíður.
-JGH
Ragnar Birgisson
forstjóri hjá Opal
Ragnar Birgisson, áður hjá Sanitas
en nú forstjóri og einn þriggja eig-
enda sælgætisgerðarinnar Opal.
Ragnar Birgisson, fyrrum forstjóri
Sanitas, hefur verið ráðinn forstjóri
sælgætisgerðarinnar Opal. Ragnar
er jafnframt orðinn einn þriggja
hluthafa í fyrirtækinu. Hinir tveir
eru feðgarnir Gunnar Snorrason,
kaupmaður i Hólagarði og fyrrum
formaður Kaupmannasamtakanna,
og Sigurður, sonur hans.
Starfsmenn Opal eru um 30 talsins.
Þess má geta að nokkrir fyrrum
starfsmenn Sanitas, sem unnu með
Ragnari þar, hafa gengið til liðs við
hann hjá Opal.
Að sögn Ragnars hefur hlutafé
Opal verið aukiö allverulega.
Ragnar Birgisson lét af starfi for-
stjóra Sanitas hf. á síðasta ári eftir
að hafa starfað sem forstjóri þess
fyrirtækisíumtíuár. -JGH
að minnsta kosti að hafa verið mikl-
ir.“
Þá má geta þess að tímaritið birtir
mynd frá veitingastaðnum Broad-
way með orðunum að þegar myrkrið
læsi sig um íslensku fiskeldisstöðv-
arnar líti margir til annars konar
íslensks útilífs. Það sé útilíf sem
hægt sé að verða sér úti um á stærsta
diskóteki Evrópu...
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 4-7 LB.Bb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 5-7,5 Lb
6 mán. uppsögn 5-8 Ib.Bb
12mán.uppsögn 8-9 lb
18mán. uppsögn 16 Ib
Tékkareikningar, alm. 1-2 Sb
Sértékkareikningar 4-7 Lb.Bb
Innlán vergjj-yggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6mán.uppsögn 2.5-3.0 Lb.Bb,- Sb
Innlán með sérkjörum 2,5-3.25 Sp
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6,75-7.25 Sb
Sterlingspund 13,75-14,25 Ib.Sb
Vestur-þýsk mörk 6,75-7,25 Sb
Danskarkrónur 10,25-11,0 Ib
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 20-22 Sb.Sp
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 21,5-28 Ib
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr ) 25-26,5 Ib.Bb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 20,5-26,5 Ib
SDR 10,75-11 Ib.Bb
Bandaríkjadalir 9,75-10 Bb
Sterlingspund 16,75-17 Bb
Vestur-þýsk mörk 9,75-10 Bb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 37,2
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. feb. 90 37,2
Verðtr. feb. 90 7,9
ViSITÖLUR
Lánskjaravisitala jan. 2771 stig
Lánskjaravísitalafeb. 2806 stig
Byggingavísitaia feb. 527 stig
Byggingavisitala feb. 164,9 stig
Húsaleiguvisitala 2,5% hækkaði 1. jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,636
Einingabréf 2 2,547
Einingabréf 3 3,050
Skammtímabréf 1,581
Lifeyrisbréf
Gengisbréf 2,050
Kjarabréf 4,590
Markbréf 2,444
Tekjubréf 1,915
Skyndibréf 1,384
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 2,238
Sjóðsbréf 2 1.708
Sjóðsbréf 3 1,567
Sjóðsbréf 4 1,320
Vaxtasjóðsbréf 1.5785
Valsjóðsbréf 1,4850
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 424 kr.
Eimskip 424 kr.
Flugleiðir 163 kr.
Hampiðjan 174 kr.
Hlutabréfasjóður 168 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 185 kr.
Skagstrendingur hf. 320 kr.
Islandsbanki hf. 158 kr.
Eignfél. Verslunarb. 158 kr.
Oliufélagið hf. 333 kr.
Grandi hf. 157 kr.
Tollvörugeymslan hf. 114 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
r