Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1990, Qupperneq 9
M ftÁuHBMft ■$ fttfÖACltíTgOT
FÖSTU-DAGURr 2, FEBRÚAB 1990.,
Viðbrögð V-Þjóðverja við sameiningaráætlun A-Þjóðverja:
Haf na skilyrðum
um hlutleysi
Hans Modrow, forsætisráðherra Austur-Þýskalands, lagði i gær fram fjög-
urra liða áætlun sem miðar að sameiningu þýsku rikjanna. Símamynd Reuter
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, og vestur-þýskir stjórn-
málamenn hafa fagnað tillögum
austur-þýska forsætisráðherrans,
Hans Modrow, um sameiningu
þýsku ríkjanna sem ráðherrann
lagði fram í gær en hafna því alfarið
að sameinað Þýskaland verði hem-
aðarlega hlutlaust. '~\
Segja vestur-þýskir stjórnmála-
menn sameiningaráætlun kommún-
ista austan landamæranna kúvend-
ingu af þeirra hálfu þar sem austur-
þýsk yfirvöld hafi áratugum saman
lagst gegn öllum hugmyndum um
sameiningu. Flestir stjómmálamenn
V-Þýskalands segja einnig að þetta
sýni hversu veik staða austur-þýska
forsætisráðherrans sé í raun.
Hafna hlutleysi
Vestur-þýski kanslarinn hafnaði
alfarið tillögum Modrows um að
sameinað Þýskaland verði í framtíð-
inni hlutlaust og sagði að frekari
samningar um hugsanlega samein-
ingu myndu bíða þar til að loknum
fyrirhuguðum kosningum í Austur-
Þýskalandi í næsta mánuði. Kohl
kvaðst munu ræða þessi mál sam-
kvæmt skilmálum Vestur-Þýska-
lands við nýja ríkisstjórn Austur-
Þýskalands. Hefur hann þar með af-
skrifað austur-þýska kommúnista
sem virka þátttakendur í umræð-
unni um sameiningu þýsku ríkjanna.
Einn vestrænn stjórnarerindreki
sagði í gær að Vestur-Þjóðverjar réðu
ferðinni í þessum málum. „Þeir geta
fengið sameiningu þegar þeir vilja,
og við hvaða aðstæður sem þeir
vilja," sagði hann. Afstaða vestur-
þýskra stjómvalda sýnir að þeir telja
stjórnarkreppuna í Austur-Þýska-
landi svo djúpstæða að austur-þýskir
ráðamenn eigi engra annarra kosta
völ en fallast á skilyrði og skiimála
Vestur-Þjóðverja.
Tillögur Modrows frá í gær um
sameinað Þýskaland sýna betur en
margt annað hversu mikið völd og
áhrif kommúnista í landinu hafa
hmnið á nokkmm mánuðum eða frá
því í október síðasthðnum þegar
harðhnumanninum Erich Honecker
var vikið af valdastóh og bolti lýö-
ræðis og umbóta fór að rúlla í Aust-
ur-Þýskalandi.
Áætlun Modrows
Tihögur Modrows frá því í gær eru
í fjórum liðum og miða að samein-
uðu, hlutlausu Þýskalandi. Þær voru
kynntar aðeins tveimur dögum eftir
að ráðherrann hitti Sovétforseta að
máh en á þeim fundi lagði forsetinn
í raun blessun sína yfir sameiningu.
Modrow kvaðst í gær hafa kynnt for-
setanum áætlun sína á fundi þeirra
á þriðjudag.
Fyrsti hður áætlunarinnar gerir
ráð fyrir að þýsku ríkin undirriti
bandalagssáttmála á sviði hagkerfis,
íjármála og lagasetninga sem og
samgöngumála. Þessu næst yrðu
settar á laggirnar sameiginlegar
stofnanir, s.s. þingnefndir og fram-
kvæmdanefndir með fulltrúum
beggja ríkja. Þriðji hður gerir ráð
fyrir að bæði ríkin afsali sér fullveld-
isrétti sínum th nýrra, sameiginlegra
stofnana. Og að lokum, að afloknum
kosningum í báðum ríkjum, yrði sett
á laggirnar sameinað Þýskaland,
sambandsríki beggja þjóða.
í tillögum sínum gerir Modrow ráð
fyrir að Berlín verði höfuðborg hins
sameinaða Þýskalands. Ekki setti
ráðherrann fram nein tímamörk fyr-
ir þessari sameiningaráætlun sinni.
Með þessum tillögum hafa komm-
únistar látið undan síauknum þrýst-
ingi almennings í Austur-Þýskalandi
en krafan um sameinað Þýskaiand
verður nú æ háværari. Talið er að
kommúnistar vonist til að meö þessu
hljóti þeir náð fyrir augum landa
sinna nú, aðeins tæpum tveimur
mánuðum fyrir kosningar.
Friðarsáttmáli
Forsætisráðherrann austur-þýski
hvatti einnig th að geröur yrði friðar-
sáttmáh við sigurvegara síðari
heimsstyijaldarinnar th að binda
formlega enda á styrjöldina. Umsjón
Berhnar, sem var höfuðborg Þýska-
lands fyrir stríð, er enn í höndum
bandamanna og hafa þeir atkvæði
um sameiningu ríkjanna tveggja.
Reuter
Kreppunni í Rúmeníu lokið
Stjómmálamenn í Rúmeníu hafa
tekið skref í átt að fjölflokkakerfi.
Þjóðfrelsishreyfingin, sem fer með
stjórn landsins, og þrjátíu stjórn-
málaflokkar gerðu með sér sam-
komulag í gær um myndun 180 sæta
Þjóðeiningarráðs sem stjórna á
landinu þar til almennar kosningar
verða haldnar 20. maí. Samkvæmt
samkomulaginu verður uppstokkun
í Þjóðfrelsishreyfingunni.
Undanfarnar vikur hafði ótti
stjómarandstöðunnar um að Þjóð-
frelsishreyfingin væri að reyna að
koma á eins flokks kerfi farið vax-
andi þar sem hún hafði ákveðið að
bjóða fram í kosningunum.
Allir viðræðuaðhar lýstu yfir
ánægju sinni með samkomulagið
sem náðist í gær.
Reuter
Á meðan hringborðsviðræður fóru fram milli bráðabirgðastjórnarinnar i
Rúmeníu og stjórnarandstöðunnar héldu réttarhöldin yfir aðstoðarmönnum
Ceausescus áfram. Þeir sjást hér ræða við lögfræðinga sína i réttarsal í
Búkarest i gær. Saksóknari lýsti því yfir í gær að hann vildi gera ásakanirn-
ar á hendur þeim harðorðari. Simamynd Reuter
9
tJtlönd
Bretland:
Fallandi vinsældir íhaldsmanna
Breski Verkamannaflokkurinn
nýtur stuðnings 48 prósenta kjós-
enda í Bretlandi að því er fram kom
í nýrri könnun aö sem gerð var á
vegum dagblaðsins Daily Telegraph.
íhaldsflokkurinn hlaut 32,5 prósent
atkvæða. Verkamannaflokkurinn,
sem er í stjórnarandstöðu, hefur þar
með tæplega sextán prósenta forskot
á stjórnarflokkinn.
Verkamannaflokkurinn hefur ekki
haft slíkt forskot á íhaldsflokkinn
síðan í aprílmánuði árið 1974. Stjórn-
in, sem nú horfist í augu við erfið
efnhagsvandamál, hefur mátt þola
fallandi vinsældir síðustu vikur á
meðan Verkamannaflokkurinn hef-
ur stöðugt aukið við forskot sitt.
Niðurstöður könnunar Daily Te-
legraph sýna að persónulegar vin-
sældir Neil Kinnocks, leiðtoga
Verkamannaflokksins, eru nú meiri
en Margaretar Thatcher, forsætis-
ráðherra og leiðtoga íhaldsflokksins,
og er það í fyrsta sinn. Spurt var;
Hver heldurðu að verði besti forsæt-
isráöherrann? Þrjátíu og fjögur pró-
sent aðspurðra nefndu Kinnock en
33 prósent Thatcher.
Reuter
Kraftmikil
Bylgja
í hlustenda-
könnun
Sterk staða Bylgjunnar sem auglýsingamiðils
kemur enn í ljós í könnun Gallup íyrir
íslenska útvarpsfélagið í janúar síðastliðnum:
1. Mest hlustað á Bylgjuna á vinnutíma
Bylgjan hefur mesta hlustun allra
útvarpsstöðva frá kl. 9-12 og 13-17.
2. Vinsælt fólk á Bylgjunni
Af þremur vinsælustu útvarpsmönnunum
starfa tveir á Bylgjunni, þau Páll Þorsteinsson
og Valdís Gunnarsdóttir.
3. Meðalaldur hlustenda Bylgjunnar
er 33 ár
Meðalaldur hlustenda Rásar 2 er 42 ár og á
Rás 1 er hann 49 ár.
Þrátt fyrir að Bylgjan njóti ekki tekna frá
ríkinu í formi áskriftargjalda er sterk staða
hennar ótvíræð.
Bylgjan er frjálst útvarp.