Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1990, Side 17
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1990.
25
Val og Patrick Releford í Njarðvíkurliðinu,
ceppninni í gærkvöldi.
körfuknattleik:
nn unnu
Firðinum
ist áfram í keppninni
Sandgerði í gærkvöldi og sigruðu með 98
stigum gegn 67. í hálfleik var staðan 38-51
fyrir KeflvíMnga.
Keflvíkingar náðu í upphafi leiksins,
2-12, forystu og upp frá því var leikurinn
í öruggum höndum Keflvíkinga, sem eru
nú komnir í 8-liða úrsht keppninnar.
Stigahæstir í liði Reynis voru David
Grisson með 36 stig, Ellert Magnússon 15
og Jón Ben Einarsson 8. Hjá Keflvíkingum
var Sandy Anderson með 25 stig, Nökkvi
Jónsson 18, Ingólfur Haraldsson 13 og
Guðjón Skúlason 13.
Njarðvík skoraði 142
Mikið var skorað í íþróttahúsi Kennara-
háskólans þegar ÍS og bikarmeistarar
Njarðvíkur léku þar síðari leik sinn.
Njarðvíkingar leiddu 65-39 í hálfleik, og
bættu síðan um betur og sigruðu, 142-82.
Þeir unnu fyrri leikinn, 115-52, og því sam-
anlagt með 257-134.
• Leik Tindastóls og Þórs, sem fram
átti að fara á Sauðárkróki, var frestað þar
til í kvöld.
-RR/ÆMK/JKS/VS
inn fjölmenna
aldiö hefur verið hér á landi, verður um
'ötennisdeild Víkings heldur mótið í sam-
cingar hafa borist til mótshaldara.
'ur síðan fram haldiö kl. 9.30 á sunnudags-
ívatt til að fjölmenna en ókeypis aðgangur
-JKS
Rangers hafnar
samningi KSÍ
Amar ekki löglegur enn þó atvinnuleyfið sé 1 höfn
„Atvinnuleyfið var í höfn um
áramótin eins og reiknað hafði ver-
iö með, en ég er enn ekki orðinn
löglegur með félaginu þar sem það
og Knattspymusamband íslands
hafa ekki gengið frá samningum
sín á milli,“ sagði Amar Grétars-
son, knattspyrnumaðurinn ungi
hjá Glasgow Rangers í Skotlandi, í
samtali við DV í gær.
Rangers hefur ekki viljað gangast
við þeim sérsamningi sem KSÍ
lagði fram, en hann er sá hinn sami
og önnur erlend félög með íslenska
leikmenn innanborðs hafa skrifað
undir. Samkvæmt heimildum DV
krefst Rangers þess meöal annars
að eiga söluréttinn á Arnari þegar
samningur hans við félagið rennur
út eftir tæp tvö ár.
Missti af innan-
hússmótinu stóra
„Þetta kom í veg fyrir að ég fengi
að spila með Rangers í innanhúss-
mótinu stóra sem lauk nú í vikunni
í Glasgow. Ég var mættur með lið-
inu í höllina, en forráðamenn Ran-
gers þorðu síðan ekki að láta mig
leika með. Aftur á móti hef ég getað
spilað þrjá æfingaleiki með varalið-
inu nú í janúar, en sjálf deilda-
keppni varaliðanna liggur niðri
eins og er, en þar get ég ekki leikið
fyrr en samningamir eru endan-
-lega í höfn. Mér hefur gengiö ágæt-
lega í þessum leikjum, fiskaði víta-
spyrnu 1 leik gegn Dundee sem
endaði 1-1, og skoraði annað mark-
ið þegar við unnum Hibernian nú
í vikunni," sagði Arnar.
Rangers hlýtur
að verða meistari
Rangers hefur nú sex stiga forystu
í skosku úrvalsdeildinni og stefnir
hraðbyri á sinn 39. meistaratitil.
„Staðan er mjög góð og við hljótum
að verða meistarar, ég trúi því ekki
að liðið missi þetta forskot niður,
þó auðvitað geti allt gerst. Ég hef
ekki trú á því að ég fái aö leika
með aðalliðinu á þessu tímabili þó
samningarnir kæmust fljðtlega í
höfn, en ég er smám saman að að-
lagast hörkunni í knattspyrnunni
héma í Skotlandi," sagði Arnar
Grétarsson. -VS
• Arnar Grétarsson skoraði með
varaliði Rangers gegn Hibs í vik-
unni. Arnar er smám saman að
aðlagast boltanum i Skotlandi.
íslenskir körfuknattleiksá-
hugamenn leggja af stað í hina
árlegu ferð til Bandaríkjanna 27.
mars. Ferðin stendur til 1. apríl
og verður fylgst með þremur
leikjum í NBA-deildinni. Sæta-
fjöidi miðast við 25 manns en
ekki fengust fieiri miðar því upp-
selt er fyrir iöngu á leikina í deild-
inni.
Flogið verður til New York 27.
mars og haldiö siðan til Philad-
elphia. 28. mars fer hópurinn
saman á leik Phiiadelphia 76’ers
og Boston Celtics. Þetta er stór-
leikur þvx mikill rígur hefur verið
á miili þessara liða í gegnum tíö-
ina. 30.. mars verður horft á
Philadelphia 76’ers og Denver
Nuggets og 31. mars verður fariö
til New York og horft á heima-
menn i New York Knicks leika
Denver Nuggets. Heim verður
síðan haldið 1. apríl.
Eins og undanfarin ár sér ferða-
skrifstofan Úrval/Útsýn um ferð-
ina og geta þeir snúið sér þangað
sem áhuga hafa á að slást í hóp-
inn. Ferðin kostar í kringum 60
þúsund og inni I þeim pakka eru
feröir, uppiliald og miöar á leik-
ina. Fararstjóri verður körfu-
boltasérfræðingurinn Einar
Bollason. -JKS
íslandsmótið í badminton verö-
ur haldið i Laugardalshöllinni
um helgina og hefst keppni kL 10
báða dagana. Úrslitin 1 meistara-
flokki hefiast síðan kL 14 á
sunnudaginn.
Flest besta badmintonfóik
landsins keppir á mótinu og má
búast viö harðri keppni. Þar á
moðal eru Broddi Krisfjánsson
og Þórdís Edwald sem hafa oröiö
margfaldir meístarar. -VS
Vaxandi líkur að
GullitleikiáHM
' I *
- batinn hjá Hollendingnum ótrúlegar
• Ruud Gullit getur brosað breitt
þessa dagana.
Kristján Bemburg, DV, Belgíu;
Hollenska knattspymustjarnan
Ruud Gullit og belgíski skurðlæknir-
inn Dr. Martens, brostu báðir út að
eyrum þegar þeir komu á fund blaða-
manna í Brussel í gær. Martens, sem
skar Gullit upp vegna slæmra hnjá-
meiðsla á síðasta ári, sagði að bati
Hollendingsins væri framar björt-
ustu vonum.
Martens sagði að Gullit mætti byrja
að hlaupa létt, synda og hjóla eftir
tvær vikur, og eftir það yrði ákveðið
hvenær hann mætti snerta boltann
sjálfan. Hollendingar gæla við þá von
um aö Gullit geti leikiö með þeim í
úrshtum heimsmeistarakeppninnar
í sumar, og nú virðast orðnar vax-
andi líkur á að hún rætist.
Meiðsli Gullits voru það alvarleg
að heíði hann ekki farið í uppskurð-
inn, hefði hann verið kominn með
staurfót innan árs og knattspyrnu-
ferli hans þar með lokið.
Arnór slapp með
eins leiks bann
- tekur út bannið gegn Lokeren
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Arnór Guðjohnsen slapp með eins
leiks bann þegar aganefnd belgíska
knattspymusambandsins kom sam-
an í gær. Hann fékk rauða spjaldið
fyrir að slá mótheria í bikarleik í
desember og óttast var að hann fengi
nokkurra leikja bann.
Ekki er að efa að nefndin hefur
tekið tillit til góðrar hegðunar Ar-
nórs á leikvelli yfirleitt, en hann er
talinn einn prúðasti leikmaður And-
erlecht.
Amór tekur bannið út þegar And-
erlecht mætir gamla félaginu hans,
Lokeren, um aðra helgi, og leikmenn
Lokeren eru án efa ánægðir með það
því Arnór leikur sjaldan þetur en
gegn þeim og skorar yfirleitt!
íþróttir
ENokkrir leikir fóra
fram í fyrrinótt í
NBA-deildinni í körfu-
knattleik. Detroit,
meistararnir frá því í fyrra, virö-
ast vera að komast í sitt besta
form og í fyrrinótt vann liöið stór-
sigur á Washington. Úrslit í leikj-
unum urðu þessi:
Detroif-Washington.....133-109
Indiana-76ers..........108-112
Boston-NY Knicks.........97-91
Minnesota-Seattle.......110-82
Dallas-Houston...........98-91
SA Spurs-Charlotte......129-95
Utah Jazz-LA Clippers .....120-101
Golden State-Portland..135-180
Leikur ísland geqn
USA og Bermuda í apríl?
Eins og greint hefur
verið frá í DV þá stend-
ur til að íslenska
landsliðiö í knatt-
spymu haldi í æfmga- og keppn-
isferð til Bandaríkjanna í april.
Bandarikjamenn hafa boðið ís-
lenska liðinu að kostnaðalausu
til ferðarinnar og nú hefur verið
ráðgert að íslenska landsliðið
leiki gegn því bandaríska í St.
Louis þann 8. aprll, en eins og
kunnugt er þá leika Bandaríkja-
menn í úrslitum HM á Ítalíu í
sumar. Þá hefur veriö rætt um
að leika í sömu ferð landsleik
gegn Bermuda en rúm 25 ár eru
liðin síðan þjóðimar léku á Laug-
ardalsvellinum í leik sem ísland
vann, 4-3.
Hugo Sanchez enn
á skotskónum
Mexíkanski leikmað-
urinn Hugo Sanchez
var enn á skotskónum
í fyrrakvöld þegar lið
hans Real Madrid gerði jafntefli
við Valencia á útivelli, 1-1, í 1.
deild spænsku knattspymunar.
Sanchez náði forystunni fyrir
Real Madrid á 65. mínútu, hans
24 mark á tímabilinu, en tveimur
mínútum síðar jafnaöi Velencia
metin. Barcelona náöi ekki að
leggja Real Oviedo að velli ó
heimavelli sínum, leiknum lykt-
aði með markalausu jafntefli.
Atletico Madrid komst upp að
iilið Barcelona í annað sætið í
deildinni þegar liðið vami Malaga
á heimavelh sínum, 2-0. Þaö var
portúgalski landsliðsmaðurinn
Paulo Futre sem skoraði bæði
raörk Atletico Madrid. Eftir þessa
leiki heldur Real Madrid enn 5
stiga forskoti í spænsku 1. deild-
inni og víðist fátt ætla að koma í
veg fyrir að liðið endurheimti
spænska meistaratitilinn.
Lisa Martin vann
maraþonhlaupið
Hin 29 ára gamla Lisa
Martin frá Ástralíu
sigraði í gær í mara-
: þonhlaupi á samveld-
isleikunum í Auckland á Nýja-
Sjálandi, Martin, sera hafhaði í
öðra sæti á ólympíuleikunum í
Seol, haíði mikia yfirburði í
maraþonhlaupinu og hljóp nán-
ast ein um stræti Auckland, slíkir
vora yfirburðimir. Tími Lisu
Martin í lilaupinu var 2 klukku-
stundir 25 mínútur og 38 sekúnd-
ur.
Tveir frestaðir
leikir i kðrfunnf
Tveir leikir fara fram á
sunnudaginn i úrvals-
deildinni í körfuknatt-
leik. Þama er um að
ræða leiki sem frestað var fyrr i
vetur. Á Akureyri leika Þór og
Njarðvík og hefst leikurinn kl.
15.30 og í Keflavík leika heima-
menn gegn Tindastól og hefst við-
ureignm kl. 16.