Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1990, Síða 23
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1990.
31
p v Smáauglýsingar - Sími 27022
Bianca 2000 baðinnrétt. 30-40% afsl.
Poulsen, Suðurlandsbraut 10, sími
686499. Útsölustaðir: Málningarþjón-
ustan, Akranesi, Húsgagnaloftið,
ísafirði, og flest kaupfélög um land
allt. '
Kays ’90, sími 52866.
Nýjasta sumartískan á fjölskylduna,
yfir 1000 síður, búsáhöld, leikföng o.fl.
o.fl. Verð kr. 190 + bgj. B. Magnússon.
Sundlaugar í garðinn; við sumarbústað-
inn. Pantið tímanlega fyrir vorið.
Uppl. í s. 651533 síðd. og 52655 á kvöld-
in.
Ford E 350 ’84 tii sölu. Ford E 350 ’84,
6,9 dísil, Super Van, ekinn 90 þús.
mílur, lítur vel út og er x góðu standi,
verð 1200-1250 þús. Til sýnis og sölu
á Nýbýlavegi 32, Kópavogi, sími
91-45477.
■ Ymislegt
Honda Shadow 1100 árg. ’86 til sölu,
ekið 2500 mílur, verð 450 þús. Uppl. í
símum 91-35020 og 676789.
Afmæli i Gullsport. Láttu strákinn eða
stelpuna halda afmæli í Gullsport.
Þau bjóða vinum og félögum í stóra
sali, fara í borðtennis, billjard og pílu-
spil, leika fótbolta, handbolta eða það
sem við á. Þú losnar við allt amstur
heima hjá þér. Veitingar á staðnum.
Úppl. í síma 672270.
■ Líkamsrækt
■ BOar til sölu
Toyota Hilux pickup, árg. '82, 8 cyl. 305
með nitro, upphækkaður á 36" dekkj-
um, læstur að framan og aftan, lækkað
drif, flækjur, 4 hólfa tor. o.fl. o.fl. Til
sýnis og sölu á bílasölu Ragnars
Bjarnasonar, sími 673434.
Cadiliac Fleetwood Brougham ’85 til
sölu, ekinn 20 þús. mílur. Uppl. í síma
91-667153.
Citroen braggi ’84, ekinn 40 þús.,
verð 250 þús. Góð kjör. Uppl. í síma
91-77026 eftir kl. 19.
Eróbik fyrir hresst fóik á öllum aldri, á
mánudögum, miðvikudögum og laug-
ardögxmi. Kennari Sveinbjörg Sigurð-
ardóttir. Hresstu þig við í skammdeg-
inu og mættu í tíma. 12 tímar aðeins
3000 kr. Gufubað og tækjasalur á
staðnum líka. Uppl. í síma 672270.
Við notum Cosmolux-S perur sem
tryggja góðan lit á skömmum tíma.
Spennandi breytingar í vændum.
Kaupið kortin tímanlega. Gott verð.
Góð þjónusta.
ÞJÓÐRÁÐ
í HÁLKUNNI
Tjara á hjólböröum minnkar
veggrip þeirra verulega.
Ef þú skrúbbar eða úöar
þá með olíuhreinsiefni
(white spirit / terpentína)
stórbatna aksturs-
eiginleikar í hálku.
|| UMFERÐAR
Fréttir
Þórarinn V. Þórarinsson:
Ætlum að forðast
mistökin frá 1986
Félagslegar
íbúðabygging-
ar auknar
„Ég er mjög sáttur við niðurstöðu
þessara kjarasamninga. Þeir stefna
að meira jafnvægi en við höfum búið
við um langt skeið. Þrátt fyrir um-
talsverðan kostnaðarauka, sem felst
í samningunum, teljum viö að hann
geti staðist. Við metum það svo að
áhrif vaxtalækkana og hin jákvæðu
áhrif stöðugs verðlags til bættrar
stjórnunar geti borið uppi þennan
kostnað. Ég tel aö við séum að marka
fyrstu skref til uppgangs í þjóðfélag-
inu með því jafnvægi sem stefnt er
að með samningunum,” sagði Þórar-
inn V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambandsins, í
samtali við DV í nótt.
Þórarinn vildi ekki kalla þetta
tímamótasamninga. Hann sagði að
menn teldu sig oft hafa gert tíma-
mótasamninga sem svo hefði ekki
reynst rétt.
„En ef þessi samningur gengur
upp, sem við ætlum honum að gera,
þá reynir fyrst á það hvort gerðir
verði tímamótasamningar," sagði
Þórarinn.
Hann sagði að tímalengd samn-
ingsins, til 15. september á næsta
ári, væri miðuð við að árangur þess-
ara kjarasamninga væri örugglega
allur kominn fram.
„Það þarf tíma til að lifa við stöð-
ugt verðlag og njóta ávaxtanna af
því. Það mistókst 1986. Viö þessa
samningsgerð hefur verið byggt
mjög á reynslunni frá þeim samning- ast þau mistök sem þá urðu,“ sagði
um. Og við erum staðráðin í að forð- Þórarinn V. Þórarinsson. -S.dór
Félagsmálaráðherra lofaði aðilum
vinnumarkaðarins að skipuð yrði
nefnd með þátttöku samtaka laun-
þega sem vinna á áætlun um hvernig
auka megi framboð á félagslegu hús-
næði. Nefndin á að hafa lokið störf-
um 1. september næstkomandi.
Þetta atriði kom inn í samningavið-
ræðumar á síðasta stigi þeirra og var
af samningsaðilum tahð hið merk-
astamál.
-S.dór
í kjarasamningaviðræðum koma oft langar stundir þar sem ekkert gerist
í samningamálunum. Þá gera menn sér eitt og annað til dundurs. Sumir
tefla skák, aðrir spila á spil. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins, er mikill áhugamaður um iax- og silungsveiði
á flugustöng. Hann kom með tækin sín með sér og notaði dauðar stundir
í samningunum til að hnýta flugur. Hann er þarna með hluta af þeim flug-
um sem hann hnýtti síðustu dagana. DV-mynd KAE
Guðmundur J. Guðmundsson:
Hér hefur verið brotið í blað
„Já, ég er ánægður með þessa
samninga. Ég tel að það hafi verið
brotið í blað með gerð þessara samn-
inga. Með þeim er gert sameiginlegt
áhlaup á veröbólguna í landinu og
vaxtaokrið sem henni hefur fylgt.
Þaö liggur fyrir að ef þetta hefði ekki
verið stöðvað, jafnvel þótt engar
kauphækkanir hefðu átt sér stað,
hefði komið yfir okkur verulega
mögnuð verðbólga. Því hefði fylgt
vaxandi gjaldþrot fyrirtækja og ein-
staklinga, vaxandi atvinnuleysi og
ótrúlegur fjöldi fólks hefði misst hús-
næði sitt,“ sagöi Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Verkamanna-
sambandsins, að lokinni undirskrift
samninga í nótt.
Hann sagðist hafa staðiö í kjara-
samningum í yfir 40 ár. Þetta væri
án nokkurs vafa merkilegasti kjara-
samningur sém hann hefði tekið þátt
í að móta. Sannkallaður tímamóta-
samningur.
Hanri benti á að samkomulagið við
bændur væri að sínum dómi mjög
merkilegt og ekki síður það að Al-
þýðusambandið mun nú skipa full-
trúa í sex-manna nefndina aftur.
Guðmundur sagðist aftur á móti
vilja benda á að til þess aö tilraunin
tækist, mætti enginn skerast úr leik.
Ef það gerðist, væri þessi kjarasamn-
ingur einskis virði. Ríkisstjórnin
yrði að standa við sitt og bankarnir
líka.
„Ef verslanir og kaupfélög nota
ekki vaxtalækkunina til lækkunar á,
verðlagi, verður að gera einhverjar
haröar ráðstafanir, því annars ná
samningarnir ekki tilgangi sínum,“
sagði Guðmundur J. Guðmundsson.
-S.dór
Rútubílstjórar um samnlnginn:
Breytir engu fyrir okkur
- segir Magnús Guömundsson, formaöur Sleipnis
„Þessir samningar eru sjálfsagt
góðir þó að þeir henti okkur ekkert.
Það stendur sem áður að við þurfum
að fá töluverðar grunnlaunabætur
áður en hægt er að tala um þetta sem
felst í samningnum,” sagði Magnús
Guðmundsson, formaður bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis þegar hann
var spurður hvort samningarnir,
sem undirritaðir voru í nótt, breyttu
einhverju varöandi stöðu þeirra.
Magnús sagði að kröfur þeirra
stæðu óbreyttar en hann sagðist
vona að sáttasemjari kaUaði deiluað-
ila á fund í dag. Félagið hefur boöað
fimm daga verkfall 10. febrúar.
-SMJ