Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1990, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áj skrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1990.
PáU Halldórsson:
Höldum fast í
okkar samning
„Auðvitað höldum við fast viö okk-
~"far samning. Það er engin spurning,"
sagði Páll Halldórsson, formaður
Bandalags háskólamanna hjá ríkinu.
Samkvæmt samningum þeirra þá
fá háskólamenn 1,5 prósent launa-
hækkun 1. maí og síðan þær hækk-
anir sem koma út úr samanburði á
kjörum háskólamanna hjá ríkinu og
á hinum frjálsa vinnumarkaði. Ör-
uggt er aö sá samanburður gefur
háskólamönnum hjá ríkinu launa-
hækkanir sem eru mun hærri en
Alþýðusambandið samdi um í nótt.
Forsvarsmenn Alþýðusambandsins
og vinnuveitenda hafa beint þeim til-
mælum til háskólamanna að þeir
falli frá hækkunum umfram samn-
inginn frá í nótt.
„Menn verða aö skilja að þegar
þeir gera kjarasamninga þá eru þeir
í umboði einhvers hóps. Þeir taka sér
ekkert víötækari völd. Okkar samn-
ingur er gerður í umboði okkar fólks
og gildir fyrir það. Þó aö það sé gerð-
ur samningur úti í bæ af öðrum hóp-
um, þó fjölmennir séu, þá takmarkar
það ekkert samningsrétt annarra
hópa, “ sagði Páll. -gse
Samningar ASÍ:
.Kosið um helgina
Samningur BSRB og ríMsins lá fyrir í morgun:
Hvert félag með
atkvæðagreiðslu
„Mér finnst þetta merkilegir í prentun hafði ekki veriö skrifað eru ákvæði um ýmis réttindamál.
samningar fyrir margra hluta sak- undir en búist við að það yrðí gert Ögmundur Jónasson benti sér-
ir. í rauninni væri nær að kalla undir hádegi þar sem samningur- staklega á raunvaxtayfirlýsingu
þetta þjóöfélagslega tilraun sem inn hafði fengið jákvæðar undir- ríkisstjórnarinnar. Þar segir að
allt samSfélagið virðist ætla aö sam- tektir f aðildarfélögunum. ríkisstjórnin skipi starfshóp til að
einast um, að keyra niður verð- tryggja að vaxtalækkanir til sam-
bólgu og vexti og tryggja kaupmátt Samningur þessi er á sömu nót- ræmis við hjaðnandi verðbólgu fái
launa. Við viidum að sjálfsögðu að um og samningur sá er undirritað- staðist til frambúðar. Þannig verði
kaupmáttur launa væri miklu ur var hjá sáttasemjara í nótt. lagður grunnur að frekari lækkun
meiri en fólk hefur lagst á eitt um Samningurinn gildir til 30. sept- raunvaxta. Þá er ríkisstjórnin
að reyna vikka þann ramma sem ember. Á þeim tíma hækka laun reiðubúin aö stíga ný skref til
skapaður hefur veriö og ég tel þá um9,5prósent; l,5prósentl.febrú- lækkunar raunvaxta á spariskír-
miklu samstöðu mikils um verða ar og 1. júní, 2 prósent 1. desemb- teinum ríkissjóðs og skapa skilyrði
sem skapast hefur meðal islensks er, 2,5 prósent 1. mars 1991 og 2 fyrir lægri raunvöxtum i banka-
launafólks,“ sagði Ögmundur Jón- prósent 1. júní 1991. kerfinu.
asson, formaður BSRB, í samtali í samningnum er gert ráð fyrir Ögmundur sagðist búast við að
við DV í morgun. lagabreytingu sem tryggir réttindi atkvæðagreiðsla um samninginn
Kjarasamningur milli rikisins og lausráðinna ríkisstarfsraanna. Þá færi fram í hverju aðildarfélagi
Reykjavíkurborgar annars vegar er samið um sumarorlofsuppbót BSRB fyrir sig en ekki sameigin-
og aðildarfélaga BSRB hins vegar sem einnig nær til ellilífeyrisþega, legafyriröllfélögin.
lá fyrir í morgun. Þegar blaöið fór en það gerði hún ekki í fyrra. Þá -hlh
Stjórnir flestra verkalýðsfélaga
munu koma saman í dag til að
ákveða hvenær atkvæðagreiðsla um
samningana fer fram. Búist er við
að mörg félög, þar á meðal Dags-
brún, muni halda félagsfundi strax
um helgina og afgreiða samningana.
Hugmyndir um heildaratkvæöa-
greiðslu innan Alþýðusambandsins,
sem fram komu á samningsfundum,
náðu ekki fram að ganga. Hugmynd-
in á bak við hana var að minnka lík-
ur á að einstök félög höfnuðu samn-
ingnum. -gse
„Gamla myndin“
*■ á lágu verði
Eitt frægasta málverk á íslandi í
seinni tíð, myndin af Ara Magnús-
syni og Kristínu Guðbrandsdóttur,
var selt á uppboði á Hótel Sögu í
gærkvöldi á 400.000 krónur, en ofan
á þá upphæð leggst 10% gjald í höf-
undasjóð.
Áður en aldursgreining var gerð
var álitið að málverkið gæti veriö um
400 ára gamalt. Höfðu uppboðshald-
arar gert sér vonir um að fá nokkrar
milljónir eöa „geirfuglsverð" fyrir
myndina. Aldursgreining leiddi hins
vegar í ljós að málverkið gæti hugs-
anlega veriö eftirmynd frá 19. öld. Á
þessari stundu er ekki vitað hverjir Fimm tonnum af iaxi hefur verið slátrað hjá Stjörnulaxi hf. á Fáskrúðsfirði. Þetta er fyrsta meiriháttar laxaslátrunin
keyptu málverkiö en á uppboðinu hjá fyrirtækinu. Laxinn, sem var 1,8-4,1 kg að þyngd, hefur verið um 18 mánuði i sjóeldi og hefur það gengið
voru getgátur uppi um að eigendur ágætlega, að sögn Vals Þórarinssonar hjá Stjörnulaxi. Laxinn var fluttur með vöruflutningabifreið frá Fáskrúðsfirði
hefðusjálfirleystþaðtilsín. -ai til Kefiavíkurflugvallar þaðan sem hann fór með flugvél á markað í Ameríku. DV-mynd Ægir
Spánverji
rændur í
laugunum
Aleigu ungs Spánverja var stolið í
sundlaugunum í Laugardal í gær.
Maðurinn hafði brugðið sér í sund
og skilið föt sín og veski eftir í læstum
skáp. Þegar hann kom til baka var
búiö að opna skájpinn með lykli og
fjarlægja veskið. I því voru rúmlega
70 þúsund krónur, sem eru aleiga
mannsins sem stundar nám hér við
Háskóla íslands.
Sundlaugamar í Laugardal taka
enga ábyrgö á fjármunum og er það
auglýst á skiltum í afgreiöslu á þrem-
ur tungumálum. Að sögn starfsfólks
í Laugardal kemur iðulega fyrir að
fariö er í skápa sundgesta. Fleiri en
einn lykill gengur að hverjum skáp.
Að sögn lögreglunnar koma fá mál
af þessu tagi til kasta lögreglunnar á
ári hverju. -Pá
Bifrejðaskattar
dregiíir til baka
í samkomulagi ríkisstjórnarinnar
við aðila vinnumarkaðarins er meðal
annars gert ráð fyrir að hætt verði
viö fyrirhugaða skatta og gjaldskrár-
hækkanir opinberra' fyrirtækja og
með þeim hætti náð 0,3 prósent lækk-
un framfærsluvísitölunnar. Til að ná
þeim árangri þarf að verja um 300
milljónum.
Enn er óljóst með hvaða hætti þetta
verður gert. Rætt er um að hætta við
hækkun á bensín- og bifreiðagjaldi.
Þá er ráðgert að knýja fram lækkun
á gjaldskrám Pósts og síma og ann-
arra opinberra fyrirtækja. Þessi
lækkun á að verða umfram þá lækk-
un sem hlýst af minni verðbólgu
vegna lítilla launahækkana.
-gse
Bláfjöll:
Allar lyftur í
gang um helgina
Á morgun má búast við aö allar
lyftur á Bláfiallasvæðinu verði
komnar í notkun. Er það í fyrsta
skipti í vetur. í óveðrinu sem gekk
yfir Suðvesturlandið í byrjun janúar
urðu skemmdir á stólum og raf-
búnaði. Veður hefur hamlað að hægt
væri að ljúka viðgerðum, en að sögn
starfsmanns í Bláfiöllum eru allar
lyftur komnar í lag.
í dag verða lyftur opnar í Bláfiölll-
um frá kl. 10-18 og á sama tíma á
morgun og sunnudag. Spáð er hægri
norðaustanátt á morgun og að hluta
til björtu. Þaö má því búast við að
fiöldi manns leggi leið sína í Bláfiöll.
-HK
LOKI
Verða þetta þá kallaðir
valdaránssamningarnir?
Veðrið á morgun:
Hæg norð-
austanátt
Á morgun verður fremur hæg
norðaustanátt, él um norðanvert
landið en úrkomulaust í öðrum
landshlutum. Fremur bjart á suð-
vesturhorninu og ætti þar að
viðra vel fyrir skíðafólk. Hitinn
verður undir frostmarki, 1-4 stig
við ströndina en aðeins meira inn
til landsins.
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
40 ára afmælí
0PIÐ HÚS Í DAG. - KOMIÐ 0G
FÁIÐ YKKUR VEITIIMGAR.
^■iÞjóðar ■■■
SALIN
býr í Rás 2.
Nýtt númer:
68 60 90
FM 90,1 - útvarp meðsál.