Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1990, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1990, Síða 9
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1990 9 Urval - verdid hefur lækkað en gæðin halda sér Úrval tímarit fyrir alla F,ug er frarTltlðin Lærið að fljúga hjá fuHkomnum flugskóla. * Bjóðum kennslu til einka- og atvinnuflug- mannsprófs. * Fullkomin 2 hreyfla flugvél til blindflugs- kennslu. + Flughermir. Greiðsluskilmálar og fyrirgreiðsla. I Gamla Flugturninum Reykjavíkurflugvelli 101 Reykjavik Siml 91-28122 Kl. 651174-0239 k0tARHOlTI M s/M; 4^ MEIRI HÁTTAR SKEMMTISTAÐUR ÞJÓÐBJÖRG _ OG DODDI 4 PÓ^CAfÉ Föstudags- og laugardagskvöld Reykvíkingar og aórir landsmenn, útvegum gistingu á sérkjörum. BORÐAPANTANIR í SÍMUM 23333 og 29099 ÞAR SEM FJÖRIÐ ER MEST SKEMMTIR EÓLKID SÉR BEST 15. febrúar 1990 BREYTING Á REGLUGERÐUM Læknaþjónusta Greiðslur hjá heimilislækni og heilsugæslulækni. 0 kr. - Fyrir viðtal á stofu læknis á dagvinnu- tíma þ.e. á milli kl 0800 og 1700. Inni- falin er ritun lyfseðils. 500 kr. - Fyrir viðtal á stofu læknis utan dag- vinnutíma og á helgidögum. Innifalin er ritun lyfseðils. 400 kr. - Fyrir vitjun læknis til sjúklings á dag- vinnutíma. 1000 kr. - Fyrir vitjun læknis til sjúklings utan dagvinnutíma. Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp og komur á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúss. 900 kr. - Fyrir hverja komu til sérfræðings, á göngudeild, slysadeild og bráðamót- töku sjúkrahúss. 300 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja komu til sérfræðings, á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku sjúkra- húss. Greiðslur fyrir rannsóknir og röntgengreiningu. 300 kr. - Fyrir hverja komu. 100 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja komu. Elli- og örorkulífeyrisþegar skulu aldrei greiða samanlagt hærri fjár- hæð en kr. 3000 á einu almanaksári fyrir sérfræðilæknishjálp, komu á göngudeild, slysadeild, bráðamót- töku sjúkrahúss, rannsóknir og röntgengreiningu. Allir eiga að fá kvittanir fyrir þessum greiðslum. Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir. Innifalinn í greiðslu er kostnaður vegna hvers kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar. Lyíjakostnaður Greiðslur fyrir lyf. 550 kr. - Fyrir lyf af bestukaupalista. 170 kr. - Elli- og örorkul ífeyrisþegar fyrir hverja lyfjaafgreiðslu af bestukaupalista. 750 kr. - Fyrir önnur lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum. 230 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir önnur lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum. Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfja- skammt, eða brot úr honum. Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis í lyfja- búð fást ókeypis ákveðin lyf, við tilteknum langvarandi sjúkdómum. Læknar gefa vottorð til Tryggingastofnunar ríkisins í þeimtilvikum, sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi. SKÝRINGAR Á FRAMKVÆMD REGLUGERÐAR NR. 62/1990 UM GREIÐSLUÞÁTTTÖKU SJÚKRATRYGGÐRA í LÆKNISHJÁLP O.FL. Koma til heimilis- eða heilsugæslulæknis Koma til heimilis- eða heilsugæslulæknis á dagvinnutíma er sjúkl- ingi ætíð að kostnaðarlausu. Það skiptir ekki máli hvort um er að ræða bráðakomu eða komu skv. tímapöntun. Vegna komu til heimilis- eða heilsugæslulæknis utan dagvinnu- tíma greiðir sjúklingur kr. 500 nema læknir hafi beinlínis sjálfur ákveðið að sinna læknisstarfinu utan dagvinnutíma. Koma á slysavarðstofu Sjúklingur greiðir kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkuIífeyrisþega) vegna komunnar. Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rannsóknarstofu ef um það er að ræða. Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) í hverri komu. Sjúklingur greiðir fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rann- sóknastofu heilsugæslustöðvar (ef sérstakur starfsmaður sér um rannsóknastofuna). Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkul ífeyrisþega) í hverri komu. Koma til sérfræðings Fyrir komu til sérfræðings og endurteknar komur til sérfræðinga greiðir sjúklingur í hvert skipti kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkulíf- eyrisþega). Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rannsóknastofu ef um það er að ræða. Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkullfeyrisþega) í hverri komu. Fari sjúklingur í aðgerð og svæfingu greiðir hann aðgerðarlækni kr. 900 og svæfingalækni kr. 900 (kr. 300 + 300 fyrir elli- og örorkulíf- eyrisþega). Rannsóknir á rannsóknarstofu Sjúklingur greiðir kr. 300 (elli og örorkulífeyrisþegar kr. 100) fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknastofu heilsugæslustöðvar, sjúkrahúss eða annarrar stofnunar. Þótt hluti rannsóknarsýnis sé sendur annað til rannsóknar greiðir sjúklingur ekki viðbótargjald vegna þess. Sendandi sýnis skal gera grein fyrir því á rannsóknar- beiðni hvort sjúklingur sé þegar búinn að greiða vegna rannsókn- ar, sem fram fór á sýnistökustað. Röntgengreining Vegna hverrar komu til röntgengreiningar, á heilsugæslustöð eða annars staðar, skulu sjúklingar greiða kr. 300 (kr. 100 fyrir elli- og örorkulífeyrisþega). Ekki skiptirmáli hvaðan sjúklingur kemur, þ.e. frá heilsugæslulækni, heimilislækni eða sérfræðingi. Hvers kyns önnur innheimta hjá sjúklingum en að framan greinir, þ.m.t. vegnaeinnota vara, umbúðao.þ.h., eróleyfileg. HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.